Tómstundir
Mikilvægt er að hver og einn finni frístundastarf við sitt hæfi og að sem flestir geti tekið þátt í einhvers konar félags- og tómstundastarfi.
Hverju hefur þú mestan áhuga á?
Myndlist? Tónlist? Danslist? Leiklist? Kórastarfi? Skák? Íþróttum? Trúarlegu starfi? Skátum? ...
Þú skalt endilega spyrjast fyrir um hvað er í boði í nágrenni þínu. Mamma og pabbi eða kennarinn þinn geta örugglega hjálpað þér að finna út hvað hentar þér best. Yfirleitt geta sveitarfélögin (borgin eða bærinn) veitt upplýsingar um það sem er í boði á svæðinu. Sum sveitarfélög eru t.d. með sérstakar heimasíður þar sem er að finna upplýsingar um íþróttir, listir og aðrar tómstundir.
Íþróttaiðkun felur að sjálfsögðu fyrst og fremst í sér áherslu á hreyfingu, fimi og heilbrigt líferni en auk þess þjálfun í samvinnu og skipulagningu. Á heimasíðum ÍSÍ og UMFÍ er hægt að nálgast upplýsingar um ýmsar íþróttagreinar, íþróttafélögin og íþróttasamböndin.
Flestum börnum finnst gaman að skapa og njóta lista og menningar. Ýmsir skólar og námskeið á sviði myndlistar, tónlistar, danslistar og leiklistar standa börnum og unglingum til boða út um allt land. Þá starfa oft kórar, hljómsveitir, leikfélög og kvikmyndaklúbbar innan skólanna og félagsmiðstöðvanna. Best er að fá upplýsingar um hvað er í boði á þínu svæði hjá skólanum eða sveitarfélaginu/bænum/hverfismiðstöðinni.
Í skátunum er miðað að því að þroska börn til að verða sjálfstæðir, virkir og ábyrgir einstaklingar í samfélaginu. Mikil áhersla er lögð á útilíf, alþjóðasamstarf og ýmsa þjálfun í hagnýtum störfum. Starfsemi skátafélaga nær til barna og unglinga á aldrinum 7-18 ára og felst aðallega í vikulegum samkomum, dagsferðum, helgarútilegum, skátamótum o.s.frv.
Margs konar starfsemi fer fram á vegum trúarlegra samtaka og safnaða og má nefna sem dæmi sumarbúðir, leikjanámskeið, vikulega fundi og fræðslu, fermingarstarf, kórastarf, sunnudagaskóla og æskulýðsfélög.





