Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga




    Teiknimynd af krökkum

     

     
     
     
     
     
     
     

    Tölvur og GSM

    Tölvuleikir
    Netið og GSM
    Mikilvægt að hafa í huga

    Allt er gott í hófi

     

    Tölvuleikir
    Umboðsmaður barna mælir með að börn og unglingar taki fullt mark á PEGI-merkingum tölvuleikja. PEGI-merkingarnar segja til um hvaða aldri tölvuleikurinn hentar og hvort tölvuleikurinn inniheldur ofbeldi, ljótt orðbragð eða annað sem ekki er við hæfi yngri barna en aldursmerkingin segir til um.

    Netið og GSM
    Á Netinu má finna ýmislegt sem er skemmtileg og fróðlegt. En því miður er líka á netinu síður með efni sem ekki er við hæfi barna. Svo eru líka sumir sem nota netið og GSM-síma til að tala illa um aðra, hóta og hræða.  Það getur verið mjög slæmt fyrir börn ef þau sjá og heyra ýmsa hluti og þess vegna er mikilvægt að hafa foreldra eða einhvern fullorðinn hjá sér þegar maður er á netinu. Fullorðna fólkið á að hjálpa krökkum að fara varlega á netinu og finna það efni sem er gott og gagnlegt fyrir börnin. 

    Mikilvægt að hafa í huga

    • Því sem er skrifað á netið, t.d. á bloggsíður, hafa allir aðgang að; foreldrar, ömmur, afar, kennarar o.fl.  
    • Efni og myndir sem sett er á netið getur hver sem er skoðað og tekið afrit af og geymt eða sent áfram, jafnvel löngu seinna. 
    • Það eru ekki allir það sem þeir segjast vera á netinu.
    • Við höfum rétt til að tjá okkur og segja hvað okkur finnst EN við vitum að við megum ekki segja hvað sem er um hvern sem er.

    Hér er gátlisti SAFT, birtur með leyfi Heimilis og skóla:

    • Ég veiti aldrei persónulegar upplýsingar á spjallrás.
    • Ég segi fullorðnum frá ef ég finn eitthvað ógeðslegt á Netinu.
    • Ég haga mér alltaf á Netinu eins og ég vil láta koma fram við mig.
    • Ég móðga engan á Netinu, jafnvel ekki í gríni. Kannski skilur fólk það ekki þannig.
    • Ég skemmti mér alltaf á Netinu og man að netheimurinn er ekki raunverulegur.
    • Ég segi öðrum frá reynslu minni á Netinu.
    • Ég sannreyni alltaf efni sem ég finn á Netinu.
    • Ég bið foreldra/forráðamenn um leyfi áður en ég kaupi eitthvað á Netinu.
    • Ég tek mér reglulega hlé frá Netinu.
    • Ég bið ekki aðra um persónulegar upplýsingar.
    • Ég hef ekki áhuga á efni fyrir fullorðna. Það er fyrir eldra fólk.
    • Afritun af Netinu er hugsanlega ólögleg. Ég bið alltaf eiganda vefsíðu um leyfi til að nota efni af Netinu.
    • Ég afrita aldrei efni í stórum stíl af Netinu fyrir heimaverkefnin mín.  Það er svindl.
    • Ef einhver sendir mér tölvupóst sem mér líkar illa sendi ég hann aldrei áfram á aðra.

    Allt er gott í hófi

    • Mikilli tölvunotkun fylgja langar kyrrsetur, sem ekki eru taldar heppilegar fyrir vaxandi fólk.
    • Allir ættu að geta fengið frið fyrir símanum stöku sinnum. 
    • Tengsl eru á milli ofbeldis í sjónvarpi, bíómyndum og tölvuleikjum og slæmrar hegðunar barna og unglinga.
    • Gott er að hafa önnur áhugamál fyrir utan tölvuna, eins og t.d. íþróttir, tónlist og félagsstarf. Nánar um tómstundir. 








    Mynd af krökkum

    Umboðsmaður barna...

    ... vinnur að hagsmunamálum barna almennt séð en ekki að málum einstakra barna
     
    ... leiðbeinir og gefur ráð hvert börn geta leitað til að ná fram rétti sínum
     
    ... kemur með ábendingar og tillögur til úrbóta sem snerta hag barna á öllum sviðum samfélagsins
     
    ... vill fá að vita hvað börn eru að hugsa og hvað þeim finnst um ýmsa hluti sem snerta þau og nánasta umhverfi þeirra