Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga




    Teiknimynd af krökkum

    Hver ræður hverju?

    Yfirstjórn
    Leikskólar
    Grunnskólar
    Upplýsingar og ábendingar

     

    Yfirstjórn
    Menntamálaráuneytið fer með yfirstjórn mennta-, æskulýðs- og menningarmála á Íslandi.  Í ráðuneytinu eru m.a. samin lög um leikskóla, lög um grunnskóla og lög um framhaldsskóla. Lögin fara svo fyrir Alþingi og eru að lokum samþykkt þar af þingmönnum stundum eftir einhverjar breytingar í meðförum þingsins. Svo eru samdar ýmsar reglugerðir á grundvelli laganna þar sem ákvæði laganna eru útfærð nánar. Menntamálaráðherra fer með yfirstjórn ráðuneytisins og ber ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum þess.  Menntamálaráðuneytið gefur út aðalnámskrár sem allir skólar verða að fara eftir.

    Leikskólar 
    Fólkið sem við kjósum til að sitja í sveitarstjórnum (bæjarstjórn eða borgarstjórn) ræður hvort sveitarfélagið (bærinn eða borgin) býður íbúum sínum upp á leikskóla og þá hvernig leikskóla. Ef ákveðið er að bjóða upp á leikskóla verða þeir að starfa eftir lögum um leikskóla. Leikskólastjóri er æðsti yfirmaður hvers leikskóla.  Næsta stig er skólaskrifstofan í sveitarfélaginu (Menntasvið í Reykjavík). Æðstu ábyrgð í sveitarfélaginu ber svo skólanefnd sveitarfélagsins (Menntaráð í Reykjavík) sem starfar í umboði sveitarstjórnar (bæjarstjórnar eða borgarstjórnar eftir því sem við á).

    Grunnskólar
    Sveitarfélögin eiga að halda skóla fyrir öll börn og unglinga á aldrinum 6 -16 ára eins og lög um grunnskóla segja til um. Allur rekstur almennra grunnskóla er á ábyrgð og kostnað sveitarfélaga og hafa sveitarfélögin nokkuð frelsi til að ráða sjálf hvernig þau skipuleggja kennslu og skólastarf.  Skólastjóri er æðsti yfirmaður í hverjum skóla. Næsta stjórnsýslustig er skólaskrifstofan í sveitarfélaginu (Menntasvið í Reykjavík). Æðstu ábyrgð í sveitarfélaginu ber svo pólitískt kjörin skólanefnd sveitarfélagsins (Menntaráð í Reykjavík) sem starfar í umboði sveitarstjórnar (bæjarstjórnar eða borgarstjórnar eftir því sem við á).

    Upplýsingar og ábendingar
    Ef þig vantar almennar upplýsingar um grunnskóla, eða hefur ábendingar um eitthvað sem betur mætti fara í skólanum þínum, ættirðu að ræða um það, t.d. við umsjónarkennarann þinn, námsráðgjafann eða skólastjórann. Þú getur líka skrifað skólanefndinni í sveitarfélagi þínu bréf til að koma skoðunum þínum á framfæri. Flestir grunnskólar eru með heimasíðu þar sem hægt er að nálgast ýmsar upplýsingar varðandi skólastarf.









    Mynd af krökkum

    Umboðsmaður barna...

    ... vinnur að hagsmunamálum barna almennt séð en ekki að málum einstakra barna
     
    ... leiðbeinir og gefur ráð hvert börn geta leitað til að ná fram rétti sínum
     
    ... kemur með ábendingar og tillögur til úrbóta sem snerta hag barna á öllum sviðum samfélagsins
     
    ... vill fá að vita hvað börn eru að hugsa og hvað þeim finnst um ýmsa hluti sem snerta þau og nánasta umhverfi þeirra