Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga




    Teiknimynd af krökkum

    Einelti

    Hvað er einelti? 
    Hvernig líður þolendum eineltis?
    Hvað á að gera?

    Hvað er einelti?
    Einelti er ofbeldi. Það er kallað einelti þegar barn eða hópur af börnum stríða eða meiða annað barn aftur og aftur.  Það getur t.d. verið:

    • Barni er strítt.

    • Barn er skilið útundan.

    • Ljót orð eru sögð við barn eða hlegið að því.

    • Aðrir tala illa um barnið eða hvíslast á um það.

    • Hlutir sem barnið á (t.d. skóladót) eru teknir frá því.

    • Barnið er lamið, klórað, sparkað er í það eða því er hrint.

    • Barninu er hótað þannig að það verður að gera eitthvað sem það vill alls ekki gera.

    Þegar talað er um einelti er greinilega munur á persónulegum og/eða líkamlegum styrk barnanna OG yfirleitt er talað um hluti sem gerast aftur og aftur.  Það kemur líka fyrir að fullorðnir leggi börn í einelti. 

    Sá sem verður fyrir eineltinu (ofbeldinu) er kallaður þolandi og sá eða þeir sem beita eineltinu (ofbeldinu) eru kallaðir gerendur.

    Hvernig líður þolendum eineltis? 
    Barni, sem lagt er í einelti, líður illa. Það verður einmanna og hrætt. Stundum segja börn ekki frá því heldur skammast sín og kenna jafnvel sjálfum sér um og finnst eitthvað vera að sér. Þess vegna er mjög mikilvægt að allir þekki einkenni eineltis. Hugsanlega er um einelti að ræða ef barn:

    • Kvartar undan vanlíðan (t.d. magaverk eða höfuðverk) á morgnana.

    • Vill ekki fara í skólann, er hrætt við að ganga eitt í skólann eða heim .

    • Kemur heim í öllum hléum í skólanum.

    • Hættir að sinna náminu eins vel og áður.

    • Fer að koma heim með rifin föt og skemmdar námsbækur.

    • Er með marbletti eða skrámur sem það getur ekki útskýrt.

    • Leikur sér ekki við önnur börn.

    • Vill ekki taka þátt í félagsstörfum í skólanum (eins og t.d. bekkjarkvöldum og skemmtunum). 

    • Fer að ráðast á aðra.

    • Byrjar að stama.

    • Missir sjálfstraustið.

    Það er staðreynd að einelti getur komið upp í öllum skólum, alveg sama hversu stórir þeir eru eða hvar á landinu þeir eru. Best er að allir nemendurnir þekki einelti og hversu vont það er fyrir barn að verða fyrir því. Þá geta nemendur staðið saman um að vera á móti einelti og unnið með starfsfólki skólans í baráttunni gegn einelti. Allir skólar eiga að vinna eftir sérstakri áætlun gegn einelti. 

    Nokkuð hefur borið á því að börn noti Netið (t.d. bloggsíður eða MSN) og GSM-síma til að leggja önnur börn í einelti. Þegar það gerist er best að ræða málin fyrst við foreldra sína og e.t.v. líka við umsjónarkennara eða námsráðgjafa í skólanum. 

    Hvað á að gera? 
    Einelti kemur öllum við. Ef þú, vinur þinn eða einhver sem þú þekkir er lagður í einelti eða leggur aðra í einelti er mjög mikilvægt að láta foreldra eða starfsfólk skólans vita. Hér eru þeir helstu sem geta hjálpað:

    Hjálparsími Rauða krossins 1717
    Þessi sími er opinn öllum þeim sem líður illa eða finnst lítill tilgangur með lífinu. 

    Kirkjan
    Mörgum finnst gott að tala við sóknarprestinn sinn um viðkvæm og persónuleg mál, enda eru prestar  bundnir trúnaði.

    Olweusarverkefnið gegn einelti
    Framkvæmdastjóri Olwesuarverkefnisins á Íslandi er Þorlákur H. Helgason. Hægt er að hafa samband við Þorlák í síma 894-2098 eða á netfangið
    thorlakur@khi.is.  Þorlákur veitir ráðgjöf þeim sem til hans leita vegna eineltismála í grunnskólum.  Heimasíðan er www.olweus.is.  

    Skólaskrifstofa sveitarfélagsins
    Á skólaskrifstofu sveitarfélagsins (Menntasviði í Reykjavík) starfa sérfræðingar sem veita skólunum og nemendum þeirra faglegan stuðning.

    Starfsfólk skólans
    Ef um er að ræða einelti í skólanum er nauðsynlegt að umsjónarkennari viti af því til að hægt sé að bregðast við því.  Grunnskólanemar eiga að geta leitað til umsjónarkennara, námsráðgjafa og skólahjúkrunarfræðings með trúnaðarmál.

    Starfsfólk félagsmiðstöðvar
    Ef eineltið á sér stað í félagsmiðstöð er mikilvægt að starfsfólk sé látið vita.  Starfsfólkið á að hafa þekkingu og reynslu til að taka á málinu og leiðbeina. 

    Starfsfólk félags eða stofnunar
    Ef eineltið á sér stað í íþrótta- eða tómstundastarfi er mikilvægt að starfsfólk sé látið vita.  Starfsfólkið, eða a.m.k. forstöðufólk, ætti að geta tekið á eineltinu og leiðbeint um viðeigandi aðgerðir.

    Tótalráðgjöfin
    Tótalráðgjörin er ætluð ungu fólki sem vantar aðstoð og ráðgjöf fagfólks til að leysa úr alls kyns vandamálum.  Hægt er að hringja í síma 520-4600, koma (í Hitt húsið, Pósthússtræti í Reykjavík) eða senda tölvupóst.  Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni
    www.totalradgjof.is.

    Regnbogabörn
    Regnbogabörn eru fjöldasamtök áhugafólks um eineltismál.  Hjá samtökunum er hægt að fá viðtal og eftirfylgni vegna eineltismála.   Símanúmerið er 555-0862 og heimasíðan er www.regnbogaborn.is.









    Mynd af krökkum

    Umboðsmaður barna...

    ... vinnur að hagsmunamálum barna almennt séð en ekki að málum einstakra barna
     
    ... leiðbeinir og gefur ráð hvert börn geta leitað til að ná fram rétti sínum
     
    ... kemur með ábendingar og tillögur til úrbóta sem snerta hag barna á öllum sviðum samfélagsins
     
    ... vill fá að vita hvað börn eru að hugsa og hvað þeim finnst um ýmsa hluti sem snerta þau og nánasta umhverfi þeirra