
Aðstoð fyrir nemendur grunnskóla
Umsjónarkennarinn
Námsráðgjafinn
Hjúkrunarfræðingurinn
Starfsfólk félagsmiðstöðvarinnar
Trúnaður
Nemendaverndarráð

Umsjónarkennarinn
Umsjónarkennarar eiga að aðstoða nemendur sem eiga erfitt með að læra. Þeir eiga líka að hjálpa nemendum sínum að leysa úr persónulegum málum. Þeir geta einnig vísað nemendum á fagfólk innan skólans eins og t.d. hjúkrunarfræðinginn eða námsráðgjafann.
Námsráðgjafinn
Í grunnskólum eða á skólaskrifstofum starfa námsráðgjafar (eða sálfræðingar) sem geta hjálpað nemendum sem eiga í alls kyns erfiðleikum. Þeim sem gengur illa að læra, líður illa í skólanum eða heima hjá sér og þeir sem eiga erfitt með að eignast vini geta leitað til námsráðgjafans. Hann hjálpar líka krökkum með geðraskanir eða hegðunarraskanir og þeim sem eru fatlaðir. Námsráðgjafinn vinnur þá oft í samstarfi við aðra starfsmenn skólans, eins og t.d. sérkennara, stuðningsfulltrúa og sálfræðinga.
Hjúkrunarfræðingurinn
Hjúkrunarfræðingar starfa í grunnskólum. Hjúkrunarfræðingurinn hjálpar nemendum ef þeir meiða sig í skólanum, vantar plástur, lyf eða eitthvað slíkt. Skólahjúkrunarfræðingurinn getur t.d. aðstoðað nemendur með mál eins og vanlíðan, leiða, kvíða, verki, næringu, kynþroska, getnaðarvarnir og útlit.
Starfsfólk félagsmiðstöðvarinnar
Innan sumra skóla eða í nágrenni þeirra starfa félagsmiðstöðvar. Mörgum finnst mjög gott að ræða málið við starfsfólk þeirra og fá ráðgjöf og aðstoð.
Trúnaður
Allir ofangreindir starfsmenn eru bundnir trúnaði um persónuleg málefni nemenda. Það þýðir að þeir mega ekki tala um einkamál nemenda við aðra. Þeim, eins og öllum öðrum, er þó skylt að tilkynna barnaverndarnefnd ef barn býr við mjög slæmar aðstæður heima hjá sér eða er hættulegt sjálfu sér og öðrum.
Nemendaverndarráð
Í grunnskóla er heimilt að stofna nemendaverndarráð til að samræma störf þeirra sem sjá um málefni einstakra nemenda varðandi námsráðgjöf, sérfræðiþjónustu og heilsugæslu. Sjá reglugerð um nemendaverndarráð í grunnskólum.
