Sögur og ljóð
Ef ég skrifa ljóð,
þá verð ég hljóð.
Þá finnurðu þinn innri óm;
en þá vex á þig kló.
Höfundar eru 12 ára stúlkur
Blái puttinn
21.ágúst var leikur á Akureyri. Ég fór með Fríðu um morguninn til að versla. Svo var leikurinn hjá stóru stelpunum og þær unnu KA 3-2 og svo kom að okkur. Það var horn og KA stelpan skaut og ég fékk boltann beitnt framan á þumalinn og ég meiddi mig mikið hann bólgnaði mjög mikið....svo eftir hálf leik fór Vaka í mark og ég í vörn. En við töpuðum 4-0 en það var í lagi því að þessi leikur skipti eingu máli...og svo þegar að ég kom heim fór mamma með mig upp á spítala og ein hjúkka setti tegjubindi á mig og sagði að ég ætti að koma á morgun kl 11:00 í rönken myndatöku. Svo um morguninn fór ég kl 11:00 upp á spítala og lænirinn tók myndir af puttanum og hann vissi ekki alveg hvort að ég væri brotinnn eða ekki en ef ég væri ekki brotinn þá væri ég mjög illa tognuð...Svo daginn eftir var puttinn BLÁR!Og ég var sett í spelku.
Höfundur er 11 ára stelpa
Gott veður er í dag, fer í kirkju og bíð. spila eitt lag, og svo er liðin tíð.
9 ára stúlka
Ég á afa
sem drekkur safa.
Kannt þú að saga?
Eða tjalda úti í haga?
9 ára stúlka
Mosagræn náttúran falleg er,
sérstaklega fjöllin í heimi hér.
Um fjöll og firnindi ég rösklega fer,
sum fjöll eru gróin en önnur ber.
12 ára drengur
Fugl
Lítill fugl
ofsalega fallegur
settist á grein.
Hann er vinur minn
sem ég segi allt.
Spaug!
Viltu ekki ástin mín
hætta þessu væli.
Viltu ekki vera fín
annars nú ég æli
Maðurinn sem stökk
Maðurinn er að stökkva
því báturinn er að sökkva.
Maðurinn syndir í land
þó er hann ekki með band!
Draugurinn ógurlegi
Það var einu sinni draugur. En þetta var kannski ekki venjulegur draugur. Heldur var þetta hræðslu-draugur. En hann var samt engin hræðsla. Hann átti heima í draugakastala. Á hverri nóttu komu allir draugar þangað. Allir voru hræddir við þá því þeir ætluðu að búa til eplaát og eplablóð úr þeim.
Dag einn náðu þeir manni. Þeir búðu til eplablóð. Daginn eftir vöknuðu 3 strákar það var ripp, rapp og rupp. Þeir heyrðu í fréttunum að maður hafði týnst í draugahöll. Þeir vildu kanna þetta. Þeir pökkuðu niður í töskur og fóru að sofa. Þeir vöknuðu klukkan 7:00. Skelltu í sig morgunmatnum og lögðu af stað. Þeir komu að höllinni. Þeir voru hræddir og vissu ekki hver ætti að fara fyrstur inn. En svo sagði Ripp: "Eigum við ekki bara að fara saman?" Það gerðu þeir. Þeir bönkuðu á hurðina og þá kom kom svarti draugur til dyra og þeir vissu ekki hver þetta var. Þeir komust inn og fundu manninn og á leiðinni út sáu þeir svarta drauginn. Draugurinn ógurlegi hræddi þá alla leiðina heim til sín. Svo sögðu þeir öllum að þeir fóru inn í höllina og sáu drauga.
Höfundur: Ingibjörg Sóley
Prentvæn útgáfa