Jólakveðja
Umboðsmaður barna og starfsfólk hans senda öllum börnum og fjölskyldum þeirra sem og samstarfsaðilum embættisins bestu óskir um hamingjuríka jólahátíð og heillaríkt komandi ár.
Líkt og á síðasta ári sendir umboðsmaður ekki út jólakort en hefur þess í stað komið nokkrum gjöfum til barna fyrir undir jólatrénu í Kringlunni. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Hjálparstofnun kirkjunnar og Fjölskylduhjálp Íslands munu ráðstafa gjöfunum til þeirra sem eru hjálpar þurfi á jólunum.
Jólakveðjur,
Ingibjörg Rafnar
Sigríður Anna Ellerup,
Auður Kristín Árnadóttir og
Guðrún Þorbjörg Björnsdóttir