Upplýsingar um skóla og menntun
Grunnskólar
Ef þig vantar almennar upplýsingar um grunnskóla, eða hefur ábendingar um eitthvað sem betur mætti fara í skólanum þínum, ættirðu að ræða um það t.d. við umsjónarkennarann þinn, námsráðgjafann eða skólastjórann. Skólaráð er samráðsvettvangur skólastjórnenda og skólasamfélagsins. Nemendur eiga tvo fulltrúa sem sitja í skólaráði. Þessir nemendur eru tengiliðir allra hinna nemendanna við skólaráðið og þeir geta komið fyrirspurnum og tillögum til skólaráðsins. Þú getur líka skrifað skólanefndinni í sveitarfélagi þínu bréf til að leita upplýsinga eða koma skoðunum þínum á framfæri. Allir grunnskólar eru með heimasíðu þar sem hægt er að nálgast ýmsar upplýsingar varðandi skólastarf. Hér finnur þú alla grunnskóla landsins.
Framhaldsskólar
Ef þig vantar almennar upplýsingar um framhaldsskólann, eða hefur ábendingar um eitthvað sem betur mætti fara í skólanum þínum, ættirðu að ræða um það t.d. við umsjónarkennarann þinn, námsráðgjafann eða skólastjórann. Ef þú hefur spurningar varðandi framhaldsskóla, er ágætt að byrja að leita á heimasíðu viðkomandi skóla. Hér finnur þú alla framhaldsskóla landsins. Menntamálaráðuneytið fer með yfirstjórn allra framhaldsskóla landsins.
Hitt húsið
Hitt húsið er menningar- og upplýsingamiðstöð ungs fólks frá 16 ára. Þar er rekin sérstök upplýsingamiðstöð, þar sem hægt er að fá upplýsingar um flest það sem snýr að ungu fólki.
Menntagátt
Meginmarkmið menntamálaráðuneytisins með uppbyggingu Menntagáttar er að veita greiðan aðgang að upplýsingum um leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og tónlistarskóla.
Ný menntastefna
Allt um lög um leikskóla, lög um grunnskóla, lög um framhaldsskóla og lög um menntun og ráðningu kennara.
Skólavefurinn
Skólavefurinn er stærsti náms- og fræðsluvefur landsins.
Fjölsmiðjan
Fjölsmiðjan starfrækir verkþjálfunar- og framleiðslusetur fyrir ungt fólk, á aldrinum 16–24 ára, sem hætt hefur námi og ekki fótað sig á vinnumarkaði.
