Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga



Hver ræður hverju?

Yfirstjórn
Leikskólar
Grunnskólar
Framhaldsskólar
Upplýsingar og ábendingar 

Yfirstjórn
Menntamálaráuneytið fer með yfirstjórn mennta-, æskulýðs- og menningarmála á Íslandi. Í ráðuneytinu eru m.a. samin lög um leikskóla, lög um grunnskóla og lög um framhaldsskóla. Lögin fara svo fyrir Alþingi og eru að lokum samþykkt þar af þingmönnum stundum eftir einhverjar breytingar í meðförum þingsins. Svo eru samdar ýmsar reglugerðir á grundvelli laganna þar sem ákvæði laganna eru útfærð nánar. Menntamálaráðherra fer með yfirstjórn ráðuneytisins.  Menntamálaráðuneytið gefur út aðalnámskrár sem allir skólar verða að fara eftir.

Leikskólar
Fólkið sem er kosið til að sitja í sveitarstjórnum (bæjarstjórn eða borgarstjórn) ræður hvort sveitarfélagið (bærinn eða borgin) býður íbúum sínum upp á leikskóla og þá hvernig leikskóla. Ef ákveðið er að bjóða upp á leikskóla verða þeir að starfa eftir lögum um leikskóla. Leikskólastjóri er æðsti yfirmaður hvers leikskóla en í mörgum málum þarf hann að vinna í samvinnu við þá skrifstofu sveitarfélagsins sem fer með leikskólamálin (skóla- eða fræðslu-, fjölskyldu- eða félagsmálaskrifstofan eða Menntasvið í Reykjavík). Næsta stjórnsýslustig í sveitarfélaginu er svo pólitískt kjörin leikskólanefnd eða sú nefnd sveitarfélagsins sem fer með málefni leikskóla (skóla- eða fræðslu-, fjölskyldu- eða félagsmálanefnd eða Menntaráð í Reykjavík). Leikskólanefndin starfar í umboði sveitarstjórnar (bæjarstjórnar eða borgarstjórnar eftir því sem við á) sem er æðsta yfirvald sveitarfélagsins. Bæjarstjóri/sveitarstjóri/borgarstjóri starfar líka í umboði sveitarstjórnar.  Menntamálaráuneytið fer með yfirstjórn leikskólamála á landinu.

Grunnskólar
Sveitarfélögum er skylt að halda skóla fyrir öll börn og unglinga á aldrinum 6 til 16 ára í samræmi við lög um grunnskóla. Allur rekstur almennra grunnskóla er á ábyrgð og kostnað sveitarfélaga og hafa sveitarfélögin nokkuð svigrúm hvað varðar skipulag kennslu og skólastarfs. Skólastjóri er æðsti yfirmaður í hverjum skóla en í mörgum málum þarf hann að vinna í samvinnu við skólaskrifstofuna í sveitarfélaginu (Menntasvið í Reykjavík). Æðstu ábyrgð í sveitarfélaginu ber svo pólitískt kjörin skólanefnd sveitarfélagsins (Menntaráð í Reykjavík) sem starfar í umboði sveitarstjórnar (bæjarstjórnar eða borgarstjórnar eftir því sem við á). Bæjarstjóri/sveitarstjóri/borgarstjóri starfar líka í umboði sveitarstjórnar. Menntamálaráuneytið fer með yfirstjórn skólamála á landinu.

Framhaldsskólar
Hér er átt við fjölbrautaskóla, iðn- og verkmenntaskóla og menntaskóla, svo og skóla sem veita sérhæft nám á framhaldsskólastigi. Framhaldsskólar landsins starfa samkvæmt lögum um framhaldsskóla og eru þeir flestir ríkisreknir. Menntamálaráðherra fer með yfirstjórn þeirra mála sem lög um framhaldsskóla taka til og ber ábyrgð á aðalnámskrá, eftirliti með skólastarfi og námsefni, ráðgjöf um kennslu og þróunarstarf í framhaldsskólum og söfnun og dreifingu upplýsinga um skólastarf. Skólameistari eða rektor eftir því sem við á veitir framhaldsskólunum forstöðu.  Menntamálaráðherra skipar skólanefnd við hvern framhaldsskóla til fjögurra ára í senn til að fara með yfirstjórn framhaldsskólanna skv. reglugerð um skólanefndir við framhaldsskóla.

Upplýsingar og ábendingar
Ef þig vantar almennar upplýsingar um grunnskóla, eða hefur ábendingar um eitthvað sem betur mætti fara í skólanum þínum, ættir þú að ræða um það, t.d. við umsjónarkennarann þinn, námsráðgjafann eða skólastjórann. Þú getur líka skrifað skólanefndinni í sveitarfélaginu þínu bréf til að koma skoðunum þínum á framfæri. Flestir grunnskólar eru með heimasíðu þar sem hægt er að nálgast ýmsar upplýsingar varðandi skólastarf.







 

 
 
 
 


Mynd af unglingum við lærdóm

Umboðsmaður barna...

... vinnur að hagsmunamálum barna almennt séð en ekki að málum einstakra barna
 
... leiðbeinir og gefur ráð hvert börn geta leitað til að ná fram rétti sínum
 
... kemur með ábendingar og tillögur til úrbóta sem snerta hag barna á öllum sviðum samfélagsins
 
... vill fá að vita hvað börn eru að hugsa og hvað þeim finnst um ýmsa hluti sem snerta þau og nánasta umhverfi þeirra