Aðstoð í boði fyrir grunnskólanema
Umsjónarkennarinn
Námsráðgjafinn
Hjúkrunarfræðingurinn
Starfsfólk félagsmiðstöðvarinnar
Trúnaður
Nemendaverndarráð
Umsjónarkennarinn
Umsjónarkennarar eiga að aðstoða nemendur við að leysa úr persónulegum málum sem og námslegum. Þeir geta líka vísað nemendum á fagfólk innan skólans, eins og t.d. hjúkrunarfræðinginn eða námsráðgjafann.
Námsráðgjafinn
Nemendur eiga rétt á að njóta náms- og starfsráðgjafar í grunnskóla. Það er mismunandi hvernig fyrirkomulagið er en í flestum skólum starfa námsráðgjafar eða á skólaskrifstofum. Sumir skólar eru líka með skólafélagsráðgjafa eða sálfræðing. Þessir sérfræðingar geta hjálpað og ráðlagt nemendum sem eiga í alls kyns erfiðleikum, í skólanum, heima hjá sér eða í sambandi við vinina. Dæmigerð mál sem námsráðgjafinn vinnur með nemendum eru t.d. námsörðugleikar, fötlun, geðraskanir eða hegðunarraskanir. Einnig hjálpar hann nemendum að takast á við vanlíðan, erfiðleika á heimilinu og félagslega erfiðleika. Námsráðgjafinn vinnur þá oft í samstarfi við aðra starfsmenn skólans, eins og t.d. sérkennsluráðgjafa, stuðningsfulltrúa og sálfræðinga.
Hjúkrunarfræðingurinn
Hjúkrunarfræðingar starfa í grunnskólum. Þeir eru yfirleitt með fastan viðverutíma í skólanum en oft eru þeir ekki í fullu starfi í skólanum. Nemendur geta leitað til hjúkrunarfræðingsins með ýmis mál varðandi heilsu og líðan. Skólahjúkrunarfræðingurinn getur t.d. aðstoðað nemendur með mál sem varða vanlíðan, verki, næringu, útlit, húðvandamál, kynlíf og getnaðarvarnir. Ef nemendur hafa áhyggjur af geðheilbrigði sínu er gott að byrja á því að ræða líðanina við hjúkrunarfræðinginn
Starfsfólk félagsmiðstöðvarinnar
Innan sumra skóla eða í nágrenni þeirra starfa félagsmiðstöðvar. Mörgum finnst mjög gott að ræða málið við starfsfólk þeirra og fá ráðgjöf og aðstoð.
Trúnaður
Allir ofangreindir starfsmenn eru bundnir trúnaði um persónuleg málefni nemenda. Þeir eru þó ekki undanþegnir tilkynningarskyldu barnaverndarlaga en samkvæmt þeim lögum er öllum skylt að tilkynna barnaverndarnefnd ef barn býr við óviðunandi aðstæður heima hjá sér eða er hættulegt sjálfu sér eða öðrum.
Nemendaverndarráð
Nemendaverndarrá fjallar um sérstök úrræði fyrir einstaka nemendur. Þurfi nemandi, að mati umsjónarkennara, á sérstakri aðstoð að halda vegna fötlunar, sjúkdóms eða námslegra, félagslegra eða tilfinningalegra erfiðleika, á umsjónarkennari að vísa málinu til skólastjóra sem getur lagt málið fyrir nemendaverndarráð. Sjá reglugerð um nemendaverndarráð í grunnskólum.
