Sögur og ljóð
Engillinn
Syrgjum nú því dauðinn ert þú,
þú sem varst ljósið í lífi mínu.
Ljósið sem þú varst logaði svo fast
að sárið verður lengi að gróa.
Sagt er að tíminn lækni sárin,
en það er nú meiri kvölin.
Sárið mun aldrei hverfa
því örið mun ætíð blossa.
Loginn þinn var mátturinn minn,
nú þarf ég að finna kraftinn.
Kraftinn til að lifa lífinu til fulls
eins og engillinn á himnum.
Engillinn ert þú því þú gafst
mér líf.
Lífið sem ég þarf að nota
og móta með tímanum sem ég fæ.
Andrea
Stökktu
Núna er tími til að lifa.
Það berst þér tækifæri um framandi ævintýri
þú veist ekki hvort þú eigir að stökkva eða standa.
Ef þú stekkur gæti hvað sem er
fallið í hendur þér.
Fallið getur verið stutt eða langt,
eina sem þú veist er að þú lendir.
Þú veist ekki hvenær og þú veist ekki hvernig.
Ævintýrin eru mismunandi eftir því hvernig þú stekkur.
Ef þú stekkur ekki veistu aldrei hvað mun gerast.
Efasemdir þínar birtast hver á fætur annari.
Þú hugsar „hvað ef", stökktu svo þú þurfir ekki að efast.
Andrea
Svarti fálkinn
Ég sit hér og bíð
eftir tímanum sem gengur og gengu.
hann hættir aldrei að tifa
þótt þú biðjir um það.
Ég veit ekki hvað ég á að
gera því svarti fálkinn
er að fara að koma.
Á ég að hlaupa eða vera,
sein var ég hann var kominn.
Hrollur færðist um líkamann minn,
svarti fálkinn hafði aldrei náð mér áður.
Andrea
1000 words wont bring you back.. I know because I've tried.
1000 tears wont bring you back.. I know because I've cried.
14 ára stúlka
Af hverju?
Já, nei, af hverju - af hverju ekki?
Skil ekki neitt en veit samt allt.
Veit ekki neitt en skil samt allt.
Glætan að þetta meiki sens.
Af hverju þarf allt að vera flókið?
Og með skilyrðum?
Og með fyrirvörum?
Þokkalega lamað ljóð.
NN