Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga



Lýðræði fyrir alla

Ísland er lýðræðisríki. Almenningur kýs sér fulltrúa til að fara með stjórn landsins. Börn og unglingar hafa ekki kosningarétt og því verður að finna aðrar skipulagðar leiðir til að koma sjónarmiðum þeirra á framfæri við þá sem taka ákvarðanir í samfélaginu. 

Rétt barna til verndar og umönnunar má telja óumdeildan en sá réttur er nátengdur grunnþörfum þeirra og því hefur reynst auðvelt fyrir fullorðna að viðurkenna hann. Það er hins vegar staðreynd að mörgum fullorðnum reynist framandi að viðurkenna rétt barna til að vera virkir þátttakendur í samfélaginu.
 
Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna kallar á ný viðhorf til barna og stöðu þeirra í samfélaginu. Samkvæmt 12. gr. Barnasáttmálans eiga börn sem myndað geta eigin skoðanir rétt á að láta þær í ljós í öllum málum sem þau varða og þeim fullorðnu ber að taka réttmætt tillit til skoðana barna í samræmi við aldur þeirra og þroska. Í 13. gr. sáttmálans segir að börn eigi rétt á að tjá sig nema það brjóti gegn almennu siðgæði, skaði mannorð eða brjóti gegn réttindum annarra. Þar segir einnig að börn eigi rétt á að leita sér upplýsinga, taka við upplýsingum og koma þeim á framfæri.
 
Ástæða er til að undirstrika að hér er um rétt barna að ræða en ekki skyldu. Skylda hvílir aftur á móti á þeim fullorðnu að tryggja börnum raunveruleg tækifæri til að taka þátt í ákvarðanatöku á þeirra eigin forsendum. Stjórnvöldum, þ.á.m. sveitarstjórnum og skólayfirvöldum, ber að hlusta á skoðanir barna og virða þær. Þessi réttur nær til allra mála er varða börn á einn eða annan hátt, s.s. málefna fjölskyldunnar, skólans, æskulýðs- og tómstundamála, forvarna og skipulags- og umhverfismála.
 
Til að bæta aðstæður barna og þjónustu við þau er þátttaka þeirra sjálfra mikilvæg. Rannsóknir á þroska og námi barna hafa leitt í ljós að börn hafa frá unga aldri getu og áhuga til að taka þátt í ákvarðanatöku um málefni sem þau varða. Börn eru sjálf sérfræðingarnir í eigin lífi og því er mikilvægt að nýta einstaka sýn barnanna og þá þekkingu sem þau búa yfir. Þátttaka barna eykur þannig skilning fullorðinna á lífi og reynslu barna. Þátttaka barna er þeim einnig mikilvæg svo að þau nái að þroskast sem best og verði ábyrgir borgarar.










Mynd af unglingum við lærdóm

Umboðsmaður barna...

... vinnur að hagsmunamálum barna almennt séð en ekki að málum einstakra barna
 
... leiðbeinir og gefur ráð hvert börn geta leitað til að ná fram rétti sínum
 
... kemur með ábendingar og tillögur til úrbóta sem snerta hag barna á öllum sviðum samfélagsins
 
... vill fá að vita hvað börn eru að hugsa og hvað þeim finnst um ýmsa hluti sem snerta þau og nánasta umhverfi þeirra