Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga




     

    Börn og unglingar víða um heim

    Allir hafa eitthvað að miðla eða gefa
    Ísland er eitt af ríkustu ríkjum heimsins. Þó að auðvitað séu hér á landi börn sem búa við erfiðar aðstæður, eru veik og líður ekki vel, er mikilvægt að hafa í huga að í flestum löndum heimsins eru börn að glíma við vandamál sem við þekkjum lítið eða ekkert.

    Stríð, hættulegir sjúkdómar, vannæring og erfiðisvinna er daglegt brauð hjá mörgum börnum og unglingum í fátækari ríkjum heims. Margir eiga ekki kost á að ganga í skóla og mörg börn og unglingar hafa misst foreldra sína vegna átaka, hungurs eða sjúkdóma og sum eiga jafnvel ekkert heimili.

    Þrátt fyrir neyðina hafa þessi fátæku börn yfirleitt mjög mikið að miðla til okkar enda virðist alltaf stutt í brosið hjá þeim.

    Við getum hjálpað þessum krökkum með því að styrkja hjálparsamtök fjárhagslega eða með sjálfboðaliðastarfi. Hægt er að standa fyrir skemmtun, halda tombólu eða safna áheitum og gefa svo ágóðann til hjálparstofnana. Sælla er að gefa en þiggja.

    Sinn er siður í landi hverju og til að víkka sjóndeildarhringinn og auka skilning okkar á öðrum þjóðum, siðum þeirra og hátterni er skemmtilegt og fróðlegt að heimsækja önnur lönd og reyna að kynnast menningu annarra þjóða. Það hjálpar okkur líka til að skilja okkur sjálf og samfélag okkar á Íslandi. Það kemur mörgum á óvart hversu ólík menning nágrannaþjóða okkar er en jafnframt hve mikið við eigum sameiginlegt með öðrum þjóðum hinum megin á hnettinum.

    Börn og unglingar verða fyrir áhrifum af umhverfinu og fólkinu í kring en öll eru þau jú, hvar sem þau búa, að fást við sama verkefnið: Hver er ég og hvernig manneskja vill ég verða?

    Hvernig getur þú kynnst þeim betur?
    Ýmis samtök sinna ungmennaskiptum

    Ef þú ert alveg að verða 18 ára getur þú líka athugað með:

    Hvernig getur þú hjálpað þeim?
    Ýmis félög og samtök sinna hjálparstarfi í útlöndum.










    Mynd af unglingum við lærdóm

    Umboðsmaður barna...

    ... vinnur að hagsmunamálum barna almennt séð en ekki að málum einstakra barna
     
    ... leiðbeinir og gefur ráð hvert börn geta leitað til að ná fram rétti sínum
     
    ... kemur með ábendingar og tillögur til úrbóta sem snerta hag barna á öllum sviðum samfélagsins
     
    ... vill fá að vita hvað börn eru að hugsa og hvað þeim finnst um ýmsa hluti sem snerta þau og nánasta umhverfi þeirra