|
Örugg frá upphafi. Upplýsingar fyrir ungt fólk á vinnumarkaði |
|
Fræðsla fyrir ungt fólk |
|
|
|
|
|
|
Vinna
Gott að hafa í huga
Lög og reglur um vinnu barna og unglinga
Vinna barna yngri en 15 ára
Vinna unglinga 15–17 ára
Vinnutími
Ráðningarsamningar
Launamenn/verktakar
Stéttarfélög
Skatt- og lífeyrisgreiðslur
Lög og reglur um vinnu barna og unglinga
Um vinnu barna og unglinga undir 18 ára aldri gildir X. kafli laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og reglugerð um vinnu barna og unglinga. Lögin gilda þó ekki um tilfallandi vinnu eða vinnu sem varir skamman tíma inni á einkaheimilum eða í fjölskyldufyrirtækjum sem hvorki telst skaðleg né hættuleg ungmennum.
Tilgangur laganna er tvíþættur. Annars vegar er þeim ætlað að koma í veg fyrir að börn eða unglingar gegni störfum sem reynst geta þeim hættuleg andlega sem líkamlega eða koma niður á menntun þeirra og þroska en hins vegar er þeim ætlað að ýta undir skynsamlega atvinnuþátttöku með því að gefa þeim kost á að stunda vinnu sem er í samræmi við líkamlegan og andlegan þroska þeirra.
Í lögunum er ungmennum yngri en 18 ára skipt upp í tvo hópa, annars vegar börn yngri en 15 ára sem enn eru í skyldunámi og hins vegar unglinga sem náð hafa 15 ára aldri en eru undir 18 ára aldri og ekki lengur í skyldunámi.
Vinna barna yngri en 15 ára
Almenna reglan er sú að börn í skyldunámi má ekki ráða til vinnu. Víkja má frá því í eftirfarandi tilvikum:
Í IV. viðauka reglugerðar um vinnu barna og unglinga er listi yfir störf af léttara taginu sem 13 ára og eldri mega vinna. Meðal þeirra er
Þetta er ekki tæmandi talning á störfum og er það Vinnueftirlitsins að meta hvort starf sé við hæfi barna yngri en 15 ára eða ekki.
Dæmi um störf sem börn yngri en 15 ára mega ekki vinna eru:
Einnig er mikilvægt að benda á að börn og unglingar undir 18 ára aldri mega ekki afgreiða tóbak og aðeins þeir sem náð hafa 20 ára aldri mega afgreiða áfengi. Sérstakar undanþágur gilda um framreiðslunema.
Vinna unglinga 15–17 ára
Unglinga er almennt heimilt að ráða til vinnu nema um sé að ræða störf við eftirfarandi aðstæður:
Í reglugerð nr. 426/1999 um vinnu barna og unglinga er að finna í viðauka 1–3 lista yfir hættuleg tæki, verkefni, efni og störf þar sem óheimilt er að ráða unglinga í vinnu.
Vinnutími
Í lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum er fjallað um vinnutíma barna og unglinga og eru settar ákveðnar takmarkanir á hann. Takmarkanir miðast við virkan vinnutíma eða vinnustundir að frádregnum matar- og kaffitímum.
|
Almennar reglur
|
Börn 13–14 ára |
Börn 15 ára í skyldunámi |
Unglingar 15–17 ára |
|
Á starfstíma skóla |
2 klst. á dag
|
2 klst. á dag
|
8 klst. á dag
|
|
Utan starfstíma skóla |
7 klst. á dag
|
8 klst. á dag
|
8 klst. á dag
|
|
Vinna bönnuð |
kl. 20-06 |
kl. 20-06 |
kl. 22-06 |
|
Hvíld |
14 klst. á sólarhr.
|
14 klst. á sólarhr.
|
12 klst. á sólarhr.
|
Í algerum undantekningartilvikum má víkja frá þessum ákvæðum og þá á sérstökum starfssviðum að því tilskildu að unglingar fái hæfilegan uppbótarhvíldartíma. Vinnueftirlitið hefur eftirlit með lögunum og tekur á móti ábendingum um hugsanleg brot á þeim.
Ráðningarsamningar
Milli launamanns og atvinnurekanda er alltaf í gildi ráðningarsamningur þar sem launamaður samþykkir að vinna fyrir atvinnurekandann sem á móti greiðir honum laun o.s.frv. Þar sem samningar eru ekki formbundnir á Íslandi getur ráðningarsamningur verið jafnt munnlegur sem skriflegur. Rétt er að benda á að öll sönnunaratriði eru mun auðveldari ef gerður hefur verið skriflegur ráðningarsamningur þar sem m.a. kemur fram hvenær viðkomandi hóf störf, hver launakjör hans eru o.s.frv.
Samþykki foreldra/forsjáraðila þarf til að ráðningarsamningur barns undir 18 ára aldri sé skuldbindandi fyrir barnið að fullu. Þessa skyldu má leiða af 76. gr.
lögræðislaga nr. 71/1997 en þar segir í 1. mgr. að löggerningar ólögráða manns, sem hann hafði ekki heimild til að gera, bindi hann ekki.
Ráðningarsamningur verður að vera í samræmi við kjarasamning og ákvæði í ráðningarsamningi um lakari rétt launamanns eru ógild.
Mikilvægt er að eftirfarandi atriði komi fram í ráðningarsamningi:
Sérstakar reglur gilda um ráðningarsamninga milli iðnnema og iðnfyrirtækis eða iðnmeistara.
Þær reglur er að finna í 28. gr. laga um framhaldsskóla nr. 92/2008 og reglugerð um vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað nr. 698/2009. Iðnmenntaskólar eiga að fylgjast með því að gerðir séu slíkir námssamningar og fulltrúi menntamálaráðherra staðfestir þá. Menntamálaráðuneytið leggur til sérstök eyðublöð undir námssamninginn.
Launamenn / verktakar
Mjög mikilvægt er að skýrt komi fram hvernig ráðningarsambandi barns eða unglings og atvinnurekanda er háttað, þ.e. hvort barn eða unglingur sé launamaður eða verktaki, þar sem mjög ólíkar reglur gilda um þessa tvo flokka. Réttarstaða verktaka er mjög ólík réttarstöðu launamanns. Eftirfarandi eru nokkur dæmi um þann mun sem er á réttarstöðunni:
Stéttarfélög
Stéttarfélag er félag sem stofnað er í þeim tilgangi að gæta hagsmuna félagsmanna fyrst og fremst gagnvart atvinnurekendum. Mjög mikilvægt er að börn og unglingar viti hvaða stéttarfélagið þau tilheyra og að dregið sé af launum þeirra félagsgjöld og staðið skil á þeim greiðslum til viðkomandi stéttarfélags. Aðild að stéttarfélagi er mjög mikilvæg því ýmis fríðindi og styrkir fylgja slíkri aðild og eins er hægt að leita til stéttarfélaga með ýmis hagsmuna- og réttindamál sem upp geta komið.
Skatt- og lífeyrisgreiðslur
Sérstakar reglur gilda um skattgreiðslur barna 15 ára og yngri en þegar börn verða 16 ára greiða þau skatt eftir almennum reglum og byrja einnig að greiða í lífeyrissjóð. Eftirfarandi reglur gilda um skatt- og lífeyrisgreiðslur barna og unglinga.
