

Vímuefni
Tóbak, áfengi og eiturlyf
Vímuefni valda ýmiss konar vanda
Lög og reglur um vímuefni
Vísbendingar um vímuefnaneyslu
Mikilvægt að hafa í huga
Menntun
Meðferðarheimili
Aðstoð og ráðgjöf í boði
Vímuefni valda ýmiss konar vanda
Áfengi og önnur vímuefni koma mikið við sögu í ýmsum félagslegum vandamálum, upplausn fjölskyldna, fjárhagserfiðleikum, slysum og stórum hluta ofbeldismála og afbrota. Fíkniefnaneysla barna og unglinga getur raskað uppvaxtarferli þeirra og ógnað velferð þeirra og framtíð. Eftir því sem börn byrja fyrr að neyta vímuefna aukast líkurnar á myndun fíknar, brottfalli úr skóla, félagslegri einangrun, sjúkdómum, slysum og óæskilegri kynlífsreynslu. Börn eiga rétt á vímulausu umhverfi.
Lög og reglur um vímuefni
Samfélagið setur þegnum sínum ýmsar reglur sem ætlast er til að farið sé eftir. Eins og flestir vita er óheimilt að selja, veita eða afhenta áfengi þeim sem er yngri en 20 ára og hvers konar auglýsingar á áfengi og einstökum áfengistegundum eru bannaðar. Tóbak má ekki selja né afhenda þeim sem er yngri en 18 ára. Börn njóta ágætrar lagaverndar hvað varðar ólögleg ávana- og fíkniefni. Fyrst og fremst er refsivert að kaupa efnin, selja þau, taka við þeim, hafa í vörslu sinni og afhenda þau. Ekki er refsivert út af fyrir sig að neyta efnanna. Þegar börn leiðast út í vímuefnaneyslu er áherslan lögð á aðstoð og meðferð frekar en refsingu. Refsingum er frekar beint að þeim sem selja og dreifa ólöglegum efnum eða þeirra sem selja áfengi eða tóbak til þeirra sem ekki hafa náð tilskildum aldri. Þetta tvennt getur að sjálfsögðu farið saman og þá er beitt refsingum og jafnframt boðið upp á ráðgjöf og meðferð.
Foreldrar bera ábyrgð á uppeldi og velferð barna sinna til 18 ára aldurs og er það bæði réttur þeirra og skylda að ráða persónulegum högum þeirra til að forða þeim frá áföllum fram að þeim aldri.
Vísbendingar um vímuefnaneyslu
Ef þú telur að einhver nákominn þér sé farinn að neyta vímuefna og þannig farin(n) að skaða sjálfa(n) sig er gott að hafa helstu einkenni um vímuefnaneyslu barns eða unglings í huga:
Hafa ber í huga að ástæður einkennanna kunna að vera af öðrum og meinlausari toga en neyslu fíkniefna og því ber að forðast ásakanir að ósekju.
Mikilvægt að hafa í huga
Þegar kemur að notkun vímuefna eru öll börn í áhættu. Stærsti markhópur fíkniefnasala er ungt fólk á aldrinum 14–19 ára og margir unglingar finna fyrir miklum þrýstingi til neyslu áfengis, tóbaks og ólöglegra vímuefna. Forvarnir eru því sérstaklega mikilvægar fyrir þennan hóp en einnig þá sem yngri eru. Stutt reynsla af lífinu, ómótuð sjálfsmynd og óöryggi þar af leiðandi getur gert börnum og unglingum erfitt með að þola hópþrýsting og standa við sannfæringu sína. Góðar fyrirmyndir, upplýsingar um skaðsemi fíkniefna og áhersla á heilbrigt líferni og sjálfsvirðingu eru dæmi um forvarnarstarf sem unnið er að á mörgum sviðum. Gott er að hafa eftirfarandi atriði í huga:
Menntun
Skólaganga er mannréttindi en á vissum punkti getur það gerst að nemandi gengur svo langt að hann missir tímabundið þessi réttindi. Dæmi um það er fíkniefnasala í grunnskólum. Sá yfirgnæfandi meirihluti nemenda sem koma hvergi nærri fíkniefnum á rétt á því að vera í fíkniefnalausum skóla og vegur sá réttur þyngra en réttur barna sem selja fíkniefni til að stunda nám. Skólayfirvöld sem neyðast til að reka nemanda úr skóla þurfa að finna honum annað úrræði.
Meðferðarheimili
Barn sem byrjað er misnota áfengi eða tóbak eða er orðið háð fíkniefnum þarf á aðstoð samfélagsins að halda og því ber að tilkynna um neyslu barnsins til barnaverndar. Til að barnaverndarnefndir geti aðstoðað börnin þarf þeim að berast tilkynning um að barn búi við óviðunandi aðstæður eða að það stefni sjálfu sér í hættu. Barnaverndarnefnd og Barnaverndarstofa geta komið ungum fíklum fyrir í meðferð á Stuðlum eða á meðferðarheimili í lengri eða skemmri tíma. Meðferðarheimili, sem taka börn í langtímameðferð, á vegum Barnaverndarstofu eru alls sjö og öll staðsett á landsbyggðinni. Nánari upplýsingar er að finna hér.
Aðstoð og ráðgjöf í boði
Barn eða unglingur sem farinn er að neyta vímuefna á rétt á aðstoð og stuðningi til að koma sér á réttan kjöl. Ef þú eða einhver sem þú þekkir er í vandræðum vegna vímuefnanotkunar getur þú leitað til eftirtalinna aðila til að fá ráðgjöf og stuðning:
Barnaverndin
Barn sem byrjað er að misnota áfengi eða tóbak eða er orðið háð fíkniefnum þarf á aðstoð samfélagsins að halda. Einfaldast er að hringja í 1–1–2 og bera upp erindið við starfsmann Neyðarlínunnar sem kemur skilaboðum áleiðis eða gefur samband við réttan aðila. Einnig er hægt að hafa samband við barnaverndarnefnd eða starfsmann hennar í viðkomandi sveitarfélagi. Hér er listi yfir barnaverndarnefndir landsins og upplýsingar um hvernig er best að ná í starfsmenn þeirra.
Doktor.is
Á heilsuvefnum www.doktor.is er mjög mikinn fróðleik að finna um allt sem tengist líkamanum og heilsunni, þ.m.t. forvarnir, vímuefnanotkun og reykingar.
Fjölskylduráðgjöf sveitarfélaga
Mörg sveitarfélög bjóða íbúum sínum upp á fjölskylduráðgjöf. Þangað geta börn leitað til að ræða og fá lausn á vandamálum sínum. Hér er listi yfir öll sveitarfélög landsins. Með því að smella á sveitarfélagið þitt kemst þú inn á heimasíðu þess. Hafðu samband við sveitarfélagið þitt til að fá upplýsingar um fjölskylduþjónustuna.
Fræðslumiðstöð í fíknivörnum
Fræðslumiðstöð í fíknivörnum er vefsetur um vímuvarnarmál og ætlað að styrkja og efla fíknivarnir í landinu með fjölbreyttu upplýsinga- og fræðslustarfi. Miðstöðinni er ætlað að afla upplýsinga um fíkniefnamál, starfrækja gagnasafn, veita fræðslu og upplýsingar um fíkniefnamál og veita ráðgjöf í fíknivörnum. Heimasíðan er www.forvarnir.is.
Heilsugæslustöðvar
Krakkar geta leitað til heilsugæslustöðvanna með alls konar spurningar og vandamál sem tengjast heilsu og líðan. Hérna er listi yfir allar heilsugæslustöðvar á landinu, heimasíður þeirra, netföng o.fl.
Hjálparsími Rauða krossins, 1717
Hjálparsíminn 1717 er gjaldfrjáls og er opinn allan sólarhringinn fyrir þá sem þurfa aðstoð vegna depurðar, kvíða, þunglyndis eða sjálfsvígshugsana. Heimasíða Rauða krossins er www.redcross.is. Hér er að finna nánari upplýsingar um hjálparsímann.
Kirkjan
Mörgum finnst gott að tala við sóknarprestinn sinn eða djákna um viðkvæm og persónuleg mál enda eru þeir bundnir trúnaði. Hér er hægt að nálgast símanúmer allra presta landsins. Einnig er hægt að hafa samband við Fjölskylduþjónustu kirkjunnar sem er á Klapparstíg 25–27 í Reykjavík. Síminn er 562–3600.
Landlæknisembættið
Landlæknisembættið annast m.a. fræðslu til almennings um heilsueflingu, forvarnir og lýðheilsu og kemur ráðgjöf og tilmælum á framfæri við heilbrigðisstéttir. Heimasíðan er www.landlaeknir.is. Undir liðnum Áfengis- og vímuvarnir er að finna ýmsar upplýsingar um áfengis- og vímuvarnir barna og ungmenna, t.d. spurningar og svör um e-töfluna.
Lýðheilsustöð — Áfengis- og vímuvarnir
Lýðheilsustöð vinnur m.a. fræðsluefni um áfengi og önnur vímuefni fyrir almenning og stuðlar að samvinnu og samræmingu starfa á meðal allra þeirra sem vinna að vímuvörnum. Heimasíðan er www.lydheilsustod.is/lydheilsustod/afengis-og-vimuvarnir/.
Lögregluvefurinn
Þessi forvarnarsíða er unnin í samvinnu ríkislögreglustjórans og forvarnardeildar lögreglustjórans í Reykjavík. Á lögregluvefnum er að finna mjög mikið af gagnlegum upplýsingum bæði fyrir börn og fullorðna.
Neyðarlínan
Sé barn slasað, mjög veikt eða á einhvern hátt illa haldið eftir neyslu vímuefna ætti hiklaust að hafa samband við Neyðarlínuna með því að hringja í 1–1–2.
Ný leið ráðgjöf
Ný leið ráðgjöf veitir ráðgjöf og meðferð ungu fólki, sem á í vímuefnavanda eða er í áhættuhópi, og fjölskyldum þess. Þjónustan byggir á hugrænni atferlismeðferð og markvissri þjálfun í lífsleikni. Starfsfólkið, sem er menntað á sviði félags- og fjölskylduráðgjafar, sál- og uppeldisfræði, býr að áralangri reynslu í forvarna- og meðferðarstarfi. Heimasíðan er www.nyleid.is.
SÁÁ — Samtök áhugafólks um áfengisvandann
SÁÁ eru fjölmenn almannasamtök. Á heimasíðu þeirra, www.saa.is, undir fræðsluefni, er m.a. að finna upplýsingar um áfengi, kannabis, helsælu, róandi ávanalyf, ofskynjunarefni, sveppi, stera, spilafíkn og ýmis vímuefni. Hér eru upplýsingar um meðferðarúrræði og aðstoð sem er í boði fyrir alkóhólista, aðstandendur, unglinga og spilafíkla.
Starfsfólk skólans
Grunnskólanemar eiga að geta leitað til umsjónarkennara, námsráðgjafa og skólahjúkrunarfræðings með trúnaðarmál.
Tótalráðgjöfin
Tótalráðgjöfin er ætluð ungu fólki sem vantar aðstoð og ráðgjöf fagfólks til að leysa úr alls kyns vandamálum. Hægt er að hringja í síma 520–4600, koma (í Hitt húsið, Pósthússtræti í Reykjavík) eða senda tölvupóst á totalradgjof@totalradgjof.is. Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni www.totalradgjof.is.
