Hvenær mega unglingar byrja að vinna við barnagæslu?

Svar:

Umboðsmaður barna mælir með að foreldrar leyfi börnunum að njóta æskunnar í öruggum höndum þeirra sem valda því að gæta þeirra.  Ekki ætti að fela barni að gæta annars barns nema undir eftirliti fullorðinna.  Vinna unglinga getur verið uppbyggjandi og góður undirbúningur fyrir lífið en hins vegar geta of erfið og ábyrgðarmikil störf valdið skaða.

Um vinnu barna og unglinga eru ákvæði í lögum nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og reglugerð nr. 426/1999 um vinnu barna og unglinga.  Vinnueftirlitið hefur eftirlit með því að lögunum og reglunum sé framfylgt.  Tilgangurinn með þessum reglum er að koma í veg fyrir að börn vinni störf sem geta verið þeim hættuleg andlega og líkamlega.  Í reglunum eru tekin dæmi um störf sem unglingar í aldurshópunum yngri en 13 ára, 1314 ára og 15 ára og eldri mega vinna en barnagæsla er ekki þar meðtalin.  Að bera ábyrgð á lífi og líðan lítilla barna er mjög ábyrgðarmikið starf, sem getur valdið þeim sem ekki eru búnir að taka út fullan þroska of miklu andlegu álagi.  Ef eitthvað kemur fyrir er ábyrgðin gífurleg.   Dæmi eru um að alvarleg slys og jafnvel dauðsföll hafi komið fyrir við svona aðstæður en slys á heimilum eru meðal algengustu slysa á Íslandi og verða flest í aldurshópnum 04 ára.  Barnagæsla er því í eðli sínu ekki sambærileg við þau störf sem talin eru upp í fyrrnefndum reglum um vinnu barna og unglinga.

Vinnueftirlitið hefur túlkað fyrrnefndar reglur þannig að ekki sé heimilt að ráða börn yngri en 15 ára til að starfa við barnagæslu.  Sjá hér samantekt sem Vinnueftirlitið útbjó í samráði við umboðsmann barna og fulltrúa frá Árvekni og Rauða krossi Íslands.