Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga



Ráðgjafarhópur umboðsmanns barna 

Auglýsing um ráðgjafarhóp umboðsmanns barna

Í nokkur ár hefur umboðsmaður barna verið með ráðgjafarhóp ungmenna á aldrinum 13 til 17 ára. Ráðgjafarhópurinn hefur það hlutverk að vera ráðgefandi aðili fyrir embættið um þau málefni sem brenna á börnum og ungmennum í íslensku samfélagi. Hópurinn getur einnig komið með tillögur að verkefnum eða málefnum sem hópurinn telur að umboðsmaður þyrfti að huga að.

Hópurinn fundar einu sinni í mánuði á skrifstofu umboðsmanns barna í Kringlunni1, 5. hæð.

Skipað er í ráðgjafarhópinn á haustin en þeir sem hafa áhuga á að starfa í hópnum er ávallt velkomið að sækja um með því að senda póst á ub@barn.is eða hringja í síma 552-8999. Þar verður að koma fram nafn, aldur, skóli og af hverju þið viljið starfa í ráðgjafarhóp umboðsmanns barna. Hér er hægt að ná í auglýsingu um ráðgjafarhópinn sem hægt er að hengja upp í skólum, félagsmiðstöðvum og víðar.