Norðmenn urðu fyrstir þjóða til að stofna sérstakt embætti umboðsmanns barna árið 1981. Í Svíþjóð var embætti umboðsmanns barna stofnað hinn 1. júlí 1993. Danir stofnuðu svo árið 1994 svokallað Barnaráð sem gegnir svipuðu hlutverki og umboðsmenn hinna Norðurlandanna. Í Finnlandi var stofnað embætti umboðsmanns barna þann 1. september 2005. Mikið samstarf hefur verið milli þessara embætta alla tíð og má m.a. nefna árlega fundi norrænna umboðsmanna barna. Þessir fundir hafa reynst ákaflega mikilvægir í starfi embættanna en starf umboðsmanns barna er þess eðlis að hann verður að vinna að mestu óháð öðrum stofnunum samfélagsins. Það er því mikils um vert að geta með þessum hætti haft samráð við aðra sem vinna við sömu eða svipaðar kringumstæður. Norræn embætti umboðsmanna barna
- Barneombudet - Umboðsmaður barna í Noregi.
- Barnombudsmannen - Umboðsmaður barna í Svíþjóð.
- Børnerådet - Barnaráðið í Danmörku.
- Barneombudsmannen i Finland (Lapsiasiavaltuutettu) - Umboðsmaður barna í Finnlandi.
Í ýmsum öðrum löndum heims er að finna svipuð embætti og fer þeim fjölgandi með hverju árinu sem líður.
Árið 1997 komu umboðsmenn barna í tíu löndum Evrópu saman í Noregi og stofnuðu ENOC (European Network of Ombudsmen for Children). Meginmarkmið samtakanna hefur frá upphafi verið að bæta líf allra barna í Evrópu. Haldnir eru fundir árlega þar sem málefni barna og unglinga eru rædd frá ýmsum hliðum. Samtökin fara ört stækkandi og síðla árs 2005 voru aðilar að þeim orðnir 27 talsins.
ENOC - Evrópusamtök umboðsmanna barna. Tenglar inn á heimasíður evrópsku embættanna.