Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga




       Nokkur svör barna og unglinga við spurningunni  

    Stundar þú reglulega hreyfingu?

    Hvernig hreyfingu?
    Í hve marga klukkutíma á viku?

    Spurt 2007

    „Ég fer í ræktina 2 í viku en annars hreyfi ég mig alls ekki neitt.

    14 ára stúlka

    „Ég stunda sund á hverjum degi."
    11 ára stúlka

    „Ég fer í fótbolta 4 sinnum í viku.. í fjóra klukkutíma tilsamans í viku. Svo er alltaf leikfimi í skólanum 2 í viku og 1 sinni sund :)."
    14 ára stúlka

    „Ég hreyfi mig mikkið ég veit ekki alveg hversu mikið í viku en ég hjóla hleip og æfi box það er hreifingin sem ég fæ."
    14 ára drengur

    Ég æfi dans og skauta. Dansæfingar eru 2 í viku, skautaæfingarnar eru líka 2 í viku ásamt einni þrekæfingu. Í skólanum er ég líka í íþróttum og sundi. Allt þetta er svona 8 klukkutímar í viku svo fer ég líka stundum með vinkonu minni eitthvert út og dansa eins og brjálaðingur heima".
    13 ára stúlka 

    „Neib, ekki reglulega get ég sagt. labba i skólann og heim aftur og labba úti og allstaðar, ekki nein líkamsrækt. labbið ? uumm, kannski svona 12 klukkustundir á viku.. :') veit ekki, misjafnt hjá mér, hvert ég fer, hvað ég geri o.s.frv. :):) takktakk, langaði bara að svara svona..."
    15 ára stúlka

    Ég æfi sund 5 sinnum í viku, alltaf frá kl. 15:45 - 17:15, nema á laugardagsmorgnum frá kl. 7 - 9, og á miðvikudagsmorgnum frá kl. 6 - 7:30. Ég reyni alltaf að borða nóg og ég held að ég geri það. "
    13 ára stúlka

    Ég æfi fimleika hjá fimleikafélagi Akureyrar. Ég æfi fimleika alla virka daga o gí þrjá tíma í einu. "
    13 ára stúlka

    Ég er í fótbolta"
    13 ára drengur