Nokkur svör barna og unglinga við spurningunni
Hvernig liður þér heima hjá þér?
Hvað er best við heimilið? Hvað er verst við heimilið?
Getur þú rætt persónuleg mál við foreldra þína?
Er tekið mark á þér? Gerir fjölskyldan eitthvað saman? Hvernig geta foreldrar bætt sig og orðið enn betri foreldrar?
Spurt 2004
„Mér líður vel heima. Mér finnst best að vera í tölvunni. Mér finnst verst að hjólið er bilað! Ég tala um allt heima!”
15 ára piltur
„Mér líður yfirleitt mjög vel heima hjá mér. Stundum finnst mér ég vera ofvernduð, aðallega af mömmu, en líka t.d.ef við pabbi erum saman úti þá leiðir hann mig eins og smákrakka. Ég get orðið mjög pirruð á þessu. Hjá mömmu lýsir sér það þannig að hún leyfir mér ekki að horfa á einn saklausan koss í sjónvarpinu og verður sár út í mig ef ég neita að sýna henni eitthvað sem ég er að skrifa eða lesa eða einhverjar síður á tölvunni. Ég veit vel að það er stundum eitthvað rugl og ógeðslegt á sumum síðum á netinu en ég meina, ég forðast slíkar síður. Og ef ég myndi einhvern tíman fara óvart inn á svoleiðis, myndi ég strax fara út af því aftur. Mamma heldur að ég taki ekki eftir því að hún lætur svona en ég tek vel eftir því. Stundum held ég að hún haldi að ég fari á bak við hana, það mundi mér aldrei detta í hug. Annars líður mér vel hérna, vægast sagt. Pabbi og mamma búa saman og allir eru góðir við mig. Ég á líka kött sem ég gjörsamlega elska út af lífinu. Við erum svaka góðar vinkonur og ég veit ekki hvernig ég færi að án hennar. Stundum er hún eina vinkonan sem ég á. Auðvitað á ég vinkonur, svona venjulegar á ég við. Ryndar á ég tvær. En ein er rosalega skapbráð, bara tíu ára, semsagt algjört smábarn, ráðrík og hatar skólann. Algjör andstæða við mig sem er byrjuð að pæla í sætum strákum og gjörsamlega elska skólann. Hin er líka barnaleg en er samt jafnaldri minn og ekkert mjög dugleg í skólanum. Stundum er ég bara ein eða fer í fótbolta í frímó í stað þess að vera með þeim. Ekki það að ég skammist mín fyrir þær, eða... jú einstaka sinnum en alls ekkert oft, þær geta bara verið dálítið þreytandi og jafnvel pirrandi.”
11 ára stúlka
„Ég bý hjá mömmu og vill flytja til pabba míns, þau eu algerar andstæður. Pabbi minn er æði, ég dýrka hann og hann er góður Mamma mín er djöfull í mannslíki og ég hata hana og hef engan áhuga á að eiga betra samband með henni.”
12 ára stúlka
„Já ég get svona almennt alveg talað vð foreldra mína, en meira við mömmu! Já það er tekið mark á mér, þau eru mjög góðir foreldrar. Ef að þau væru það ekki þá væri ég ekki svona þroskuð og góð persóna eins og ég er í dag!”
15 ára stúlka
„Já heima hjá mér er allt gott. Ég á góða foreldra og allt það og það er tekið mark á öllu sem ég seig og það er bara gott. Foreldrar minir þurfa ekki að vera betri.”
13 ára stúlka
„Mér líður mjög vel heima hjá mér og oftast líður mér best þar af öllum stöðum. Þar sem ég bý á tveimur stöðum, með foreldrum og svo ein þá finnst mér mun betra að vera á heimili foreldra minna þar sem maður fær umönnun og hugsað er um mann. Það besta við heimilið er að það er alltaf einhver til staðar og alltaf fólk sem maður þekkir vel og þar því aldrei að vera eitthvað rosa einmanna. Það versta við heimilið er þegar fólk er ósammála og stanslausar kvartanir þegar fólk er pirrað, þetta á sér hins vegar ekki eins mikið stað þegar maður býr ekki hjá foreldrum sínum. Persónuleg mál mín ræði ég oftast ekki við foreldra mína nema það sé eitthvað sem ég veit að þau geta hjálpað mér með, eins og líkamleg vandamál, hvort maður þarf að fara til læknis en um andleg málefni mín ræði ég ekki við þau. Það er tekið mark á skoðunum manns og hlutum sem maður vill koma áframfæri og hlustað á mann. Foreldrar eru bara eins og annað fólk, það sjálft og það á ekki að þurfa að breyta sér til að verða betri eða verri foreldrar. Auðvitað verða þau að hugsa um okkar hag en foreldrar geta líka bara bætt sig með því að vera þau sjálf.”
16 ára stúlka
„Mér líður vel heima hjá mér. Alltaf nóg að gera. Stundum of mikið að gera. Já ég get talað við foreldra mína. Mér finnst tekið mark á mér. Við erum næstum alltaf saman af því að við búum í sveit og vinnum saman að allskonar verkefnum þar Við förum líka stundum saman eitthvað og gerum oft eitthvað saman. Foreldrar eiga að vera góðir við börnin sín og hlusta á það sem þau hafa að segja.”
12 ára piltur
„Stundum, ég má þó ekki segja skoðun mína á einhverju því þá verður mamma reið. Hún verður líka mjög óánægð með 7,5 og lægra. Foreldrar gæru bætt sig með því að leyfa mér að tjá skoðun mína.”
14 ára stúlka
„Mér líður vel heima hjá mér. Ég veit ekki hvað er best og verst við heimilið mitt. Ég get rætt persónuleg mál við foreldra mína. Það er tekið mark á mér. Fjölskyldan gerir fullt saman. Veit ekki hvort foreldrar mínir geta bætt sig.”
8 ára stúlka
„Mér líður oftast ekki mjög vel heima hjá mér. Það versta er að ég má aldrei gera neitt ekki einu sinni með vinkonum mínum, ég reyni að ræða um persónuleg mál en þá er það bara kjaftæði og bull sem ég er að segja í þeirra augum. Fjölskyldan gerir eiginlega aldrei neitt saman. Þeir geta bætt sig með því að hlusta almennilega á mig og hugsa að þau voru einu sinni jafn gömul mér.”
14 ára stúlka
„Mér liður vel heima. Best við heimilið mitt er að ég get verið ég sjálf og bý með my boyfriend. Það versta með heimilið mitt er að það er allt í drasli... Ég get rætt mál með foreldrum mínum og þau skilja mig vel. Ká það er tekið mark af mér oftast. Já við fjölskyldan fórum stundum til útlanda saman.Foreldar minir eru bestir foreldarar í heiminum og getaekki verið betri. Ég elska þau og þau elska mig.”
17 ára stúlka