Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga




       Nokkur svör barna og unglinga við spurningunni  

    Hvernig eru góðir foreldrar? 
    Hvað skiptir máli? Eru foreldrar þínir góðar fyrirmyndir?
     Spurt 2007
     
    „Já eða reyndar ekki pabbi minn.. reyndar þekki ég hann lítið. Hann er alkóhólisti en er mjög góður kokkur. Mamma mín er best, hún er mjög góð fyrirmynd!! Systir mín er einnig mín fyrirmynd ;)”
    13 ára stúlka

    „Góðr foreldar er þeir sem að taka eftir börnunum sínum og leyfa þeim að gera það sem að þau vilja (ef að það er hægt ). Ég er að meina að vera svolídið meira með börnunum og foreldrar meiga ekki leyfa börnum að gera alltaf það sem að þau vilja því að þá verða þau frek. Passa að þau fari eftir reglum (sérstaklega umferðarregulum).”
    13 ára stúlka

    „Já..foreldrar mínir eru góðar fyrirmyndir!! :) Þau t.d hjálpa við lærdóm, hjálpa mér mikið í stærðfræði (ég er ekki mjög góð) og hjálpa mér bara að leysa vandamál.”
    12 ára stúlka

    „Mamma mín er góð fyrirmynd og ég elska hana voða mikið en pabbi er ekki góð fyrir mynd hann er oft að drekka og svoleiðis hann er ekki skemmtilegur.”
    12 ára stúlka

    „Góðir foreldrar eru fólk sem hugsa um mann, gefur manni að borða og skjól og gefur manni föt, maður fái að ganga í skóla og mennta sig. Vondir foreldrar eru fólk sem ber mann og káfa á manni. Mínir foreldrar eru góðir foreldrar meira en maður mundi búast við. Mamma og pabbi lemja mig ekki og ef ég spyr þau hvað þau vilja í afmælisgjöf segja þau bara ást og umhyggju.”
    11 ára stúlka

    „Mínir foreldrar eru alltaf góð fyrirmynd =).“
    13 ára stúlka

    „Góðir foreldrar eru að hugsa vel um mann og gefa manni föt og mat og leyfa manni að sofa og gefa manni stundum gjafir! =).”
    11 ára stúlka

    „Foreldrar sem segja nei og gera ekki vonda hluti við mann.”
    11 ára drengur

    „Persónulega finnst mér mamma mín ekki góð fyrirmynd fyrir mig! Ég get bara nefnt eitt skipti sem að breytir manni að eilífu....mamma mín var að drekka og segir svo uppúr þurru mér finnst minnið þitt svo skrítið XXXX mín og ég spyr afhverju og þá segir hún því að pabbi systir minnar nauðgaði mér og ég á bara að muna eftir því!! Svo reynir hún að fá mig til að fyrirgefa henni þetta því að hún vissi af þessu en gerði ekkert... þetta kalla ég ekki góða fyrir mynd!!!!”
    17 ára stúlka

    „Góðir foreldrar eiga að geta gert einhvern tíman eithvað skemtilegt með börnunum sínum og hlusta á krakkana sem þau vilja segja og ekki vera vond við börnin sín.”
    11 ára drengur

    „Jahá.Þau eru voða góð fyrirmynd
    11 ára stúlka

    „Já, mér finnst þau mjög góð og skemmtileg. Samt finnst mér óþægilegt að þau séu skilin en það er allt í lag. Þau fara mjög oft með mér að gera eitthvað skemmtilegt!!”
    11 ára stúlka

    „Já t.d í lærddómi og hvernig þau tala og hvernig þau gera hlutina og í mörgum hlutum og við almenna hluti sem maður getur notað frá foleldrunum og taka þau sem fyrirmynd. Þannig eru nokkur dæmi og fyrirmynd frá foreldrum.”
    12 ára stúlka

    „Já mér finnst það t.d. eru þau góð og ég get talað við þau ef ég er í vandræðum í skólanum eða einhvers staðar.”
    12 ára stúlka

    „Mér fynnst góðir foreldrar sem hugga mann ef maður á bágt,  standa með mannni ef maður er að gera eithvað sérsyalt,  að maður getur letað til foreldra sinna ef ég á í vanda.”
    12 ára stúlka

    „Já.Ég á voða góða foreldra.Mér finnst þau bestu foreldrar í heimi.”
    11 ára stúlka

    „Þegar maður getur talað við þau um vandamál sín og hugsa vel um mann þegar maður er í vandræðum og vera góð. það verður líka að geta leitað til þeirra eð það hefur eitthvað gerst.”
    12 ára stúlka

    „Góðir foreldrar eru góðir við mann og taka tilit til manns og hjálpa manni við vandamál sín. og hjálpa við alskonar hluti og taka þátt í lífi manns!! þannig eru nokkrir hlutir um góða foreldra.”
    12 ára stúlka

    „Foreldrar eiga að vera góðir, hreinskilningslegir, þurfa að skilja mann vel, taka tillit, ekki öskra á mann ef maður gerir eithvað rangt, hafa aga, ekki ofdekra og fleira.”

    „Góðir foreldrar eru foreldrar sem maður getur treyst, sem hlusta á mann og ertu góðir við mann, það eru mamma mín og pabbi =).”
    12 ára stúlka

    „Góðir,Skemmtilegir,umhyggjusamir!”
    11 ára stúlka

    „Góðir foreldra eru eins og mínir foreldrar.”
    12 ára stúlka