Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga




     Nokkur svör barna og unglinga við spurningunni  

    Hvaða mannasiðir eiga að gilda á MSN og spjallrásum Netsins?
    Komdu með tillögur að reglum um Netsiði á MSN og spallrásunum.
    Spurt 2004

    „Það mætti ekki segja heimili síma og kennitölu & fleiri og það mætti ekki tala illa um þann sem maður var að tala við ekki nema að það sé djók eða eitthvað þannig.”

    „Það má ekki setja heimilisfang, síma eða kennitölu. Það má heldur ekki segja eitthvað ljótt um einhvern.”

    „Það á að hafa dónalegt.”

    „ Mér finnst að það eigi ekki að baktala aðra við einhverja inná svona síðum. Mér finnst heldur ekki að maður eigi að vera segja eitthvað leiðinlegt sem á að vera djók útaf því að þetta er særandi fyrir suma og sumir taka þessu ekki sem gríni.”

    „Bannað að vera að ljúga og segja ljótt um aðra.”

    „Ekki tala illa um aðra. Alls ekki gefa upp síman. Og ekki hvar maður áheima.”

    „Að vera ekki að rífa kjaft og tala ílla um aðra og segja ekki síman hjá og kenitölu, heimilisfang.”

    „Mér finnst eins og það eigi að láta mann samþykkja þegar að einhver fær msnið manns annars getur bara hver sem er fengið msnið mans og það hefur gerst við mig.”

    „ Mér finnst að maður ætti að banna að tala ljótt um aðra inn á netinu eða á MSN”

    „ Það má ekki tala illa um annað fólk. Það er bannað að segja að maður sé einn en það eru 2 eða feiri að skrifa. Ef maður er að rífa kjaft á MSN þá á hinn bara að blokka”

    „Mér finnst að það séu voða góðar reglur en mér finnst réttindabrot að fólk geti skoðað það sem maður skrifar  það þarf að herða þessar reglur annars finnst mér þær alt í lagi og mér finnst að ef annar fær MSN-ið mitt þá vil ég geta samþykkt að hann sé með það svo maður tali ekki við ókunnuga.”

    „ Það ættu að vera ákveðnar reglur t.d. að það mætti ekki blóta og ekki að spyrja er þessi betri en þessi og kannski er hinn hjá honum. Mér finnst að maður mætti ráða hvort að aðrir mættu afrita og lesa yfir hjá sér.”

    „Að segja ekkert ljót um hvort annað og ekki segja heimilisfand og sima :).”

    „Það á að banna að heypa einhverjum sem maður þekkir ekki inná, maður þarf
    að samþykkja það.”

    „Enginn  á að geta sagt allt.”

    „Það eiga að gilda allmennar siðferðisreglur um að setja ekki inn ærumeiðingar og slíkt en fólk virðist ekki vita hvað slikt er og þess vegna finnst mér að það eigi að kenna siðfræði í skólum!!! Það myndi bæta samfélagið.”

    „Að tala ekki illa um aðra og passa sig á að særa ekki neinn sérstaklega á bloggsíðum ekki þykjast vera einhver annar en maður er á msni og tala illa um einhvern aðila.”

    „Ekki segja frá leyndarmálum og ekki senda niðrandi myndir af öðrum einstaklingi.”

    „Allavega ekki að fara inná önnur msn og vera að ljúga að öllum þar inná og segja eitthvað ljótt þar og það þarf líka ekkert að vera að skrifa eitthvað vont um aðra á bloggsíðunum sínum og eitthvað svoleiðis eða bara inná spjalli þá þarf ekkert að vera að segja vont um aðra og reyna að móðga aðra.”

    „Mér finnst að það ætti ekki að standa eitthvað vont um mann á netinu, og að maður ætti ekki að stelast inná önnur msn.”

    „Af hverju ekki bara að banna þessar síður?”

    „Ef eitthvað bögg er í gangi þá þýðir ekki annað að BLOCKA manneskjuna (ég er að tala um msn), maður getur náttla ekki sett neinar spes reglur það á hvort sem er enginn eftir að fara eftir þeim... þannig að maður ræður því svosem sjálfur... B.L.O.C.K.A”

    „Maður á ekki að þykjast að vera vinur manns og segja eitthvað ljótt um aðra”

    „Að tala um að hata aðra eða tala illa um aðra og ekki segja kannski að aðrir  séu of feitir eða eitthvað þannig.”

    „Sko, MSN er spjallrás fyrir krakka og krakkarnir ráða bara hvernig þau tala ef þú vilja tala um eitthvað sem þau vilja tala um þá bara OKEY!!!!!!!!”

    „Ég fer oft inn á msn og það þarf ekki að banna að vera inni á  því ef einhverjum er strítt eða at í einhverjum þá á ekki að fara að banna þessu því fólk skemmtir sér inni á því en ég er ekki fullorðin og ég er ekki í grunnskóla.”

    „Allir venjulegir mannasiðir.”