Nokkur svör barna og unglinga við spurningunni
Tekur þú þátt í skipulögðu frístundastarfi?
Ef já, hverju?
Ef nei, af hverju ekki?
Spurt 2006
„Nei, af því að mér líður illa þegar ég er með mörgum í hóp. Svo er ég svo feit að ég get ekki verið í íþróttum."
13 ára stúlka
„Já ég er á reiðnámskeiði að því að mér þykir gaman af hestum."
9 ára stúlka
„Nei því ég hef engan tíma."
16 ára stúlka
„Ég var í skólagörðunum, því að mér finnst gaman að rækta grænmeti og mér finnst líka grænmeti gott."
12 ára stúlka
„Af því að mamma er einstæð móðir og á aldrei penning og er alltaf full og dópuð."
16 ára drengur
„Já, ég geri það því það er boðið upp á gott félagsstarf í mínum skóla og í mínu tómstundarheimili. Þar er alltaf gaman að vera og starfsmenn, kennarar og nemdendur frábærir :)"
14 ára drengur
„Já, fótbolta."
13 ára drengur
„Mér finnst ég niðurlægð í óþróttum, ég get ekki hlaupið né synt hratt! Svo í sturtu líður mér ílla út af vöxt og kynfæra útliti. ég er 14 ára, 167 á hæð,nota stærð 26 á buxum og er 56 kíló. Takk fyrir mig"
14 ára stúlka
„Já, herþjálfun"
13 ára drengur
„Ég æfi körfubolta og fótbolta mér finnst það gaman."
10 ára stúlka
„Nei, ég bara er ekki alveg klár á því, ætli gelgjan sé bara ekki að valtra yfir mann, kærastinn.. rúnturinn.. helgardjammið og skóli.. enginn timi fyrir íþróttir :S"
15 ára stúlka
„Jú, ég fer á opið hús."
15 ára stúlka
„Já. því þar er félagsskapur og þá þarf maður ekki að hugsa um öll sín vandamál bara um íþróttina...það er líka svo maður sé ekki allveg eirðarlaus á daginn!!!!"
15 ára stúlka
„Já ég er bæði í íþrótt og er virkur í félagslífi í skólanum"
15 ára drengur
„Hæhæ!! Ég ekki þátt í neinu íþróttastarfi af því að mamma mín og pabbi leyfa mér þaað ekki! ég bý reyndar í sveit en ég á vini í bænum og ég get farið til þeirra! sko mamma mín og pabbi eru alltaf að segja við mig að hreyfa mig meira af því að ég er búttuð en ég er svo spes að ég vil ekki hreyfa mig ein! mér finnst þaað svooooo leiðinlegt en ég er alltaf að reyna að segja þeim að ég vilji æfa eitthvað og þá hreyfi ég mig en það virkar ekki!!"
13 ára stúlka
„Ég tek þátt í félegsmiðstöðinni og er nokkuð virkur þar sem að ég er í nemendaráði."
14 ára drengur
„Nei því að það er eki gaman (held ég)."
12 ára stúlka
„Já, ég er í körfubolta."
16 ára drengur
„Já, ég æfi fótbolta á sumrin og á veturna er bara skólinn og æfa á píanó. ég er búin að æfa píanó í 4 ár."
11 ára stúlka
„JÁ HANBOLTA,LEIK OG SÖNGLIST OG FIÐLU."
12 ára stúlka
„Já ég tek þátt í fótbolta og frjálsum."
11 ára stúlka
„Dansi."
7 ára stúlka
„Karate."
6 ára drengur
„Já, ég æfi badminton 2 sinnum í viku."
14 ára stúlka
„Nei, vegna þess að ég er að læra og vinna, hef því ekki tíma, annars er svo lítið í boði hérna hjá okkur, bara fótbolti."
15 ára stúlka
„Nei, af því að mér langar ekki að stunda það :S"
13 ára stúlka
„Jabb. handbolta ;D"
13 ára stúlka
„Já , ég æfi handbolta og hef æft fótbolta og sund."
13 ára stúlka
„Ég hef æft fótbolta og æfi hann ennþá. Ég æfi líka handbolta og það er mjög gaman."
12 ára drengur
„Ég hef æft sund í nokkur ár og svo hætti ég því að það var svo leiðinlegt en í augnarblikinu æfi ég ekkert :):):)"
13 ára stúlka
„Ég hef prófað flesdar íþróttir og fannst það ekki gaman."
14 ára drengur
„Ég er að æfa dans og píanó."
12 ára stúlka
„Já ég tek þátt, ég er í Jazz/Klassískum ballet, svo er ég einnig að æfa á þverflautu og því fylgir tónfræðin auðtvitað."
13 ára stúlka
„Já ég tek þátt í íþróttum og ég er að æfa handbolta og það er mjög gaman."
12 ára drengur
„Já ég tek þátt. Ég æfi handbolta og er markmaður."
12 ára drengur
„Íshokký og hjól og snjóbretti."
12 ára drengur
„Af því ég nenni því ekki."
13 ára drengur