Nokkur svör barna og unglinga við spurningunni
Hverju þarf að breyta í skólanum?
Nú er verið að breyta lögum og reglum um grunnskóla landsins. Gott væri að heyra hvað þér og vinum þínum finnst um skólann. Hvað er best? Hvað er verst?
Spurt 2006-7
„Skólin minn er of langur hann er frá 8:10 til 13:10 og svo er maturin í mötuneytinu vondur. Skólin ætti að vera til 12:00 svo ættum við í fyrsta til 7 bekk að ákveða hvort við myndum fara út eða ekki sjálf.”
9 ára stúlka
„Að krakkar þurfi ekki að fara í frímínútur.”
9 ára stúlka
„Ég vil að allir hagi sér betur. Það eru á hverjum einasta degi læti, og ég fæ alltaf hausverk! sem er ekki gott. Þetta er það helsta sem ég vil hafa skólann!”
11 ára stúlka
„Má borða nammi og gos”
12 ára stúlka
„Að systkini verði búin á sama tíma.”
11 ára stúlka
„Það þarf að breyta því þegar krakkar lenda í vandræðum þannig að konur sem eru úti í frímínútum hjálpi krökkunum meira.”
11 ára stúlka
„Gæslur hætta að taka börn yngri en átta ára í ofbeldi ef þau gera eitthvað að sér . Þau eru bara nýbyrjuð og ekki gott fyrir þau að lenda í árekstrum í gæslum. Það gæti hafið árhif á hegðun og lærdóm.”
12 ára piltur
„Mér finnst að skólinn ætti ekki að vera klukkan átta til þrjú heldur 12 -3 það væri miklu,miklu betra því að þá þyrfti maður ekki vakna kl.7 ;)”
11 ára stúlka
„Reglunum, lærdóminum, hvenær skólinn byrjar, gæslurnar hjálpa til í frímínútum, ekki bara standa og tala og margt fleira.”
12 ára piltur
„Að gæslurnar meigi hætta að taka börn yngri enn 8 ára ofbeldi ef þau gera eitthvað af sér og breyta lögum að það má selja meiri t.d kleinuhringi og svoleiðis enn ekki bara hafa grænmeti og svoleiðis en annars er ég mjög ánægð með skólann okkar :D.”
12 ára stúlka
„Reglunum, slagsmálum og heimanámi.”
11 ára piltur
„Setja skólann um kl 2. Krakkar vilja sofa út því sumir eru voða morgunfúlir og líka þreyttir í skólanum kl 8 er svo snemma. Að vakna hálf 7 er bull ég vil vakna 9 eða hálf 10. Krakkar eru voða fúlir út af þessu!”
11 ára piltur
„Aðeins fleiri og skemtilegri gæslur og kenna ensku almennilega út af þvi að það er nauðsinilegt ef er verið að ferðast á mili landa og ef þú eignast vin/vinkonu sem er ensk”
11 ára piltur