Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga




       Nokkur svör barna og unglinga við spurningunni  

    Hvað er best við skólann þinn?  Hvað er verst við skólann þinn?
    Hverju myndir þú helst vilja breyta?
    Hvað finnst þér t.d. um skólastofuna, kennarana, frímínúturnar, skólalóðina, skólafélagana, matarhléin, námsgreinarnar, kennsluna og aðstöðu nemenda?  Er einelti í skólanum þínum?  Er vinnufriður eða of mikill hávaði?
    Spurt 2004
     
    „Það er allt frábært!!:D.”
     
    „Hvað er best við skólann þinn? Góð menntun Hvað er verst við skólann þinn? Eineltið...”
     
    „Það besta við skólann minn er að mér líður vel og ég er með fína kennara og allt hann er bara góður skóli :D.”
     
    „Það besta við skólan minn er valið og annað en íslenska og lífslekni. Það versta við skólann er fiskurinn í mötuneytinu. Ég vil breyta kennurum.. Skólasofan er fín. Kennarar eru í lagi. frímínúturnar mættu vera lengri. Skólalóðin er flott. Skólafélagarnir eru flottir. Matarhléðið er langt og gott.”

    „Það er mjög góður heimilisfræðikennari og góð tölvustofa. Aðal stofan sem ég er í er frekar lítil og það vantar einhvað fyrir gluggana. Frímínúturnar eru mjög fínar. Skólalóðinn mætti vera stærri en sleppur samt alveg. Bekknum mínum er skipt í tvennt og mér iynnst skiptingin ósanngjörn. Maturinn í skólanum er ekki sem bestur það eru líka hár í honum af því að mötuneytiskonurnar nota ekki hárnet. Námsgreinarnar eru fínar.
    Í kennslustofurnar finnst mér vannta fullt af tækjum og tólum, og klósetin eru ekki til fyrirmyndar. Ég held að það sé ekki mikið af einelti í skólanum. Vinnufriðurinn mætti vera meiri.”

    „Það besta við skólan er að gervigrasvöllurinn er kominn, við megum ekkivera mikið á vellinum, ég vil breyta sem mestu. Skólastofan er ekki tilbúin. Kennarinn minn er ágætur og getur verið slæmur og getur verið mjög skemmtileg, það er leiðinlegt í fríminútunum, mér finnst lóðin vera ljót því það er svo mikil mold út um allt, þeir eru mjög fínir. Vondur matur og mikið af hárum í skyrinu og mikið af fiski. Mér finnst námsgreinarnar fínar, kennslan er fín og aðstaða nemanda er misgóð. Nei ekki svo ég viti, góður vinnufriður stundum mikill hávaði í strákunum en það hafa Allir!!!  Hávaða.”
     
    „Það besta eru tölvutímar og langar frímínútur , það er líka valið. Það versta er að það er svo oft fiskur í matinn og að maður á að skrifa með penna í íslensku. Ég mundi vilja breyta skólatímun og hafa meira að tölvutímum og vali, kanski líka meira að matreiðslutímun. Kennarar eru góðir. Allt er gott því það er ekkert einelti og ekkert mas svo er bara allt gott.”
     
    „Það besta við skólann er öflugt félagslíf og alveg frááábærir samnemendur. Það versta er hádegismaturinn og öll hárin sem fylgja honum. Ég mundi fyrst tvöfallda félagslífið þótt það sé alveg nóg af þvi fyrir. Svo myndi ég láta matreiðslukonurnar gera góðan mat og vera með svona húfur til að það fari ekki hár í matinn. skólastofan er ekki tilbúin, kennarinn er fínn, ágætar frímínútur, nýr gervigrasvöllur, heppinn í bekkjarskiptingunni, mjög vondur matur, lenti á frekar óskemmtilegu vali, of mikil heimavinna en samt mjög gott félagslíf. það er góður vinnufriður fyrir mig mér finnst alveg jafn gott að vinna í hávaða..”
     
    „Það eru skemmtilegir krakkar og skemmtilegt í vali. Mér finnst ekki gaman í sundi og það er matur á mismunandi tíma. Ég myndi vilja að það yrði oftar leikfimi.”
     
    „Best við skólann minn er að það eru skemmtilegir krakkar og ágætt félagslíf. Verst við skólann minn er maturinn og nokkrir tímarnir eru leiðinlegir. Ég vildi mest breyta mötuneytinu. Mér finnst skólastofan mín fínn. Kennararnir eru ágætir og frímínúturnar,skólalóðin og skólafélagarnir góðir og líka matarhléin líka. Námsgreinarnar eru flestar góðar og kennslan og aðstaða nemenda góð. Ég veit ekki um einelti í skólanum og það er ágætur vinnufriður í skólanum.”
     
    „Minn skóli er mjög góður skóli það er mjög gott starfsfólk í honum. Auðvitað er erfitt stundum að vera í skóla og maður kvíður fyrir honum.en ef maður vill að hann verði góður verður maður að vera jákvæður. Stundum er ófriður.”
     
    „Ég er á flestum sviðum mjög ánægður með skólann minn. Það sem að mér finnst að mætti bæta er að það þarf að draga úr einelti - stórlega. Einnig að finna eitthvað út fyrir þá sem trufla aðra í tímum. Oft hefur maður engan vinnufrið fyrir hlátri og látum fyrir aftan mann.”
     
    „Mér finnst skólinn minn frábær mér finnst ekkert vera verst við skólan minn.ég vill ekki breyta neinu.”
     
    „Það besta við skólann er að leika við vini mína.það versta er að það eru svo mikil læti í bekknum.Ég myndi vilja láta skólan byrja klukkan hálf níu.Mér finnst að bekkirnir ættu að fara oftar saman í úttileiki.”
     
    „Mér finnst maturin ógeðslegur. Mér er strítt í skólanum. Mér finnst skólinn leiðnlegur.”
     
    „Það fína er að ekki of þung heimaverkefni. Það vonda er að mér er alltaf strítt. Ég veit ekki hverju ég vildi breyta.”
     
    „Ég veit ekki hvað er best við skólann en versta er að vinkonur mínar eru svo oft að ljúga að mér og hunsa mig, og þeim er alveg sama um það og eru að leika sér og vilja ekki hafa mig með.”
     
    „Það sem er best við skólann er að það er lítið um einelti og flestir eigavini. Kennarinn er ekki skemmtilegur, seinasti kennari var skemmtilegur en ekki þeessi. Ég vil gamla kennarann aftur.”
     
    „Ég veit ekki hvað mér finnst best við skólann minn. En það versta vð skólann minn er finnst mér að margir kennarar eru vondir við mig. Einn kennari sagði að ég væri að ljúga af öllum en ég geri það ekki.”
     
    „Mér finnst best að það er dans. Mér finnst ekkert verst við skólan. Ég myndi ekki vilja breyta neinu.”
     
    „Það besta við skólann er að það er heitur matur. Það versta við skólann er það sem við þurfum að læra.”
     
    „Kennarinn minn er alveg ágætur, mér finnst að í frímínútunum mætti maður vera inni ef það er vont veður. Matarhléin eru fín og námsgreinarnar líka kennslan er góð.”
     
    „Mér finnst frímínúturnar eru allt of  stuttar. Það er einelti í öllum skólum...ég er ekki lagður í einelti. En ég hef verið lagður í einelti í gamla skólanum mínum. Það er dálítill hávaði stundum erfitt að læra en samt ekki.”
     
    „Ég myndi vilja hafa eldri krakka í skólum sérstaklega fólk á þrítugsaldriog yfir. Fólk ætti að endurnýja menntun sína í grunnskólum og framhaldsskólum !! MENNT ER MÁTTUR líka fyrir eldra fólk.”
     
    „Kennsla: Sumar bækurnar eru barnalegar. Það getur verið gaman í sumu en ekki öllu. Mér finnst að það megi stytta skólann aðeins. Síðustu dagana erum við bara í leiðinlegum leikjum”
     
    „Mér finnst best við skólann að vera með vinunumn.  Mér finnst verst að mér finnst að frímínúturnar ættu að vera lengri!! mér finnst vera lítið einelti í skólanum mínum. mér finnst annars allt í lagi í skólanum =).”
     
    „Besta við skólann minn er að við erum í íþrótum.Versta við hann er að það er svo mikið að læra í skólanum og heima. Það ætti ekki að vera píptest í íþrótum og minna að læra heima...”
     
    „Ég er ný byrjuð í nýjum skóla og mér var tekið alveg rosalega vel en samt líður mér eitthvað illa í honum og ég veit ekki hvað það er.”
     
    „Það besta við skólann eru bekkjarfélagarnir. Það versta við skólann er að frímínúturnar eru of stuttar. Það sem ég vildi helst breyta við skólann er að hafa stærri stofur og þægilegri stóla (helst laxyboy!!!!) og að maðurmegi hafa með sér fartölvur eða venjulegar tölvur í skólann.:D.”
     
    „Skólinn minn er bara ósköp venjulegur sko,, ekkert verst eða best neitt. Og ég get ekkert fundið núna hverju ég myndi vilja breyta, ekkert íaugnablikinu.”
     
    „Þetta er allt æði nema danska.”
     
    „Ég er búinn að búa á ísland í 7 ár ég á góða vinnir hér, mjög góðar en mikið af einelti líka en ég get ekki gert neitt úr því. Á líka ennþá erfitt með íslensku en fæ nóg af aðstoð”
     
    „Veit ekki hvað er best en veit ekki hvað er verst en það mætti vera þannig að ef krakkar eru duglegir í tíma ætti engin heimavinna að vera. Það er misjafnt með vinnufrið, kennara skólastofur og allt sem því tengist.”
     
    „Það er mikið um einelti í skólanum mínum, mér finnst það leiðinlegt. Ég vildi að það væri ekki til einelti í skólanum mínum.”
     
    „Það besta við skólann minn er að það er bara gaman í honum því að það þekkjast flestir bara vel og ekkert einelti. Það er alveg nóg af fímínútum finnst mér. Skólafélagar mínir eru bara mjög skemmtilegir. Skólastofurnar mættu vera í betra standi en alltí lagi samt. kennararnir eru flestir fínir.”
     
    „Eitt að því besta við skólann eru þær skemmtilegu manneskjur sem maður kynnist þar og getur talað við, hlegið með og fl. sem mikilvægt er fyrir allar manneskjur. Því miður er ansi oft mikill hávaði í kennslustundum og því getur stundum verið erfitt að einbeita sér í tímum. Skólinn okkar er ekkert mjög stór og því er stundum þröngt á þingi en að mörgu leyti þjappar það okkur bara saman og úr verðu samheldnari hópur. Auðvitað er einelti í okkar skóla eins og því miður í sennilega öllum skólum, en sem betur fer hefur eineltið í okkar skóla heldur minnkað síðustu árin. Mörgum er farið að líða betur í skólanum og það er auðvitað mjög gott því það dregur úr skólaleiða og eykur námsgetu. Matarhléið okkar er mjög fínt, skólalóðin er frekar tómleg en aðstaða nemenda ágæt og stendur jafnvel til að gera hana betri.”
     
    „Mér finnst skólastofurnar ekki upplífgandi,kennarnarir eru fínir.Frímínúturnar eru skrítnar. Skólalóðin er ekki góð og eini staðurinn sem við sækjum í frímínótunum er sjoppur.”
     
    „Krakkarnir eru öruggglega það besta við skólann minn. Kennararnir eru verstir, því að sumir þeirra leggja ákveðna aðila í einelti. Ég myndi helst vilja breyta bekkjarskiptingunni.”
     
    „Mér finnst þetta allt alveg ágætt og ég held að það sé ekki mikið einelti í skólanum mínum og ég er farinn að sakna hávaðans úr bekknum mínum. Alltof mikil vinnufriður!!”
     
    „Mér finnst mjög skemmtilegt í skólanum ég ef ekki verið lögð í einelti og ég er heppin með það.”