Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga



Grunnskólinn 

15.11.2011. ATH.
Ekki er búið að uppfæra þennan texta skv. reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskóla nr. 1040/2011 og lögum um breytingu á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008
, með síðari breytingum, nr. 91/2011.

Réttur til menntunar
Lög og reglur um grunnskóla
Aðalnámskrá grunnskóla — skólanámskrá
Hlutverk grunnskólans og markmið náms
Yfirstjórn grunnskóla 
Ábyrgð sveitarfélaga
Skólanefnd
Starfsfólk grunnskólans og skyldur þess
Umsjónarkennari
Náms- og starfsráðgjöf
Nemendaverndarráð
Skólaráð
Foreldrasamstarf — foreldrafélag
Nemendafélag
Ábyrgð foreldra
Réttur og velferð nemenda
Ábyrgð nemenda og agabrot
Skólareglur
Skólaskylda og undanþágur
Val á skóla
Nám utan lögheimilissveitarfélags
Skólaganga barna í fóstri
Kennslutími 
Tómstundastarf og lengd viðvera (heilsdagsskóli)
Jöfn tækifæri til náms
Nemendur með sérþarfir í skóla án aðgreiningar
Sérfræðiþjónusta og stoðkerfi grunnskóla
Sérúrræði (sérdeildir) og sérskólar
Skólaheilsugæsla
Lyfjagjafir í grunnskólum
Sjúkrakennsla 
Nemendur með annað móðurmál en íslensku
Valgreinar og þátttaka í atvinnulífi metin
Kostnaður í skyldunámi
Vettvangsferðir
Skólaakstur
Mötuneyti
Húsnæði, skólalóð og öryggi
Námsmat
Upplýsingar um barn
Upplýsingaskylda skóla við forsjárlausa foreldra
Meðferð trúnaðarupplýsinga
Tilkynningarskylda til barnaverndaryfirvalda
Túlkun upplýsinga til  foreldra
Lok grunnskóla
Vinna með skóla
Einelti í skólum
Forvarnir í skólum
Boðleiðir — ágreiningsmál
Kæruheimild
Kærustig innan sveitarfélags
Stjórnsýslulög
Mat og eftirlit með gæðum grunnskólastarfs
Viðurkenning grunnskóla, samrekstur og þróunarskólar

Hægt er að smella á kaflaheitin til að komast í einstaka kafla.
Með því að smella á kaflaheiti í texta er hægt að komast aftur efst á síðu.

Réttur til menntunar
Samkvæmt íslenskum lögum og alþjóðlegum mannréttindasamningum, svo sem Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, hvílir meginábyrgðin á uppeldi og umönnun barna á herðum foreldra. Hlutur grunnskólans felst einkum í því að sjá nemendum fyrir formlegri fræðslu og taka þátt í félagslegri mótun þeirra. Þetta sameiginlega verkefni heimila og skóla kallar á náin tengsl, gagnkvæma upplýsingamiðlun, samábyrgð og samvinnu.

Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna fjallar um rétt barna til menntunar. Þar segir í 28. og 29. grein:

28. gr. 1. Aðildarríki viðurkenna rétt barns til menntunar og skulu þau, til þess að réttur þessi nái fram að ganga stig af stigi og þannig að allir njóti sömu tækifæra, einkum:
   
a) Koma á skyldu til grunnmenntunar sem allir geti notið ókeypis.
   
b) Stuðla að þróun ýmiss konar framhaldsmenntunar, þar á meðal almennrar menntunar og starfsmenntunar, veita öllum börnum kost á að njóta hennar, og gera aðrar ráðstafanir sem við eiga, svo sem með því að veita ókeypis menntun og bjóða fjárhagslega aðstoð þeim sem hennar þurfa með.
   
c) Veita öllum kost á æðri menntun eftir hæfileikum, með hverjum þeim ráðum sem við eiga.
   
d) Sjá til þess að upplýsingar og ráðgjöf um nám og starfsval séu fyrir hendi og aðgengilegar öllum börnum.
   
e) Gera ráðstafanir til að stuðla að reglulegri skólasókn og draga úr því að nemendur hverfi frá námi.
 2. Aðildarríki skulu gera allt það sem við á til að tryggja að námsaga sé haldið uppi með þeim hætti sem samrýmist mannlegri reisn barnsins og í samræmi við samning þennan.
 3. Aðildarríki skulu stuðla að og hvetja til alþjóðasamvinnu um menntamál, einkum í því skyni að leggja fram skerf til útrýmingar á vanþekkingu og ólæsi hvarvetna í heiminum, og greiða fyrir aðgangi að vísinda- og tækniþekkingu og nútímakennsluaðferðum. Hvað þetta snertir skal tekið sérstakt tillit til þarfa þróunarríkja.

 29. gr. 1. Aðildarríki eru sammála um að menntun barns skuli beinast að því að:
   
a) Rækta eftir því sem frekast er unnt persónuleika, hæfileika og andlega og líkamlega getu þess.
   
b) Móta með því virðingu fyrir mannréttindum og mannfrelsi og grundvallarsjónarmiðum þeim er fram koma í sáttmála hinna Sameinuðu þjóða.
   
c) Móta með því virðingu fyrir foreldrum þess, menningarlegri arfleifð þess, tungu og gildismati, þjóðernislegum gildum þess lands er það býr í og þess er það kann að vera upprunnið frá, og fyrir öðrum menningarháttum sem frábrugðnir eru menningu þess sjálfs.
   
d) Undirbúa barn til að lifa ábyrgu lífi í frjálsu þjóðfélagi, í anda skilnings, friðar, umburðarlyndis, jafnréttis karla og kvenna og vináttu milli allra þjóða, þjóðhátta-, þjóðernis- og trúarhópa, og fólks af frumbyggjaættum.
   
e) Að móta með því virðingu fyrir náttúrulegu umhverfi mannsins.
 2. Eigi skal líta svo á að í grein þessari eða í 28. gr. sé fólgin nein íhlutun í rétt manna og hópa til að koma á fót og stjórna menntastofnunum, enda sé ávallt gætt þeirra meginreglna, sem fram koma í 1. tölul. þessarar greinar, og lágmarkskrafna sem ríkisvaldið kann að gera til menntunar sem slíkar stofnanir veita.

Ísland fullgilti barnasáttmálann árið 1992. Staðfesting hans felur í sér að Ísland er skuldbundið að þjóðarétti til að virða og uppfylla ákvæði samningsins. Í 3. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar segir jafnframt: „Börnum skal tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst.

Lög og reglur um grunnskóla
Sérstök lög, nr. 91/2008 gilda um starfsemi grunnskóla og eru þau í rauninni grundvöllur skólastarfs í grunnskólum.  Lögin taka til grunnskóla á vegum sveitarfélaga, til sjálfstætt rekinna grunnskóla sem hlotið hafa viðurkenningu samkvæmt lögunum og til viðurkennds náms á grunnskólastigi, s.s. heimakennslu, fjarkennslu eða dreifnáms. Þegar frumvarpið var lagt fyrir Alþingi fylgdi því greinargerð með athugasemdum við einstakar greinar. Þær athugasemdir geta verið gagnlegar við að skýra betur greinarnar.

Ýmsar reglugerðir hafa verið settar með heimild í grunnskólalögum og fjalla þær um afmarkaðri viðfangsefni grunnskólans. Núgildandi grunnskólalög nr. 91/2008 tóku gildi 1. júlí 2008. Á vefsvæðinu www.reglugerd.is/ má sjá allar reglugerðir sem til eru um grunnskóla.

Aðalnámskrá grunnskóla — skólanámskrá
Aðalnámskrá grunnskóla, sem gefin er út af mennta- og menningarmálaráðuneytinu, kveður nánar á um uppeldishlutverk grunnskólans og meginstefnu í kennslu og kennsluskipan. Í 24. gr. grunnskólalaga eru talin upp atriði sem skal leggja áherslu á í aðalnámskrá. Aðalnámskrá er sett af mennta- og menningarmálaráðherra með sama hætti og reglugerðir og gegnir margvíslegu hlutverki. Hún er allt í senn stjórntæki til að fylgja eftir ákvæðum laga, fyrirmæli fræðsluyfirvalda um skólastefnu og safn sameiginlegra markmiða skólastarfs í landinu. Aðalnámskrá er ætlað að samræma nám og kennslu að því marki sem þörf er talin á og tryggja rétt allra nemenda til tiltekinnar lágmarksmenntunar og jafnrétti til náms. Á bls. 7 í aðalnámskrá er fjallað um hlutverk hennar.

Samkvæmt 29. grunnskólalaga skal árlega gefa út skólanámskrá í hverjum skóla og er skólastjóri ábyrgur fyrir því að hún sé unnin, gefin út og kynnt. Skólanámskrá er nánari útfærsla á aðalnámskrá grunnskóla um markmið, inntak náms og námsmat, starfshætti og mat á árangri og gæðum skólastarfs. Skólanámskrá tekur mið af sérstöðu grunnskóla og aðstæðum og skal endurskoða reglulega. Skólaráð í hverjum grunnskóla á að fjalla um skólanámskrá skólans en skólanefnd sveitarfélagsins á að staðfesta hana.

Hlutverk grunnskólans og markmið náms
Hlutverk grunnskólans er skilgreint í 2. gr. grunnskólalaga:

     Hlutverk grunnskóla, í samvinnu við heimilin, er að stuðla að alhliða þroska allra nemenda og þátttöku þeirra í lýðræðisþjóðfélagi sem er í sífelldri þróun. Starfshættir grunnskóla skulu mótast af umburðarlyndi og kærleika, kristinni arfleifð íslenskrar menningar, jafnrétti, lýðræðislegu samstarfi, ábyrgð, umhyggju, sáttfýsi og virðingu fyrir manngildi. Þá skal grunnskóli leitast við að haga störfum sínum í sem fyllstu samræmi við stöðu og þarfir nemenda og stuðla að alhliða þroska, velferð og menntun hvers og eins. 
     Grunnskóli skal stuðla að víðsýni hjá nemendum og efla færni þeirra í íslensku máli, skilning þeirra á íslensku samfélagi, sögu þess og sérkennum, högum fólks og á skyldum einstaklingsins við samfélagið, umhverfið og umheiminn. Nemendum skal veitt tækifæri til að nýta sköpunarkraft sinn og að afla sér þekkingar og leikni í stöðugri viðleitni til menntunar og þroska. Skólastarfið skal leggja grundvöll að frumkvæði og sjálfstæðri hugsun nemenda og þjálfa hæfni þeirra til samstarfs við aðra. 
     Grunnskóli skal stuðla að góðu samstarfi heimilis og skóla með það að markmiði að tryggja farsælt skólastarf, almenna velferð og öryggi nemenda.

Samkvæmt 25. gr. grunnskólalaga skal í aðalnámskrá kveðið á um meginmarkmið náms og kennslu, uppbyggingu og skipan náms, svo og hlutfallslega skiptingu tíma milli námssviða og námsgreina í grunnskóla. Þess skal gætt að námið verði sem heildstæðast en hver grunnskóli ákveði hvort námsgreinar og námssvið eru kennd aðgreind eða samþætt. Í greininni segir einnig m.a. að í aðalnámskrá skuli skilgreina þekkingar- og hæfniþætti á hverju námssviði. Nemendur skulu eiga þess kost að uppfylla námsmarkmið einstakra námsgreina og námssviða með mismunandi hætti. Í aðalnámskrá skal setja árangursviðmið um það hvenær nemandi telst hafa lokið einstökum námsgreinum eða námssviðum. Einnig skal setja viðmið vegna nemenda sem ljúka grunnskólanámi á skemmri tíma en tíu árum.

Í aðalnámskrá og við skipulagningu náms og kennslu og við gerð og val námsgagna skal þess sérstaklega gætt að allir nemendur fái jöfn tækifæri til náms og eigi þess kost að velja sér viðfangsefni og nálgun í  námi. Þetta segir í 24. gr. grunnskólalaga sem fjallar um aðalnámskrá. Þar segir einnig að markmið náms og kennslu og starfshættir grunnskóla skuli vera þannig að komið sé í veg fyrir mismunun vegna uppruna, kyns, kynhneigðar, búsetu, stéttar, trúarbragða, heilsufars, fötlunar eða stöðu að öðru leyti. Í öllu skólastarfi skal stuðla að heilbrigðum lífsháttum og taka mið af persónugerð, þroska, hæfileikum, getu og áhugasviðum hvers og eins.

Yfirstjórn grunnskóla 
Ráðherra fer með yfirstjórn þeirra málefna sem grunnskólalög taka til, setur aðalnámskrá, leggur til námsgögn, hefur eftirlit með gæðum skólastarfs, annast öflun, greiningu og miðlun upplýsinga, styður þróunarstarf í skólum og hefur úrskurðarvald í ákveðnum ágreiningsmálum. Ráðuneyti hefur eftirlit með því að sveitarfélög uppfylli þær skyldur sem lög þessi, reglugerðir og reglur settar samkvæmt þeim og aðalnámskrá grunnskóla kveða á um. Þetta segir í 4. gr. grunnskólalaga. 

Ábyrgð sveitarfélaga
Rekstur grunnskóla er á ábyrgð og kostnað sveitarfélaganna skv. 5. gr. grunnskólalaga. Sveitarfélög bera ábyrgð á heildarskipan skólahalds í grunnskólum sveitarfélagsins, þróun einstakra skóla, húsnæði og búnaði grunnskóla, sérúrræðum grunnskóla, sérfræðiþjónustu, mati og eftirliti, öflun og miðlun upplýsinga og á framkvæmd grunnskólastarfs í sveitarfélaginu. Sveitarfélög setja almenna stefnu um grunnskólahald í sveitarfélaginu og kynna fyrir íbúum þess. Sveitarstjórn skal koma á samstarfi leikskóla og grunnskóla annars vegar og grunnskóla og framhaldsskóla hins vegar. Sveitarfélög bera ábyrgð á samstarfi skóla við aðila utan hans.

Sveitarfélögum er skylt að sjá til þess að skólaskyld börn skv. 3. gr., sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu, og börn sem hefur verið ráðstafað í fóstur til fósturforeldra, sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu, njóti skólavistar.

Skólanefnd
Hlutverk skólanefnda í sveitarfélögunum er skilgreint í 6. gr. grunnskólalaga:

     Í hverju sveitarfélagi skal í umboði sveitarstjórnar vera skólanefnd sem fer með málefni grunnskóla eftir því sem lög og reglugerðir ákveða og sveitarstjórn eða sveitarstjórnir kunna að fela henni.
Meginhlutverk skólanefndar er sem hér segir:
    a.      að sjá til þess að öll skólaskyld börn sem rétt eiga á skólavist í sveitarfélaginu njóti lögboðinnar fræðslu,
    b.      að staðfesta starfsáætlun skóla ár hvert og skólanámskrá einstakra skóla,
    c.      að fylgjast með framkvæmd náms og kennslu í sveitarfélaginu og gerð skólanámskrár og gera tillögur til skólastjóra og/eða sveitarstjórnar um umbætur í skólastarfi,
    d.      að fylgjast með og stuðla að því að nemendum og skólum sé tryggður aðgangur að sérfræðiþjónustu,
    e.      að sjá til þess að jafnan sé fyrir hendi viðeigandi húsnæði fyrir kennslu og annar aðbúnaður, þ.m.t. útivistar- og leiksvæði nemenda,
    f.      að hafa eftirlit með að ákvæði laga og reglugerða séu uppfyllt og gera tillögur til sveitarstjórnar um úrbætur,
    g.      að stuðla að tengslum og samstarfi leikskóla og grunnskóla annars vegar og grunnskóla og framhaldsskóla hins vegar. 
     Skólanefnd skal kosin af hlutaðeigandi sveitarstjórn í upphafi hvers kjörtímabils. Um kosningu í skólanefnd og starfshætti fer samkvæmt sveitarstjórnarlögum og samþykktum viðkomandi sveitarfélags. Varamenn í skólanefndum skulu vera jafnmargir aðalmönnum og kosnir á sama hátt. 
     Skólastjórar, grunnskólakennarar og foreldrar í sveitarfélagi kjósa hver úr sínum hópi aðal- og varamann til setu á skólanefndarfundum með málfrelsi og tillögurétt. 
     Þegar skólanefnd fær til meðferðar kærumál samkvæmt ákvæðum laga þessara gilda um meðferð kærumálsins reglur stjórnsýslulaga. Um sérstakt hæfi nefndarmanna og annarra fulltrúa sem rétt hafa til að sitja fundi nefndarinnar gilda ákvæði sveitarstjórnarlaga.

Starfsfólk grunnskólans og skyldur þess
Um skólastjóra er fjallað um í 7. gr. grunnskólalaga. Skólastjóri er forstöðumaður grunnskóla, stjórnar honum, veitir faglega forustu og ber ábyrgð á starfi skólans gagnvart sveitarstjórn. Skólastjóri stuðlar að samstarfi allra aðila skólasamfélagsins. Skólastjóri boðar til kennarafunda svo oft sem þurfa þykir á starfstíma grunnskóla. Kennarafundi skulu sækja kennarar og aðrir sérfræðingar skólans. Skólastjóri boðar til starfsmannafunda svo oft sem þurfa þykir. Skólastjóri ábyrgur fyrir því að skólanámskrá sé unnin, gefin út og kynnt.

Í 13. gr. grunnskólalaga þar sem helstu réttindi nemenda eru tekin saman og skilgreind segir m.a. um umsjónarkennara og náms- og starfsráðgjöf: 

     Hver nemandi skal hafa umsjónarkennara. Umsjónarkennari fylgist náið með námi nemenda sinna og þroska, líðan og almennri velferð, leiðbeinir þeim í námi og starfi, aðstoðar og ráðleggur þeim um persónuleg mál og stuðlar að því að efla samstarf skóla og heimila. 
     Nemendur eiga rétt á að njóta náms- og starfsráðgjafar í grunnskóla af til þess bærum sérfræðingum.

Nemendur í vanda eiga að geta leitað til hvaða starfsmanns grunnskóla sem er í fullum trúnaði og vissu um aðstoð. Starfsmönnum ber þá að finna vandamálunum réttan farveg til lausnar eftir eðli máls hverju sinni. Starfsfólk grunnskóla skal, skv. 12. gr. grunnskólalaga, rækja starf sitt af fagmennsku, alúð og samviskusemi. Það skal gæta kurteisi, nærgætni og lipurðar í framkomu sinni gagnvart börnum, foreldrum þeirra og samstarfsfólki. Starfsfólk grunnskóla skal gæta fyllstu þagmælsku um hagi barna og foreldra þeirra, sem það fær vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara samkvæmt lögum, fyrirmælum yfirmanna og eðli máls. Þagnarskylda helst þótt viðkomandi láti af störfum. Þagnarskylda starfsfólks grunnskóla nær ekki til atvika sem ber að tilkynna um lögum samkvæmt. Skal skólastjóri brýna skyldur þessar fyrir starfsfólki og sérstaklega tilkynningarskyldu samkvæmt barnaverndarlögum. Til eru sérstakar verklagsreglur um tilkynningarskyldu starfsfólks leik-, grunn- og framhaldsskóla til barnaverndarnefnda. Sjá nánar í kaflanum meðferð trúnaðarupplýsinga.

Sjá nánari upplýsingar um starfsfólk grunnskóla í 7., 11. og 12. gr. grunnskólalaga og í lögum um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla nr. 87/2008. Sjá einnig Siðareglur kennara á vef Kennarasambands Íslands, reglugerð um matsnefnd leikskóla-, grunnskóla- og framhaldsskólakennara og reglugerð um inntak menntunar leik-, grunn- og framhaldsskólakennara, nr. 872/2009.

Umsjónarkennari
Umsjónarkennarar hafa veigamiklu hlutverki að gegna skv. 2. mgr. 13. gr. laga um grunnskóla, sem fjallar um rétt nemenda:

     Hver nemandi skal hafa umsjónarkennara. Umsjónarkennari fylgist náið með námi nemenda sinna og þroska, líðan og almennri velferð, leiðbeinir þeim í námi og starfi, aðstoðar og ráðleggur þeim um persónuleg mál og stuðlar að því að efla samstarf skóla og heimila.

Umsjónarkennarar geta líka vísað nemendum sínum til fagfólks innan skólans, s.s. hjúkrunarfræðings eða námsráðgjafa. Um hlutverk umsjónarkennara segir í aðalnámskrá (pdf) — almennum hluta 2006 (bls. 22):

     Hann er öðrum fremur tengiliður skólans við heimilin og einnig fylgist hann náið með námi nemenda sinna og þroska og breytingum á högum og atferli nemenda sem skipt geta máli hvað varðar frammistöðu og líðan þeirra í skólanum. Hann leiðbeinir þeim í námi og starfi, aðstoðar þá og ráðleggur þeim um persónuleg mál. Umsjónarkennarar og námsráðgjafar gegna að þessu leyti mjög mikilvægu hlutverki.

Náms- og starfsráðgjöf
Í 3. mgr. 13. gr. grunnskólalaga, sem fjallar um rétt nemenda, segir að nemendur eigi rétt á að njóta náms- og starfsráðgjafar í grunnskóla af aðilum sem uppfylla skilyrði laga um náms- og starfsráðgjafa. Það er mismunandi hvernig fyrirkomulag náms- og starfsráðgjafar er. Í flestum skólum starfa náms- og starfsráðgjafar en minni skólar sækja þessa þjónustu á skrifstofur sveitarfélagsins. Sumir skólar eru líka með skólafélagsráðgjafa eða sálfræðing en í flestum tilvikum sækja skólarnir þjónustu sálfræðinga og félagsráðgjafa til skólaskrifstofu sveitarfélagsins. Þessir sérfræðingar geta hjálpað og ráðlagt nemendum sem eiga í alls kyns erfiðleikum í skólanum, heima hjá sér eða í sambandi við vini sína. Dæmigerð mál sem námsráðgjafi vinnur að með nemendum eru t.d. námsörðugleikar, fötlun, geðraskanir eða hegðunarraskanir.  Einnig hjálpar hann nemendum að takast á við vanlíðan, erfiðleika á heimilinu og félagslega erfiðleika.  Námsráðgjafinn vinnur þá oft í samstarfi við aðra starfsmenn skólans, eins og t.d. sérkennsluráðgjafa, stuðningsfulltrúa eða umsjónarkennara og starfsfólk sveitarfélagsins, s.s. sálfræðing eða barnaverndarstarfsmenn.

Fjallað er um hlutverk náms- og starfsráðgjafar í grunnskólum í aðalnámskrá — almennum hluta 2006 (bls. 23):

Efla þarf vitund nemenda um viðhorf sín, áhuga og hæfileika þannig að þeir fái notið sín í námi og starfi og geti gert raunhæfar áætlanir um nám og störf í framtíðinni. Leggja ber áherslu á að nemendur átti sig á sterkum og veikum hliðum sínum og auki sjálfsþekkingu til að geta betur tekist á við kröfur samfélagsins, bæði í áframhaldandi námi, einkalífi og atvinnulífi. Nemendur í efri bekkjum grunnskóla skulu eiga kost á náms- og starfsráðgjöf á vegum skólans.

Nemendaverndarráð
Nemendaverndarráð fjallar um sérstök úrræði fyrir einstaka nemendur. Í 4. mgr. 40. gr. laga um grunnskóla segir:

     Skólastjóri skal samræma innan hvers skóla störf þeirra sem sjá um málefni einstakra nemenda er lúta að sérfræðiþjónustu, námsráðgjöf og skólaheilsugæslu með stofnun nemendaverndarráðs. Jafnframt skal stuðla að samráði við félagsþjónustu sveitarfélags og barnaverndaryfirvöld vegna málefna einstakra nemenda eftir því sem þurfa þykir. Heimilt er, með rökstuddri greinargerð, að sækja um tímabudna undanþágu frá einstökum ákvæðum í reglugerð um nemendaverndarráð til ráðuneytis. Gildar ástæður þurfa að vera fyrir veitingu undanþágu, svo sem fámenni eða sérstaða.

Í V. kafla reglugerðar um sérfræðiþjónustu sveitarfélaga við leik- og grunnskóla og nemendaverndarráð í grunnskólum eru ákvæði um nemendaverndarráð:

V. KAFLI
Starfsemi nemendaverndarráða grunnskóla.
16. gr. Samræmingarhlutverk skólastjóra grunnskóla.
Skólastjóri grunnskóla skal samræma innan hvers grunnskóla störf þeirra sem sjá um málefni einstakra nemenda er lúta að sérfræðiþjónustu, náms- og starfsráðgjöf og skólaheilsugæslu með stofnun nemendaverndarráðs skv. 40. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla.
Jafnframt skal skólastjóri grunnskóla stuðla að samráði við félagsþjónustu sveitarfélags og barnaverndaryfirvöld vegna málefna einstakra nemenda eða nemendahópa eftir því sem þurfa þykir.

17. gr. Hlutverk nemendaverndarráðs.
Hlutverk nemendaverndarráðs er að samræma skipulag og framkvæmd þjónustu við nemendur varðandi skólaheilsugæslu, náms- og starfsráðgjöf og sérfræðiþjónustu og vera skólastjóra til aðstoðar um framkvæmd áætlana um sérstaka aðstoð við nemendur. Samstarfið getur verið bæði vegna einstakra nemenda og forvarnarstarfs.

18. gr. Skipan nemendaverndarráðs.
Skólastjóri skipar nemendaverndarráð til eins árs í senn og er ábyrgur fyrir starfrækslu ráðsins sem skal taka mið af aðstæðum í hverjum skóla. Skólastjóri eða fulltrúi hans stýrir starfi nemendaverndarráðs.
Í nemendaverndarráði grunnskóla eiga sæti skólastjóri og/eða fulltrúi sem hann tilnefnir, umsjónaraðili kennslu nemenda með sérþarfir, fulltrúi skólaheilsugæslu, fulltrúi sérfræðiþjónustu sveitarfélags og náms- og starfsráðgjafi. Einnig geta fulltrúar frá félagsþjónustu sveitarfélags og barnaverndaryfirvöldum tekið þátt í starfi nemendaverndarráðs þegar tilefni er til.

19. gr.
Vísun mála til nemendaverndarráðs.
Fái nemandi ekki fullnægjandi aðstoð vegna fötlunar, sjúkdóms eða námslegra, félagslegra eða tilfinningalegra erfiðleika skal umsjónarkennari vísa málinu skriflega til nemendaverndarráðs.
Fulltrúar í nemendaverndarráði geta haft frumkvæði að því að mál einstakra nemenda séu tekin upp í ráðinu.
Starfsfólk skóla, foreldrar, nemendur og fulltrúar sérfræðiþjónustu skólans geta óskað eftir því við skólastjóra eða fulltrúa hans í nemendaverndarráði að mál einstakra nemenda eða nemendahópa verði tekin fyrir í ráðinu.
Að jafnaði skal upplýsa foreldra um að máli barna þeirra sé formlega vísað til skólastjóra eða nemendaverndarráðs og leita eftir samstarfi við foreldra um lausn mála eftir því sem framast er kostur.
Nemendaverndarráð skal taka fyrir málefni sem vísað er til ráðsins eins fljótt og auðið er.

20. gr. Starfshættir nemendaverndarráðs.
Nemendaverndarráð fjallar um sérstök úrræði fyrir einstaka nemendur eða nemendahópa sem lögð hafa verið fyrir ráðið. Ráðið metur hvaða viðbótarupplýsinga er þörf og boðar á sinn fund umsjónarkennara og foreldra svo og aðra aðila sem tengjast málinu ef þörf krefur.
Þegar ákvörðun hefur verið tekin um nauðsynlegar ráðstafanir, umbætur eða aðgerðir getur skólastjóri falið aðilum innan ráðsins að fylgja málinu eftir ef nauðsyn krefur.
Fara skal með persónuupplýsingar í samræmi við fyrirmæli um þagnarskyldu og gildandi lög um persónuvernd. Þeir sem sitja í nemendaverndarráði skulu gæta þagmælsku um atriði sem varða einka- og fjárhagsmálefni einstaklinga sem þeir fá vitneskju um og leynt eiga að fara. Þagnarskylda nær ekki til atvika sem ber að tilkynna um lögum samkvæmt. Þagnarskylda helst þótt viðkomandi láti af störfum.
Nemendaverndarráð setur sér starfs- og verklagsreglur þar sem m.a. er kveðið á um tíðni funda ráðsins. Halda skal fund í nemendaverndarráði ef a.m.k. tveir fulltrúar í ráðinu óska þess. Fundir skulu færðir til bókar.

Skólaráð
Skylt er að starfrækja skólaráð við hvern grunnskóla og hefur það mikilvægu hlutverki að gegna sem samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélagsins um skólahald. Skólastjóri ber ábyrgð á stofnun skólaráðs og stýrir starfi þess, sem skilgreint er í 8. gr. grunnskólalaga. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans. Skólaráð fjallar um skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstraráætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið. Skólaráð skal fá til umsagnar áætlanir um fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla áður en endanleg ákvörðun um þær er tekin. Skólaráð fylgist almennt með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda. Skólanefnd getur með samþykki sveitarstjórnar falið skólaráðum einstakra skóla ákveðin verkefni þessu til viðbótar.

Í 2. gr. reglugerðar nr. 1157/2008 er fjallað nánar um verkefni skólaráðs:

Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans í samræmi við stefnu sveitarfélags um skólahald.
Skólaráð:

  1. fjallar um skólanámskrá, rekstraráætlun, starfsáætlun og aðrar áætlanir um skóla­starfið,
  2. fjallar um fyrirhugaðar meiriháttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla og gefur umsögn áður en endanlegar ákvarðanir um þær eru teknar,
  3. tekur þátt í að móta stefnu og sérkenni skóla og tengsl hans við grenndar­samfélagið,
  4. fylgist með öryggi, húsnæði, aðstöðu, aðbúnaði og almennri velferð nemenda,
  5. fjallar um skólareglur, umgengnishætti í skólanum,
  6. fjallar um erindi frá skólanefnd sveitarfélags, foreldrafélagi, kennarafundi, al­menn­um starfsmannafundi, nemendafélagi, einstaklingum, mennta­mála­ráðuneyti, öðrum aðilum varðandi málefni sem talin eru upp í þessari málsgrein og veitir umsögn sé þess óskað,
  7. tekur þátt í öðrum verkefnum á vegum skólanefndar að fengnu samþykki sveitar­stjórnar.

Skólaráð fjallar ekki um málefni einstakra nemenda, foreldra eða starfsfólks skóla.

Skólaráð skal skipað níu einstaklingum til tveggja ára í senn. Í skólaráði skulu eiga sæti
- skólastjóri
- tveir fulltrúar kennara, sem kosnir eru á kennarafundi
- einn fulltrúi annars starfsfólks skólans, sem kosinn skal á starfsmannafundi
- tveir fulltrúar nemenda, sem skulu kosnir samkvæmt starfsreglum nemendafélags
- tveir fulltrúar foreldra, sem skulu kosnir samkvæmt starfsregkum foreldrafélags
- einn fulltrúi grenndarsamfélags eða viðbótarfulltrúi úr hópi foreldra, sem skal valinn úr hópi foreldra af skólaráði sjálfu

Heimilt er, samkvæmt 2. mgr. 8. gr. grunnskólalaga, að sækja tímabundið um undanþágu frá skipun skólaráðs með þeim hætti sem er er grein fyrir í 2. mgr. 8. gr. grunnskólalaga með rökstuddri greinargerð. í greinargerð þarf að koma fram með hvaða hætti verkefnum skólaráðs verði sinnt. Gildar ástæður þurfa að vera fyrir veitingu undanþágu, svo sem fámenni eða sérstaka

Skólastjóri skal boða til sameiginlegs fundar skólaráðs og stjórnar nemendafélags a.m.k. einu sinni á ári. Ráðherra setur reglugerð um starfsemi skólaráða í samráði við samtök sveitarfélaga, kennara og foreldra.

Nánar er fjallað um skólaráð í reglugerð nr. 1157/2008 um skólaráð við grunnskóla (pdf).

Foreldrasamstarf — foreldrafélag
Foreldrar bera höfuðábyrgð á börnum sínum og þótt skólinn ásamt fjölskyldunni sé mikilvægasti mótunaraðili barnsins getur hann aldrei tekið á sig að fullu uppeldisstarf foreldra og fjölskyldna. Foreldrar eru ásamt nemendum stærsti hagsmunahópur sem skólakerfið þjónar og er því rétt og eðlilegt að þeir hafi áhrif á það mikilvæga starf sem fram fer í skólum.

Samkvæmt 2. gr. grunnskólalaga um markmið skólastarfs skal grunnskólinn stuðla að góðu samstarfi heimilis og skóla með það að markmiði að tryggja farsælt skólastarf, almenna velferð og öryggi nemenda.

Stofnun og starfsemi foreldrafélaga er lögbundin skv. 9. gr. grunnskólalaga (í eldri lögum um grunnskóla var þetta kallað foreldraráð (16. gr.) og starfaði það stundum við hlið foreldrafélags (15. gr.)).  Skólastjóri er ábyrgur fyrir stofnun foreldrafélags og að það fái aðstoð eftir þörfum. Hlutverk foreldrafélags er að styðja skólastarfið, stuðla að velferð nemenda og efla tengsl heimila og skóla. Enn fremur er foreldrafélagið bakhjarl fulltrúa foreldra í skólaráði. Foreldrafélag hvers skóla setur sér starfsreglur, m.a. um kosningu í stjórn félagsins og kosningu fulltrúa í skólaráð. Víða eru starfandi sérstakir bekkjarfulltrúar foreldra sem hafa það hlutverk að leiða samstarfið í hverjum árgangi, bekkjardeild eða námshópi. Saman mynda bekkjarfulltrúar foreldra víða fulltrúaráð í skólum og slíkt fyrirkomulag er æskilegt, m.a. til að samræma starfið og gera það skilvirkara, og það er einnig kjörið til að tryggja að fulltrúar foreldra í skólaráði hafi traust bakland.

Heimili og skóli — landssamtök foreldra eru frjáls félagasamtök sem veita foreldrum og foreldrasamtökum ráðgjöf og gefa út tímarit og ýmiss konar efni um foreldrastarf. Starfsmenn Heimilis og skóla veita ráðgjöf í síma 562–7475 kl. 9–12 virka daga. Einnig er hægt að senda fyrirspurn með tölvupósti til skrifstofunnar. Sjá grein Helgu Margrétar Guðmundsdóttur verkefnastjóra hjá Heimili og skóla Öflugt foreldrasamstarf, góður bekkjarandi og betri líðan barna“.

Nemendafélag
Með virkri starfsemi nemendafélags fá nemendur tækifæri til lýðræðislegrar þátttöku í hagsmunamálum sínum og þjálfun í lýðræðislegum vinnubrögðum. 10. grein laga um grunnskóla fjallar um nemendafélög (sem í fyrri lögum um grunnskóla voru nefnd nemendaráð):

Við grunnskóla skal starfa nemendafélag og er skólastjóri ábyrgur fyrir stofnun þess. Nemendafélag vinnur m.a. að félags-, hagsmuna- og velferðarmálum nemenda og skal skólastjóri sjá til þess að félagið fái aðstoð eftir þörfum. 
Nemendafélag hvers skóla setur sér starfsreglur, m.a. um kosningu í stjórn félagsins og kosningu fulltrúa í skólaráð skv. 2. mgr. 8. gr.

Í athugasemd um þessa grein segir í frumvarpinu að eðlilegt sé að hver skóli þrói skipan mála eftir því sem hentar í skólanum með nemendalýðræði og þátttökulýðræði að leiðarljósi. Ekki er sérstaklega bundið í lögum að stjórn skuli skipuð fulltrúum úr öllum árgöngum skólans en eðlilegt er að fulltrúar allra árganga geti tekið þátt í starfi félagsins eftir því sem þroski nemenda leyfir. 

Ábyrgð foreldra
Foreldrar bera frumábyrgð á uppeldi og menntun barna sinna og eiga þeir að gæta hagsmuna þeirra. Áhrif foreldra vega hvað þyngst þegar litið er á mótun, viðhorf, vellíðan, hegðun og árangur nemenda. Í 3. gr. grunnskólalaga er hugtakið foreldrar skilgreint þannig að samkvæmt grunnskólalögum teljast þeir foreldrar sem fara með forsjá barns í skilningi barnalaga. Í V. kafla grunnskólalaga er fjallað um foreldra. Í 3. mgr. 18 gr. segir:

 Foreldrar skulu hafa samráð við skólann um skólagöngu barna sinna, fylgjast með og styðja við skólagöngu þeirra og námsframvindu og stuðla að því að börnin mæti úthvíld í skólann og fylgi skólareglum. Þeir skulu fá tækifæri til að taka þátt í námi barnsins, svo og í skólastarfinu almennt.

Með þessu eru settar þær skyldur á foreldra að börnin sinni t.d. því heimanámi sem skólinn ákveður og að frístundastarf og annað starf utan skóla komi ekki niður á námi barnanna. Í 19. gr. segir um ábyrgð foreldra:

Foreldrar bera ábyrgð á námi barna sinna og ber þeim að fylgjast með námsframvindu þeirra í samvinnu við þau og kennara þeirra. Foreldrar skólaskylds barns bera ábyrgð á að það innritist í skóla þegar það kemst á skólaskyldualdur og sæki skóla. Verði misbrestur á skólasókn skólaskylds barns, án þess að veikindi eða aðrar gildar ástæður hamli, skal skólastjóri leita lausna og taka ákvörðun um úrbætur. Jafnframt skal hann tilkynna barnaverndaryfirvöldum um málið. Skólastjóri skal fara að ákvæðum stjórnsýslulaga við meðferð málsins. Ákvörðun er kæranleg eftir fyrirmælum 47. gr.  
 Í úrskurði getur ráðuneyti lagt fyrir sveitarfélag að tryggja nemanda tiltekin kennsluúrræði, þ.m.t. að veita honum aðgang að tilteknum skóla innan sveitarfélagsins.

Þá má ætla að skyldur foreldra séu fleiri en þær sem beinlínis er fjallað um í lögunum. Í þessu sambandi má nefna mikilvægi þess að regla sé á lífi barna og að foreldrar gæti þess að börn þeirra fái nægan svefn, hafi reglu á svefntíma, máltíðum og heimanámi, hreyfi sig nóg, séu klædd í samræmi við veður og að skólanesti sé hollt. Þetta eru allt atriði sem stuðla að því að nám í grunnskóla komi börnunum að sem bestum notum. Börn sem eru að hefja skólagöngu í grunnskóla þurfa einnig að vera að búin að tileinka sér færni í að leysa sjálf ýmis dagleg viðfangsefni án aðstoðar, s.s. að borða, fara í sturtu og klæða sig, fara á salerni og kunna á klukku. Þá má nefna mikilvægi þess að foreldrar ræði við börn sín um skólareglur grunnskólans og hjálpi þeim almennt að njóta sín í skólanum. Sjá einnig kafla um upplýsingar um barn og meðferð trúnaðarupplýsinga.

Réttur og velferð nemenda
Í 13. gr. grunnskólalaga eru  helstu réttindi nemenda tekin saman og skilgreind:

     Grunnskóli er vinnustaður nemenda. Allir nemendur grunnskóla eiga rétt á kennslu við sitt hæfi í hvetjandi námsumhverfi í viðeigandi húsnæði sem tekur mið af þörfum þeirra og almennri vellíðan.      
     
Grunnskóli skal í hvívetna haga störfum sínum þannig að nemendur finni til öryggis og njóti hæfileika sinna. Nemendur eiga rétt á því að njóta bernsku sinnar í öllu starfi á vegum skólans. Þess skal gætt að vinnuálag í skóla sé hæfilegt þannig að nemendur fái nægjanlega hvíld frá skipulögðu starfi innan hvers skóladags og skólaárs, svo sem með samfelldu jóla- og páskaleyfi. Nemendur eiga rétt á því að koma sjónarmiðum sínum á framfæri varðandi námsumhverfi, námstilhögun, fyrirkomulag skólastarfs og aðrar ákvarðanir sem snerta þá. Taka skal tillit til sjónarmiða þeirra eins og unnt er. 
     Hver nemandi skal hafa umsjónarkennara. Umsjónarkennari fylgist náið með námi nemenda sinna og þroska, líðan og almennri velferð, leiðbeinir þeim í námi og starfi, aðstoðar og ráðleggur þeim um persónuleg mál og stuðlar að því að efla samstarf skóla og heimila. 
     Nemendur eiga rétt á að njóta náms- og starfsráðgjafar í grunnskóla af til þess bærum sérfræðingum.

Í aðalnámskrá eru einnig ákvæði er varða með sama hætti réttindi nemenda og aðbúnað þeirra. Gert er ráð fyrir því að í aðalnámskrá komi fram að hverjum skóla beri að huga að menningu skólans og andrúmslofti í skólastarfinu með áherslu á velferð og jákvæða andlega og félagslega líðan nemenda og enn fremur að grunnskólar skuli setja sér forvarna- og viðbragðsáætlun.

Í aðalnámskrá fyrir grunnskóla  almennum hluta (2006) (pdf) er fjallað um velferð nemenda á bls. 2224:

VELFERÐ NEMENDA
Auk nemenda eru í skólasamfélaginu kennarar og aðrir starfsmenn skólanna og foreldrar og forráðamenn. Samstarf og samábyrgð þarf að ríkja í skólasamfélaginu og stjórnendur skóla, kennarar og aðrir starfsmenn skóla jafnt og foreldrar og forráðamenn þurfa að gera sér grein fyrir ábyrgð sinni sem fyrirmyndir.

Umsjónarkennarar gegna í þessu sambandi veigamiklu hlutverki. Fyrir hverja bekkjardeild eða námshóp skal skólastjóri velja umsjónarkennara. Hann er öðrum fremur tengiliður skólans við heimilin og einnig fylgist hann náið með námi nemenda sinna og þroska og breytingum á högum og atferli nemenda sem skipt geta máli hvað varðar frammistöðu og líðan þeirra í skólanum. Hann leiðbeinir þeim í námi og starfi, aðstoðar þá og ráðleggur þeim um persónuleg mál. Umsjónarkennarar og námsráðgjafar gegna að þessu leyti mjög mikilvægu hlutverki.

Mikilvægt er að nemendur geti leitað til hvaða starfsmanns skóla sem er með mál sem snúa að velferð sinni og líðan og að brugðist sé við strax og á viðeigandi hátt ef upp koma vandamál af einhverju tagi, t.d. stríðni, einelti, agabrot eða vanlíðan.

Mikilvægt er að allt skólasamfélagið, þ.e. starfsfólk skóla, foreldrar og forráðamenn og nemendur, taki þátt í umræðum og komi að stefnumótun í þeim fjölmörgu málefnum sem snúa að því sem fram fer í skólanum, hvort heldur um er að ræða námið sjálft eða andlega og félagslega vellíðan nemenda. Í skólum starfa foreldraráð, kennararáð og nemendaráð sem eiga m.a. að vinna að félags-, hagsmuna- og velferðarmálum þeirra. Skólastjóri skal sjá til þess að þessi ráð vinni sem best saman og að milli þeirra ríki gagnkvæmur skilningur, virðing og trúnaður. Börn eiga rétt á að láta skoðanir sínar í ljós á lýðræðislegan hátt í öllum málum sem þau varða og skal tekið réttmætt tillit til skoðana þeirra í samræmi við aldur þeirra og þroska. Því þarf að leita allra leiða í skólum til að treysta almenna velferð nemenda í samvinnu við foreldra og forráðamenn og tryggja að nemendur hafi tækifæri til að tjá sig um mál sem þá varðar og taka þátt í mótun skólasamfélagsins á lýðræðislegan hátt í samræmi við aldur og þroska. Þó verður ætíð að hafa hugfast að grunnskólanemendur eru ósjálfráða og lúta forsjá fullorðinna.

...

Ábyrgð nemenda og agabrot
Ein af grundvallarréttindum nemenda eru þau að hafa vinnufrið í skólanum svo að þeir geti náð sem bestum tökum á náminu og að kennslan nýtist þeim sem best. Því þarf að leggja mikla áherslu á að skapa góðan vinnuanda í hverjum skóla og í einstökum bekkjardeildum. Eins og segir í almennum hluta aðalnámskrár 2006 (pdf) þarf að leggja áherslu á námsaga og sjálfsaga nemenda, góða umgengni, jákvæð samskipti, umburðarlyndi, kurteisi og háttvísa framkomu. Einnig ber að vinna að því að styrkja sjálfsvirðingu nemenda, sjálfsmynd, borgaravitund, virðingu nemenda gagnvart öðrum og eigum annarra. Þá aukast líkur á því að skólabragur verði jákvæður og að nemendum líði sem best í skólanum. 14. gr. grunnskólalaga er fjallað um ábyrgð nemenda, hegðunarbrot og afleiðingar þeirra:

     Nemendur bera ábyrgð á eigin námi og á framkomu sinni og samskiptum með hliðsjón af aldri og þroska.
Nemendum ber að hlíta fyrirmælum kennara og starfsfólks grunnskóla í öllu því sem skólann varðar, fara eftir skólareglum og fylgja almennum umgengnisreglum í samskiptum við starfsfólk og skólasystkin. 
     Ef hegðun nemanda reynist verulega áfátt ber kennara hans að leita orsaka þess og reyna að ráða á því bót, m.a. með viðtölum við nemandann sjálfan og foreldra hans. Verði samt ekki breyting á til batnaðar skal kennari leita aðstoðar skólastjóra og sérfróðra ráðgjafa skólans sem leita leiða til úrbóta, eftir atvikum að teknu tilliti til hlutverks barnaverndaryfirvalda. 
     Meðan mál skv. 3. mgr. er óútkljáð getur skólastjóri vísað nemanda úr skóla um stundarsakir eða ótímabundið, enda tilkynni hann foreldrum nemanda og skólanefnd tafarlaust þá ákvörðun. Um slíka ákvörðun gilda ákvæði stjórnsýslulaga. Skólanefnd er skylt innan hæfilegs tíma að tryggja nemanda, sem vikið hefur verið úr skóla, viðeigandi kennsluúrræði. 
     Ákvörðun skv. 4. mgr. er kæranleg eftir fyrirmælum 47. gr. Hafi sveitarfélag ekki séð nemanda fyrir kennslu getur ráðuneytið í úrskurði sínum lagt fyrir sveitarfélag að tryggja nemanda nánar tiltekin kennsluúrræði innan tilskilins tíma. 
     Ráðherra mælir nánar fyrir um framkvæmd þessarar greinar í reglugerð.

Um þessa grein laganna segir m.a. í athugasemdum sem fylgdu frumvarpinu:

     Hafi nemanda verið vísað úr skóla, tímabundið eða ótímabundið, leggur ákvæðið þær skyldur á skólanefnd að tryggja viðkomandi nemanda annað kennsluúrræði innan hæfilegs tíma. Ekki þykir rétt að kveða með afdráttarlausum hætti á um nákvæman frest í þessu sambandi, en áhersla er lögð á að skólanefnd útvegi nýtt skólaúrræði án ástæðulauss dráttar og eins fljótt og nokkur kostur er. Gert er ráð fyrir því að menntamálaráðherra setji í reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd greinarinnar eins og er í núgildandi lögum, og í gildandi reglugerð er veittur þriggja vikna frestur til að útvega nemanda annað kennsluúrræði. Umboðsmaður Alþingis hefur í áliti sínu, sem er að finna í skýrslu hans fyrir árið 1994, bls. 295, tekið fram að almennt falli kennsla ekki undir stjórnsýslulög, en hins vegar geti ákvarðanir um agaviðurlög og skyld úrræði fallið undir lögin. Segir í álitinu að með hliðsjón af ummælum í greinargerð með stjórnsýslulögum verði að líta svo á að hin vægari úrræði sem beitt sé til að halda uppi aga og almennum umgengnisvenjum teljist almennt ekki stjórnvaldsákvarðanir. Hins vegar kemur skýrt fram í álitinu að ákvörðun um að víkja nemanda úr skóla í fleiri en einn skóladag teljist ákvörðun um réttindi og skyldur sem falli undir 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga og því beri að fara með slík mál í samræmi við ákvæði þeirra laga. Eins og áður segir kemur fram í greininni að menntamálaráðuneyti setji reglugerð um framkvæmd þessarar greinar þar sem m.a. er kveðið á um skólareglur og málsmeðferð þegar um brot á skólareglum er að ræða.

Um stjórnsýslulög er fjallað neðar á síðunni. Reglugerð nr. 270/2000 um skólareglur í grunnskóla var sett með heimild í 41. gr. eldri grunnskólalaga og heldur hún gildi sínu þar til ný reglugerð hefur verið sett, svo framarlega sem hún stangast ekki á við núgildandi lög. Hvað varðar brottvísun úr skóla segir í 9. gr. hennar að skólanefnd beri ábyrgð á að innan þriggja vikna frá brottvísun hafi nemanda verið tryggð skólavist.  Reglugerðin er birt í heild sinni í næsta kafla um skólareglur.

Skólareglur
30. gr. grunnskólalaga hefur fyrirsögnina Skólabragur og orðast hún svo:

     Öllum aðilum skólasamfélagsins ber að leggja sitt af mörkum til þess að stuðla að og viðhalda góðum starfsanda og jákvæðum skólabrag.
     Skólastjórum og kennurum ber að eiga samráð við foreldra um heðgun, líðan og samskipti barna þeirra. Foreldrum ber með sama hætti að eiga samráð við skólann um skólagöngu barna sinna. Sama á við um aðra forsjáraðila barna í viðkomandi skóla.
     Grunnskólar skulu hafa heildstæða stefnu um það hvernig fyrirbyggja eigi að líkamlegt, andlegt eða félagslegt ofbeldi eigi sér stað í skólastarfi. Skólar skulu einnig hafa áætlun um framkvæmd tilkynningarskyldu samkvæmt barnaverndarlögum, um hvernig brugðist er við tilvikum um einelti, annað ofbeldi og félagslega einangrun. Áætlun skal m.a. ramfylgt með því að hver skóli setji sér skólareglur. Í skólareglum skal m.a. kveðið á um almenna umgengni, samskipti, stundvísi, ástundun náms og heilbrigðar lífsvenjur. Þá skal í skólareglum koma fram hvernig skólinn hyggst bregðast við brotum á þeim.
     Ráðherra er heimilt að mæla nánar fyrir um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í reglugerð sem sett er sameiginlega á grundvelli þessarar greinar og 14. gr. Þar skal m.a. mælt fyrir um starfsrækslu fagráðs á vegum ráðuneytisins er verði ráðgefandi í eineltismálum.

Skólabragur og reglur um umgengni eru veigamikill þáttur í umgjörð skólastarfs. Lögbundið er að setja skólareglur í hverjum grunnskóla skv. 30. gr. grunnskólalaga. Í skólareglum skal m.a. kveðið á um almenna umgengni, samskipti, stundvísi, ástundun náms og heilbrigðar lífsvenjur. Í reglunum skal koma fram hvernig skólinn hyggst bregðast við brotum á þeim. Skólastjóri er ábyrgur fyrir gerð skólareglna og kynningu þeirra og skulu þær unnar í samráði við skólaráð og fulltrúa nemenda í skólaráði.

Í athugasemd sem fylgdi 30. greininni í frumvarpinu segir m.a. um gerð skólareglna:

     Skólaráð skal koma að samningu skólareglna og skulu fulltrúar nemenda einnig taka þátt í gerð þeirra. Skólastjóri er ábyrgur fyrir gerð skólareglna og hann hefur síðasta orðið um orðalag skólareglna ef ágreiningur er fyrir hendi. Mikilvægt er að allir aðilar skólasamfélagsins kosti kapps um að starfsandi sé sem bestur í skólum og vinnufriður til að tími nemenda nýtist sem best til náms og stuðlað sé að almennri velferð nemenda í öllu starfi á vegum skólans og öryggi

Reglugerð nr. 270/2000 um skólareglur í grunnskóla var sett með heimild í 41. gr. eldri grunnskólalaga og heldur hún gildi sínu þar til ný reglugerð hefur verið sett, svo framarlega sem hún stangast ekki á við núgildandi lög. Reglugerðin er hér birt í heild sinni:

1. gr. Nemendur á skólaskyldualdri skulu sækja grunnskóla nema veikindi eða önnur forföll hamli.
2. gr. Hver grunnskóli skal setja sér skólareglur sem skylt er að fara eftir. Skólastjóri, kennarar og aðrir starfsmenn, nemendur og forráðamenn þeirra skulu í sameiningu kosta kapps um að starfsandi og skólabragur í skólanum sé sem bestur og eiga skólareglur að stuðla að því. Forsendur góðs starfsanda eru vellíðan, gagnkvæmt traust, virðing og samábyrgð allra í skólasamfélaginu.
3. gr. Skólastjóri hefur forgöngu um og ber ábyrgð á að skólareglur séu settar. Reglurnar skulu unnar í samvinnu við fulltrúa nemenda og foreldra. Leitast skal við að ná sem víðtækastri sátt um þær en skólastjóri hefur þó ávallt úrskurðarvald um orðalag skólareglna ef ágreiningur kemur upp.   
Ár hvert skulu skólareglurnar kynntar og afhentar nemendum og forráðamönnum þeirra og birtar í skólanámskrá. 
Umsjónarkennarar skulu fjalla um skólareglurnar með nemendum sínum eins oft og þurfa þykir. Þeir skulu einnig ræða skólareglurnar í foreldraviðtölum og á foreldrafundum eftir þörfum.
4. gr. Skólareglur skulu vera skýrar og afdráttarlausar og í samræmi við lög um grunnskóla og aðalnámskrá grunnskóla.  
Í þeim skal kveðið á um almenna umgengni, samskipti, stundvísi, ástundun náms og heilbrigðar og hollar lífsvenjur.  
Í reglunum skal koma skýrt fram hvernig skólinn hyggst bregðast við brotum á þeim
5. gr. Samskipti starfsfólks, nemenda og foreldra skulu grundvallast á gagnkvæmri virðingu, kurteislegri framkomu og tillitssemi.  
Líkamlegar refsingar eru óheimilar.  
Starfsmönnum skóla er óheimilt að neyta aflsmunar nema nauðsyn krefji til að stöðva ofbeldi eða koma í veg fyrir að nemandi valdi sjálfum sér eða öðrum skaða eða eignatjóni.   
Í tilvikum sem þessum skal ávallt greina foreldrum/forráðamönnum tafarlaust frá málavöxtum.  
6. gr. Nýta skal til fullnustu allar þær leiðir sem skólinn ræður yfir til að leita lausna og ráða bót á hegðun nemanda. 
Leita þarf allra mögulegra orsaka innan skólans til að viðurlög verði bæði markviss og komi nemandanum að gagni við að bæta hegðun sína.  
Ef ekki tekst að leysa málið innan skólans skal skólinn í samvinnu við sérfræðiþjónustu skóla kanna orsakir þeirra vandamála sem um ræðir og leita leiða til úrlausna.  
Verði ítrekað misbrestur á hegðun nemanda skal skólinn leita úrbóta í samstarfi við foreldra/forráðamenn.
7. gr. Viðurlög skulu sett við brotum á skólareglum og þau kynnt nemendum og foreldrum/ forráðamönnum þeirra.   
Viðurlög skulu til þess fallin að hvetja nemanda til bættrar hegðunar.  
Gæta skal hófs við ákvörðun og beitingu viðurlaga við brotum á skólareglum.   
Brjóti nemandi af sér, skal umsjónarkennari, skólastjóri, aðstoðarskólastjóri eða sérfróður ráðgjafi ræða við nemanda um hegðun hans til þess að nemandi geri sér grein fyrir eðli brotsins og afleiðingum þess.    
8. gr. Gagnvart nemanda sem ekki lætur sér segjast, þrátt fyrir undangengnar aðvaranir og áminningar, má grípa til þeirra hámarksviðurlaga að taka nemanda úr kennslu og láta hann fást við önnur viðfangsefni það sem eftir lifir skóladags. Einnig er heimilt að vísa nemanda tímabundið úr kennslustundum í ákveðinni námsgrein.    
Við beitingu þessara viðurlaga skal tryggt að nemandi sé í umsjá starfsmanns á vegum skólans.    
Ef allt um þrýtur og nemandi lætur sér enn ekki segjast, ef ítrekuð brot hans á skólareglum eru alvarleg, eða hann stefnir eigin eða annarra lífi eða heilsu í hættu innan skólans, má vísa nemanda um stundarsakir úr skóla á meðan reynt er að finna lausn á máli hans.   
9. gr. Sé nemanda vikið úr skóla um stundarsakir skv. 8. gr. skal skólastjóri þegar tilkynna foreldrum/forráðamönnum og skólanefnd þá ákvörðun. Takist skólastjóra ekki að leysa vanda nemanda innan skóla á viku vísar hann málinu til skólanefndar. Skólanefnd tekur málið til úrlausnar, útvegar nemandanum
tafarlaust viðeigandi kennsluúrræði og beitir sér fyrir úrbótum í samráði við alla aðila málsins. Skólanefnd ber ábyrgð á að innan þriggja vikna frá brottvísun hafi nemanda verið tryggð skólavist. 
Takist enn ekki að leysa málið getur hvor aðili, foreldri/forráðamaður eða skólanefnd, vísað ágreiningi til úrlausnar og úrskurðar menntamálaráðuneytisins.    
Óheimilt er að víkja nemanda að fullu úr skóla nema honum hafi verið tryggt annað kennsluúrræði.
10. gr. Nemanda og foreldrum/forráðamönnum hans skal gefinn kostur á að tjá sig ef ítrekað er að hegðun nemanda fundið og alltaf við brotum á skólareglum. Foreldrum/forráðamönnum skal ætíð gerð grein fyrir brotum barna sinna á skólareglum og beitingu viðurlaga. Ávallt skal hafa samstarf við foreldra/forráðamenn nemanda um úrlausn máls.
11. gr. Við meðferð máls samkvæmt 3. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar og beitingu viðurlaga samkvæmt þeirri málsgrein skal gæta ákvæða stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Einnig skal gæta stjórnsýslulaga þegar nemanda er tímabundið meinað að sækja tíma í tiltekinni námsgrein.
12. gr.Reglugerð þessi er sett samkvæmt 41. gr. laga nr. 66/1995 um grunnskóla með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 385/1996 um skólareglur og aga í grunnskólum.

Í aðalnámskrá almennum hluta 2006 segir svo um skólareglur (bls. 23):

     Skólareglur varða allt skólasamfélagið, þ.e. starfsfólk skólans og stjórn hans, nemendur og foreldra og forráðamanna. Því er afar mikilvægt að sjónarmið foreldra og forráðamanna fái notið sín við setningu skólareglna hvers skóla og að þeir séu sáttir við reglurnar. Á sama hátt er nauðsynlegt að fulltrúar nemenda eða nemendaráðs komi að gerð skólareglna og geti túlkað reglurnar fyrir skólafélögum og beri þannig nokkra ábyrgð á þeim. Samfara skólareglunum ber að birta viðurlög við brotum á þeim þannig að öllum aðilum sé ljóst hvaða reglur gildi í skólanum og hvaða viðurlög séu við brotum á þeim. Mikilvægt er að foreldrum og forráðamönnum sé gerð grein fyrir agabrotum barna sinna og að gripið sé sem fyrst með samræmdum hætti inn í mál þegar um brot á skólareglum er að ræða.

Skólaskylda og undanþágur
Skólaskylda á grunnskólastigi er að jafnaði í tíu ár, en getur verið skemmri. Öllum börnum, að jafnaði á aldrinum 6–16 ára, er skylt að sækja grunnskóla skv. 3. gr. grunnskólalaga. Nemendur geta útskrifast úr grunnskóla eftir níu ára nám eða jafnvel níu og hálft ár í stað tíu ára, en það er grunnskólans að meta hvenær nemandi telst hafa lokið skyldunámi. Ekki er gert ráð fyrir að nemendur geti verið lengur í grunnskóla en tíu ár þar sem allir nemendur eiga rétt á námi við hæfi í framhaldsskóla að loknu tíu ára skyldunámi.

Fjallað er um skólaskyldu og undanþágur frá henni í 15. gr. laganna. Skólaskyldu er unnt að fullnægja í grunnskólum á vegum sveitarfélaga, í sjálfstætt reknum grunnskólum eða með öðrum viðurkenndum hætti. Hér er einkum átt við möguleika á heimakennslu eða fjarkennslu og netnámi sem nánar er kveðið á um í 46. gr. laganna, sjá hér að neðan. Einnig getur verið um að ræða tilraunaskóla á vegum sveitarfélaga.

Skólaskylda barns hefst að jafnaði við upphaf skólaárs á því almanaksári sem barnið verður sex ára. Foreldrar barns geta sótt um eða samþykkt að það hefji skólagöngu fyrr eða síðar. Einnig er mögulegt að byrja skólagönguna við áramót á því ári sem barnið verður sex ára og miða við að barnið geti þá t.d. lokið skyldunámi um áramót tíu árum síðar eða jafnvel fyrr. Skólastjóri getur veitt slíka heimild að fenginni umsögn sérfræðinga, kennara og stjórnenda skóla. Skólastjóra er heimilt að veita nemanda undanþágu frá skyldunámi í tiltekinni námsgrein ef gild rök mæla með því. Enn fremur er skólastjóra heimilt að viðurkenna nám utan grunnskóla sem jafngildi grunnskólanáms. Í þessari grein er einnig ákvæði um tímabundna undanþágu nemenda frá skólasókn en skólastjóra er heimilt að veita slíkar undanþágur telji hann til þess gildar ástæður. Ekki eru settar í lögum eða reglugerðum frekari leiðbeiningar um hvað teljist gildar ástæður, en í öllum tilvikum er ábyrgðin sett á foreldrana að sjá til þess að nemandinn vinni upp það sem hann kann að missa úr námi meðan á undanþágu stendur. Gildar ástæður geta t.d. tengst þátttöku í landsliðsverkefnum á sviði íþrótta, við æskulýðsstarf, ferðalög fjölskyldu og sjálfboðastarf. Um ákvörðun um veitingu undanþágu eða synjun hennar gilda ákvæði stjórnsýslulaga. Ef ekki næst samkomulag milli forráðamanna og skólastjóra um slíka undanþágu geta foreldrar kært synjun skólastjóra samkvæmt fyrirmælum 47. gr. grunnskólalaga. Í úrskurði getur ráðherra mælt fyrir um að undanþága verði veitt í heild eða að hluta, jafnvel þó að af hálfu sveitarfélags hafi ekki verið fallist á slíka beiðni.

Í 46. gr. grunnskólalaganna er fjallað um heimakennslu, viðurkenningu grunnskóla sem starfa eftir viðurkenndri erlendri eða alþjóðlegri námskrá og námsskipan og undanþágu frá skólaskyldu skv. 3. gr. Markmiðið með þessari grein er að skapa svigrúm til aukins sveigjanleika fyrir annars konar nám en fram fer í grunnskólum á vegum sveitarfélaga eða í sjálfstætt reknum skólum til að geta komið betur til móts við sérstakar aðstæður eða óskir foreldra:

     Ráðherra er heimilt að viðurkenna grunnskóla eða námsbraut innan almenns grunnskóla sem starfar samkvæmt viðurkenndri erlendri eða alþjóðlegri námskrá og námsskipan. 
     Foreldrar, sem óska eftir undanþágu frá 3. gr. til að geta kennt börnum sínum heima, að hluta eða öllu leyti, skulu sækja um slíka heimild til síns sveitarfélags. Skólastjóri getur veitt undanþágu að höfðu samráði við skólanefnd og sérfræðiþjónustu. Börn sem hljóta heimakennslu eru undanþegin skólaskyldu skv. 3. gr., en skulu lúta eftirliti og reglulegu mati og þreyta könnunarpróf samkvæmt lögum þessum. 
     Ákvörðun sveitarstjórnar skv. 2. mgr. er kæranleg eftir fyrirmælum 47. gr. Ráðuneyti getur í úrskurði sínum lagt fyrir sveitarfélag að veita foreldrum barns heimild skv. 2. mgr.
Ráðherra setur reglugerð um skilyrði til heimakennslu á grunnskólastigi og viðurkenningu grunnskóla samkvæmt þessari grein. Sveitarfélög skulu tilkynna ráðuneytinu um veitingu heimildar samkvæmt þessari grein.

Þangað til reglugerð um skilyrði til heimakennslu á grunnskólastigi hefur verið sett má benda á vinnureglur menntamálaráðuneytis við mat á umsóknum vegna heimakennslu í tilraunaskyni á grunnskólastigi frá 2002.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið lítur svo á að fermingarfræðsla eigi að fara fram utan lögbundins skólatíma nemenda og að ekki sé heimilt að veita nemendum í 8. bekk leyfi til að fara í eins til tveggja daga ferð á vegum kirkjunnar í tengslum við fermingarundirbúning. Slíkt samrýmist ekki grunnskólalögum eða aðalnámskrá grunnskóla.

Val á skóla
Foreldrar eiga rétt á að velja grunnskóla innan sveitarfélags fyrir börn sín samkvæmt reglum sveitarfélagsins. Svo segir í 1. mgr. 18. gr. grunnskólalaga. Ekki er hægt að binda skilyrðislaust rétt foreldra um val á skóla en æskilegt þykir að sveitarfélög stuðli að slíku vali eftir fremsta megni. Þetta ákvæði á ekki við í fámennum sveitarfélögum þar sem einungis er rekinn einn grunnskóli.

Nám utan lögheimilissveitarfélags
Forsjáraðili nemanda getur óskað eftir því að nemandi fái að stunda nám í grunnskóla utan síns lögheimilissveitarfélags. Meginreglan er að komi fram ósk frá lögheimilissveitarfélagi um skólavist í öðru sveitarfélagi skal orðið við slíkri ósk. Viðmiðunarreglur um greiðslur vegna nemenda sem stunda nám utan lögheimilissveitarfélags eru að finna á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga. Samkvæmt 5. gr. grunnskólalaga er sveitarfélögum skylt að sjá til þess að skólaskyld börn sem hefur verið ráðstafað í fóstur til fósturforeldra, sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu, njóti skólavistar. Sjá næsta kafla.

Reglugerð um nemendur með sérþarfir í grunnskóla nr. 585/2010 fjallar um sérúrræði í IV. kafla. Þar segir í 13. gr:

Sveitarstjórn, þar sem barn á lögheimili, getur samið við annað sveitarfélag, sem rekur sérskóla eða sérúrræði innan grunnskóla, um að það veiti barni skólavist, óski foreldrar þess. Viðtökusveitarfélag hefur þá sömu skyldur um skólavist þess og ætti það þar lögheimili.

Skólaganga barna í fóstri
Í 3. - 5. mgr. 5. gr. grunnskólalaga segir um skyldur sveitarfélaga:

Sveitarfélögum er skylt að sjá til þess að skólaskyld börn sem hefur verið ráðstafað í fóstur til fósturforeldra, sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu, njóti skólavistar.  Áður en barni er ráðstafað í fóstur skal barnaverndarnefnd kanna aðstæður í samráði við skólayfirvöld á viðkomandi stað og leggja mat á möguleika viðkomandi grunnskóla til að koma til móts við þarfir barnsins.
Liggi ekki fyrir ákvörðun stjórnvalds um lögheimili barns kveður sveitarstjórn á um skólaskyldu þess, enda búi barnið í sveitarfélaginu og leitað hafi verið eftir innritun þess í skóla, sbr. 19. gr. Synjun sveitarstjórnar er kæranleg eftir fyrirmælum 47. gr. Í úrskurði getur menntamálaráðuneyti lagt fyrir sveitarfélag að tryggja barni skólavist innan sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn í sveitarfélagi þar sem barn á lögheimili getur samið við annað sveitarfélag um að veita barninu skólavist þannig að viðtökusveitarfélag hafi sömu skyldur gagnvart skólavist þess og ætti það lögheimili þar. Ráðherra setur reglugerð um framkvæmd þessarar greinar í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, Barnaverndarstofu og önnur stjórnvöld þar sem m.a. skal kveðið á um skólagöngu fósturbarna, bæði fagleg og fjárhagsleg málefni og samstarf aðila. Úrskurðarnefnd skipuð fulltrúum frá ráðuneyti, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Barnaverndarstofu sker úr um ágreiningsmál.

Vegna ágreinings um skiptingu kostnaðar vegna skólagöngu barna í tímabundnu fóstri sendi mennta- og menningarmálaráðuneytið frá sér álit um þetta efni haustið 2009. Í álitinu segir m.a. að kostnaður við sérfræðiþjónustu og vegna annarra sérþarfa skuli greiðast af lögheimilissveitarfélagi barnsins:

Ágreiningslaust er að sveitarfélagið greiðir kostnað vegna þeirra barna sem eiga lögheimili í því sveitarfélagi óháð því hvort þau eru fósturbörn eða ekki. Ákvæði laga um grunnskóla geyma hins vegar ekki bein fyrirmæli um það hvernig fari með kostnað vegna skólagöngu barns sem ráðstafað hefur verið tímabundið í fóstur í annað sveitarfélag án þess að eiga þar lögheimili. Um kostnað vegna slíkrar ráðstöfunar er á hinn bóginn fjallað í 75. gr. barnaverndarlaga. Þegar virt eru ummæli í lögskýringargögnum er varða túlkun ákvæðisins verða ekki dregnar víðtækari ályktanir en svo að í kostnaði viðtökusveitarfélagsins felist allur venjubundinn kostnaður sem hlýst af skólagöngu þessara barna, svo sem kostnaður vegna skóla og aksturs, en ekki kostnaður umfram það eins og kostnaður við sérfræðiþjónustu eða vegna annarra sérþarfa. Síðastnefndur kostnaður sé hann fyrir hendi myndi þá falla á það sveitarfélag sem ráðstafar barni í fóstur sem er sama sveitarfélag og barn á lögheimili í. Ber því sveitarfélagi því að endurgreiða allan slíkan kostnað til þess sveitarfélags sem barn dvelst samkvæmt reglum sem félagsmálaráðherra hefur sett. Af þessu leiðir einnig að gera verður ráð fyrir því að verði ágreiningur um greiðslu kostnaðar vegna barns sem ráðstafað hefur verið tímabundið í fóstur heyri það undir félags- og tryggingamálaráðuneytið að fjalla um slíkan ágreining.

Í reglugerð um nemendur með sérþarfir í grunnskólum nr. 585/2010 segir m.a. í 18. gr:

Í fjárhagsáætlunum sveitarfélaga ber einnig að gera ráð fyrir því að það standi straum af viðbótarkostnaði við skólagöngu barns með sérþarfir sem stundar nám í öðru sveitarfélagi. Við uppgjör þess kostnaðar er heimilt að nota viðmiðunarreglur sem Samband íslenskra sveitarfélaga setur um greiðslur vegna nemenda sem stunda nám utan lögheimilissveitarfélags [sjá kaflann að ofan].

Kennslutími
Allir grunnskólar eiga að vera einsetnir, þ.e. sami hópur nemenda á að vera í skólanum allan daginn. Í 28. gr. laga um grunnskóla segir að starfstími nemenda í grunnskóla skuli á hverju skólaári vera að lágmarki níu mánuðir. Skóladagar skulu ekki vera færri en 180. Með hliðsjón af atvinnuháttum og aðstæðum í einstökum skólahverfum getur mennta- og menningarmálaráðherra þó veitt tímabundna undanþágu frá framangreindum ákvæðum. Um þessa lagagrein segir í athugasemdum við frumvarp til laga um grunnskóla: „Brýnt er að nýta árlegan starfstíma grunnskóla betur en verið hefur. Með því að skilgreina starfstíma skóla sem vinnutíma nemenda er þess freistað að starfstíminn sé betur nýttur til skipulags starfs nemenda undir leiðsögn kennara.“

Í 28. gr. laga um grunnskóla er fjallað um lágmarksviðmið um kennslutíma í grunnskóla:.

Vikulegur kennslutími hvers nemanda í grunnskóla skal að lágmarki vera:
    a.      1.200 mínútur í 1.–4. bekk,
    b.      1.400 mínútur í 5.–7. bekk,
    c.      1.480 mínútur í 8.–10. bekk.
Skólastjóri ákveður nánari útfærslu vikulegs kennslutíma í samráði við skólaráð. Við ákvörðun daglegs og vikulegs starfstíma nemenda í grunnskóla skal þess gætt að hann sé samfelldur með eðlilegum hléum og fari ekki fram yfir hæfilegt vinnuálag miðað við aldur nemenda og þroska.
Sveitarstjórnum er heimilt að samræma tiltekna leyfisdaga innan skólaársins fyrir alla skóla í sveitarfélaginu, að höfðu samráði við hagsmunaaðila.

Í eldri lögum voru nákvæm ákvæði um lengd stundahléa og matarhléa sem nú hafa verið felld brott þar sem eðlilegt er talið að skólar hafi svigrúm til að skipuleggja skóladaginn eins og best þykir henta.  Heimilt er að víkja frá vikulegum lágmarkskennslutíma tímabundið, en nemendum skal þá tryggð viðbótarkennsla sem nemur frávikinu innan sama skólaárs.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um grunnskóla segir m.a. um þessa lagagrein:

[Heimilt er] að víkja tímabundið frá lágmarks vikulegum kennslutíma en tryggja nemendum viðbótarkennslu sem nemur frávikinu innan sama skólaárs. Þetta er hugsað til að auka möguleika á sveigjanlegu skólastarfi miðað við aðstæður á hverjum stað. Einstakir skólar gætu t.d. tekið þá ákvörðun að hafa styttri vikulegan skólatíma í svartasta skammdeginu en lengja skóladaginn á móti að hausti og vori. Vikulegur kennslutími getur því orðið breytilegur náist um það samkomulag innan skólans, skólaráðs og skólanefndar.

Tómstundastarf og lengd viðvera (heilsdagsskóli)
Í öllum grunnskólum skal nemendum gefinn kostur á að taka þátt í tómstunda- og félagsstarfi skv. 33. gr. grunnskólalaga. Tómstunda- og félagsstarf getur bæði verið liður í daglegu starfi og utan venjulegs skólatíma.

Um þetta segir í aðalnámskrá — almennum hluta 2006 (bls. 23–24):

Í tómstundastarfi barna á að marka leiðir til að auka færni þeirra til að takast á við dagleg viðfangsefni, úrræði til að efla sjálfstraust þeirra, félagslegan og siðferðilegan styrk, andlegan, sálrænan og líkamlegan þroska. Í félagsstarfi skólanna skal m.a. stefna að því að nemendur verði færir um að taka að sér félagsleg störf og einnig skal leggja áherslu á jákvæð samskipti og fjölbreytt félagsstarf í samræmi við áhuga nemenda, aldur og þroska. Mikla áherslu skal leggja á heilbrigða og holla lífshætti.

Sveitarstjórn getur enn fremur boðið grunnskólanemendum lengda viðveru utan daglegs kennslutíma. Sveitarfélögum er heimilt að taka gjald fyrir lengda viðveru utan daglegs kennslutíma og tómstundastarf samkvæmt sérstakri gjaldskrá sem þau setja. Gjaldskrárákvarðanir samkvæmt þessari grein eru kæranlegar samkvæmt fyrirmælum 47. gr. grunnskólalaganna. Víðast er boðið upp á lengda viðveru fyrir nemendur í fyrstu árgöngum grunnskóla og greiða foreldrar fyrir þjónustuna. Sveitarfélög setja sjálf viðmiðanir um umgjörð þessarar þjónustu, mönnun, aðbúnað og starfshætti. Rétt þykir að skólaráð fjalli um slíkt. Í athugasemd við 33. gr. frumvarpsins segir að heimildin eigi ekki síður við um eldri nemendur. Þannig væri t.d. unnt að bjóða eldri nemendum upp á þjónustu utan daglegs kennslutíma. Slík þjónusta gæti m.a. verið stuðningur við heimanám og þjónusta vegna fatlaðra nemenda.

Í reglugerð um nemendur með sérþarfir í grunnskóla nr. 585/2010 segir í 15. gr:

15. gr. Kennsla og lengd viðvera í sérskólum og sérúrræðum.
Í sérskólum og sérúrræðum innan grunnskóla skulu nemendur fá kennslu skv. 2., 24. og 25. gr. laga um grunnskóla. Sveitarstjórn getur ákveðið að jafnframt bjóðist önnur þjónusta, svo sem lengd viðvera utan daglegs kennslutíma, óski foreldrar þess. Sveitarfélögum er heimilt að taka gjald vegna slíkrar þjónustu, sbr. 33. gr. laga um grunnskóla.

Á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga er að finna samkomulag um lengda viðveru fatlaðra grunnskólabarna (pdf).

Jöfn tækifæri til náms
Skóli án aðgreiningar með jöfnum tækifærum til náms er nú bundinn í lög. Samkvæmt 24. gr. grunnskólalaga skal í aðalnámskrá, við skipulagningu náms og kennslu og við gerð og val námsgagna þess sérstaklega gætt að allir nemendur fái jöfn tækifæri til náms og eigi þess kost að velja sér viðfangsefni og nálgun í námi sínu. Þar segir einnig:

     Markmið náms og kennslu og starfshættir grunnskóla skulu vera þannig að komið sé í veg fyrir mismunun vegna uppruna, kyns, kynhneigðar, búsetu, stéttar, trúarbragða, heilsufars, fötlunar eða stöðu að öðru leyti. 
     Í öllu skólastarfi skal stuðla að heilbrigðum lífsháttum og taka mið af persónugerð, þroska, hæfileikum, getu og áhugasviðum hvers og eins.

Í 1. mgr. 2. gr. laga um grunnskóla segir m.a. að grunnskólinn skuli leitast við að haga störfum sínum í sem fyllstu samræmi við stöðu og þarfir nemenda og stuðla að alhliða þroska, velferð og menntun hvers og eins.

Nemendur með sérþarfir í skóla án aðgreiningar
Í lögum um grunnskóla er í 17. gr. fjallað um nemendur sem þurfa sérstakan stuðning eða sérkennslu:

     Nemendur eiga rétt á að komið sé til móts við námsþarfir þeirra í almennum grunnskóla án aðgreiningar, án tillits til líkamlegs eða andlegs atgervis. 
     Nemendur sem eiga erfitt með nám sökum sértækra námsörðugleika, tilfinningalegra eða félagslegra örðugleika og/eða fötlunar, sbr. 2. gr. laga um málefni fatlaðra, nemendur með leshömlun, langveikir nemendur og aðrir nemendur með heilsutengdar sérþarfir eiga rétt á sérstökum stuðningi í námi í samræmi við metnar sérþarfir. 
     Nemendur sem að mati læknis geta ekki sótt skóla vegna slyss eða langvarandi veikinda eiga rétt til sjúkrakennslu annaðhvort á heimili sínu eða á sjúkrastofnun. Sjúkrakennsla er á ábyrgð viðkomandi sveitarfélags. 
     Telji foreldrar barns, skólastjórar, kennarar eða aðrir sérfræðingar að það fái ekki notið kennslu við sitt hæfi í almennum grunnskóla geta foreldrar sótt um skólavist fyrir barnið í sérúrræði innan grunnskóla eða í sérskóla. 
     Verði ágreiningur um fyrirkomulag skólavistar barns skal við úrlausn hans gæta ákvæða stjórnsýslulaga. Skal ákvörðun tekin með hliðsjón af áliti sérfræðinga og með heildarhagsmuni barnsins að leiðarljósi. Ákvörðun er kæranleg samkvæmt fyrirmælum 47. gr. 
     Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd þessarar greinar og málsmeðferð. Þegar ráðuneytið kveður upp úrskurð í málum sem því berast á grundvelli þessarar greinar er því heimilt að mæla nánar fyrir um fyrirkomulag skólavistar nemanda og skyldur sveitarfélags í því efni.

Í greinargerð með frumvarpinu er þessi grein útskýrð nánar:

     Meginatriðið í stefnunni um skóla án aðgreiningar er að skóli sé með þjónustu fyrir alla nemendur sína, bæði fatlaða og ófatlaða. Gert er ráð fyrir að hver skóli sé fær um að sinna öllum nemendum sínum, svo sem kostur er, og taka á sérkennsluþörfum og erfiðleikum sem upp kunna að koma í skólanum með viðeigandi stuðningi. Um sérfræðiþjónustu og stoðkerfi grunnskóla er fjallað í IX. kafla. Hér er einnig gert ráð fyrir að foreldrar geti áfram sótt um skólavist í sérúrræði innan grunnskóla eða í sérskóla. Í frumvarpinu er nýtt ákvæði um málsmeðferð ef ekki næst samkomulag milli foreldra og skóla um fyrirkomulag skólavistunar barns samkvæmt þessari grein, sbr. 47. gr. Þótt meginsjónarmiðið sé að foreldrar geti ákveðið skólavistun í almennum skóla eða sérúrræði geta komið upp þau tilvik að skoða þurfi málið með heildarhagsmuni barnsins að leiðarljósi og því eru sett ákvæði um framangreinda málsmeðferð. Samkvæmt ákvæðinu setur menntamálaráðuneyti reglur þar sem m.a. er kveðið á um meðferð kæra sem því berast samkvæmt grein þessari. Við úrskurð getur ráðuneytið kvatt til sérfræðinga á þeim sviðum sem varða tilefni ágreinings.

Á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga er að finna samkomulag um lengda viðveru fatlaðra grunnskólabarna. (pdf) 

Sérfræðiþjónusta og stoðkerfi grunnskóla
Sveitarfélög eiga að tryggja að sérfræðiþjónusta sé veitt í grunnskólum, ákveða fyrirkomulag hennar og stuðla að því að hún fari fram innan grunnskóla. Í sérfræðiþjónustu felst annars vegar stuðningur við nemendur og fjölskyldur þeirra og hins vegar stuðningur við starfsemi grunnskóla og starfsfólk þeirra. Þetta segir í 1. mgr. 40. gr. grunnskólalaga. í 40. gr. segir einnig:

     Í grunnskólum skal frá upphafi skólagöngu nemenda unnið að forvarnastarfi með skimunum og athugunum á nemendum til að tryggja þeim kennslu og námsaðstoð við hæfi. Auk þess skal fara fram greining á nemendum sem eiga í sálrænum eða félagslegum erfiðleikum sem hafa áhrif á nám þeirra. Allar athuganir á vegum skóla sem varða einstaka nemendur skulu gerðar í samráði við og með samþykki foreldra og óheimilt er að taka gjald fyrir slíkar athuganir. Greina skal foreldrum frá niðurstöðum slíkra athugana. 
     Foreldrar nemenda geta óskað eftir greiningu samkvæmt þessari grein, auk þess sem skólastjóri, kennarar eða starfsmenn heilsugæslu geta lagt fram ósk um greiningu í samráði við og með samþykki þeirra. Sérfræðiþjónusta sér um að greining fari fram, skilar tillögu til skólastjóra um hvernig við skuli bregðast, fylgist með úrbótum og metur árangur.  
     Skólastjóri skal samræma innan hvers skóla störf þeirra sem sjá um málefni einstakra nemenda er lúta að sérfræðiþjónustu, námsráðgjöf og skólaheilsugæslu með stofnun nemendaverndarráðs. Jafnframt skal stuðla að samráði við félagsþjónustu sveitarfélags og barnaverndaryfirvöld vegna málefna einstakra nemenda eftir því sem þurfa þykir. Heimilt er, með rökstuddri greinargerð, að sækja um tímabundna undanþágu frá einstökum ákvæðum í reglugerð um nemendaverndarráð til ráðuneytis. Gildar ástæður þurfa að vera fyrir veitingu undanþágu, svo sem fámenni eða sérstaða. 
     Sveitarfélög sem reka grunnskóla skulu hafa frumkvæði að samstarfi sérfræðiþjónustu, félagsþjónustu, barnaverndaryfirvalda og heilbrigðisþjónustu innan sveitarfélagsins vegna nemenda með sérþarfir og langvinn veikindi. Sveitarfélög skulu einnig hafa frumkvæði að samstarfi sérfræðiþjónustu við aðila sem annast sérhæfð greiningar- og meðferðarúrræði á vegum ríkisins vegna einstakra nemenda. 
     Við framkvæmd sérfræðiþjónustu skulu sveitarfélög leggja áherslu á góð tengsl leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla með samfellu í skólastarfi að leiðarljósi.
Ráðherra setur reglugerð um sérfræðiþjónustu og starfsemi nemendaverndarráða í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga. 
     Sé foreldri synjað um beiðni um greiningu skv. 3. mgr. verður sú ákvörðun kærð samkvæmt fyrirmælum 47. gr. Ráðuneytið getur í úrskurði mælt fyrir um að tilteknum nemanda skuli veitt greining í samræmi við ákvæði þessarar greinar.

Í athugasemdum við 40. greinina segir m.a. að sveitarfélög skuli stuðla að því að sérfræðiþjónustan fari sem mest fram innan grunnskólans og að þau hafi forgöngu um samstarf þeirra aðila sem koma að velferðarmálum nemenda:

Hér er ekki síst átt við að nemendur fái stuðning, ráðgjöf og þjálfun innan grunnskóla en þurfi ekki að sækja slíkt út fyrir veggi skólans, nema nauðsyn beri til. Hér er einnig átt við að sveitarfélög skuli stuðla að því að ýmis þjálfun fari fram innan grunnskóla hjá sérfræðingum sem ekki eru starfsmenn sveitarfélaga en hér er m.a. átt við iðjuþjálfun, talþjálfun og sjúkraþjálfun sem ýmsir nemendur þurfa reglulega. Æskilegt er að slík þjálfun geti að mestu farið fram innan grunnskóla þótt greiðslur fyrir þjónustuna komi frá öðrum aðilum en sveitarfélögum. Sérstök nefnd skipuð af menntamálaráðherra er starfandi sem hefur það verkefni að fara yfir þessi mál til að skýra ákvæði um kostnaðarskiptingu.
Mikilvæg breyting á ákvæðum um sérfræðiþjónustu felast í því að sveitarfélög sem reka grunnskóla skulu hafa forgöngu um samstarf sérfræðiþjónustu, félagsþjónustu og heilbrigðisþjónustu innan sveitarfélagsins vegna nemenda með sérþarfir en mikilvægt er að samhæfa sem best þjónustu við nemendur til að hún verði markviss. Þar sem sérfræðiþjónusta á vegum sveitarfélaga telst einkum til fyrsta og annars stigs sérfræðiþjónustu er brýnt að sveitarfélögin hafi forgöngu um samstarf sérfræðiþjónustu við aðila sem annast sérhæfð greiningar- og meðferðarúrræði á vegum ríkisins vegna einstakra nemenda. Þar er m.a. átt við Greiningar- og ráðgjafarmiðstöð ríkisins, BUGL, Sjónstöð og Heyrnar- og talmeinastöð og sambærileg úrræði. Í gildandi lögum eru ákvæði um að sérfræðiþjónusta vinni að forvarnarstarfi og athugunum og greiningu á nemendum sem eiga í sálrænum og félagslegum erfiðleikum hafi þessir erfiðleikar áhrif á nám nemenda og geri tillögur til úrbóta. Hér er lagt til að auk þessa hlutverks skuli sérfræðiþjónustan tryggja að viðkomandi nemendur fái kennslu og námsaðstoð við hæfi og viðeigandi íhlutun, þ.e. ekki einungis gera tillögur til úrbóta heldur fylgja þeim eftir. Einnig eigi sérfræðiþjónustan að meta árangurinn af íhlutun.

Reglugerð um sérfræðiþjónustu sveitarfélaga við leik- og grunnskóla og nemendaverndarráð í grunnskólum nr. 584/2010 er birt hér að neðan að undanskildum nokkrum greinum sem birtar eru annars staðar á síðunni:

I. KAFLI
Skyldur sveitarfélaga og skilgreining sérfræðiþjónustu.
1. gr. Gildissvið.
Reglugerð þessi tekur til sérfræðiþjónustu sveitarfélaga við leik- og grunnskóla og til nemendaverndarráða í grunnskólum.
Sé ekki annað tekið fram er með nemendum átt við börn í leikskólum og nemendur í grunnskólum.
Foreldrar samkvæmt reglugerð þessari teljast þeir sem fara með forsjá barns í skilningi barnalaga.
Reglugerð þessi tekur einnig til sérfræðiþjónustu við leik- og grunnskóla sem reknir eru af öðrum aðilum en sveitarfélögum.

2. gr. Inntak og markmið sérfræðiþjónustu.
Sérfræðiþjónusta tekur annars vegar til stuðnings við nemendur í leik- og grunnskólum og foreldra þeirra og hins vegar stuðnings við starfsemi skóla og starfsfólk þeirra.
Markmið með sérfræðiþjónustu sveitarfélaga er að kennslufræðileg, sálfræðileg, þroskafræðileg og félagsfræðileg þekking nýtist sem best í skólastarfi.
Sérfræðiþjónusta skal beinast að því að efla skóla sem faglegar stofnanir sem geti leyst flest þau viðfangsefni sem upp koma í skólastarfi og veita starfsfólki skóla leiðbeiningar og aðstoð við störf sín eftir því sem við á.
Þegar fjallað er um mat í reglugerð þessari er átt við mat á færni og stöðu nemenda og nemendahópa. Viðeigandi matstæki geta til dæmis verið samræmd könnunarpróf, skimunarpróf, greiningartæki, kannanir, athuganir og skoðun á einstaklingum eða nemendahópum sem nýtast til að ná markmiðum reglugerðarinnar.

II. KAFLI
Skipulag og framkvæmd sérfræðiþjónustu.
3. gr. Hlutverk sveitarfélaga og framkvæmd sérfræðiþjónustu.
Fræðsluyfirvöld í hverju sveitarfélagi skulu fylgjast með og stuðla að því að nemendum og skólum sé tryggður aðgangur að sérfræðiþjónustu.
Sveitarfélög skulu tryggja að viðeigandi sérfræðiþjónusta sé veitt í leik- og grunnskólum, ákveða fyrirkomulag hennar og stuðla að því að hún fari fram innan skóla. Sveitarfélög bera ábyrgð á að þjónustan sé veitt og kostnaði við hana. Sveitarfélög skulu mæla fyrir um það í skólastefnu sinni hvernig markmiðum þessarar reglugerðar verði náð. Við framkvæmd sérfræðiþjónustu skulu sveitarfélög leggja áherslu á:
forvarnarstarf til að stuðla markvisst að velferð nemenda,
snemmtækt mat á stöðu nemenda og ráðgjöf vegna námsvanda, félagslegs og sálræns vanda með áherslu á að nemendur fái kennslu og stuðning við hæfi í skólum án aðgreiningar,
að sérfræðiþjónusta mótist af heildarsýn á aðstæður og hagsmuni nemenda, óháð starfsstéttum sérfræðinga og hver veitir þjónustuna,
að styðja á fjölbreyttan hátt við starfsemi og starfshætti í leik- og grunnskólum og starfsfólk þeirra,
stuðning við foreldra með ráðgjöf og fræðslu,
viðeigandi túlkaþjónustu til að tryggja að upplýsingar/ráðgjöf nýtist foreldrum og nemendum,
góð tengsl leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla með samfellu og heildarsýn í skólastarfi að leiðarljósi.
Við gerð símenntunaráætlana skv. 7. gr. laga nr. 90/2008 um leikskóla og 12. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla skal lögð áhersla á að efla þekkingu starfsfólks leik- og grunnskóla á því að leysa viðfangsefni samkvæmt reglugerð þessari innan skólanna.

4. gr. Skipulag sérfræðiþjónustu.
Sveitarstjórn í samráði við skólastjórnendur skipuleggur sérfræðiþjónustu. Um ráðningu sérhæfðs starfsfólks sem henni sinnir fer eftir því sem við á samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga og nánari fyrirmælum í samþykktum sveitarfélags.
Sveitarfélög geta rekið sérfræðiþjónustu á eigin vegum sem sjálfstæða einingu, innan eða utan skóla, sameinast um slíkan rekstur með öðrum sveitarfélögum eða gert þjónustusamninga við önnur sveitarfélög, stofnanir eða aðila sem veita þá þjónustu sem þörf er á hverju sinni. Þegar um slík þjónustukaup er að ræða skal sveitarstjórn fylgjast með því að sérfræðiþjónusta uppfylli fyrirmæli laga og reglugerða.
Gera skal sérstaklega ráð fyrir rými í leik- og grunnskólum til að veita sérfræðiþjónustu þegar á þarf að halda vegna nemenda með sérþarfir, stuðnings og þjálfunar, óháð því hver veitir þjónustuna.
Heimilt er að reka sameiginlega sérfræðiþjónustu fyrir leikskóla og grunnskóla.
Nánar skal kveðið á um skipulag sérfræðiþjónustu í skólanámskrá leik- og grunnskóla.

5. gr. Samhæfing sérfræðiþjónustu.
Sveitarfélög skulu hafa frumkvæði að samstarfi sérfræðiþjónustu á vegum sveitarfélaga við aðila sem annast sérhæfð greiningar- og meðferðarúrræði á vegum ríkisins vegna einstakra nemenda. Einnig skulu sveitarfélög tryggja gagnkvæma upplýsingamiðlun milli aðila á mismunandi þjónustustigum eftir því sem við á í samráði við foreldra og geta sett viðmið um hvernig slík þjónusta er nýtt.
Skólastjórar skulu hafa frumkvæði að samstarfi við sérfræðiþjónustu sveitarfélags, félagsþjónustu, barnaverndaryfirvöld og heilbrigðisþjónustu innan sveitarfélagsins vegna málefna einstakra nemenda með sérþarfir og langvinn veikindi.
Til að stuðla að sem mestri samfellu í þjónustu við nemendur með sérþarfir skal samkvæmt gildandi reglugerð um nemendur með sérþarfir veita viðkomandi framhaldsskóla upplýsingar um stöðu einstakra nemenda eftir því sem við verður komið. Samráð skal haft við nemendur í samræmi við stöðu þeirra, að fengnu samþykki foreldra. Fylgja skal málinu eftir til framhaldsskóla.

6. gr. Aðgangur foreldra að upplýsingum í vörslu sérfræðiþjónustu.
Foreldrar geta kynnt sér gögn eða fengið afrit af gögnum í vörslu sérfræðiþjónustu með persónulegum upplýsingum um eigin börn. Skólar og sérfræðiþjónusta sveitarfélaga skulu fara með allar slíkar upplýsingar í samræmi við gildandi lög um persónuvernd.
Um miðlun upplýsinga milli skólastiga og skóla innan sama skólastigs fer samkvæmt reglugerðum við 16. gr. laga um leikskóla og 18. gr. laga um grunnskóla.
Um rétt foreldra sem ekki fara með forsjá barns til upplýsinga samkvæmt reglugerð þessari fer samkvæmt fyrirmælum 52. gr. barnalaga nr. 76/2003.

7. gr. Samningar um aukið hlutverk sérfræðiþjónustu.
Sérfræðiþjónusta sveitarfélaga getur á grundvelli samþykktar sveitarstjórnar tekið að sér aukið hlutverk umfram skilgreiningar í lögum um leik- og grunnskóla um tiltekin verkefni og verklag, t.d. hvað varðar ítarlega greiningu og meðferð á grundvelli þjónustusamninga við greiningarstofnanir og þjónustustofnanir á landsvísu.
Sveitarfélög geta gert samning við þjónustustofnanir um að þær annist sérfræðiþjónustu vegna tiltekinna nemendahópa þar sem sérfræðiþekking er ekki til staðar hjá sérfræðiþjónustu sveitarfélaga.
Sveitarfélög geta tekið að sér sérfræðiþjónustu í framhaldsskólum með þjónustusamningum við framhaldsskóla eða mennta- og menningarmálaráðuneyti.

III. KAFLI
Starfshættir sérfræðiþjónustu.
8. gr. Starfsfólk sérfræðiþjónustu.
Starfsfólk sem sinnir sérfræðiþjónustu sveitarfélaga skal hafa sérfræðimenntun á sviði kennslu-, uppeldis- eða félagsmála. Starfsfólk skólaheilsugæslu getur einnig talist til sérfræðiþjónustu sveitarfélags hvað varðar athugun, greiningu og ráðgjöf og einnig eftir atvikum fagfólk á vegum ung- og smábarnaverndar. Starfsfólk sérfræðiþjónustu vinnur störf sín samkvæmt því fyrirkomulagi sem sveitarstjórn ákveður í samræmi við VII. kafla laga nr. 90/2008 um leikskóla og IX. kafla laga nr. 91/2008 um grunnskóla.
Óheimilt er að ráða starfsmann til að sinna sérfræðiþjónustu sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga. Við afgreiðslu umsóknar um starf sérfræðings skal liggja fyrir sakavottorð eða heimild sveitarstjórnar til þess að afla upplýsinga úr sakaskrá sbr. 3. mgr. 6. gr. laga um leikskóla og 3. mgr. 11. gr. laga um grunnskóla.
Starfsfólk sérfræðiþjónustu skal gæta fyllstu þagmælsku um hagi barna og foreldra þeirra sem það fær vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara samkvæmt lögum, fyrirmælum yfirmanna og eðli máls. Þagnarskylda helst þótt viðkomandi láti af störfum. Þagnarskylda nær ekki til atvika sem ber að tilkynna um lögum samkvæmt.

9. gr. Stuðningur við starfsfólk.
Í stuðningi við starfsfólk skóla felst m.a. ráðgjöf vegna kennslu og umönnunar nemenda og ráðgjöf vegna náms nemenda með sérþarfir. Stuðningur við starfsfólk felst einnig í ráðgjöf vegna starfshátta skóla, nýbreytni- og þróunarstarfa og starfsumhverfis.

10. gr. Stuðningur við forvarnarstarf.
Í forvarnarstarfi leik- og grunnskóla felst m.a. fræðsla, mat og verkefni fyrir nemendur, starfsfólk skóla og foreldra með það að markmiði að skólaganga nemenda gangi sem best og að skólabragurinn verði sem jákvæðastur. Nemendur sem kunna að eiga í líkamlegum, sálrænum eða félagslegum vanda fái viðeigandi stuðning og námsaðstoð við hæfi til að þeir geti tekið virkan þátt í skólastarfi.
Í leik- og grunnskólum skal starfsfólk skóla meta hvaða nemendur kunna að eiga í erfiðleikum með lestrarnám eða lestur, eða aðra námsörðugleika, með viðeigandi matstækjum, bregðast við því með kerfisbundnum hætti og sjá til þess að allir nemendur fái nauðsynlega aðstoð. Fylgst skal reglulega með framförum og brugðist við jafnóðum.
Sé þörf á nánari athugun og greiningu á grundvelli mats, skv. 2. mgr., skal skólastjóri eða fulltrúi hans óska eftir sérfræðiaðstoð. Starfsfólk sérfræðiþjónustu skal aðstoða starfsfólk leik- og grunnskóla við greiningu á nemendum sem kunna að eiga í líkamlegum, sálrænum eða félagslegum vanda sem geta haft áhrif á námsframvindu. Einnig skal sérfræðiþjónusta aðstoða starfsfólk leik- og grunnskóla við greiningu á námsaðstæðum, veita ráðgjöf um hvernig brugðist skuli við og vísa á viðeigandi úrræði.
Starfsfólk sérfræðiþjónustu skal fylgjast með að viðeigandi matstæki séu tiltæk, útvega slík matstæki eftir því sem þörf krefur og aðstoða við framkvæmd og eftirfylgni í samstarfi við fræðsluyfirvöld.
Allar athuganir á vegum sérfræðiþjónustu sem varða einstaka nemendur skulu gerðar í samráði við og með formlegu samþykki foreldra og óheimilt er að taka gjald fyrir slíkar athuganir.

11. gr. Beiðni um athugun, greiningu og ráðgjöf.
Foreldrar nemenda í leik- og grunnskóla geta óskað eftir athugun, greiningu og ráðgjöf fyrir börn sín. Auk þess geta skólastjórnendur, kennarar, náms- og starfsráðgjafar, eða eftir atvikum annað starfsfólk skólans eða skólaheilsugæslu, lagt fram ósk um slíka sérfræðiaðstoð í samráði við og með samþykki foreldra. Beina skal beiðnum til skólastjóra.
Allar greiningar á nemendum og námsaðstæðum þeirra skulu gerðar í samráði við og með samþykki foreldra og skulu þeir upplýstir um niðurstöðuna.
Sveitarstjórn skal á grundvelli umsagnar fræðsluyfirvalda sveitarfélaga setja verklagsreglur um meðferð beiðna samkvæmt þessari grein.
Verkferlar skóla og sérfræðiþjónustu sveitarfélaga vegna sérfræðiaðstoðar við nemendur skulu vera aðgengilegir.

12. gr. Ráðgjöf, eftirfylgni og mat á árangri.
Að fenginni athugun eða greiningu gerir starfsfólk sérfræðiþjónustu sveitarfélags tillögu um viðeigandi úrræði með starfsfólki skóla, svo sem ráðgjöf og fræðslu til kennara og foreldra og viðeigandi stuðning við nemendur eða nemendahópa. Eftirfylgni og mat á árangri er í höndum sérfræðiþjónustu í samstarfi við viðkomandi skóla.

13. gr. Stuðningur sérfræðiþjónustu við foreldra.
Sérfræðiþjónusta sveitarfélaga skal eftir því sem aðstæður leyfa gefa foreldrum kost á almennri ráðgjöf og fræðslu, svo sem vegna skólagöngu barna þeirra, samstarfs heimila og skóla og hegðunar barna þeirra.
Jafnframt skal sérfræðiþjónusta sveitarfélaga veita foreldrafélögum, foreldraráðum leikskóla og skólaráðum grunnskóla ráðgjöf og stuðning vegna lögbundinnar starfsemi þeirra.

14. gr. Sérstök aðstoð og þjálfun.
Telji skólastjóri og foreldrar að barn þarfnist sérstakrar aðstoðar eða þjálfunar til að geta notið leikskóla- eða grunnskólagöngu sem best, ber þeim að hafa samráð um hvort unnt sé að leysa málið innan skólans og/eða hvort leitað skuli til sérfræðiþjónustu sveitarfélags eða annarra sérfræðinga. Verði aðilar sammála um að leita eftir slíkri þjónustu hlutast skólastjóri til um að sú þjónusta sé veitt. Skólastjóri ábyrgist að gerð sé áætlun sem byggir á markmiðum aðalnámskrár í samræmi við metnar sérþarfir.
Sveitarfélög skulu stuðla að því að þjálfun sem nemendur þurfa reglulega fari sem mest fram innan leik- og grunnskóla hjá viðeigandi sérfræðingum þótt aðrir aðilar en sveitarfélög veiti þjónustuna. Sveitarstjórn gerir sérstakan samning um þjónustuna.

IV. KAFLI
Samræmingarhlutverk leikskóla.
15. gr. Samræmingarhlutverk skólastjóra leikskóla.
Skólastjóri leikskóla skal samræma innan hvers leikskóla störf þeirra sem sjá um málefni einstakra barna er lúta að sérfræðiþjónustu skv. 21. gr. laga nr. 90/2008 um leikskóla.
Jafnframt skal skólastjóri leikskóla stuðla að samráði við félagsþjónustu sveitarfélags og barnaverndaryfirvöld vegna málefna einstakra barna eftir því sem þurfa þykir.
Sveitarstjórn er heimilt að stofna ráð eða teymi í leikskólum vegna þessarar samræmingar og ákveða hlutverk, skipan, samsetningu og starfshætti þess.

...

VI. KAFLI
Önnur ákvæði.
21. gr.Kæruheimildir.
Ákvarðanir um rétt einstakra nemenda í leikskóla, sem teknar eru á grundvelli 22. gr. laga nr. 90/2008 um leikskóla um rétt til sérstakrar aðstoðar og þjálfunar, eru kæranlegar til mennta- og menningarmálaráðherra samkvæmt fyrirmælum 30. gr. sömu laga.
Synjun skólastjóra á beiðni foreldra um greiningu á grunnskólastigi skv. 3. mgr. 40. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla er kæranleg til ráðherra samkvæmt fyrirmælum 47. gr. sömu laga. Ráðuneytið getur í úrskurði mælt fyrir um að tilteknum nemanda skuli veitt greining.
Ákvarðanir sem teknar eru af hálfu sveitarfélags í samráði við foreldra, í framhaldi af niðurstöðu greiningar, eru ekki kæranlegar til ráðherra, þ.e. ákvarðanir um úrræði og aðra eftirfylgni greiningar.

22. gr. Sérfræðiþjónusta í sjálfstætt reknum skólum.
Leik- og grunnskólar eiga rétt á sérfræðiþjónustu sveitarfélags óháð rekstrarformi skóla.
Um sérfræðiþjónustu í sjálfstætt reknum grunnskólum fer að öðru leyti samkvæmt samningi sem gerður er milli sveitarfélags og viðkomandi skóla sem hlotið hefur viðurkenningu mennta- og menningarmálaráðuneytis skv. 43. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla.

23. gr.Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 21. gr. og 22. gr. laga nr. 90/2008 um leikskóla og 40. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla og öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi reglugerðir um sérfræðiþjónustu skóla nr. 386/1996, reglugerð um nemendaverndarráð í grunnskólum nr. 388/1996 og reglugerð um starfsemi leikskóla nr. 225/1995.

Sjá ákvæði um nemendaverndarráð hér.

Reglugerð um nemendur með sérþarfir í grunnskóla nr. 585/2010 er svohljóðandi, að undanskildum nokkrum greinum sem birtar eru í næsta kafla:


I. KAFLI
Almenn ákvæði.
1. gr. Gildissvið.
Reglugerð þessi tekur til nemenda sem þurfa sérstakan stuðning í námi í samræmi við metnar sérþarfir.
Ef nemendur þurfa á þjónustu að halda sem er umfram þau mörk sem skylda sveitarfélaga nær til samkvæmt 4. gr. fer um réttindi þeirra skv. gildandi lögum um málefni fatlaðra.
Reglugerð þessi tekur einnig til nemenda með sérþarfir í grunnskólum sem fengið hafa viðurkenningu mennta- og menningarmálaráðherra skv. 43. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla.

2. gr. Skilgreiningar.
Merking orða í reglugerð þessari er sem hér segir:
Nemendur með sérþarfir teljast þeir sem eiga erfitt með nám sökum sértækra námsörðugleika, tilfinningalegra eða félagslegra erfiðleika og/eða fötlunar, sbr. 2. gr. laga um málefni fatlaðra nr. 59/1992, nemendur með leshömlun, langveikir nemendur, nemendur með þroskaröskun, geðraskanir og aðrir nemendur með heilsutengdar sérþarfir.
Með skóla án aðgreiningar er átt við grunnskóla í heimabyggð eða nærumhverfi nemenda þar sem komið er til móts við náms- og félagslegar þarfir nemenda í almennu skólastarfi með manngildi, lýðræði og félagslegt réttlæti að leiðarljósi.
Með sérúrræði er átt við skólavist sem kallar á málsmeðferð skv. V. og VI. kafla, þ.e. í sérdeildum sem reknar eru innan tiltekinna grunnskóla, skólavist í sérskóla þar sem slíkt úrræði er til staðar og sjúkrakennslu. Almennur stuðningur við nemendur í kennslustundum telst ekki til sérúrræða í þessum skilningi.
Með sérkennurum og öðrum fagaðilum er átt við þá sem hafa sérmenntun til þess að veita sérstakan stuðning í námi og sinna ráðgjöf til umsjónarkennara og annarra grunnskólakennara. Til fagaðila annarra en sérkennara teljast m.a. þroskaþjálfar, náms- og starfsráðgjafar og þeir sem starfa við sérfræðiþjónustu skóla og sérfræðistofnanir.
Með fræðsluyfirvöldum er átt við mennta- og menningarmálaráðuneyti, sveitarstjórnir, skólaskrifstofur og hlutaðeigandi skólastjóra.
Foreldrar samkvæmt reglugerð þessari teljast þeir sem fara með forsjá barns í skilningi barnalaga.

3. gr. Markmið.
Markmið reglugerðar þessarar er að nemendur:
fái jöfn tækifæri á eigin forsendum til náms og virkrar þátttöku í grunnskólum án aðgreiningar þannig að komið sé til móts við náms-, líkams-, félags- og tilfinningalegar þarfir þeirra,
fái fjölbreytt nám við hæfi í hvetjandi námsumhverfi og í viðeigandi húsnæði sem tekur mið af þörfum þeirra og stöðu,
geti þroskað persónuleika sinn, hæfileika og sköpunargáfu, ásamt andlegri og líkamlegri getu og verið félagslega virkir þátttakendur í skólasamfélaginu þar sem byggt er á styrkleikum þeirra,
hafi jöfn tækifæri í grunnskólum í samræmi við alþjóðlega samninga um réttindi barna og fatlaðra.

4. gr. Skyldur sveitarfélaga og réttindi nemenda.
Sveitarfélögum er skylt að sjá til þess að skólaskyld börn, sem lögheimili eiga í sveitarfélaginu eða eru vistuð hjá fósturforeldrum sem lögheimili eiga í sveitarfélaginu, fái sérstakan stuðning í skólastarfi í samræmi við metnar sérþarfir þeirra og eftir því sem nánar er kveðið á um í reglugerð þessari.
Nemendur eiga rétt á:
að komið sé til móts við náms- og félagslegar þarfir þeirra í skóla án aðgreiningar án tillits til líkamlegs eða andlegs atgervis,
að sjónarmiðum þeirra sé gefinn gaumur miðað við aldur þeirra og þroska og þeim veitt aðstoð, þar sem tekið er tillit til sérþarfa þeirra og aldurs,
að þeir geti nýtt sér viðeigandi samskiptamáta, s.s. táknmál, blindraletur og viðeigandi tækjabúnað, aðlöguð námsgögn, aðstöðu og kennslu til að stuðla að sem bestri menntun, sjálfsstyrkingu og félagsþroska.

II. KAFLI
Þörf fyrir sérstakan stuðning.
5. gr. Upplýsingar frá leikskóla til grunnskóla.
Persónuupplýsingar og greiningargögn sem fyrir liggja um hvert einstakt barn í leikskóla og nauðsynleg eru fyrir velferð og aðlögun þess í grunnskóla skulu fylgja því, enda sé krafist þagnarskyldu og málsmeðferðar í samræmi við gildandi lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Foreldrum skal gerð grein fyrir þessari upplýsingamiðlun.
Um miðlun upplýsinga fer nánar eftir því sem mælt er fyrir um í reglugerð nr. 897/2009 um miðlun og meðferð upplýsinga um nemendur í grunnskólum og rétt foreldra til aðgangs að upplýsingum um börn þeirra og reglugerð nr. 896/2009 um skil og miðlun upplýsinga milli leik- og grunnskóla.

6. gr. Ábyrgð skólastjóra grunnskóla.
Skólastjóri skal hlutast til um að metið sé hvort í skólanum séu nemendur sem þurfa á sérstökum stuðningi í námi að halda. Jafnframt ber skólastjóri ábyrgð á því að brugðist verði við skjótt í samræmi við metnar sérþarfir og einnig stöðu nemenda að öðru leyti eftir því sem tilefni gefst til.
Skólastjóri hefur forgöngu um að skipuleggja stuðning í námi fyrir nemendur sem hefja nám og hafa sérþarfir samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum.
Skólastjóri ber ábyrgð á því að mat á sérþörfum og skipulagning stuðnings fari ávallt fram í samráði við foreldra og kennara, þ.m.t. umsjónarkennara og sérkennara. Ennfremur að leitað sé til annarra fagaðila og skólaheilsugæslu eftir því sem við á.

7. gr. Beiðni frá foreldrum.
Telji foreldrar að börn þeirra hafi sérþarfir og þurfi á sérstökum stuðningi í námi að halda geta þeir komið slíkri beiðni á framfæri við umsjónarkennara barnsins eða skólastjórnendur. Hver skóli skal setja sér starfsreglur um meðferð slíkra mála, m.a. um skráningu og varðveislu beiðna foreldra, annað verklag, samstarf og málshraða.

III. KAFLI
Skipan náms og kennslu.
8. gr. Stuðningur - námsumhverfi.
Stuðningur við nemendur eða nemendahópa felst í sveigjanlegu og margbreytilegu námsumhverfi og kennsluháttum sem ætlað er að mæta þörfum allra nemenda.
Við skipulag stuðnings við einstaka nemendur eða nemendahópa skal stuðla að því að hann fari fram innan skólans án aðgreiningar. Við sérstakar aðstæður, svo sem vegna dvalar barns á heilbrigðisstofnun eða í úrræði á vegum barnaverndaryfirvalda, skal í því ljósi ákveða hvernig stuðningi verði háttað.
Stuðningi við nemendur með sérþarfir skal sinnt af umsjónarkennara, sérkennara eða öðrum kennurum eftir því sem við verður komið. Skólastjóri getur jafnframt ráðið aðra aðila til stuðnings nemendum telji hann það nauðsynlegt að fengnu samþykki sveitarstjórnar.
Heimilt er að skipuleggja og meta tímabundna þátttöku nemenda í atvinnulífi að hluta sem nám að höfðu samráði við foreldra og sérfræðiþjónustu sveitarfélaga.

9. gr. Móttökuáætlun.
Auk almennrar móttökuáætlunar skv. 16. gr. laga um grunnskóla skulu grunnskólar útbúa móttökuáætlun fyrir nemendur með sérþarfir. Í slíkri áætlun skal m.a. gera grein fyrir samstarfi innan skólans um skipulag kennslunnar, aðbúnaði, aðstöðu, notkun hjálpartækja, skipulagi einstaklingsnámskrár, kennsluháttum og námsmati, hlutverki umsjónarkennara, sérkennara og annarra fagaðila innan skólans og samstarfi við foreldra. Tilgreina skal áform skólans um stuðning við nemendur til félagslegrar þátttöku og virkni í skólasamfélaginu, svo sem í félagslífi og tómstundastarfi skólans. Í slíkri áætlun skal einnig gera grein fyrir samstarfi við aðra aðila utan skólans.

10. gr.Áætlun um stuðning í námi.
Í grunnskólum skal árlega vinna áætlun um stuðning í námi og kennslu í samræmi við metnar sérþarfir nemenda. Skólastjóri ber ábyrgð á að áætlunin sé samin og felur umsjónarkennara, sérkennara eða öðrum fagaðila það verkefni í samvinnu við nemendaverndarráð.
Áætlunin skal taka til heildarskipulags náms og stuðnings við nemendur með sérþarfir. Ennfremur skal áætlunin taka til annarrar þjónustu við nemendur með fötlun.
Áætlunin skal grundvölluð á upplýsingum um heildaraðstæður nemenda og mati á stöðu þeirra í námi.

11. gr. Sérstakur stuðningur og einstaklingsnámskrá.
Sérstakur stuðningur getur falið í sér breytingu á námsmarkmiðum aðalnámskrár grunnskóla, námsgögnum, námsaðstæðum og/eða kennsluaðferðum. Stuðningurinn er skipulagður til lengri eða skemmri tíma eftir þörfum nemandans.
Gera skal rökstudda einstaklingsnámskrá fyrir hvern einstakling sem byggð er á upplýsingum um heildaraðstæður nemanda og athugun og mati á stöðu hans í námi og þroska. Námskráin skal reglulega endurskoðuð í samstarfi við foreldra og að höfðu samráði við nemendur eftir því sem við verður komið.

...

V. KAFLI
Fjárhagsmálefni.
18. gr. Fjárhagsáætlanir sveitarfélaga.
Við gerð árlegrar fjárhagsáætlunar gerir sveitarstjórn ráð fyrir fjárveitingum til kennslu nemenda með sérþarfir í grunnskólum. Fjármagni sem ákveðið er með þessum hætti skal varið til kennslu í grunnskólum, kennslu í sérúrræðum innan grunnskóla og ráðgjafar við skóla. Þá skal gert ráð fyrir fjárveitingum til annarra starfa vegna stuðnings við nemendur með sérþarfir eftir nánari ákvörðun sveitarstjórnar, þ.m.t. til sjúkrakennslu.
Í þeim sveitarfélögum sem reka sérskóla eða sérúrræði innan grunnskóla, skv. 42. gr. laga um grunnskóla, skal sveitarstjórn ennfremur gera ráð fyrir fjárveitingum til kennslu.
Í fjárhagsáætlunum sveitarfélaga ber einnig að gera ráð fyrir því að það standi straum af viðbótarkostnaði við skólagöngu barns með sérþarfir sem stundar nám í öðru sveitarfélagi. Við uppgjör þess kostnaðar er heimilt að nota viðmiðunarreglur sem Samband íslenskra sveitarfélaga setur um greiðslur vegna nemenda sem stunda nám utan lögheimilissveitarfélags.

... 

VIII. KAFLI
Gildistaka.
24. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 17. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 389/1996 um sérkennslu.

Sérúrræði (sérdeildir) og sérskólar
Í 42. gr. grunnskólalaga segir um sérúrræði (áður nefnt sérdeildir):

Sveitarfélög geta beitt sér fyrir sérúrræðum innan grunnskóla eða stofnað til reksturs sérskóla þegar almennt nám og kennsluhættir hæfa ekki þörfum eða hag nemenda. Slíkum úrræðum er ætlað að veita nemendum sérhæft umhverfi til náms í lengri eða skemmri tíma þar sem jafnframt skal lögð áhersla á að veita starfsfólki almennra grunnskóla stuðning og kennslufræðilega ráðgjöf.
Reglugerð um nemendur með sérþarfir í grunnskóla nr. 585/2010 fjallar um sérúrræði í IV. og VI. kafla:

IV. KAFLI
Sérúrræði innan grunnskóla og sérskólar.
12. gr. Skipulag þjónustunnar.
Sveitarstjórn ákveður fyrirkomulag þjónustu við nemendur með sérþarfir og getur stofnað sérskóla eða sérúrræði innan grunnskóla á vegum sveitarfélagsins, sbr. 42. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008. Skipulag þjónustunnar skal ákveðið í samráði við skólastjórnendur og fræðsluyfirvöld í sveitarfélaginu. Þjónusta sem fram fer í sérúrræði innan grunnskóla lýtur stjórn skólastjóra samkvæmt nánari ákvörðun sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn setur starfsreglur fyrir sérskóla og sérúrræði innan grunnskóla þar sem m.a. er kveðið á um ráðgjöf og stuðning við starfsfólk og fyrirkomulag þjónustunnar. Starfsreglurnar skulu áður teknar fyrir í skólaráði viðkomandi skóla.

13. gr. Skólavist utan lögheimilssveitarfélags.
Sveitarstjórn, þar sem barn á lögheimili, getur samið við annað sveitarfélag, sem rekur sérskóla eða sérúrræði innan grunnskóla, um að það veiti barni skólavist, óski foreldrar þess. Viðtökusveitarfélag hefur þá sömu skyldur um skólavist þess og ætti það þar lögheimili.

14. gr. Skólanámskrá og starfsáætlun.
Sérskólar og sérúrræði innan grunnskóla starfa eftir markmiðum aðalnámskrár grunnskóla.
Sérskólar og grunnskólar, sem veita úrræði fyrir nemendur með sérþarfir, skulu setja sér skólanámskrá og starfsáætlun og skilgreina með hvaða hætti aðalnámskrá er aðlöguð þörfum nemenda, sbr. 29. gr. laga um grunnskóla.

15. gr. Kennsla og lengd viðvera í sérskólum og sérúrræðum.
Í sérskólum og sérúrræðum innan grunnskóla skulu nemendur fá kennslu skv. 2., 24. og 25. gr. laga um grunnskóla. Sveitarstjórn getur ákveðið að jafnframt bjóðist önnur þjónusta, svo sem lengd viðvera utan daglegs kennslutíma, óski foreldrar þess. Sveitarfélögum er heimilt að taka gjald vegna slíkrar þjónustu, sbr. 33. gr. laga um grunnskóla.

16. gr. Kennsluráðgjöf.
Einstakir sérskólar og grunnskólar sem annast sérúrræði geta veitt leiðbeiningar og kennsluráðgjöf til starfsfólks skóla og foreldra innan sveitarfélags eða á landsvísu vegna náms og kennslu nemenda með sérþarfir.
Fræðsluyfirvöld hafa samstarf um þá ráðgjöf sem hér um ræðir og gera samninga um framkvæmd hennar.

17. gr. Einstaklingsbundin tilfærsluáætlun.
Þegar nemandi nýtur sérúrræða, skv. ákvæðum þessa kafla, skulu kennarar, og aðrir fagaðilar ásamt nemandanum og foreldrum hans, taka þátt í mótun og gerð tilfærsluáætlunar sem byggir á einstaklingsáætlnun og öðrum gögnum og skal miða við að undirbúningur hennar hefjist í 9. bekk.
Í áætluninni skulu vera upplýsingar um skólagöngu nemandans, núverandi aðstæður og stöðu og áform hans um frekara nám. Ennfremur aðrar upplýsingar vegna fyrirhugaðs náms hans við hæfi í framhaldsskóla og síðar fyrir þátttöku í atvinnulífi.

...

VI. KAFLI
Málsmeðferð.
19. gr. Umsókn foreldra og upplýsingar um úrræði.
Ef foreldrar, skólastjórnendur og sérfræðingar telja að barn fái ekki þjónustu við sitt hæfi með almennu námi í grunnskóla geta foreldrar sótt um sérúrræði innan grunnskóla eða sérskóla sem aðilar telja að veiti barninu þjónustu við hæfi.
Skólar skulu veita foreldrum upplýsingar og ráðgjöf um þau úrræði sem til boða standa vegna sérþarfa barns.

20. gr. Innritun í sérskóla eða sérúrræði og útskrift.
Áður en nemandi er innritaður í sérskóla eða sérúrræði innan grunnskóla skal meta stöðu hans í námi. Við slíkt mat skal tekið tillit til aðstæðna nemanda og heildarhagsmuna og þess gætt að hann eigi þess kost að tjá sig um þá ákvörðun eftir því sem aðstæður leyfa. Foreldrum skulu kynntar niðurstöður úr slíku mati áður en til innritunar kemur. Allar athuganir skulu gerðar í samráði við og með samþykki foreldra sem skulu hafa samráð við barn sitt að teknu tilliti til aldurs þess og þroska.
Sveitarfélög sem reka sérskóla eða önnur sérúrræði skulu setja reglur um innritun nemenda, svo og reglur um útskrift eða lok slíkrar aðstoðar þar sem gerð er grein fyrir aðkomu og mati fagaðila. Heimilt er að ákveða í slíkum reglum að ráð skipað fagaðilum skuli gera tillögu til skólastjóra um innritun og/eða útskrift nemanda úr sérskóla eða sérúrræði.

21. gr. Ágreiningur um skólavist.
Verði ágreiningur um skólavist barns eða sérúrræði því til handa skal við úrlausn hans gæta ákvæða stjórnsýslulaga. Skal ákvörðun tekin með hliðsjón af áliti sérfræðinga og foreldra og með heildarhagsmuni barnsins að leiðarljósi. Ávallt skal reyna til þrautar að ná samkomulagi milli foreldra, skóla og sérfræðinga. Takist ekki að leysa málin með sameiginlegri niðurstöðu ber skólastjóra grunnskóla að taka ákvörðun í málinu í samræmi við ákvæði 5. mgr. 17. gr. laga um grunnskóla.
Skólastjóri getur synjað umsókn foreldra um skólavist fyrir barn í sérúrræði innan skólans eða í sérskóla. Ákvörðun um synjun verður ekki tekin nema á grundvelli metinna sérþarfa viðkomandi barns og að teknu tilliti til afstöðu foreldra og nemanda til málsins og álitsgerða sérfræðinga. Gefa skal foreldrum kost á að hafa áhrif á val á sérfræðingum. Synjun skal rökstudd ítarlega þar sem afstaða er tekin til allra þeirra sjónarmiða sem færð hafa verið fram í málinu og hvernig þau varða heildarhagsmuni barnsins. Í þeim tilvikum skal ávallt liggja fyrir hvaða sérskóli eða sérúrræði standa nemanda til boða. Áður en skólastjóri tekur endanlega ákvörðun skal liggja fyrir álit nemendaverndarráðs og sérfræðinga á vegum sveitarfélagsins.

22. gr. Kæra til mennta- og menningarmálaráðuneytis.
Ákvörðun skólastjóra skv. 21. gr. er kæranleg til mennta- og menningarmálaráðuneytis skv. 47. gr. laga um grunnskóla. Við meðferð kærumáls er ráðuneytinu heimilt að afla sér álits sérfræðinga. Ráðuneytið getur í úrskurði sínum mælt nánar fyrir um fyrirkomulag skólavistar nemanda og skyldur sveitarfélags í því efni.
Á meðan mál er óútkljáð skal skólanefnd tryggja nemanda viðeigandi kennsluúrræði.

Skólaheilsugæsla
Heilsugæsla skólabarna er framhald af ung- og smábarnavernd. Ákvæði um skólaheilsugæslu eru í 41. gr. grunnskólalaga:

Um skólaheilsugæslu í grunnskólum fer eftir gildandi lögum um heilbrigðisþjónustu. Um skipulag og fyrirkomulag skólaheilsugæslu í grunnskóla skal haft samráð við skólanefnd og skólastjóra.
Skólastjóra ber að fylgjast með því að nemendur njóti skólaheilsugæslu í skólanum í samræmi við þá tilhögun sem ákveðin hefur verið skv. 1. mgr. 
Sveitarfélög greiða stofnkostnað húsnæðis í skólum sem ætlað er fyrir skólaheilsugæslu og annast rekstur þess. Laun starfsmanna við skólaheilsugæslu og sérgreindur kostnaður við þessa starfsemi greiðist sem annar kostnaður við rekstur almennrar heilsugæslu á heilsugæslustöð og fer um ráðningu starfsmanna með sama hætti.

Veitt er fyrsta hjálp í skólanum og minniháttar slysum sinnt. Þurfi nemandi að fara á heilsugæslustöð eða slysadeild skulu foreldrar fara með barninu. Því er mikilvægt að skólinn hafi öll símanúmer þar sem hægt er að ná í foreldra á skólatíma barnsins. Skólahjúkrunarfræðingar eru yfirleitt með fastan viðverutíma í skólanum en oft starfa þeir einnig á heilsugæslustöðvum nálægt skólanum. Í athugasemdum við þessa grein frumvarpsins segir að æskilegt sé að skólahjúkrunarfræðingur sé ávallt til staðar á starfstíma nemenda. Nemendur og foreldrar geta leitað til skólahjúkrunarfræðingsins með ýmis mál varðandi heilsu og líðan.  Skólahjúkrunarfræðingurinn getur t.d. aðstoðað nemendur með mál sem varða vanlíðan, verki, næringu, útlit, húðvandamál, kynlíf og getnaðarvarnir. Ef nemendur hafa áhyggjur af geðheilbrigði sínu er gott að byrja á því að ræða líðanina við hjúkrunarfræðinginn. Ef barn er með greindan alvarlegan sjúkdóm, ofnæmi eða annað sem stefnt getur heilsu þess í hættu er nauðsynlegt að skólaheilsugæslan viti af því.

Skólaheilsugæslan sinnir reglubundnum skoðunum og bólusetningum og á að fylgjast með því að börn hafi fengið þær bólusetningar sem tilmæli landlæknis segja til um:

1. bekkur     Sjónpróf, heyrnarpróf, hæðar- og þyngdarmæling.
4. bekkur     Sjónpróf, hæðar- og þyngdarmæling.
7. bekkur     Sjónpróf, hæðar- og þyngdarmæling og athugun á litaskyni. Bólusett er gegn mænusótt, rauðum hundum og hettusótt (ein sprauta).
10. bekkur     Sjónpróf, heyrnarpróf, hæðar- og þyngdarmæling. Bólusett er gegn mænusótt, barnaveiki og stífkrampa (tvær sprautur).

Flúorskolun fer fram í skólanum hjá 1., 7. og 10. bekk tvisvar í mánuði. Fjallað er nánar um heilsu og líðan barna og unglinga á heimasíðu umboðsmanns barna. Sjá einnig kaflann Meðferð trúnaðarupplýsinga.

Lyfjagjafir í grunnskólum
Í flestum skólum eru einhver börn sem þurfa að taka inn lyf á skólatíma. Í engum tilvikum getur barn borið ábyrgð á lyfjatökunni. Ábyrgðin er foreldra en skólahjúkrunarfræðingar og starfsmenn skóla aðstoða barnið við lyfjatökuna. Börn skulu ekki hafa nein lyf undir höndum í skólanum nema í algjörum undantekningartilvikum. Slíkar lyfjagjafir geta t.d. verið insúlíngjafir sem barnið sér sjálft um. Foreldrar barna sem þurfa að taka lyf á skólatíma skulu hafa samband við skólaheilsugæslu sem skipuleggur lyfjagjafir á skólatíma. Árið 1999 gaf landlæknisembættið út tilmæli til heilsugæslu í skólum og forráðamanna skóla varðandi lyfjagjafir í skólum.

Sjúkrakennsla
Fjallað er um sjúkrakennslu í VII. kafla reglugerðar um nemendur með sérþarfir í grunnskóla nr. 585/2010:

23. gr. Sjúkrakennsla.
Nemandi, sem að mati læknis getur ekki sótt skóla vegna slyss eða langvarandi veikinda, á rétt á sjúkrakennslu annaðhvort á heimili sínu eða á sjúkrastofnun. Kennslan getur að hluta til farið fram sem fjarkennsla eða dreifnám undir leiðsögn kennara og eftirliti foreldra eða starfsmanna sjúkrastofnana að höfðu samráði við grunnskóla viðkomandi nemanda. Ákvæði þetta tekur ekki til tilfallandi veikinda nemenda sem standa skemur en viku.
Nemandi á rétt á sjúkrakennslu um leið og hann að mati læknis getur lagt stund á nám og skal lengd daglegrar eða vikulegrar sjúkrakennslu miðast við ástand hans og þrek. Markmið sjúkrakennslu er að nemandi missi sem minnst af kennslu og verði ekki af tækifærum til náms vegna slyss eða langvarandi veikinda.
Skólastjóri ákveður í samráði við lækni og foreldra, umfang og nánara fyrirkomulag kennslunnar. Hann ber ábyrgð á því að viðeigandi sjúkrakennsla sé veitt. Hann ber ábyrgð á gerð einstaklingsnámskrár til lengri eða skemmri tíma þar sem tekið er mið af aðstæðum, veikindum og þörfum nemanda.
Nýta skal upplýsinga- og samskiptatækni eins og kostur er þegar sjúkrakennsla er skipulögð. Þá skal nemandi eiga þess kost að tengjast skólanum sínum og umsjónarhópi sem best eftir því sem aðstæður og ástand hans leyfir.
Um kostnað af sjúkrakennslu nemenda fer samkvæmt lögum um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 og samnings sem gerður er á grundvelli þeirra.

 
Nemendur með annað móðurmál en íslensku
Í 16. gr. er kveðið á um rétt nemenda með annað móðurmál en íslensku og móttökuáætlun vegna þeirra:

     Kennsla í grunnskólum skal fara fram á íslensku. Heimilt er að nám fari fram á öðrum tungumálum en íslensku þegar það leiðir af eðli máls eða aðalnámskrá. 
     Grunnskólar taka á móti nemendum sem eru að hefja skólagöngu, eru að skipta um skóla eða hefja nám sitt hér á landi samkvæmt móttökuáætlun skóla eða sveitarfélags. Foreldrum skulu á þeim tímamótum veittar upplýsingar um skólagöngu barnsins og skólastarfið almennt og foreldrum með annað móðurmál en íslensku og heyrnarlausum foreldrum greint frá rétti þeirra til túlkaþjónustu. 
     Móttökuáætlun vegna nemenda með annað móðurmál en íslensku skal taka mið af bakgrunni þeirra, tungumálafærni og færni á öðrum námssviðum. Tryggja skal að þessir nemendur og foreldrar þeirra fái ráðgjöf og aðgang að upplýsingum um grunnskólastarf. 
     Nemendur með annað móðurmál en íslensku eiga rétt á kennslu í íslensku sem öðru tungumáli. Með kennslunni er stefnt að virku tvítyngi þessara nemenda og að þeir geti stundað nám í grunnskólum og tekið virkan þátt í íslensku samfélagi. Grunnskólum er heimilt að viðurkenna kunnáttu í móðurmáli nemenda með annað móðurmál en íslensku sem hluta af skyldunámi er komi í stað skyldunáms í erlendu tungumáli.

Í greininni er gert ráð fyrir að grunnskólar vinni sérstaka móttökuáætlun fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku í samræmi við aðalnámskrá. Slík áætlun ætti að miðast við móttöku þessara nemenda almennt í skólanum og jafnframt móttöku hvers nemanda. Sérstök móðurmálskennsla er hins vegar ekki lögbundin fyrir alla nemendur, enda er talið óframkvæmanlegt að koma slíku við á öllum tungumálum. Hins vegar er æskilegt að nemendur fái tækifæri til að rækta móðurmál sitt, t.d. sem valgrein eða í fjarnámi, og fái það metið í grunnskólum óski nemendur eða foreldrar þeirra þess. Því er gert ráð fyrir að grunnskólum verði heimilt að viðurkenna kunnáttu eða nám nemenda með annað móðurmál en íslensku í eigin móðurmáli sem hluta af skyldunámi er komi í stað skyldunáms á erlendu tungumáli eða verði metið sem valgrein. Sett verða sérstök ákvæði um undanþágur og frávik í reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd könnunarprófa í grunnskóla.

Valgreinar og þátttaka í atvinnulífi metin
Í 8., 9. og 10. bekk mega námsgreinar vera að hluta frjálst val nemenda skv. 26 gr. laga um grunnskóla. Nemendur skulu velja námsgreinar og námssvið í allt að fimmtung námstímans samkvæmt nánari viðmiðunum sem settar eru í aðalnámskrá grunnskóla. Skólum er heimilt að skipuleggja mismunandi hlutfall valtíma eftir árgöngum í 8.-10. bekk og binda valið að hluta tilteknum námssviðum. Heimilt er að meta skipulagt nám sem stundað er utan grunnskóla, t.d. við tónlistarskóla, sem hluta af grunnskólanámi samkvæmt nánari útfærslu í aðalnámskrá grunnskóla. Stundi nemandi slíkt nám er viðkomandi sveitarstjórn ekki skylt að standa straum af kostnaði sem af því leiðir þótt námið njóti viðurkenningar í stað skyldunáms. Jafnframt er heimilt að meta tímabundna þátttöku í atvinnulífi, félagslífi, íþróttum eða skipulögðu sjálfboðastarfi sem nám, enda falli það að markmiðum skólastarfs.
    Grunnskólanemendur eiga rétt á að stunda nám í einstökum námsgreinum á framhaldsskólastigi meðan þeir eru í grunnskóla enda hafi þeir sýnt fullnægjandi færni. Gert er ráð fyrir að samkomulag liggi fyrir milli viðkomandi grunnskóla og framhaldsskóla um framkvæmdina. Gera þarf samning milli ríkis og sveitarfélaga um framkvæmdina þegar nemendur stunda samtímis nám í grunn- og framhaldsskóla. Í samningnum þarf m.a. að koma fram að nemandinn sé á ábyrgð grunnskólans og að samræming á námi nemandans sé á ábyrgð grunnskólans. Jafnframt þarf að skýra ákvæði um kostnaðarskiptingu, t.d. kennslukostnað, innritunarkostnað, bókakaup og gjaldtökuheimildir, og að það sé á ábyrgð grunnskólans að útskrifa nemandann og meta hvort hann hafi lokið grunnskólanámi. Skólastjóri í grunnskóla veitir nemanda heimild til slíks náms utan skólans samkvæmt viðmiðum sem sett eru í aðalnámskrá. Ákvörðun skólastjóra samkvæmt þessari málsgrein lýtur ákvæðum stjórnsýslulaga. Heimild skólastjóra til þess að veita nemanda leyfi til þess að stunda nám utan skóla verður að byggjast á þeim sjónarmiðum að nemandi hafi lokið námi í viðkomandi grein þar sem það á við eða sýnt fullnægjandi færni. Gert er ráð fyrir því að í aðalnámskrá verði að finna viðmið sem lögð verði til grundvallar ákvörðun skólastjóra. Réttur nemanda til þess að stunda nám samkvæmt greininni tekur einvörðungu til náms sem talist getur hluti af grunnskólanámi hans. Heimilt er að kæra synjun um mat á námi eða beitingu heimildar samkvæmt þessari grein eftir fyrirmælum 47. gr. grunnskólalaganna. Í úrskurði getur menntamálaráðuneyti lagt fyrir skólastjóra grunnskóla að veita nemanda heimild til náms á framhaldsskólastigi.

Kostnaður í skyldunámi
Meginreglan er að menntun í grunnskóla er gjaldfrjáls. Í 31. gr. laga um grunnskóla segir:

     Kennsla í skyldunámi í opinberum grunnskólum skal veitt nemendum að kostnaðarlausu og er óheimilt að krefja nemendur eða foreldra þeirra um greiðslu fyrir kennslu, þjónustu, námsgögn eða annað efni sem nemendum er gert skylt að nota í námi sínu og samrýmist ákvæðum laga þessara og aðalnámskrá. Sama á við um nám grunnskólanemenda í framhaldsskólaáföngum, enda sé námið skilgreint sem hluti náms í grunnskóla. Þó er opinberum aðilum ekki skylt að leggja nemendum til gögn til persónulegra nota, svo sem ritföng og pappír. 
     Nú stundar grunnskólanemandi nám í framhaldsskóla sem skilgreint er sem hluti náms í grunnskóla, og fer þá um kostnað vegna kennslu á framhaldsskólastigi eftir ákvæðum laga um framhaldsskóla. Sveitarfélög greiða þá kostnað vegna námsgagna og innritunar og eftir atvikum efnisgjald. Um nánari framkvæmd og fyrirkomulag skal samið milli hlutaðeigandi grunn- og framhaldsskóla.  
     Ráðuneyti er skylt að leggja grunnskólum til námsgögn í samræmi við meginmarkmið náms og kennslu á grunnskólastigi samkvæmt aðalnámskrá. 
     Óheimilt er að taka gjald af nemendum vegna ferðalaga sem flokkast undir vettvangsnám eða eru að öðru leyti hluti af skyldunámi nemenda. Þó er heimilt að taka gjald fyrir uppihald í námsferðum nemenda, að höfðu samráði við foreldra. 
     Ákvarðanir um gjaldtöku samkvæmt þessari grein eru kæranlegar samkvæmt fyrirmælum 47. gr.

Í september 2010 úrskurðaði samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið að skólastjórnendum sé ekki heimilt að mæla sérstaklega með kaupum á ákveðinni tegund af skipulagsbók (Skjóðu) á innkaupalistum nemenda. Sjá nánar úrskurð í stjórnsýslumáli nr. 48/2009.

Í greinargerð með frumvarpinu er 2. mgr. um nám í framhaldsskóla útskýrð nánar með þessum hætti:

Nám grunnskólanemenda í framhaldsskólaáföngum getur í eðli sínu verið þrenns konar. Í fyrsta lagi getur verið um að ræða nám sem skipulagt er af grunnskólum samkvæmt samkomulagi við framhaldsskóla. Þá greiðir ríkið kennslukostnað vegna áfanga sem nemandinn tekur og fær metna síðar sem hluta af framhaldsskólanámi. Sveitarfélögin greiða kostnað vegna námsgagna og innritunarkostnað nemenda í framhaldsskóla, enda er námið einnig metið sem hluti af skyldunámi, t.d. sem valgrein, og skal því vera nemendum að kostnaðarlausu, sbr. 3. og 4. mgr. 26. gr. Þegar um þetta er að ræða skulu sveitarfélag og framhaldsskóli gera með sér samkomulag. Í öðru lagi geta nemendur tekið einstaka námsáfanga í framhaldsskóla sem viðbót við grunnskólanám. Þá greiðir ríkið fyrir kennslukostnað og nemandinn greiðir fyrir námsgögn og innritunarkostnað, enda er námið ekki metið sem hluti af grunnskólanámi, en með þessum hætti getur nemandi flýtt fyrir sér í námi og fengið viðfangsefni við hæfi í einstökum greinum þótt hann að öðru leyti stundi nám í grunnskóla. Loks er möguleiki að nemandi óski eftir því að fá nám í einstökum framhaldsskólaáföngum metið sem valgrein, en að öðru leyti er námið ekki skipulagt í samstarfi grunnskóla og framhaldsskóla. Þá er sveitarfélögum ekki skylt að greiða kostnað sem af náminu hlýst, sbr. ákvæði 26. gr. frumvarpsins.

Samkvæmt 26. gr. grunnskólalaga er heimilt að meta skipulagt nám sem stundað er utan grunnskóla, t.d. við tónlistarskóla, sem hluta af grunnskólanámi, samkvæmt nánari úrfærslu í aðalnámskrá grunnskóla. Stundi nemandi slíkt nám er viðkomandi sveitarstjórn ekki skylt að standa straum af kostnaði sem af því leiðir þótt námið njóti viðurkenningar í stað skyldunáms.

Vettvangsferðir
Eins og segir hér að ofan í 4. mgr. 31. gr. grunnskólalaga er óheimilt að taka gjald af nemendum vegna ferðalaga sem flokkast undir vettvangsnám eða eru að öðru leyti hluti af skyldunámi nemenda. Þó er heimilt að taka gjald fyrir uppihald í námsferðum nemenda, að höfðu samráði við foreldra. Ákvarðanir um gjaldtöku vegna vettvangsferða eru kæranlegar samkvæmt fyrirmælum 47. gr. Í greinargerð með 31. gr. segir um vettvangsferðir:

Þó er lagt til að heimilt verði að taka gjald fyrir uppihald í námsferðum nemenda að höfðu samráði við foreldra. Víða í aðalnámskrá eru ákvæði um æskilegt vettvangsnám, t.d. í tengslum við náttúrufræði og samfélagsgreinar, svo sem ferðir á söfn og út í náttúruna. Nýtt ákvæði er þess efnis að heimilt er að taka gjald fyrir námsferðir nemenda vegna kostnaðar við uppihald enda er almenn gjaldtökuheimild vegna skólamáltíða. Sveitarfélög geta því tekið gjald af nemendum við uppihald t.d. vegna skólabúða og lengri námsferða innan lands og utan. Gert er ráð fyrir að ekki sé ráðist í námsferðir þar sem fyrirhuguð er gjaldtaka af nemendum án samráðs við foreldra.

Skólaakstur
Í 22. gr. grunnskólalaga segir um skólaakstur:

Sveitarfélög bera ábyrgð á skipulagi skólaaksturs þar sem hann á við og standa straum af kostnaðinum. Ráðherra setur nánari reglur um tilhögun skólaaksturs í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga. Skólaakstur skal vera nemendum að kostnaðarlausu.

Árið 2009 setti menntamálaráðherra  reglur nr. 565/2009 um skólaakstur í grunnskóla en 2. gr. var síðan breytt með reglugerð nr. 882/2009. Efnislega fjalla reglurnar um ábyrgð á skólaakstri, fyrirkomulag, skipulag,öryggi og búnað skólabiðfreiða, bifreiðastjóra, fatlaða nemendur og meðferð ágreiningsmála.

Mötuneyti
Í grunnskóla skulu nemendur eiga kost á málsverði á skólatíma  í samræmi við opinber manneldismarkmið skv. 23. gr. laga um grunnskólaSveitarfélögum er heimilt að taka gjald fyrir skólamáltíðir samkvæmt sérstakri gjaldskrá sem þau setja. Almennt viðmið er að nemendur greiði hráefniskostnað vegna skólamáltíða. Gjaldskrárákvarðanir samkvæmt þessari grein eru kæranlegar eftir fyrirmælum 47. gr.

Húsnæði, skólalóð og öryggi
Grunnskólinn er vinnustaður nemenda. Í 20. gr. segir um skólahúsnæði:

     Gerð skólamannvirkja er undirbúin af sveitarstjórn í samráði við skólanefnd og skólaráð. Stofnkostnaður grunnskóla á vegum sveitarfélaga greiðist af viðkomandi sveitarfélagi. Sveitarfélög annast einnig og kosta viðhald skólahúsnæðis og endurnýjun og viðhald búnaðar þess. Gert skal sérstaklega ráð fyrir rými fyrir sérfræðiþjónustu við börn með sérþarfir og vinnuaðstöðu starfsfólks.  
     Í öllum grunnskólum skal gera ráð fyrir skólasafni eða tryggja með öðrum hætti aðgang nemenda að þjónustu slíks safns sem skal vera upplýsingamiðstöð fyrir nemendur og kennara. Það skal búið bókum og nýsigögnum auk annars safnskosts sem tengist námsgreinum og námssviðum aðalnámskrár grunnskóla.

     Grunnskólahúsnæði og skólalóðir skulu uppfylla þær kröfur sem gerðar eru í lögum þessum, lögum um vinnuvernd og aðalnámskrá grunnskóla. Húsnæði og allur aðbúnaður skal taka mið af því að tryggja öryggi og vellíðan nemenda og starfsfólks, svo sem hvað varðar hentugan húsbúnað, hljóðvist, lýsingu og loftræstingu. 
     Við hönnun, byggingu og endurnýjun skólahúsnæðis skulu sveitarfélög hafa samráð við hagsmunaaðila skólasamfélagsins og aðila í grenndarsamfélagi. 
     Ráðherra setur reglugerð um húsnæði og búnað grunnskóla í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga þar sem nánar skal kveðið á um aðstöðu, búnað, slysavarnir og öryggismál í grunnskólahúsnæði og á skólalóðum.

Í 21. gr. segir að skólastjóri skuli sjá um daglega umsjón skólamannvirkja samkvæmt nánari ákvörðun sveitarstjórnar og að sveitarstjórn geti í samráði við skólastjóra ráðstafað skólahúsnæði öllu eða hluta þess til annarrar starfsemi svo fremi sem það raskar ekki lögbundinni notkun húsnæðisins.

Í reglugerð nr. 519/1996 um lágmarksaðstöðu grunnskóla er kveðið á um að við hönnun skuli þess gætt að uppfylltar séu allar kröfur heilbrigðis- og öryggisyfirvalda. Settar eru fram lágmarkskröfur um stærð húsnæðis m.v. fjölda nemenda, lágmarksaðstöðu, stærð skólalóðar og íþróttasalar, bifreiðastæði og örugga aðkomu langferðabíla. Reglugerðin heldur gildi sínu þar til ný hefur verið sett, svo framarlega sem hún stangast ekki á við lög.

Um þetta segir í aðalnámskrá almennum hluta 2006 (bls. 23):

Brýnt er að skólahúsnæðið, búnaður skólans, tækjakostur, skólalóð og leið barna í skólann sé örugg. Reglulega þarf að hafa eftirlit með tækjabúnaði skólans, slysavörnum, eldvörnum og almennum hollustuháttum. Grunnskólinn er vinnustaður nemenda. Skólahúsnæði skal taka mið af þörfum nemenda og líðan og leggja áherslu á öruggt náms- og starfsumhverfi. Allir nemendur grunnskóla eiga rétt á hvetjandi námsumhverfi í viðeigandi húsnæði sem tekur mið af þörfum þeirra og almennri vellíðan. Grunnskólinn skal haga störfum sínum þannig að nemendur finni til öryggis og njóti hæfileika sinna. Mikilvægt er að allir skólar setji sér öryggisreglur og skipuleggi slysavarnir.

Sjá einnig reglugerð nr. 942/2002 um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim tekur til skólalóða, umfjöllun um leiksvæði barna og umfjöllun um öryggi og slysavarnir barna og unglinga.

Námsmat
Í 27. gr. laga um grunnskóla er fjallað um námsmat:

     Mat á árangri og framförum nemenda er reglubundinn þáttur í skólastarfi. Tilgangur þess er að fylgjast með því hvernig nemendum tekst að mæta markmiðum aðalnámskrár og ná námsmarkmiðum sínum, örva nemendur til framfara og meta hverjir þurfa á sérstakri aðstoð að halda. Nánari ákvæði um námsmat skulu sett í aðalnámskrá grunnskóla. 
     Óheimilt er að veita upplýsingar um vitnisburði einstakra nemenda öðrum en þeim sjálfum og foreldrum þeirra. Þó er heimilt að veita þessar upplýsingar vegna flutnings nemenda milli skóla og innritunar í framhaldsskóla, enda sé krafist fullrar þagnarskyldu og málsmeðferðar í samræmi við gildandi lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. 
     Nemendur og foreldrar þeirra eiga rétt á upplýsingum um niðurstöður mats, matsaðferðir og matstæki, þar með talið að skoða metin verkefni og prófúrlausnir. Þeir eiga jafnframt rétt á munnlegum skýringum á námsmati og að niðurstaða námsmats sæti endurskoðun innan grunnskólans. Slík endurskoðun telst ekki ígildi stjórnsýslukæru í skilningi stjórnsýslulaga. 
     Ráðherra setur nánari ákvæði í reglugerð um meðferð niðurstöðu námsmats í grunnskólum og miðlun upplýsinga um námsmat vegna flutnings nemenda milli skóla og innritunar í framhaldsskóla og um rétt foreldra til þess að fá vitneskju um slíkar upplýsingar.

Sjá einnig kafla um meðferð trúnaðarupplýsinga hér neðar á síðunni. Um rökstuðning skóla fyrir námsmati segir í athugasemd við 27. gr. frumvarps til grunnskólalaga:

Rétt er að taka fram að skv. 1. mgr. 21. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, getur aðili máls krafist þess að stjórnvald rökstyðji ákvörðun sína skriflega hafi slíkur rökstuðningur ekki fylgt ákvörðuninni þegar hún var tilkynnt. Samkvæmt 2. tölul. 2. mgr. sama ákvæðis gildir þetta þó ekki ef um er að ræða einkunnir sem veittar eru fyrir frammistöðu á prófum. Almennt eiga nemendur því ekki rétt á rökstuðningi einkunnagjafar í skólum hér á landi. Þrátt fyrir þetta þykir rétt að kveða hér á um tiltekin réttindi nemenda um skýringar á niðurstöðum mats á prófúrlausnum og rétt til endurskoðunar þess mats innan grunnskólans. Slík endurskoðun felur samkvæmt ákvæðinu ekki í sér stjórnsýslukæru innan grunnskólans. Þannig verður til að mynda ekki um það að ræða að niðurstaða endurskoðunar feli í sér úrskurð í skilningi stjórnsýslulaga, t.d. með þeim áhrifum að niðurstöðuna beri að rökstyðja skriflega. Á skóla hvílir sú skylda að tryggja að endurskoðunarferli sé trúverðugt og hlutlaust. Ekki er gert ráð fyrir að niðurstöður grunnskóla um einkunnagjöf séu kæranlegar til annarra aðila í stjórnsýslunni utan viðkomandi skóla.

Í 39. gr. grunnskólalaga er fjallað um samræmt námsmat (áður nefnt samræmd próf) sem mennta- og menningarmálaráðuneytið stendur fyrir. Í 2. - 4. mgr. 39. gr. segir:

     Samræmd könnunarpróf í íslensku og stærðfræði skulu lögð fyrir alla nemendur í 4. og 7. bekk grunnskóla. Nemendur í fyrri hluta 10. bekkjar skulu þreyta samræmd könnunarpróf í íslensku, stærðfræði og ensku. Önnur próf skal halda samkvæmt ákvörðun ráðherra. 
     Skólastjóra er heimilt ef gildar ástæður mæla með því og samþykki foreldra liggur fyrir að veita nemendum undanþágu frá því að þreyta könnunarpróf í einstökum prófgreinum 4., 7. og 10. bekkjar. 
     Námsmatsstofnun eða annar til þess bær aðili, sem ráðherra ákveður, hefur umsjón með gerð og framkvæmd samræmds námsmats og prófa samkvæmt grein þessari. Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um fyrirkomulag og framkvæmd samræmds námsmats, prófa og rannsókna í grunnskólum og undanþágur nemenda frá samræmdu námsmati, samkvæmt þessari grein.

Skólastjóri (áður menntamálaráðuneyti) getur veitt undanþágu frá því að þreyta könnunarpróf könnunarpróf í einstökum prófgreinum 4., 7. og 10. bekkjar. Dæmi um tilvik þar sem slíka undanþágu má veita eru talin upp í athugasemd við 39. gr. frumvarps til grunnskólalaga.  Heimilt hefur verið  t.d. að veita nemendum sem hafa annað móðurmál en íslensku undanþágu frá samræmdum prófum í íslensku. Jafnframt er heimilt að veita nemendum með annað móðurmál en íslensku undanþágu frá því að þreyta samræmt próf í stærðfræði hafi þeir dvalið skemur á landinu en eitt ár. Einnig væri hægt að veita undanþágu ef viðkomandi nemendur sem eru taldir af viðurkenndum greiningaraðila víkja svo frá almennum þroska að þeim henti ekki samræmd próf. Einnig hefur undanþága verið veitt frá samræmdu prófi ef nemandi hefur orðið fyrir alvarlegu áfalli, svo sem við dauðsfall í fjölskyldu, sem gerir honum tímabundið ókleift að þreyta samræmt próf.

Reglugerð nr. 710/1996 um rétt nemenda og foreldra/forráðamanna til að skoða metnar prófúrlausnir nemenda tekur til hvers konar prófa og námsmats í grunnskólum sbr. 1. gr. hennar. Reglugerðin heldur gildi sínu þar til ný hefur verið sett, svo framarlega sem hún stangast ekki á við lög. Hún kveður á um rétt á að skoða úrlausn og jafnframt að skoða þau gögn sem liggja til grundvallar hvers konar skriflegum vitnisburði um námsstöðu nemandans og fá útskýrðar forsendur og niðurstöður mats. Foreldri ber að bera fram beiðni um að skoða prófúrlausnir og/eða námsmatsgögn nemanda eigi síðar en tveimur vikum eftir að nemanda hefur borist prófeinkunn og/eða vitnisburður frá skólanum. Beiðni skal berast skólastjóra sem að jafnaði skal verða við henni innan viku.

Upplýsingar um barn
Til þess að skólaganga barns geti gengið sem eðlilegast fyrir sig verða stjórnendur grunnskóla að hafa réttar og sem bestar upplýsingar um barn og líðan þess. Foreldrar skulu eiga rétt á upplýsingum um skólastarfið og skólagöngu barna sinna. Í 18. gr. grunnskólalaga segir að foreldrum sé skylt að veita grunnskóla upplýsingar um barn sitt sem nauðsynlegar eru fyrir skólastarfið og velferð barnsins. Í 3. mgr. 18. gr. segir:

     Foreldrum er skylt að veita grunnskóla upplýsingar um barn sitt sem nauðsynlegar eru fyrir skólastarfið og velferð barnsins. Um persónuupplýsingar sem þannig er aflað eða fylgt hafa barni úr leikskóla er krafist fullrar þagnarskyldu og málsmeðferðar í samræmi við gildandi lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Foreldrum skal gerð grein fyrir þessum upplýsingum. Meðferð upplýsinga skal vera á hendi skólastjóra eða annarra sérfræðinga á vegum sveitarfélagsins samkvæmt nánari ákvörðun þess. Ráðherra setur reglugerð um meðferð, eyðingu og miðlun upplýsinga og um rétt foreldra til aðgangs að upplýsingum um börn sín.

Sjá hér reglugerð um miðlun og meðferð upplýsinga um nemendur í grunnskólum og rétt foreldra til aðgangs að upplýsingum um börn sín, nr. 897/2009.

Upplýsingar sem teljast nauðsynlegar við ákvörðun um rétt eða skyldu nemenda geta fallið hér undir og enn fremur upplýsingar sem teljast nauðsynlegar fyrir skólastjórnendur til þess að rækja skyldur sínar samkvæmt grunnskólalögum. Í þessu sambandi má benda á 16. gr. laga um leikskóla þar sem fjallað er um tengsl leikskóla og grunnskóla:

     Sveitarstjórn skal koma á gagnvirku samstarfi leikskóla og grunnskóla. Í skólanámskrá skal gera grein fyrir samstarfi milli leikskóla og grunnskóla og hvernig skuli standa að færslu og aðlögun barna milli skólastiga. 
     Persónuupplýsingar, sem fyrir liggja um hvert einstakt barn í leikskóla og nauðsynlegar eru fyrir velferð og aðlögun þess í grunnskóla, skulu fylgja barninu, enda sé krafist fullrar þagnarskyldu og málsmeðferðar í samræmi við gildandi lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Foreldrum skal gerð grein fyrir þessari upplýsingamiðlun. Meðferð upplýsinga skal vera á hendi leikskólastjóra eða annarra sérfræðinga á vegum sveitarfélagsins samkvæmt nánari ákvörðun þess. 
     Ráðherra setur reglugerð um skil og miðlun upplýsinga milli leik- og grunnskóla þar sem m.a. skal kveðið á um hvaða upplýsingar falla undir grein þessa, um meðferð, eyðingu og miðlun upplýsinga milli skólastiga og um stöðu og rétt foreldra til aðgangs að upplýsingum sem varða börn þeirra.

Sjá hér reglugerð um skil og miðlun upplýsinga milli leik- og grunnskóla, nr. 896/2009.

Upplýsingaskylda skóla við forsjárlausa foreldra 
Um upplýsingaskyldu skóla við forsjárlausa foreldra gildir ákvæði 52. gr. barnalaga nr. 76/2003 (réttur til upplýsinga um barn). Forsjárlaust foreldri á rétt á að fá upplýsingar frá forsjárforeldrinu um ýmislegt er varðar barnið, svo sem heilsufar, þroska, leikskóla- og grunnskólagöngu. Jafnframt á það rétt á að fá upplýsingar um barnið hjá leikskólum, skólum, heilsugæslustöðvum, barnaverndarnefndum og fleiri opinberum stofnunum. Hér er átt við munnlegar upplýsingar, ekki t.d. ljósrit af bréfum og gögnum. Þessi réttur felur ekki í sér heimild til að fá upplýsingar um hagi forsjárforeldrisins. Í sérstökum tilvikum er hægt að synja um slíkar upplýsingar og er þá hægt að skjóta synjun til sýslumanns. Þetta ákvæði kom fyrst inn í lög árið 1995. Góða umfjöllun um þetta atriði er að finna í athugasemdum, sem fylgdu frumvarpinu á sínum tíma. Hér er frumvarpið — umfjöllunin er undir kaflanum „Um 3. gr.“.

Meðferð trúnaðarupplýsinga
Nemendur eiga skv. lögum almennt rétt á því að fá upplýsingar frá skólayfirvöldum sem varða þá sjálfa. Nemendur eiga líka almennt rétt að fá vitneskju frá skólanum um það hvaða upplýsingar hefur verið, eða er, unnið með, um tilgang þeirrar vinnslu upplýsinga, hver fær, hefur fengið eða mun fá upplýsingarnar, hvaðan þær koma og hvaða öryggisráðstafanir eru viðhafðar vegna þeirrar vinnslu.

Samkvæmt barnalögum ráða forsjáraðilar nemenda persónulegum högum þeirra, bera ábyrgð á velferð þeirra og fara með lögformlegt forsvar þeirra. Foreldrar eða forsjáraðilar nemenda eiga því almennt rétt á mikilvægum upplýsingum um börn sín. Þessi réttur takmarkast þó af rétti barnanna sjálfra til trúnaðar starfsmanna skólans.

Skv. 27. gr. grunnskólalaga eiga nemendur og foreldrar þeirra rétt á upplýsingum um niðurstöður mats, matsaðferðir og matstæki, þar með talinn rétt á að skoða metin verkefni og prófúrlausnir. Þeir eiga jafnframt rétt á munnlegum skýringum á námsmati og að niðurstaða námsmats sæti endurskoðun innan grunnskólans. Óheimilt er að veita upplýsingar um vitnisburði einstakra nemenda öðrum en þeim sjálfum og foreldrum þeirra. Þó er heimilt að veita þessar upplýsingar vegna flutnings nemenda milli skóla og innritunar í framhaldsskóla, enda sé krafist fullrar þagnarskyldu og málsmeðferðar í samræmi við gildandi lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.

Í 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, sbr. 9. gr. laga nr. 97/1995, segir að allir skuli njóta friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu. Friðhelgi einkalífs er skilgreind á eftirfarandi hátt í athugasemd með 9. gr. frumvarps til stjórnarskipunarlaga nr. 97/1995: „Í friðhelgi einkalífsins felst fyrst og fremst réttur manns til að ráða yfir lífi sínu og líkama og til að njóta friðar um lífshætti sína og einkahagi. Jafnframt er litið svo á að tilfinningalíf og tilfinningasambönd við aðra njóti verndar samkvæmt ákvæðinu. Fleiri atriði falla tvímælalaust undir vernd einkalífs svo sem réttur manna til trúnaðarsamskipta við aðra. Börn jafnt sem fullorðnir eiga að njóta þeirrar verndar sem ákvæðið kveður á um í einka- og fjölskyldulífi, enda segir í ákvæðinu að „allir“ skuli njóta réttar til friðhelgi.

Ákvæði um þagnarskyldu starfsstétta er víða að finna í löggjöf. Meginrökin fyrir lögbundinni þagnarskyldu starfsmanna ríkis og sveitarfélaga byggist annars vegar á grundvallarrétti manna til friðhelgi einkalífs og hins vegar á því trúnaðarsambandi sem nauðsynlegt er að sé á milli borgaranna og starfsmanna hins opinbera. Í 12. gr. grunnskólalaga segir að starfsfólk grunnskóla skuli gæta fyllstu þagmælsku um hagi barna og foreldra þeirra, sem það fær vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara samkvæmt lögum, fyrirmælum yfirmanna og eðli máls. Þagnarskylda helst þótt viðkomandi láti af störfum. Þrátt fyrir þau mikilvægu rök sem búa að baki lögbundinni þagnarskyldu getur verið nauðsynlegt að takmarka þagnarskyldu starfsmanna. Þagnarskylda starfsfólks grunnskóla nær ekki til atvika sem ber að tilkynna um lögum samkvæmt og skal skólastjóri brýna skyldur þessar fyrir starfsfólki, sérstaklega tilkynningarskyldu samkvæmt barnaverndarlögum. Til eru sérstakar verklagsreglur um tilkynningarskyldu starfsfólks leik-, grunn-, og framhaldsskóla til barnaverndarnefnda

Árið 1997 fjallaði menntamálaráðuneytið um fyrirspurn frá skólaskrifstofu þess efnis hvort starfsmenn sérfræðiþjónustu mættu ræða við grunnskólanemendur sem leituðu til þeirra að eigin frumkvæði og án vitundar foreldra. Í úrskurði ráðuneytisins segir orðrétt: Nemendur í vanda eiga að geta leitað til hvaða starfsmanns grunnskóla sem er í fullum trúnaði og vissu um aðstoð. Starfsmönnum ber þá að finna vandamálunum réttan farveg til lausnar eftir eðli máls hverju sinni. Hins vegar vekur ráðuneytið athygli á að samkvæmt reglugerð um sérfræðiþjónustu skóla, nr. 386/1996, og reglugerð um sérkennslu, nr. 389/1996, er gert ráð fyrir samþykki foreldra áður en máli er vísað til meðferðar hjá sérfræðiþjónustu skóla. Í 5. gr. reglugerðar nr. 386/1996 segir að allar athuganir og rannsóknir sem varða einstaka nemendur skulu gerðar í samráði við og með samþykki forráðamanna. Þá er samsvarandi ákvæði í 8. gr. reglugerðar nr. 389/1996. Ef starfsmaður sérfræðiþjónustunnar telur nauðsynlegt að gera sálfræði- eða kennslufræðilega athugun eða greiningu á nemandanum þarf samþykki foreldra og er sú skipan ekki óeðlileg. Af þessu áliti ráðuneytisins er ljóst að nemandi í vanda á rétt á að leita eftir aðstoð að eigin frumkvæði, fá aðstoð og að aðstoðin sé veitt á trúnaðargrundvelli. Meta verður hvert einstakt tilvik, alvarleika þess og þá hagsmuni sem í húfi eru. Starfsmaður þarf að þekkja inntak tilkynningarskyldu til barnaverndaryfirvalda og hann þarf að virða rétt og vilja barns til að hafa trúnaðarsamskipti við aðra en foreldra sína að teknu tilliti til aldurs og þroska barns. Hafi starfsmaður þetta sjónarmið að leiðarljósi á barn að geta rætt við hann í trúnaði. Komi upp þær aðstæður að foreldrar þurfi að koma að máli síðar vegna þess að gera þurfi formlegar athuganir eða rannsóknir á barninu þarf að skýra vel út fyrir barninu ástæðu þess að afskipta foreldra er þörf.

Afar mikilvægt er að starfsfólk geri sér grein fyrir að hagsmunir barns og foreldra þurfa ekki að fara saman. Virða verður rétt barns til að koma fram sem sjálfstæður einstaklingur og tjá skoðanir sínar. Þá á starfsmaður að virða rétt barns til trúnaðarsamskipta á sama hátt og hann myndi gera ef fullorðinn maður ætti hlut að máli. Hafa verður þó í huga að erfitt er að gefa nákvæmar leiðbeiningar um mál sem þessi, hvað þá að lögfesta. Atvik geta þróast þannig að nauðsynlegt sé að foreldrar komi að málinu á einn eða annan hátt, jafnvel gegn vilja barnsins. Þegar málum er þannig háttað þarf starfsmaður að sýna barninu tillitssemi og skýra vel út ástæðu þess að nauðsynlegt er að foreldrar komi að málinu. Í samskiptum við foreldra þarf hann einnig að sýna barni fullan trúnað því ella er jafnvel hætta á að samband barns og foreldra skaðist.

Nánari umfjöllun er að finna í ritinu Friðhelgi einkalífs. Réttur barna til friðhelgi einkalífs. Réttur barna til trúnaðar af hálfu opinberra starfsmanna, (pdf) sem umboðsmaður barna gaf út 2003. 

Tilkynningarskylda til barnaverndaryfirvalda
Tekið er fram í 3. mgr. 17. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002, sem fjallar um tilkynningarskyldu þeirra sem stöðu sinnar og starfa vegna hafa afskipti af málefnum barna, að tilkynningarskyldan samkvæmt barnaverndarlögum gangi framar ákvæðum laga eða siðareglna um þagnarskyldu viðkomandi starfsstétta. Undanþága frá þagnarskyldu er talin réttlætanleg vegna hagsmuna barns og þeirra verndarsjónarmiða sem liggja að baki barnaverndarstarfi.

Tilkynningarskylda gengur því framar trúnaðarskyldu ef um er að ræða atvik sem benda til að aðbúnaður og uppeldisaðstæður barns séu óviðunandi, barn sé í hættu eða grunur er um að barn hafi framið refsiverðan verknað eða refsiverður verknaður hafi verið framinn gegn barni. Við slíkar aðstæður eru þeir hagsmunir sem í húfi eru, ef tilkynningarskyldu er ekki fullnægt, mun meiri og ríkari en hagsmunir sem tengjast trúnaði við barnið. Þegar atvik eru með þessum hætti er mikilvægt að starfsmaðurinn upplýsi barn um að á honum hvíli skylda til að tilkynna barnaverndarnefnd um málið vegna alvarleika þess. Hann verður að útskýra vel fyrir barni ástæðuna og þær afleiðingar sem tilkynning kunni að hafa fyrir barnið og fjölskyldu þess. Það er ótvíræður réttur barns að starfsmaður segi barni frá því ef hann verður að rjúfa trúnað við það vegna fyrirmæla um tilkynningarskyldu til barnaverndaryfirvalda.

Túlkun upplýsinga til  foreldra
Í 18. gr. grunnskólalaga, sem fjallar um upplýsingaskyldu skóla og foreldra, segir að ef foreldrar nemanda tala ekki íslensku eða nota táknmál skuli skóli leitast við að tryggja túlkun á upplýsingum sem nauðsynlegar eru vegna samskipta foreldra og skóla samkvæmt 18. greininni. Í greinargerð með frumvarpinu er þetta ákvæði útskýrt svona:

Til að foreldrar geti gætt hagsmuna barna sinna vegna skólastarfsins og að upplýsingagjöf foreldra til skóla og frá skóla til foreldra sé greið er nauðsynlegt að foreldrum sem ekki tala íslensku eða foreldrum sem nota táknmál sé tryggð túlkun á upplýsingum sem nauðsynlegar eru vegna samskipta foreldra og skóla. Er þá bæði átt við upplýsingar sem tengjast hagsmunagæslu foreldra fyrir börn sín vegna skólastarfsins sem og túlkun vegna upplýsingaskyldu foreldra og skóla. Vitaskuld getur oft reynst erfitt að tryggja túlkun fyrir útlendinga sem koma frá fjarlægum löndum og einnig kann í sumum tilvikum að duga að túlkað sé á tungumál sem foreldrar skilja þótt ekki sé um túlkun á móðurmáli þeirra að ræða. Ekki þykir viðeigandi að börn af erlendum uppruna séu fengin til að túlka upplýsingar fyrir foreldra sína sem ekki skilja íslensku. Er því tekið fram í 3. mgr. að leitast skuli við að tryggja túlkun á upplýsingum sem nauðsynlegar eru vegna samskipta foreldra og skóla samkvæmt greininni. Umfang túlkunar er því háð mati hverju sinni. Gera verður ráð fyrir því að sveitarfélög geti einnig gripið til annarra úrræða til að koma á framfæri upplýsingum um skólastarf án beinnar túlkunar, svo sem með skriflegum upplýsingum á viðkomandi tungumálum, eins og vikið er að í athugasemdum við 18. gr. Ljóst er á hinn bóginn að í þeim tilfellum þar sem teknar eru ákvarðanir um rétt eða skyldu nemenda, sbr. 47. gr., verður slíkt tæpast gert án aðstoðar túlks, þar sem það á við. Ábyrgð á túlkun upplýsinga í þessu sambandi hvílir á viðkomandi skóla.

Lok grunnskóla
Um lok grunnskóla segir í 32. gr.:

     Er grunnskólanámi lýkur skal nemandi fá skírteini er votti að hann hafi lokið námi samkvæmt lögum þessum. Í skírteini skal skrá vitnisburð nemanda á lokaári í grunnskóla í því námi er hann lagði stund á. 
     Skólastjóri metur hvort nemandi hafi lokið grunnskólanámi og ber ábyrgð á útskrift hans úr grunnskóla. Heimilt er að útskrifa nemanda úr grunnskóla áður en tíu ára skyldunámi er lokið, enda uppfylli nemandi námskröfur grunnskóla í samræmi við lokamarkmið aðalnámskrár. Í aðalnámskrá grunnskóla skal nánar kveðið á um útfærslu þessarar greinar. Ákvörðun skólastjóra í þessu efni lýtur ákvæðum stjórnsýslulaga. Foreldri getur kært synjun um útskrift úr grunnskóla samkvæmt þessari grein eftir fyrirmælum 47. gr.

Um þessa grein segir m.a. í athugasemdum í frumvarpi:

Nokkuð hefur borið á því að talið hefur verið nægjanlegt að nemendur ljúki samræmdum lokaprófum í grunnskóla í tilteknum námsgreinum og þá megi útskrifa nemendur úr grunnskóla. Samkvæmt þessari grein ber nemendum að ljúka öllu skyldunámi samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla áður en þeir útskrifast úr grunnskóla. Nemendur sem ekki hafa lokið grunnskólaprófi geta þá eingöngu hafið nám í framhaldsskóla á þeim grunni að um það sé samkomulag við viðkomandi grunnskóla, í samráði við viðkomandi sveitarfélag, þar sem ljóst sé með hvaða hætti nemendur verði formlega útskrifaðir úr grunnskóla.

 Vinna með skóla
Í 13. gr. grunnskólalaga segir að grunnskólinn sé vinnustaður nemenda. Í lögunum er því gengið út frá því að nám í grunnskóla sé full vinna fyrir nemendur. Því er óbeint gert ráð fyrir því að nemendur stundi ekki aðra vinnu á grunnskólaaldri. Sjá nánar í umfjöllun um vinnu barna og unglinga á heimasíðu umboðsmanns barna. Sjá einnig ákvæði í X. kafla laga nr. 46/1980  um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og reglugerð nr. 426/1999 um vinnu barna og unglinga. 

Einelti í skólum
Nauðsynlegt er að viðurkenna að einelti á sér stað í skólum, óháð stærð þeirra og staðsetningu. Allt starfsfólk skólans þarf að hafa þjálfun í að þekkja einkenni eineltis. Samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla (2006) verður í hverjum skóla að vera til áætlun um hvernig skuli brugðist við ef upp kemst um einelti í skólanum og öllum aðilum þarf að vera ljóst hver vinnur með slík mál innan skólans og hvernig. Mjög margir grunnskólar landsins starfa eftir Olweusarkerfinu svokallaða við meðferð eineltismála. Umræða um einelti þarf bæði að ná til starfsfólks skóla, foreldra og einnig til nemendanna sjálfra, sem oftast eru þolendur eða gerendur þegar einelti er annars vegar. Því er mikilvægt að settar séu ákveðnar reglur um samskipti og hegðun í skólum og að viðbrögð skólanna við einelti séu kynntar öllum aðilum, t.d. á heimasíðu skólanna. Nánari umfjöllun um einelti
 

Forvarnir í skólum
Í 2. mgr. 40 gr. grunnskólalaga segir:

Í grunnskólum skal frá upphafi skólagöngu nemenda unnið að forvarnastarfi með skimunum og athugunum á nemendum til að tryggja þeim kennslu og námsaðstoð við hæfi. Auk þess skal fara fram greining á nemendum sem eiga í sálrænum eða félagslegum erfiðleikum sem hafa áhrif á nám þeirra. Allar athuganir á vegum skóla sem varða einstaka nemendur skulu gerðar í samráði við og með samþykki foreldra og óheimilt er að taka gjald fyrir slíkar athuganir. Greina skal foreldrum frá niðurstöðum slíkra athugana

Í reglugerð um sérfræðiþjónustu sveitarfélaga við leik- og grunnskóla og nemendaverndarráð í grunnskólum er fjallað um forvarnarstarf í 10. gr:

10. gr. Stuðningur við forvarnarstarf.
Í forvarnarstarfi leik- og grunnskóla felst m.a. fræðsla, mat og verkefni fyrir nemendur, starfsfólk skóla og foreldra með það að markmiði að skólaganga nemenda gangi sem best og að skólabragurinn verði sem jákvæðastur. Nemendur sem kunna að eiga í líkamlegum, sálrænum eða félagslegum vanda fái viðeigandi stuðning og námsaðstoð við hæfi til að þeir geti tekið virkan þátt í skólastarfi.
Í leik- og grunnskólum skal starfsfólk skóla meta hvaða nemendur kunna að eiga í erfiðleikum með lestrarnám eða lestur, eða aðra námsörðugleika, með viðeigandi matstækjum, bregðast við því með kerfisbundnum hætti og sjá til þess að allir nemendur fái nauðsynlega aðstoð. Fylgst skal reglulega með framförum og brugðist við jafnóðum.
Sé þörf á nánari athugun og greiningu á grundvelli mats, skv. 2. mgr., skal skólastjóri eða fulltrúi hans óska eftir sérfræðiaðstoð. Starfsfólk sérfræðiþjónustu skal aðstoða starfsfólk leik- og grunnskóla við greiningu á nemendum sem kunna að eiga í líkamlegum, sálrænum eða félagslegum vanda sem geta haft áhrif á námsframvindu. Einnig skal sérfræðiþjónusta aðstoða starfsfólk leik- og grunnskóla við greiningu á námsaðstæðum, veita ráðgjöf um hvernig brugðist skuli við og vísa á viðeigandi úrræði.
Starfsfólk sérfræðiþjónustu skal fylgjast með að viðeigandi matstæki séu tiltæk, útvega slík matstæki eftir því sem þörf krefur og aðstoða við framkvæmd og eftirfylgni í samstarfi við fræðsluyfirvöld.
Allar athuganir á vegum sérfræðiþjónustu sem varða einstaka nemendur skulu gerðar í samráði við og með formlegu samþykki foreldra og óheimilt er að taka gjald fyrir slíkar athuganir.

Í almenna hluta aðalnámskrár (2006) er fjallað um forvarnir á bls. 23:

Mikilvægt er að allir grunnskólar komi sér upp forvarnaráætlun sem birt er í skólanámskrá. Í forvarnaráætlun skal m.a. fjallað um áætlun skólans í fíknivörnum og áfengis- og tóbaksvörnum. Einnig skal fjallað um varnir gegn hvers kyns líkamlegu og andlegu ofbeldi og með hvaða hætti skólasamfélagið hyggst bregðast við ef mál af þessu tagi koma upp. Samhæfð áætlun um hvernig bregðast skuli við ef upp kemst um einelti í skólanum verður að vera til og öllum aðilum þarf að vera ljóst hver vinnur með slík mál innan skóla og hvernig. Kynna skal forvarnaráætlun skólans öllum aðilum skólasamfélagsins, starfsfólki skóla, foreldrum og forráðamönnum og nemendum.  

Boðleiðir — ágreiningsmál
Ef upp koma álitamál varðandi starfið í skólanum eða ágreiningsmál milli foreldra og starfsfólks er mikilvægt að málið rati rétta leið innan kerfisins. Skólastjóri er æðsti yfirmaður hvers grunnskóla. Næst er eðlilegt að málið berist þeirri skrifstofu sveitarfélagsins sem fer með málefni grunnskólans (skólaskrifstofa, fræðsluskrifstofa eða menntasvið í Reykjavík). Næsta stjórnsýslustig í sveitarfélaginu er svo pólitískt kjörin skólanefnd eða sú nefnd sveitarfélagsins sem fer með málefni grunnskólans (skólanefnd, fræðslunefnd, félagsmálanefnd eða menntaráð í Reykjavík). Skólanefndin starfar í umboði sveitarstjórnar (bæjarstjórnar eða borgarstjórnar eftir því sem við á) sem er æðsta yfirvald sveitarfélagsins. Bæjarstjóri/sveitarstjóri/borgarstjóri starfar líka í umboði sveitarstjórnar. Menntamálaráðuneytið fer með yfirstjórn mennta-, æskulýðs- og menningarmála á Íslandi og hefur eftirlit með grunnskólalögum. Hér að neðan er að finna algengt fyrirkomulag boðleiða vegna skólamála í sveitarfélögum.

Menntamálaráðuneyti

          -> Sveitarstjórn /bæjarstjórn/borgarstjórn
                         -> Nefnd/ráð sem fer með grunnskólamál
                         -> Sveitarstjóri/bæjarstjóri/borgarstjóri
                                         -> Skrifstofa eða stofnun sem fer með grunnskólamál
                                                        -> Skólastjóri 
                                                                       -> Deildarstjóri (ef við á)
                                                                                     -> Umsjónarkennari

Sveitarfélögin hafa sjálfstæða stöðu gagnvart öðrum stjórnvöldum. Þar sem ekki er fyrir sams konar stjórnsýslusambandi að fara á milli sveitarfélaga og ráðherra og er á milli æðra og lægra settra stjórnvalda ríkisins, teljast ákvarðanir sveitarstjórna almennt ekki kæranlegar til ráðherra, nema sérstaklega sé mælt svo fyrir um í lögum. Þrátt fyrir að grunnskólalög kveði á um að menntamálaráðuneytið skuli fara með yfirstjórn þeirra málefna sem lögin taka til og hafa eftirlit með því að sveitarfélög uppfylli þær skyldur sem lögin, reglugerðir við þau og aðalnámskrá grunnskóla kveða á um, verður slík yfirstjórn eða eftirlit ekki talið taka til annarra atriða en þeirra sem tiltekin eru í grunnskólalögum. Sjá næsta kafla.

Kæruheimild
Í 47. gr. grunnskólalaga eru taldar upp þær greinar sem fjalla um ákvarðanir sem hægt er að kæra til menntamálaráðuneytisins. Hægt er að kæra eftirfarandi ákvarðanir til menntamálaráðuneytisins:

  • 4. mgr. 5. gr. um synjun sveitarstjórnar á skólavist barns: 
    Liggi ekki fyrir ákvörðun stjórnvalds um lögheimili barns kveður sveitarstjórn á um skólaskyldu þess, enda búi barnið í sveitarfélaginu og leitað hafi verið eftir innritun þess í skóla, sbr. 19. gr. Synjun sveitarstjórnar er kæranleg eftir fyrirmælum 47. gr. Í úrskurði getur menntamálaráðuneyti lagt fyrir sveitarfélag að tryggja barni skólavist innan sveitarfélagsins.
    Nánar um Ábyrgð sveitarfélaga hér ofar á síðunni.
  • 4. mgr. 14. gr.  um brottvísun nemanda úr skóla:
    Ef hegðun nemanda reynist verulega áfátt ber kennara hans að leita orsaka þess og reyna að ráða á því bót, m.a. með viðtölum við nemandann sjálfan og foreldra hans. Verði samt ekki breyting á til batnaðar skal kennari leita aðstoðar skólastjóra og sérfróðra ráðgjafa skólans sem leita leiða til úrbóta, eftir atvikum að teknu tilliti til hlutverks barnaverndaryfirvalda.
    Meðan mál skv. 3. mgr. er óútkljáð getur skólastjóri vísað nemanda úr skóla um stundarsakir eða ótímabundið, enda tilkynni hann foreldrum nemanda og skólanefnd tafarlaust þá ákvörðun. Um slíka ákvörðun gilda ákvæði stjórnsýslulaga. Skólanefnd er skylt innan hæfilegs tíma að tryggja nemanda, sem vikið hefur verið úr skóla, viðeigandi kennsluúrræði.
    Ákvörðun skv. 4. mgr. er kæranleg eftir fyrirmælum 47. gr. Hafi sveitarfélag ekki séð nemanda fyrir kennslu getur ráðuneytið í úrskurði sínum lagt fyrir sveitarfélag að tryggja nemanda nánar tiltekin kennsluúrræði innan tilskilins tíma.
    Nánar um Ábyrgð nemenda og agabrot hér ofar á síðunni.
  • 3. og 4. mgr. 15. gr.  sem fjalla um veitingu undanþágu frá skyldunámi eða synjun hennar:
    Skólastjóra er heimilt að veita nemanda undanþágu frá skyldunámi í tiltekinni námsgrein ef gild rök mæla með því. Enn fremur er skólastjóra heimilt að viðurkenna nám utan grunnskóla sem jafngildi grunnskólanáms.
    Sæki foreldrar skólaskylds barns um tímabundna undanþágu þess frá skólasókn í einstökum námsgreinum eða að öllu leyti er skólastjóra heimilt að veita slíka undanþágu telji hann til þess gildar ástæður. Foreldrar skulu þá sjá til þess að nemandinn vinni upp það sem hann kann að missa úr námi meðan á undanþágu stendur.
    Um ákvörðun um veitingu undanþágu eða synjun hennar, sbr. 3. og 4. mgr., gilda ákvæði stjórnsýslulaga. Slík ákvörðun er kæranleg eftir fyrirmælum 47. gr. Í úrskurði getur ráðherra mælt fyrir um að undanþága verði veitt í heild eða að hluta, jafnvel þó að af hálfu sveitarfélags hafi ekki verið fallist á slíka beiðni.

    Nánar um Skólaskyldu og undanþágur hér ofar á síðunni.
  • 5. mgr. 17. gr. en í 17. gr. er fjallað um réttindi nemenda með námsörðugleika:
    Verði ágreiningur um fyrirkomulag skólavistar barns skal við úrlausn hans gæta ákvæða stjórnsýslulaga. Skal ákvörðun tekin með hliðsjón af áliti sérfræðinga og með heildarhagsmuni barnsins að leiðarljósi. Ákvörðun er kæranleg samkvæmt fyrirmælum 47. gr.
    Nánar um Nemendur með sérþarfir í skóla án aðgreiningar hér.
  • 1. mgr. 19. gr.  um ábyrgð foreldra:
    Foreldrar bera ábyrgð á námi barna sinna og ber þeim að fylgjast með námsframvindu þeirra í samvinnu við þau og kennara þeirra. Foreldrar skólaskylds barns bera ábyrgð á að það innritist í skóla þegar það kemst á skólaskyldualdur og sæki skóla. Verði misbrestur á skólasókn skólaskylds barns, án þess að veikindi eða aðrar gildar ástæður hamli, skal skólastjóri leita lausna og taka ákvörðun um úrbætur. Jafnframt skal hann tilkynna barnaverndaryfirvöldum um málið. Skólastjóri skal fara að ákvæðum stjórnsýslulaga við meðferð málsins. Ákvörðun er kæranleg eftir fyrirmælum 47. gr.
    Nánar hér.
  • 1. mgr. 23. gr. um gjaldskrá skólamötuneyta:
    Í grunnskóla skulu nemendur eiga kost á málsverði á skólatíma í samræmi við opinber manneldismarkmið. Sveitarfélögum er heimilt að taka gjald fyrir skólamáltíðir samkvæmt sérstakri gjaldskrá sem þau setja.
    Gjaldskrárákvarðanir samkvæmt þessari grein eru kæranlegar eftir fyrirmælum 47. gr
    .
    Nánar hér.
  • 4. mgr. 26. gr. um rétt nemenda til að stunda nám í einstökum námsgreinum á framhaldsskólastigi:
    Grunnskólanemendur eiga rétt á að stunda nám í einstökum námsgreinum á framhaldsskólastigi meðan þeir eru í grunnskóla enda hafi þeir sýnt fullnægjandi færni. Skólastjóri í grunnskóla veitir nemanda heimild til slíks náms utan skólans samkvæmt viðmiðum sem sett skulu í aðalnámskrá. Ákvörðun skólastjóra samkvæmt þessari málsgrein lýtur ákvæðum stjórnsýslulaga.
    Heimilt er að kæra synjun um mat á námi eða beitingu heimildar samkvæmt þessari grein eftir fyrirmælum 47. gr. Í úrskurði getur menntamálaráðuneyti lagt fyrir skólastjóra grunnskóla að veita nemanda heimild til náms á framhaldsskólastigi skv. 4. mgr
    .
    Nánar hér.
  • 4. mgr. 31. gr. sem fjallar um kostnað í skyldunámi:
    Óheimilt er að taka gjald af nemendum vegna ferðalaga sem flokkast undir vettvangsnám eða eru að öðru leyti hluti af skyldunámi nemenda. Þó er heimilt að taka gjald fyrir uppihald í námsferðum nemenda, að höfðu samráði við foreldra.
    Ákvarðanir um gjaldtöku samkvæmt þessari grein eru kæranlegar samkvæmt fyrirmælum 47. gr.

    Nánar hér.
  • 2. mgr. 32. gr. um lok náms í grunnskóla:
    Skólastjóri metur hvort nemandi hafi lokið grunnskólanámi og ber ábyrgð á útskrift hans úr grunnskóla. Heimilt er að útskrifa nemanda úr grunnskóla áður en tíu ára skyldunámi er lokið, enda uppfylli nemandi námskröfur grunnskóla í samræmi við lokamarkmið aðalnámskrár. Í aðalnámskrá grunnskóla skal nánar kveðið á um útfærslu þessarar greinar. Ákvörðun skólastjóra í þessu efni lýtur ákvæðum stjórnsýslulaga. Foreldri getur kært synjun um útskrift úr grunnskóla samkvæmt þessari grein eftir fyrirmælum 47. gr.
    Nánar hér.
  • 2. mgr. 33. gr. um gjaldskrá fyrir lengda viðveru (heilsdagsskóla/frístundaheimili)
    Í öllum grunnskólum skal nemendum gefinn kostur á að taka þátt í tómstunda- og félagsstarfi. Tómstunda- og félagsstarf getur bæði verið liður í daglegu starfi og utan venjulegs skólatíma. Sveitarstjórn getur enn fremur boðið grunnskólanemendum lengda viðveru utan daglegs kennslutíma.
    Sveitarfélögum er heimilt að taka gjald fyrir lengda viðveru utan daglegs kennslutíma og tómstundastarf samkvæmt sérstakri gjaldskrá sem þau setja. Gjaldskrárákvarðanir samkvæmt þessari grein eru kæranlegar samkvæmt fyrirmælum 47. gr.

    Nánar hér.
  • 3. mgr. 40. gr. en í 40. gr. er fjallað um skipulag og framkvæmd sérfræðiþjónustu:
    Foreldrar nemenda geta óskað eftir greiningu samkvæmt þessari grein, auk þess sem skólastjóri, kennarar eða starfsmenn heilsugæslu geta lagt fram ósk um greiningu í samráði við og með samþykki þeirra. Sérfræðiþjónusta sér um að greining fari fram, skilar tillögu til skólastjóra um hvernig við skuli bregðast, fylgist með úrbótum og metur árangur.
        ...
      Sé foreldri synjað um beiðni um greiningu skv. 3. mgr. verður sú ákvörðun kærð samkvæmt fyrirmælum 47. gr. Ráðuneytið getur í úrskurði mælt fyrir um að tilteknum nemanda skuli veitt greining í samræmi við ákvæði þessarar greinar.
    Nánar hér.
  • 2. mgr. 46. gr. um veitingu undanþágu frá skólaskyldu:
    Foreldrar, sem óska eftir undanþágu frá 3. gr. til að geta kennt börnum sínum heima, að hluta eða öllu leyti, skulu sækja um slíka heimild til síns sveitarfélags. Skólastjóri getur veitt undanþágu að höfðu samráði við skólanefnd og sérfræðiþjónustu. Börn sem hljóta heimakennslu eru undanþegin skólaskyldu skv. 3. gr., en skulu lúta eftirliti og reglulegu mati og þreyta könnunarpróf samkvæmt lögum þessum.
    Ákvörðun sveitarstjórnar skv. 2. mgr. er kæranleg eftir fyrirmælum 47. gr. Menntamálaráðuneytið getur í úrskurði sínum lagt fyrir sveitarfélag að veita foreldrum barns heimild skv. 2. mgr.
    Nánar hér. 

Í 47. gr. segir ennfremur að um meðferð kærumála fari að ákvæðum stjórnsýslulaga.  Hægt er að nálgast eldri úrskurði ráðuneytisins hér.

Kærustig innan sveitarfélags
Einnig segir í 47. gr. að sveitarstjórn geti ákveðið í samþykkt um stjórn og stjórnsýslu sveitarfélagsins að áður en hægt er að kæra ofantaldar ákvarðanir skuli fyrst beina kæru til skólanefndar eða annars tiltekins aðila innan stjórnsýslu sveitarfélagsins. Sé heimild þessari beitt skal sveitarstjórn ákveða hvort þessi kæruréttur eigi við um hluta ákvarðana eða um þær allar, og þá skal jafnframt tekin afstaða til þess í samþykkt hvort slíkar ákvarðanir sem teknar eru af hálfu sjálfstætt rekinna grunnskóla í sveitarfélagi, sbr. 43. gr., skuli kæranlegar með sama hætti. Um málsmeðferð á kærustigi innan sveitarfélags fer að ákvæðum stjórnsýslulaga. Það er því mismunandi eftir sveitarfélögum hvernig þessum málum er háttað.

Ákveði sveitarfélag að fara þessa leið felst í því ákvörðun um að kærumál samkvæmt lögum þessum sæti því sérstaka ferli að ákvarðanir sem kæranlegar eru til menntamálaráðuneytisins skuli fyrst kærðar til skólanefndar sveitarfélagsins, þeirrar nefndar í stjórnskipulagi sveitarfélags sem hefur hlutverk skólanefndar með höndum samkvæmt samþykkt um stjórn og stjórnsýslu sveitarfélagsins, eða annars þess aðila innan stjórnkerfis viðkomandi sveitarfélags sem sveitarstjórn ákveður. Viðkomandi aðili innan stjórnkerfis sveitarfélags tekur þá viðkomandi kæru til meðferðar sem sérstakt stjórnsýslumál og kveður upp úrskurð í málinu í samræmi við ákvæði stjórnsýslulaga. Í athugasemdum um 47. gr. í frumvarpinu er þetta útskýrt nánar. Þar er einnig tekið fram að aðila skuli ekki skylt að krefjast endurupptöku mála innan sveitarfélags áður en hann leitar til menntamálaráðuneytis með stjórnsýslukæru.

Stjórnsýslulög
Víða í grunnskólalögum segir að við tilteknar ákvarðanir skuli farið að ákvæðum stjórnsýslulaga. Stjórnsýslulög nr. 37/1993 gilda þegar stjórnvöld, þar á meðal stjórnsýslunefndir, taka ákvarðanir um rétt eða skyldu einstaklinga en það er kallað stjórnvaldsákvörðun. Í stjórnsýslulögum er að finna lágmarksreglur sem þarf að fylgja við málsmeðferð, s.s. andmælaréttur, meðalhófsregla, leiðbeiningarskylda, rannsóknarregla og jafnræðisregla. Ákvæði annarra laga, sem hafa að geyma strangari málsmeðferðarreglur en lög þessi mæla fyrir um, halda gildi sínu. Um sérstakt hæfi sveitarstjórnarmanna og annarra þeirra sem starfa við stjórnsýslu sveitarfélaga fer þó eftir sveitarstjórnarlögum. Rétt er að taka fram að skv. 1. mgr. 21. gr. stjórnsýslulaga getur aðili máls krafist þess að stjórnvald rökstyðji ákvörðun sína skriflega hafi slíkur rökstuðningur ekki fylgt ákvörðuninni þegar hún var tilkynnt.

Mat og eftirlit með gæðum grunnskólastarfs
Í 35. — 39. grein grunnskólalaga er fjallað um mat og eftirlit með gæðum grunnskólastarfs. Mat á árangri og gæðum skal fara fram innan hvers grunnskóla með virkri þátttöku starfsmanna, nemenda og foreldra eftir því sem við á og skulu grunnskólar birta opinberlega upplýsingar um innra mat sitt. Sveitarfélög sinna ytra mati og eftirliti með gæðum skólastarfs, sbr. 5. og 6. gr. grunnskólalaga, og upplýsa ráðuneyti um framkvæmd skólahalds, innra mat skóla, ytra mat sveitarfélaga o.fl. Menntamálaráðuneyti annast greiningu og miðlun upplýsinga um skólahald í grunnskólum á grundvelli upplýsinga frá sveitarfélögum.

Viðurkenning grunnskóla, samrekstur og þróunarskólar
Í 43. — 45.gr. grunnskólalaga er fjallað um viðurkenningu grunnskóla sem reknir eru af öðrum en sveitarfélögum, þróunarskóla  og samvinnu tveggja eða fleiri sveitarfélaga um rekstur grunnskóla. Sveitarfélögum er heimilt að reka saman grunnskóla, leikskóla og tónlistarskóla undir stjórn eins skólastjóra að fenginni umsögn skólanefnda.









 Lög og reglur

Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands  Barnasáttmálinn 
Barnalög nr. 76/2003
Lög um grunnskóla nr. 91/2008
Lög um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla nr. 87/2008

Reglugerð nr. 1157/2008 um skólaráð við grunnskóla
Reglugerð nr. 531/2009 um heimakennslu á grunnskólastigi
Reglugerð nr. 435/2009 um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra könnunarprófa í 4., 7. og 10. bekk grunnskóla
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 435/2009 um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra könnunarprófa í 4., 7. og 10. bekk grunnskóla
Reglugerð um mat og eftirlit í grunnskólum og upplýsingaskyldu sveitarstjórna um skólahald
Reglugerðum gerð og búnað grunnskólahúsnæðis og skólalóða
Reglugerð um breyting á reglugerð nr. 656/2009 um skólaakstur, nr. 882/2009
Reglugerð um skil og miðlun upplýsinga milli leik- og grunnskóla, nr. 896/2009
Reglugerð um miðlun og meðferð upplýsinga um nemendur í grunnskólum og rétt foreldra til aðgangs að upplýsingum um börn sín, nr. 897/2009
Reglugerð um inntak menntunar leik-, grunn- og framhaldsskólakennara, nr. 872/2009
Reglugerð um matsnefnd leikskóla-, grunnskóla- og framhaldsskólakennara nr. 241/2009 
Reglugerð nr. 980/2009 um viðurkenningu grunnskóla sem reknir eru af öðrum en sveitarfélögum
Reglugerð nr. 584/2010 um sérfræðiþjónustu sveitarfélaga við leik- og grunnskóla
og nemendaverndarráð í grunnskólum

Reglugerð nr. 585/2010 um nemendur með sérþarfir í grunnskóla
Reglur um skólaakstur í grunnskóla
Reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum nr. 1040/2011

Aðalnámsskrá grunnskóla

Úrskurðir mennta- og menningarmálaráðuneytisins

Tenglar

mennta_og_menningarmalaraduneytid 

 

 
 
 
 
 
 
 
 

Skólatorg.is

 
 
 
 
Skólavarðan
 

 

 Af vef Persónuverndar

Gögn um nemendur og
meðferð þeirra
Hvernig eiga grunnskólar að umgangast gögn um nemendur?

Eyðing gagna
Má grunnskóli eyða gögnum um nemendur?

Upplýsingar á heimasíðum grunnskóla
Hvaða upplýsingar er heimilt að birta um nemendur á heimasíðum grunnskólanna?

 Bæklingur samtakanna Heimilis og skóla

Virkir foreldrar betri grunnskóli