Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga




    04. febrúar 2010

    Fræðsluefni um áhrif koffíns

    Matvælastofnun hefur gefið út fræðsluefni til að upplýsa foreldra, börn og unglinga um áhrif koffíns á líkamann og þær hættur sem kunna að steðja af ofneyslu þess.

    Matvælastofnun bendir á að samkvæmt könnunum sé neysla Íslendinga á gosdrykkjum, þ.á.m. kóladrykkjum sem innihalda koffín, með því mesta sem þekkist, einkum meðal unglinga. Nýir orkudrykkir og orkuskot með mjög háu koffíninnihaldi hafa komið á markað í kjölfar þess að hámarksgildi koffíns í drykkjarvörum var afnumið árið 2008. Aukin neysla á koffíni hefur vakið upp spurningar um áhrif á heilsufar en í fræðsluefni MAST kemur m.a. fram að eitt orkuskot getur innihaldið allt að tvöfalt meira koffín en ráðlagt er að 50 kg unglingur neyti á einum degi!

    Skoða fræðsluefni á vef Matvælastofnunar, www.mast.is:  Koffín ... neysla og áhrif

    Sjá lista yfir ítarefni um koffín hér á vef Matvælastofnunnar.



    12. grein Barnasáttmálans

    1. Aðildarríki skulu tryggja barni sem myndað getur eigin skoðanir rétt til að láta þær frjálslega í ljós í öllum málum sem það varða, og skal tekið réttmætt tillit til skoðana þess í samræmi við aldur þess og þroska.
    2. Vegna þessa skal barni einkum veitt tækifæri til að tjá sig við hverja þá málsmeðferð fyrir dómi eða stjórnvaldi sem barnið varðar, annaðhvort beint eða fyrir milligöngu talsmanns eða viðeigandi stofnunar, á þann hátt sem samræmist reglum í lögum um málsmeðferð.