|
Kynningarbæklingur á ensku: The Ombudsman for Children in Iceland
Í bæklingnum er í stuttu máli farið yfir hlutverk og sérstöðu embættis umboðsmanns barna. Bæklingurinn er ætlaður börnum og fullorðnum. Útgefinn 2010. Bæklinginn má nálgast á skrifstofu umboðsmanns barna eða panta með eyðublaðinu hér til hliðar.
|
|
|
Verum vinir - Hurðaspjald 1
Ætlað leikskólabörnum og nemendum á yngsta stigi grunnskóla. Hurðaspjaldið á að minna á mikilvægi þess að koma vel fram við aðra og að vera góður vinur. Á annarri hlið spjaldsins geta börnin litað sjálf. Hægt er að fá spjaldið annað hvort tilbúið eða þannig að börnin klippi það út sjálf. Útgefið 2010. Hurðaspjöldin má nálgast á skrifstofu umboðsmanns barna eða panta með eyðublaðinu hér til hliðar.
|
  |
|
Verum vinir - Hurðaspjald 2
Ætlað nemendum á mið- og elsta stigi grunnskóla en einnig fyrir þá sem eldri eru. Hurðaspjaldið á að minna á mikilvægi þess að koma vel fram við aðra og að vera góður vinur. Á annarri hlið spjaldsins segir: Líðan annarra kemur þér við. Láttu vita. Með því er verið að vekja athygli á því að vinir og kunningjar geta hjálpað hver öðrum með því að láta þá fullorðnu, t.d. umsjónarkennara eða námsráðgjafa, vita ef einhverjum í samfélagi þeirra líður illa af einhverjum ástæðum. Útgefið 2010. Hurðaspjöldin má nálgast á skrifstofu umboðsmanns barna eða panta með eyðublaðinu hér til hliðar.
|
  |
|
Skólaráð - einblöðungur
Einblöðungurinn er sérstaklega ætlaður nemendum grunnskóla og hefur að geyma upplýsingar úr grunnskólalögum og reglugerð um skólaráð ásamt nokkrum hagnýtum atriðum fyrir þá sem hafa áhuga á að starfa í skólaráði. Útgefinn 2009, aðeins á netinu. Opna einblöðung um skólaráð (PDF).
|
|
|
Hvernig er að vera barn á Íslandi? - Póstkort 1
Póstkort sem gefið var út í tengslum við bókina Hvernig er að vera barn á Íslandi? sem unnin var úr skólaverkefni umboðsmanns veturinn 2008-9. Útgefið 2009.
|
|
|
Hvernig er að vera barn á Íslandi? - Póstkort 2
Póstkort sem gefið var út í tengslum við bókina Hvernig er að vera barn á Íslandi? sem unnin var úr skólaverkefni umboðsmanns veturinn 2008-9. Útgefið 2009.
|
|
|
Hvernig er að vera barn á Íslandi? - Póstkort 3
Póstkort sem gefið var út í tengslum við bókina Hvernig er að vera barn á Íslandi? sem unnin var úr skólaverkefni umboðsmanns veturinn 2008-9. Útgefið 2009.
|
|
|
Hvernig er að vera barn á Íslandi? - Póstkort 3
Póstkort sem gefið var út í tengslum við bókina Hvernig er að vera barn á Íslandi? sem unnin var úr skólaverkefni umboðsmanns veturinn 2008-9. Útgefið 2009.
|
|
|
Kynningarbæklingur um umboðsmann barna
Í bæklingnum er í stuttu máli farið yfir hlutverk og sérstöðu embættis umboðsmanns barna. Bæklingurinn er ætlaður börnum og fullorðnum. Útgefinn vorið 2008. Bæklinginn má nálgast á skrifstofu umboðsmanns barna eða panta með eyðublaðinu hér til hliðar.
|
|
|
Bæklingur með ákvæðum Barnasáttmálans
Bæklingurinn er gefinn út af umboðsmanni barna, Barnaheillum, UNICEF á Íslandi og Námsgagnastofnun í vorið 2009 í tengslum við útgáfu tveggja veggspjalda um Barnasáttmálann. Bæklinginn má nálgast á skrifstofu umboðsmanns barna, hjá UNICEF Ísland eða hjá Barnaheillum eða panta með eyðublaðinu hér til hliðar.
|
 |
|
Bæklingur um útgáfu veggspjalda með ákvæðum Barnasáttmálans
Bæklingurinn er gefinn út af umboðsmanni barna, Barnaheillum, UNICEF á Íslandi og Námsgagnastofnun í maí 2008 í tengslum við útgáfu tveggja veggspjalda um Barnasáttmálann. Bæklinginn má nálgast á skrifstofu umboðsmanns barna, hjá UNICEF Ísland eða hjá Barnaheillum eða panta með eyðublaðinu hér til hliðar.
|
 |
|
Veggspjald með efni Barnasáttmálans í styttri útgáfu - ætlað yngri nemendum og almenningi
Veggspjaldið er gefið út af umboðsmanni barna, Barnaheillum og UNICEF á Íslandi í maí 2008. Námsgagnastofnun mun dreifa veggspjöldunum í grunnskóla landsins haustið 2008. Einnig verður veggspjaldinu dreift víðar. Veggspjaldið má nálgast á skrifstofu umboðsmanns barna, hjá UNICEF Ísland eða hjá Barnaheillum eða panta með eyðublaðinu hér til hliðar.
|
 |
|
Veggspjald með ákvæðum Barnasáttmálans í styttri útgáfu - ætlað eldri nemendum og almenningi
Veggspjaldið er gefið út af umboðsmanni barna, Barnaheillum og UNICEF á Íslandi í maí 2008. Námsgagnastofnun mun dreifa veggspjöldunum í grunnskóla landsins haustið 2008. Einnig verður veggspjaldinu dreift víðar. Veggspjaldið má nálgast á skrifstofu umboðsmanns barna, hjá UNICEF Ísland eða hjá Barnaheillum eða panta með eyðublaðinu hér til hliðar.
|
 |
|
Veggspjald: Hvenær má ég hvað?
Veggspjaldið hefur að heyma helstu ákvæði íslenskra laga um réttindi barna og unglinga, 0-18 ára. Útgefið 2007. Veggspjaldið má nálgast á skrifstofu umboðsmanns barna eða panta með eyðublaðinu hér til hliðar. Veggspjaldinu var dreift í skóla, félagsmiðstöðvar og víðar haustið 2007.
|
 |
|
Bæklingur, veggspjald og vefsíða: Verndum bernskuna
Átaksverkefninu Verndum bernskuna er ætlað að vekja alla ti umhugsunar um uppeldi og þau verðmæti sem fólgin eru í börnum þessa lands. Bæklingnum var dreift í öll hús á landinu haustið 2005. Í honum eru tíu heilræði fyrir foreldra og uppalendur. Aðstandendur verkefnisins eru auk umboðsmanns barna, forsætisráðuneytið, Þjóðkirkjan, Velferðarsjóður barna og Heimili og skóli. Nánar á Verndum bernskuna.
|
 |
|
Veggspjald: Hvenær mátt þú gera hvað?
Veggspjaldið hefur að heyma helstu ákvæði íslenskra laga um réttindi barna og unglinga, 0-18 ára, sem og nokkrar greinar úr Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Útgefið 2004. Veggspjaldið má nálgast á skrifstofu umboðsmanns barna eða panta með eyðublaðinu hér til hliðar.
|
|
|
Veggspjald: Þú getur líka lent í Netinu
Umboðsmaður barna fékk þrjár ungar stúlkur til að útbúa þetta veggspjald um samskipti á Netinu. Útgefið 2004. Veggspjaldið má nálgast á skrifstofu umboðsmanns barna eða panta með eyðublaðinu hér til hliðar.
Skoða veggspjald. (jpg)
|
|
|
Veggspjald: Skundum á Þingvöll...
Í tilefni af málþinginu Skundum á Þingvöll... sem umboðsmaður stóð fyrir í samstarfi við mannréttindahóp ELSA, sem eru samtök evrópskra laganema, var útbúið veggspjald. Útgefið 2003. eggspjaldið má nálgast á skrifstofu umboðsmanns barna eða panta með eyðublaðinu hér til hliðar.
|
|
|
Veggspjald: Umboðsmaður barna
Veggspjald til kynningar á embættinu. Útgefið 2003. Veggspjaldið má nálgast á skrifstofu umboðsmanns barna eða panta með eyðublaðinu hér til hliðar.
|
|
|
Þau sem erfa munu landið ... ná ekki eyrum okkar
Bæklingur um 12. grein Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, unninn í samvinnu við mannréttindahóp ELSA, sem eru samtök evrópskra laganema. Bent er á leiðir fyrir stjórnvöld til að tryggja rétt barna og unglinga til áhrifa. Útgefinn 2002.
|
|
|
Hvað er til ráða?
Bæklingur um áhrif ofbeldisefnis í sjónvarpi á börn. Skoða framhlið og bakhlið. Bæklingurinn var gefinn út í samstarfi við félag íslenskra barnalækna. Hægt er að panta bæklinginn hjá Þróunarstofu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í síma 585 1300 eða með því að senda tölvupóst á throunarstofa@heilsugaeslan.is.
|
|