Umsagnir til Alþingis og stjórnvalda
Heilbrigðis- og trygginganefnd Alþingis óskaði eftir umsögn umboðsmanns barna um tillögu til þingsályktunar um öryggismiðstöð barna. Umsögn sína veitti umboðsmaður í bréfi dagsettu 18. nóvember 1997.
Allsherjarnefnd Alþingis óskaði eftir umsögn umboðsmanns barna um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 83/1994, um umboðsmann barna. Umsögn sína veitti umboðsmaður með bréfi, dagsettu 4. nóvember 1997.