Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga




    Nokkur svör barna og unglinga við spurningunni    

    Eiga skólar að krefjast þess að nemendur og kennarar vandi málfar sitt og stafsetningu? 
    Finnst þér skorta metnað hjá ungu fólki til að tala og skrifa rétta íslensku? 
    Eða skiptir kannski engu máli hvernig maður talar og skrifar?

    Spurt 2005

    „Nei gleymdu því ég tala eins og ég vil!!"
    15 ára drengur

    „Mér finst að krakkar ættu að geta passað sig að tala rétt alanvega þegar þau eru í skólanum  ég t.d er hjá frænda mínum í sveit og við erum með vinnufólk sem er frá danmörku svo við erum vön að tala ensku og dönsku heima allan dagin samt passa ég mig þegar ég er í skólanum þótt að stundum ruglist ég þá reyni ég að leiðrétta mig en það er að seigja þegar ég fatta því að ég er orðin miklu vanari að tala ensku en íslensku en samt þarf stundum að láta mig vita því að þá er  í byrjuð að blaðra einhvað á ensku við vini mína"
    15 ára stúlka

    „jámm mér finnst það.. ég meina þau eru orðinn 16 ára og eru búin að vera í skólanum í 10 ár... þau ættu nú að vera búin að læra eitthvað í stafsetningu.. ég meina 10. ár og geta ekki skrifað rétt... ég meina hver er þá tilgangurinn í því að vera í skóla..?? einmitt fólk á bara að vera ábyrgt gegn sínum gjörðum.. takk fyrir mig.. :P"
    16 ára stúlka

    „Mér finnst auðvitað að allir eigi að tala rétta íslensku. En að krefjast þess er óþarfi. Mér finnst samt vanta metnaðinn almennt hjá ungu fólki. Ritun er eitthvað sem kemur við sögu á hverjum einasta degi. Mér finnst samt að börnin eigi að vanda málfar sitt og það skiptir máli."
    10 ára stúlka

    „Mér finnst krökkum vanta meira kennslu í stafsetningu og málfræði þar sem fólk er farið að skrifa t.d. "etta" í staðinn fyrir að skrifa "þetta" og svo framvegis.. Svo að mér finnst svarið vera já..:)"
    15 ára stúlka

    „Já, svo sannarlega vantar það..!!!! það skiptir miklu máli ða tala RÉTT og skrifa rétt... eg er ein af þeim fáu unglingum sennielga, sem ÞOLI EKKI stafsetningarvillur, og það sérstaklega ÓÞARFA stafsetningavillur !!!! það er alveg hægt að laga þetta !!! með góðri kennslu og umræðum um þetta í skólum !!! en auðvitað eyðileggur netið og smsið þetta því þá er fólk svo mikið að flýta sér og styttir allt og býr í raun til ný orð og íslenskar útlensk orð.. þetta hefur auðvitað þau áhrif að fólk skrifar svo þetta niður meirasegja T í stað Þ í orðum, því það er ekki til Þ í flestum gsm símum !!!!

    „Já mér finnst skorta metnað hjá ungu fólki til að tala og skrifa RÉTT íslensku !!!!"
    17 ára stúlka

    „Maður talar eins og maður vill. Annað er bara kjaftæði"
    13 ára stúlka

    „Humm.. mér er eiginlega sama..!! enn samkvæmt mínu þá hef ég gert það og síðan gekk mér mjög illa í stafsettningar prófi og ég er von að vera góð í því en síðan bara man ég ekki hvernig maður átti að skrifa "segja" eins og ég sagði alltaf "Seijja" það var mikill munur enn já takk fyrir mig!"
    13 ára stúlka

    „Já mér finnst skorta metnað. Mér finnst frekar óþolandi þegar ég þarf að leiðrétta krakka á mínum aldri og jafnvel fullorðið fólk."
    15 ára stúlka