Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga



Brot úr erindum frá börnum

"Mér finnst að það eigi að spyrja fyrst börnin í landinu hvort það megi gera þetta og hitt eins og t.d. að byggja hús þarna eða ekki, eða kjósa um eitthvað sem krakkar hafa kannski líka áhuga á !!!!!! og mér finst að fatlaðir unglingar/krakkar eiga að fá jafn mikla mentun eins og aðrir krakkar/unglingar!!!!!"
12 ára stúlka

„Kennarar fara oft illa með börnin eins og þau megi það. Tala illa til þeirra. Ég er kannski að segja of mikið en við vorum í tíma að læra um Egil Skalla-Grímsson þegar kennarinn var komin í allt annað mál. Þá rétti einn strákur í bekknum upp hendina og sagði ,, erum við ekki að læra um Egil?" Þá sagði kennarinn ,, ert þú að stjórna eða ég??" og auvitað hræddi það strákinn. Við erum í skóla til þess að læra margt ekki til þess að vera tekin í einrúm eða til þess að vera bönnuð að "commenta" á hlutina."
11 ára stúlka

„Ég er semsagt 16 ára stelpa og var svona að spá í hvort að þið hefðuð ekki eithver góð ráð eða gullmola til að hjálpa manni að opna sig. Er svo ótrúlega feimin þori varla að segja nafnði mitt þegar ég er í stórum hópi, samt er mér mjög mikið hrósað og svona en er samt ótrúlga feimin. Nú ætla ég að taka mig á, lifa lífinu og reyna að opna mig og tala betur við annað fólk. Lumiði á eitthverjum góðum ráðum eða góðum bókum eða eitthvað slíkt :)?"
16 ára stúlka

„Á pabbi minn rétt á því að taka tölvuna mína af mér sem ég keypti fyrir mína eigin peninga sem ég vann mér inn fyrir sjálf ? Og á ég rétt á því að ef foreldrar mínir séu að fara að skilja, og ég og systir mín eigum að heimsækja pabba aðra hverja helgi, á ég þá rétt á því að heimsækja hann ekki... aldrei... ?"
14 ára stúlka

„Er leyfilegt að skólaliði eða gangavörður kalli mann eða vinkonur sínar ,,Óþroskaða belju'' ef maður er lengi að klæða sig og koma sér út? Hvað á ég að gera næst þegur hún kallar mig eða vini mína þetta næst?"
11 ára stúlka

„Mér finnst svolítið leiðinlegt að ein vinkona mín, eða eiginlega er allveg rosalega skemmtileg og góð við mig en um leið og ég er farin frá henni fer hún að baktala mig. Og svo er hún búin að segja eitthvað rosalega ljótt og ég segi að ég muni aldrei aftur fyrirgefa henni en svo gerist það bara sjálfkrafa án þess að ég vilji það en hún er svo skemmtileg en hún segir líka svo ljóta hluti á msn og netinu geturu sagt mér hvað ég á að gera"
9 ára stúlka 

„Af hverju er ekki stelpur og strákar með sér skóla?????? Það myndi vera miklu betra."
11 ára stúlka

„Það er alveg svakalega skrýtið, en mér finnst eins og vinir mínir noti mig sem auka hlið á öllu lífinu! Þeir eru með mér þegar að allir hinir eru í burtu! eru þeir alvölu vinir mínir eða gervi vinir?"
11 ára drengur 

„Hæ. Það var að byrja ný stelpa í bekknum mínum og hún er ÓÞOLANDI. Hún lýgur í öðru hverju orði, reykir í frímínútunum (sem kennararnir gera EKKERT útaf, hún hefur EINU sinni verið skömmuð en kennarinn okkar talaði alvarlega um þetta við okkur og hálf skammaði okkur) og svo vill enginn stitja hliðina á henni útaf maður er að kafna úr reykingalykt (og já, hún er ekkert að reyna að fela lyktina). Starfsfólkið elskar hana útaf hún sleikir allla upp (hún sagði mér það einu sinni t.d. að hún væri að sleikja upp enskukenarann til að fá betri einkunnir). Svo hrækti hún einu sinni í andlitið á vini mínum, sem kvartaði í kennarann sem talaði aðeins við hana og ekkert meir."
13 ára stúlka

„hææhææ ;** Besta vinkona mín braust með 3 öðrum krökkum inní 4 skóla um jólin ... Á ég að kjafta frá eða á ég að vera besta vinkona og segja engum eins og hún bað mig um??"
15 ára stúlka

„Foreldrar mínir eru skilin og ég spyr hvenær má ég hætta að ferðast á milli Akureyrar og Húsavíkur?"
11 ára drengur

„1. Ég var að skipta um skóla nýlega og fara í nýjan, en núna er eins og allir séu óvinir mínir í gamla skólanum og sumir krakkarnir eru að ljúga einhverju upp á mig sem er bara alls ekkert satt, en það sem er að því, að það trúa því flestir, þótt að það sé algjört bull sko og sé rosalega óraunverulegt. Ég meina, ég hef ekki hugmynd um hvað ég hef gert þeim. Ég held meira að segja að ég hafi ekki gert þeim neitt :s
2. Það er líka eitt fjölskyldu vandamál. Ég var að flytja inn með öðru foreldri mínu og stuttu eftir að við fluttum inn þá hafa brotist út rifrildi, fyrst á milli mín og annars foreldri míns og svo núna á milli bróður míns sem er yfir 18 ára og foreldrisins sem ég flutti inn með. Eins og t.d. í gærkvöldi þegar fólk var t.d. farið að sofa í blokkinni minni þá var einhvað gríðarlegt riflridli á milli þeirra 2ja og svo í dag þá sá ég einhvern lögreglumann eiginlega fyrir framan íbúðina okkar en hann var samt ekkert að kíkja inn eða gera sig tilbúnan að dingla hjá okkur, bara eins og hann væri að tala við nágranna okkar... mig grunar það að grannar okkar hafi verið að kvarta eða einhvað :s
3. Annað svona family problem... foreldrið sem ég flutti inn með er alltaf að tala illa um hitt foreldri mitt. Ég veit alveg að hitt foreldrið mitt getur verið ósanngjarnt og svona, en mér finnst hrikalega leiðinlegt þegar foreldrið sem ég bý hjá talar illa um það. Ég hef beðið það um að hætta en það bara hættir ekki ! Ég meina, ég þekki fullt að fólki sem á skilna foreldra en þeir tala ekkert illa um hvort annað, þvert á móti!"
13 ára stúlka 

„Mamma mín og pabbi eru alveg frábærir foreldrar, svolítið ströng en góð.  Ég á erfitt með að vakna á morgnana og nota ljót orð og er ekki fyrirmyndarbarn, en bróðir minn er draumur pabba. Hann er með mynd af bróður mínum á símanum sínum en ekki mér. Mér finnst ég passa ekki inní fjölskylduna en allavega vil ég vita hvernig ég get verið draumabarn pabba míns, því ég vil það svo sárt."
13 ára stúlka

„Ég var að rifja upp minningar um daginn með vinkonu minni og við vorum að tala um leikskólann. Ég man eftir því þegar fóstrunnar voru að öskra á okkur og segjast ætla að binda okkur niður við stólanna ef við kláruðum ekki matinn og oft hafði ég ekki lyst.. Eitt skiptið var ég að spjalla við vin minn og fóstran öskraði haltu kjafti litla ógeðið þitt við mig. Við krakkarnir á deildinni héldum að þær mættu þetta og við vorum ekkert að pæla neitt mikið í þessu.. Og ég var bara að rifja þetta upp núna. Fullt af niðurlægingum frá þeim sem ég man eftir. Mér finnst að foreldrar ættu að tala meira við krakkana sína þótt þeir séu bara í leikskóla. "
14 ára dengur

„Sko, vandamálið er að ÉG Á ENGA VINI í skólanum : ( Ég bara stend alltaf ein og horfi á hina tala um mig og hlægja af mér. Þetta var ekkert svona áður fyrr (ég er búin að vera í þessum skóla frá því í 1 bekk). Það bara kom upp mál sem leið af verkum að þetta gerðist :S. Mamma vill taka mig úr skólanum en pabbi vill að ég haldi áfram í honum með einhvað plan að baki , og ef einhvað plan virkar ekki þá bara reyna áfram og áfram. Það er eins og það sem ég vilji skipti engu máli (ég vil það sama og mamma). Og ef að ég geri það sem pabbi vill þá eiga kannski öll þessi plön eftir falla og á endanum verð ég bara þunglynd : (  Það eina sem ég vil gera er að flýja. Viltu hjálpa mér ?"
13 ára stúlka

„Góðir foreldrar eru foreldrar sem maður getur treyst, sem hlusta á mann og eru góðir við mann, það eru mamma mín og pabbi =) Linda Sóley"
12 ára stúlka

„Foreldrar eiga að vera góðir, hreinskilningslegir, þurfa að skilja mann vel, taka tillit, ekki öskra á mann ef maður gerir eithvað rangt, hafa aga, ekki ofdekra og fleira"
12 ára stúlka

„Foreldrar eru góðir en sýna það allir á sinn hátt. Sumir kaupa fullt og eru alveg brjálaðir í að gera allt fyrir barnið. Mér finnst að foreldrarnir ættu frekar að eyða tíma eð barninu og bara njóta þess þegar það er svona ungt. Vera með því og gera hluti saman og bara segja hversu mikið það elskar það.  Það eru góðir foreldrar."
17 ára stúlka 

„Mig langar alveg ROSALEGA að kyssa strák (hef aldrei kysst einn einasta) en ég er bara ekki nógu góð fyrir þá ;S Ég meina ég er soldið þybbin, óvinsæl og ekkert smá feimin ! Á ég að bíða eða ?"
13 ára stúlka

„Kennararnir í fjórðu bekkunum í skólanum mínum, eru ekki með sömu reglurnar og það finst mér ósanngjarnt. Til dæmis þegar það má koma með dót í skólann mega hinir fjórðu bekkirnir koma með rafdót, en ekki minn bekkur. Eiga ekki kennarar að hafa sömu reglurnar í öllum bekkunum? Eða geta þeir gert bara það sem þeim langar til?"
9 ára drengur

„Mér líður ekki svo vel í skólanum. Ég er ekki vinsæl og mér finnst eins og vinsælu krakkarnir fyrirlíti mig! Og líka sá vinsælu sem verða allt í einu rosalega góðir við mann eru ekkert sérlega góðir eftir allt saman. Hvað get ég gert ?"
13 ára stúlka

„Ég held að einn kennarinn í skólanum sé eitthvað á móti mér. Hún lét einkunnina mína í einu fagi lækka alveg fullt niður út af misskilningi sem að hún vissi sjálf! Svo er hún alltaf að skamma mig og niðurlægja mig fyrir framan allan bekkinn. Það er liggur við að ég hætti í skólanum útaf henni :S!"
13 ára stúlka

„Mér líður yfirleitt mjög vel heima hjá mér. Stundum finnst mér ég vera ofvernduð, aðallega af mömmu, en líka t.d.ef við pabbi erum saman úti þá leiðir hann mig eins og smákrakka. Ég get orðið mjög pirruð á þessu. Hjá mömmu lýsir sér það þannig að hún leyfir mér ekki að horfa á einn saklausan koss í sjónvarpinu og verður sár út í mig ef ég neita að sýna henni eitthvað sem ég er að skrifa eða lesa eða einhverjar síður á tölvunni. Ég veit vel að það er stundum eitthvað rugl og ógeðslegt á sumum síðum á netinu en ég meina, ég forðast slíkar síður. Og ef ég myndieinhvern tíman fara óvart inn á svoleiðis, myndi ég strax fara út af því aftur. Mamma heldur að ég taki ekki eftir því að hún lætur svona en ég tek vel eftir því. Stundum held ég að hún haldi að ég fari á bak við hana, en það mundi mér aldrei detta í hug. Annars líður mér vel hérna, vægast sagt. Pabbi og mamma búa saman og allir eru góðir við mig. Ég á líka kött sem ég gjörsamlega elska út af lífinu. Við erum svaka góðar vinkonur og ég veit ekki hvernig ég færi að án hennar. Stundum er hún eina vinkonan sem ég á. Auðvitað á ég vinkonur, svona venjulegar á ég við. Ryndar á ég tvær. En ein er rosalega skapbráð, bara tíu ára, semsagt algjört smábarn, ráðrík og hatar skólann. Algjör andstæða við mig sem er byrjuð að pæla í sætum strákum og gjörsamlega elska skólann. Hin er líka barnaleg en er samt jafnaldri minn og ekkert mjög dugleg í skólanum. Stundum er ég bara ein eða fer í fótbolta í frímó í stað þess að vera með þeim. Ekki það að ég skammist mín fyrir þær, eða... jú einstaka sinnum en alls ekkert oft, þær geta bara verið dálítið þreytandi og jafnvel pirrandi."
11 og hálfs árs stúlka

„Það versta við Ísland er að það er mjög kalt hérna á veturna en af hverju ætti þetta þá að heita vetur efþað væri ekki kalt, eða hvað þá ef það væri ekki kalt af hverju þá Ísland.  það besta við Ísland er að það búa margir Íslendingar á Íslandi ;) og við erum sjálfstæð þjóð."
12 ára stúlka

„Er leyfilegt að foreldrar öskri á börnin sín eða sýni mjög mikla óþolinmæði og pirring??"
13 ára stúlka

„Best við að búa á Íslandi er að það er ekkert stríð. og verst að því að það eru eldfjöllm, t.d Hekla o.fl."
8 ára stúlka 

„Ég er rétt komin úr 9.bekk og það drekkur rúmlega 50% af árganginum!! þetta er svo sorglegt og svo virðast foreldrar alveg vera útúr heiminum í sambandi við svona hluti!!"
15 ára stúlka

„Hæ, það er ekkert tekið mark á okkur! það sem við segjum, það fer inn um annað og út um hitt. Ha? hvað sagðirðu aftur?  Svo er líka skólinn of langur og svo mikið að gera. Það er sagt að æskan sé áhyggjulaust tímabil. Bull."
12 ára stelpa

„Foreldrar mínir lemja mig og mér hefur verið nauðgað og allt er í hassi... en ég vil að það sé gert eitthvað í því... þannig að vinsamlegast... ef það er leyft með lögum að beita börnin sín ofbeldi og öllum er virkilega sama þá vil ég vita það.. svo ég sé nú ekki að kvarta að óþörfu!!!!"
15 ára stúlka

„Við viljum fá að vera með í að taka ákvarðanir, sem varða okkur sjálf og ég veit að margir foreldrar eru okkur hjartanlega sammála."
15 ára drengur

„Við erum vaxandi kynslóð þessa lands og munum stjórna því einhvern tíma."
13 ára stelpa

„Ég þarf að vinna mikið með skóla til þess að geta keypt það sem ég þarf, fatnað, skólabækur og gjöld og jafnvel matinn minn sjálf, lyf o.fl. Þetta bitnar náttúrulega á tímanum sem ég mundi annars nota til að sinna náminu."
17 ára stúlka

„Hæ, ég vil vita hvort börn eigi ekki rétt á því að vera á þeim stað sem þeim líður best."
16 ára stúlka

„Hef ég ekki rétt á að fara í hvaða menntaskóla sem ég vil?"
15 ára stúlka

„Mér finnst að það eigi ekki að baktala aðra við einhverja inná svona Netsíðum. Mér finnst heldur ekki að maður eigi að vera seigja eitthvað leiðinlegt sem á að vera djók útaf því að þetta er særandi fyrir suma og sumir taka þessu ekki sem gríni."
15 ára drengur

„Við þurfum alltaf að fremja eitthvað vont af okkur, til þess að fjölmiðlar hafi áhuga á því hvað við höfum að segja.  Þetta slæma, sem sumir gera, er stórfrétt, en hið góða sem við hin gerum, er eitthvað sem þykir ómerkilegra en hitt."
13 ára stelpa

„Ég á pabba sem að flutti frá mér þegar að ég fæddist!!!  Það eru allir vinir mínir að tala um þetta við mig og mér finnst það dálítið erfitt!!!"
12 ára stúlka

„Leyfið okkur að vera með í taka  ákvarðanir sem varða okkur sjálf og þá verður vonandi hægt að komast að niðurstöðu sem allir sætta sig við."
15 ára drengur

„Mér líður einfaldlega illa í skólanum, ég er að farast því ég get ekki lært í skólanum. Ég er að missa bestu vinnkonu mína og líður hræðilega. Ég er alltaf ein í frímínútum og hef ekkert að gera á daginn."
11 ára stúlka

"Ég er alltaf einmana og ég á erfitt með að ná í vini.  Það er stundum svo pirrandi!!  Hvað á ég að gera???"
10 ára stúlka

„Það sökkar að þurfa að vera í skólanum til hálf fjögur á daginn... og að þurfa að vera svona ferlega lengi í skólanum (sem sagt fram eftir sumri)... er ekkert hægt að gera í þessari ömurlegu þróun?"
15 ára stúlka

„Okey, þetta á kannski ekki heima herna en eg vil samt spyrja þig kæri umboðsmaður barna... Þannig er mál með vexti í skólanum sem ég er í hef ég beðið um stuðning, aukanámsefni sem er léttara því ég skil ekki némsefnið sem við erum búin að vera i. Ég er nuna i 10.bekk og er alveg 100% viss að ég falli á samrændu prófunum því skólinn minn hefur aldrei gert neitt við því að ég sé léleg i ensku... afhverju?  Ber honum ekki skylda að REYNA að gera einhvað fyrir mig? Æji eg veit ekki, vinkona min er alltaf að biðja mig að spyrja aftur og aftur en ég vill bara ekki vera of ágeng.  En mig langar samt að ná samrændu... æjh þetta er einhvað svo já... en ber skólanum ekki skylda að gera einhvað?"
15 ára stúlka

„Þó að sumir líti á alla unglinga sem hugmynda- og menningarsnauða letingja er það langt í frá að það sé svo."
15 ára drengur

„Mér finnst stjórnmálamenn oft ekki hlusta á börn eins og svo margir fullorðnir."
16 ára drengur

„Það er einn strákur í skólanum mínum sem leggur mig í einelti. Hann getur ekki látið mig í friði!!!! Ég veit ekki afhverju hann gerir þetta, því ég hef aldrei sagt neitt við hann og ekki gert neitt. ...  Ég hef sagt foreldrum mínum þetta en það kemur bara alltaf: ,,Ekki hlusta á hann" Það er eins og enginn skilji að jafnvel þótt maður þykist ekki heyra það sem aðrir segja þá fer það samt inn á sálinna. Ég er mjög viðkvæm og það er alltaf verið að gera grín af mér því ég græt svo oft.  Ég get ekki að því gert."
14 ára stúlka

„Ég óska eftir að barnasáttmálinn verði skrifaður á máli sem við sem eru ekki lögfræðingar eða einhvað þaðanaf verra skiljum!!!  Takk fyrir"
15 ára. 

„Börn 13-16 ára verða að vera komin inn kl 24:00 eftir 1.mai til 1.september...  En það er aldrei tekið fram hvenær má hleypa okkur aftur út!"
15 ára stúlka

„Þarf ég leyfi foreldra minna til að ganga í pólitískt félag?"
16 ára drengur

„Það er ekki bara til unglingavandamál heldur fullorðinsvandamál útaf því að þeir skilja okkur ekki því að þau eru annað að gera þegar við reynum að tjá okkur..."
15 ára stúlka

„Það má ekki gleyma að við erum “fullorðnafólk” framtíðarinnar."
16 ára drengur

„Út af hverju þurfa foreldrar að vera svona strangir við krakka? Sérstaklega stelpur? Af hverju er útivistartíminn svona stuttur hjá 13-16 ára?" 
15 ára stúlka

„Ungt fólk er mjög virkt en fær bara ekki að njóta sín nógu vel."
16 ára drengur

„Er erfitt að sjá til þess að börnum líði vel í skólum? Ég spyr út að því að vinkona mín er oft lögð í einelti.  Hvað get ég gert til að hún verði ekki lögð í einelti?"
11 ára stúlka

„Börn og unglingar vilja fá að vera með í mörgum ákvörðunum í sambandi við skóla, sumarstörf o.fl."
15 ára stúlka

„Stjórnmálamenn eiga að hlusta á börn og taka við bréfum og svleiðis með hugmyndum um það sem börn vilja að gerist í samfélaginu eins og eitthvað skemmtilegra í skólanum...  Það er svo sjaldan hlutstað á börn."
14 ára drengur

„Unglinga vantar heilbrigða og góða mynd og traust hjá fullorðnu fólki og hjá þjóðfélaginu í heild sinni á þessum viðkvæmu árum."
12-15 ára börn

„Hlustið á okkur og sýnið okkur áhuga.  Það gæti verið eitthvað vit í því, sem við höfum að segja."
13 ára stelpa

„Við erum ánægð með hvað við getum gert margt, t.d. verið heima með mömmu og pabba, spilað á hljóðfæri, æft íþróttir og gengið í skóla. Þetta eru mörg réttindi. Það eru ekki allir svona heppnir. Svo eigum við gæludýr."
8 ára börn

„Má fullorðið fólk skamma mann ef maður gerir eitthvað óvart?"
9 ára stúlka

„Er æska landsins ekki mikilvægari en einhverjir flugvellir og svoleiðis?  Það er nógu mikið gert fyrir byggingar, aldraða o.fl. en það vantar meira fyrir börnin."
15 ára drengur

„Unglingum er misboðið að því leyti að þeir sem þroskast fljótt þurfa að sætta sig við reglur sem settar eru fyrir meðalunglinginn og þeir sem eru seinþroska fá að gera ýmsa hluti of snemma sem að hvorki þeir sé aðrir hafa gott af."
15 ára drengur

„Stjórnmálamenn er alltaf að setja einhver ný lög og/eða reglur sem eru hentugar þeim fullorðnu en ekkert nema slæm fyrir okkur.  Eins og t.d. lenging skólaársins.  Hvað voru þeir að hugsa?"
14 ára stúlka

„Ég er að hugsa um hvort hinir krakkarnir séu að tala illa um mig."
Stúlka í 7. bekk

„Mér finnst að það ætti að leyfa 12 ára krökkum að vera lengur úti en 10 ára krökkum."
Stúlka í 7. bekk

„Mér finnst þetta bara fínt eins og þetta er og mig langar ekki til að breyta neinu."
Drengur

„Það ætti að láta alla skóla fá meiri leiktæki og hafa frítt í strætó fyrir 18 ára og yngri og búa til klúbb handa krökkum 18 ára og yngri."
Drengur

„Mér finnst að stjórnmálamenn hugsa bara um það sem þeim finnst mikilvægt og hugsa ekki um að það eiga margir bágt í þessum  heimi.  ... Ég á samt ekkert bágt, ég er í stuði."
Stúlka

„Ef mamma manns og pabbi myndu deyja, myndir þú þá sjá um börnin og finna heimili handa þeim?"
12 ára stúlka

„Má maður ekki gista heima hjá kærastanum sínum þegar maður er orðinn 16 ára?"
16 ára stúlka

„Ef foreldrar mínir reka mig að heiman eða "bjóða" mér það get ég krafist þess að fá einhverja fjárhagsaðstoð frá þeim?"
15 ára stúlka

„Mér finnst að foreldrar ættu að hugsa tilbaka og spyrja sjálfa sig “hvernig var ég”?"
15 ára stúlka

„Ég get ekkert talað við mömmu mína afþví að hún skilur mig bara ekkert og hún stendur alltaf með honum !!! og mér finnst þau hata mig !!!"
14 ára stúlka

„[Það] er mjög ánægjulegt að finna það að hlustað er á mig og að skoðanir mínar skipta máli ekki síður en skoðanir þeirra fullorðnu."
15 ára drengur

"Þó að sumir líti á alla unglinga sem hugmynda- og menningarsnauða letingja er það langt í frá að það sé svo."
15 ára drengur

„Eftir að foreldrar mínir skildu förum við systkinin til pabba aðra hverja helgi.  Er ekkert sem segir að við eigum að hafa herbergi eða einhvern stað til að vera á hjá honum?  Við þurfum að sofa í stofunni hjá kærustunni hans."
15 ára stúlka

„Hæ hæ hvað má ég vera gömul til að ráða því hvort ég búi hjá mömmu minni eða pabba, er á 15. ári."
14 ára stúlka

„Getur barn óskað eftir að fá aðra forráðamenn en foreldra sína? Hver fær þá forræði yfir barninu?"
17 ára stúlka

„Mamma mín og pabbi hafa lifað næstum því alveg sátt allt sitt líf. Á laugardaginn sá ég pabba að kela með annari konu.  Ég veit ekki hvernig ég á að segja mömmu þetta, ég vil heldur ekki að mamma og pabbi skilji og það sem en verra er:  Ég hef ekki sofið mikið síðan..."
14 ára drengur

„Það er verst að þurfa að bíða eftir kennaranum fyrir utan í vondu veðri."
Stúlka í 7. bekk

„Ég kvíði aldrei fyrir prófi.  Ég hugsa bara: Ef ég næ því er það bara gott mál en ef ég næ því ekki geri ég bara betur næst!!"
15 ára stúlka

„Það mætti hafa betri þjónustu í skólum fyrir fatlaða krakka og þá sem þurfa meiri hjálp svo þau geti verið á svipuðu róli og jafnaldrar þeirra."
14 ára drengur

„Á leiðinni heim hugsa ég um margt, heimanámið, vini mína og hvað ég eigi að gera í dag."
Stúlka í 7. bekk

„Gangaverðirnir eru alltaf inni að tala saman."
Stúlka í 5. bekk

„Ég fæ prófkvíða.  Ég kvíði oft fyrir ef það er mjög erfitt próf.. það gerist ekkert alltaf bara í nokkrum námsgreinum sem ég er slök í;)!  til dæmis stærðfræði!!.. Sérstaklega stærðfræði skoh..;)"
Stúlka

„Mér finnst óréttlát að bara þeir sem eru í 8.-10. bekk fá að vera inni í frímínutum en ekki þeir sem eru í 1.-7. bekk. Stundum er vont veður og þá má bara 8-10 bekkur ráða hvort þau eru inni eða úti."
11 ára stúlka

„Okkur er sagt að bera virðingu fyrir kennaranum, sem er sjálfsagt, en það er stundum mjög erfitt ef sú virðing er ekki gagnkvæm."
14 ára stúlka

„Maður lærir alltaf meira og meira, ég fæ t.d. háar einkunnir núna af því að ég fylgist svo vel með."
Stúlka í 7. bekk

„Það mætti vera meiri tungumálakennsla í skólanum."
Drengur í 8. bekk

„Það besta við skólann minn eru kennararnir.  Þeir eru mjög gáfaðir (auðvitað;) einnig lýsa þeir hlutunum mjög vel fyrir manni.  Umhverfið er frábært og ég hef ekki verið vör við neitt einelti í nokkur ár.  Því sem ég myndi helst vilja breyta er að minnka kliðinn í skólastofunni svo maður getur nú fengið meiri frið til þess að læra betur.  Það er nú stundum svoítið þungt loft í skólastofunni minni en aðstaðan er mjög góð."
Stúlka

„Sko, er það réttlætanlegt að mér sem líður ALVEG HRÆÐILEGA SKELFILEGA ILLA (alveg einsog í helvíti).  Er það réttlætanlegt að ég verð bara að vera svona og þess vegna bara í lagi að ég drepi mig, BARA vegna þess að ég er EKKI orðin 18 ára og foreldrar mínir segja að það sé EKKERT að mér nema að þetta sé bara ATHYGLISSÝKI í mér !!!!"
17 ára stúlka

„Það versta við skólann er að á elsta stigi þurfa allir að vera samferða í bókunum."
Stúlka í 8. bekk

„Matarhléin eru skemmtileg því þá get ég talað við krakkana í hinum bekknum og maturinn er alltaf góður."
Stúlka í 6. bekk

„Bekkurinn sem ég lenti í er alger snilld.  Mér finnst að bekkirnir ættu að fara oftar saman í útileiki."
Drengur í 6. bekk

„Við fáum ekki bekkjarkvöld í 6. bekk, en ég hef aldrei farið á þannig.  En ég held að eineltið sé það versta og ofbeldið á yngri krökkunum."
Drengur í 6. bekk

„Skólafélagarnir eru líka mjög fínir en sumir strákarnir eru með læti og eru að henda skólatöskum annara um alla stofuna, henda pennaveskjum og sprauta safa, taka eigur manns og setja í annara manna töskur. Mér finnst alltaf svolítið kalt í skólanum og í skólastofunum."
Stúlka í 6. bekk

„Frímínúturnar eru eins og þær eiga að vera; góður sófi og slökun.  Það á að vera svona – þá er ég allavega ánægð."
15 ára stúlka

„Ég er mjög viðkvæm og það er auðvitað best að stríða krökkum sem eru viðkvæmir og fara að gráta; ég fór alltaf að gráta út af öllu."
12 ára stúlka

„Er það sjálfsagt að foreldrar mínir slái mig utanundir "kinnhest" ef ég geri eitthvað af mér?"
14 ára stúlka

„Mér hefur verið nauðgað og gefið dóp, hvað get ég gert?"
Stúlka

„Stóru krakkarnir eru alltaf að lemja mann."
10 ára drengur

„Í stuttu máli hefur mig nokkrum sinnum langað að drepa mig og einu sinni reynt það!  Þoli ekki mömmu mína og vill flytja til pabba míns."
14 ára stúlka

„Það er þægilegt að vera í skólastofunni vegna þess að þá er enginn að stríða mér."
Drengur í 7. bekk

„Hvernig veit maður að maður sé þunglyndur?"
13 ára stúlka

„Hafið þið hugleitt af hverju offita sé vandamál?  Krakkarnir hafa einfaldlega ekki tíma til að hreyfa sig.  Þau eru að drukkna í heimavinnu."
12 ára stúlka

„Allir halda að krakkar séu heimskir og vitlausir, það hlustar enginn á okkur og öllum virðist sama. Það er ekki fyrr en við reynum að drepa okkur (af þeira völdum) sem fullorðna fólkið vill hlusta. Okkur finnst þau ekki hlusta á okkur þegar við tölum saman, allir að horfa á sjónvarpið og enginn nennir að tala... samt segir fólk að við viljum ekki tala, það er út af því að þegar við viljum tala þá eru þau ekki tilbúin að ræða málin... þetta líf er líka erfitt fyrir okkur, það er ekki bara til unglingavandamál heldur fullorðinsvandamál útaf því að þau skilja okkur ekki því að þau eru annað að gera þegar við reynum að tjá okkur..."
15 ára stúlka

„Ég á við vandarmál að stríða. Það eru allir að segja að ég sé með litið tippi. Hvað á ég að gera takk fyrir???"
13 ára drengur

„Ég varð fyrir kynferðislegri misnotkun þegar ég var barn. Sá sem misnotaði mig er í minni nánustu fjölskyldu. Vegna þessa hefur mér liðið illa og það hefur ekki liðið sá dagur sem ég hugsa ekki um þetta."
Stúlka

„Afi minn var að deyja og annar. Og það var fyrir nánast fjórum mán. ég get alls ekki náð mér eftir það.  Ég er alltaf að hugsa hvernig ég eigi að drepa mig."
11 ára stúlka

„Hvaða rétt hefur stelpa sem er 17 ára í sambandi við fóstureyðingu?  Foreldrar hennar vilja að hún fari í fóstureyðingu en ekki ég og hún.  Hver ræður?"
17 ára drengur

„Foreldrar mínir segja að það sé ekkert að mér nema að þetta sé bara athyglissýkií mér !!!! en ég held að það sé eitthvað meira en lítið að mér... því eg er með allar geðsjúkdómategundirnar, mikið þunglyndi , mjög mikið af ofsjónum og ofheyrnum (sem hreinlega ofsækja mig) og alltaf grátandi."
17 ára stúlka

„Er ég er of ung til að verða mamma.  Ég er ekki ólétt, en ég er búin að fylgjast með öðrum mömmum og það gengur bara vel. En er ég tilbúin, ég er ekki mikið í kringum börn en ég vil samt eignast börn til að verða sem venjulegust. "
16 ára stúlka

„Ég er að hugsa hvaða rétt ég hef.  Ég er 16 ára og neyti tóbaks.  Ég hef haldið þessu leyndu fyrir foreldrum mínum í hálft ár eða síðan ég byrjaði.  Í dag fór mamma að leita í herberginu mínu án míns leyfis og fann þar neftóbaksdollur og varð brjáluð og pabbi líka.  Einverntíma heyrði ég að það væri hægt að kæra fólk fyrir að leita í eigum annara.  Er það rétt hjá mér.  Hvað ráðleggur þú mér að gera annað en að hætta að nota tóbak það er bara ekki möguleiki."
16 ára drengur

„Því fleiri sem reglurnar verða því pirraðari verðum við unglingarnir og viljum brjóta meira af okkur."
15 ára stúlka

„Er heimilisofbeldi ef foreldrar manns slá mann á munninn?"
11 ára stúlka

„Hvert get ég leitað til að láta vita að stelpa sem ég þekki er byrjuð að nota dóp?  Ég vil segja einhverjum frá því til að reyna að hjálpa henni að komast út úr þessu áður en hún sekkur dýpra í þetta rugl..."
16 ára stúlka

„Hvað á ég að gera ef ég á von á barni en sjálf er ég barn?"
15 ára stúlka

„Mér finnst að það ættu að vera fleiri kaffihús fyrir unglinga þar sem þeir geta fengið sér kók eða kakó og spjallað eins lengi og útivistartíminn leyfir."
16 ára drengur

„Hér úti á landi höfum við líka ekki sömu aðstöðu og þeir sem búa í Reykjavík til að hanga niðri í miðbæ og paufast á rúntinum með einhverjum fyllibyttum eftir að skemmtistöðnum er lokað."
15 ára börn

„Það þarf að auka skemmtanir (diskótek) fyrir unglinga!!!!!!!!"
14 ára drengur

„Ég á heima í lengst í burtu frá öllu og öllum svo að það er ekkert að gera hér. Ég legg til að það sé SKYLDA í öllum bæjum að það verði að vera félagsmiðstöð!!!!! Allir krakkarnir hér vilja það!!!"
13 ára stúlka

„Mér finnst að maður ætti að banna að tala ljótt um aðra inn á Netinu eða á MSN."
Drengur

„Það er ekki nægilegt framboð af menningu fyrir ungt fólk. Mér finnst vanta meiri tækifæri til að leika sé bara."
Drengur

„Mér finnst vanta meira af stöðum sem fólk á aldrinum 16-18 ára getur hist og skemmt sér á.  Allt er bannað innan átján fyrir utan skólaskemmtanir.  Vantar eitthvað sem fólk getur hist og hlustað á músík og spilað, dansað og fleira."
16 ára drengur

„Vinkonur mínar eru svo oft að ljúga að mér og hunsa mig og þeim er alveg sama um það.  Þær leika sér og vilja ekki hafa mig með."
Stúlka

„Þeir sem eru heppnir komast í vel launaða vinnu og þess vegna finnst mér algjört bull að stytta sumarfríið því við þurfum á þessum peningum að halda."
15 ára stúlka

„Stundum er ég hræddur í skólabílnum, ef það er vont veður og sleipt."
10 ára drengur

„Hefur pabbi minn leyfi til að vekja mig á morgnana og láta mig bera út þegar ég á að fara í skólann klukkan 8?"
13 ára stúlka

„Hlustið á okkur og sýnið okkur áhuga.  Það gæti verið eitthvað vit í því, sem við höfum að segja."
13 ára stúlka



12. grein Barnasáttmálans

1. Aðildarríki skulu tryggja barni sem myndað getur eigin skoðanir rétt til að láta þær frjálslega í ljós í öllum málum sem það varða, og skal tekið réttmætt tillit til skoðana þess í samræmi við aldur þess og þroska.
2. Vegna þessa skal barni einkum veitt tækifæri til að tjá sig við hverja þá málsmeðferð fyrir dómi eða stjórnvaldi sem barnið varðar, annaðhvort beint eða fyrir milligöngu talsmanns eða viðeigandi stofnunar, á þann hátt sem samræmist reglum í lögum um málsmeðferð. 

 

 Spurt og svarað

á unglingasíðu

 Spurt og svarað

á barnaasíðu