Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga



6H.is heilsuvefur — Upplýsingavefur fyrir börn, unglinga og foreldra sem byggir á sex hugtökum en þau eru: hollusta, hreyfing, hamingja, hugrekki, hvíld og hreinlæti.
 
ADHD-samtökin — Stuðningssamtök aðstandenda barna með athyglisbrest, ofvirkni, misþroskavandamál og annan þroska- og hegðunarvanda sem rekja má til vanda í miðtaugakerfinu.
 
Ástráður — Félag læknanema um forvarnir gegn kynsjúkdómum og ótímabærum þungunum.
 
Barnaspítali Hringsins — Ýmsar upplýsingar um lífið og starfið á spítalanum.
 
Barnaverndarstofa — Stjórnsýslustofnun sem vinnur að samhæfingu og eflingu barnaverndarstarfs í landinu og annast daglega stjórn barnaverndarmála.
 
Blátt áfram — Verkefni sem felst í því að efla forvarnir vegna kynferðislegs ofbeldis gegn börnum.
 
BUGL, Barna- og unglingageðdeild Landspítalans — BUGL veitir börnum og unglingum með geð- og þroskaraskanir margvíslega þjónustu.
 
CP-félagið — Stuðlar að faglegri umfjöllun og fræðslu um CP ásamt því að efla tengsl fatlaðra, aðstandenda, fagfólks og annarra.
 
Doktor.is — Ýmislegt um heilsu og líðan.
 
Félag íslenskra barnalækna — Markmið félagsins er að efla þróun barnalækninga hér á landi.
 
Foreldrahús— Ráðgjöf og stuðningur fyrir foreldra og börn. Foreldrasamtökin Vímulaus æska starfrækja Foreldrahúsið að Vonarstræti 4b.
 
Forvarnardagur.is — Verkefni sem miðar að því að kynna nokkur heillaráð sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum.
 
Geðhjálp — berst fyrir hagsmunum geðsjúkra og geðfatlaðra og stuðlar að fræðslu um geðraskanir.
 
Geðrækt — fræðslu- og forvarnarverkefni um geðheilsu og áhrifaþætti hennar.
 
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins — starfar á vegum félagsmálaráðuneytis og þjónar fötluðum börnum og ungmennum og fjölskyldum þeirra.
 
Hryggrauf — Upplýsingar um ýmsa þætti sem snerta einstaklinga með hryggrauf, s.s. heilsufar, menntun og félagsþætti.
 
Landlæknir — Landlæknir er ráðunautur ráðherra og ríkisstjórnar um allt er varðar heilbrigðismál.
 
Landssamtökin Þroskahjálp — Vinna að málefnum fatlaðra með það að markmiði að tryggja þeim fullt jafnrétti.
 
Lýðheilsustöð — Hér eru sameinaðar upplýsingar af heimasíðum stofnana sem tilheyra Lýðheilsustöð, þ.e. Árvekni, Manneldisráði, Tóbaksvarnaráði og Áfengis- og vímuvarnaráði.
 
Lögregluvefurinn — Forvarnir, fræðsla og viðbrögð við vímuefnaneyslu og afbrotum ungmenna.
 
Málbjörg — Félag um stam.
  
Neistinn — Styrktarfélag hjartveikra barna.
 
Persona.is — Hér er veittur ókeypis aðgangur að ítarlegum upplýsingum um vandamál sem geta hrjáð mannshugann, lausnir á þeim og leiðir til að vaxa og dafna í lífi og starfi.
 
Sjónarhóll — Upplýsinga- og ráðgjafarmiðstöð. Að Sjónarhóli standa samtök sem láta sig hag langveikra og fatlaðra barna varða.
 
Sjóvá Forvarnahús — Markmiðið með Forvarnahúsinu er að efla og samræma forvarnir í landinu með aðal áherslu á slysavarnir. Forvarnahúsið verður þannig öflugt þekkingarsetur um slysavarnir. Eitt helsta hlutverk Forvarnahússins er að miðla upplýsingum og fræða almenning um slysavarnir.
 
Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna — Sjálfshjálparhópur fjölskyldna barna sem fengið hafa krabbamein.
 
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra — Greiðir fyrir lömuðu og fötluðu fólki, einkum börnum.
 
Tryggingastofnun ríkisins — Sér um framkvæmd almannatrygginga en til almannatrygginga teljast lífeyristryggingar, sjúkratryggingar og slysatryggingar.
 
Umhyggja — Félag til stuðnings sjúkum börnum.
 
Umsjónarfélag einhverfra — Markmið félagsins er að gæta réttar einhverfra í hvers kyns hagsmunamálum.
 
Vímuvarnavikan — Vettvangur félagasamtaka sem vilja leggja forvörnum lið og/eða hafa forvarnir að markmiði starfs síns.
 
Ef þú veist um einhverjar slóðir sem þér finnst að eigi erindi hér, sendu endilega tillögur þínar til vefstjóra.