Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga



Vinna


Réttur til þátttöku - réttur til verndar
Lög og reglur um vinnu barna og unglinga
Vinna barna yngri en 15 ára
Vinna unglinga 15–17 ára
Áhættumat
Vinnutími
Algeng störf
Ráðningasamningar
Launamenn/verktakar
Stéttarfélög
Skatt- og lífeyrisgreiðslur
Skyldur atvinnurekanda
Eftirlit foreldra/forsjáraðila

Hægt er að smella á kaflaheitin til að komast í einstaka kafla.
Með því að smella á kaflaheiti í texta er hægt að komast aftur efst á síðu.

Réttur til þátttöku – réttur til verndar
Máltækið segir að vinnan göfgi manninn og vissulega er jákvætt að börn og unglingar fái tækifæri til þess að kynnast og taka þátt í atvinnulífinu. Sú reynsla sem þau öðlast þar getur reynst góður undirbúningur fyrir frekari þátttöku á almennum vinnumarkaði síðar meir. Hins vegar þarf að gæta sérstaklega að því að þau valdi starfinu, það sé í samræmi við aldur þeirra, líkamlega getu og þroska og þau beri ekki of mikla ábyrgð.

Á síðustu áratugum hefur alþjóðasamfélagið reynt að sporna við barnavinnu og barnaþrælkun í sinni verstu mynd og hefur börnum verið veitt ríkari vernd gegn óhóflegri og jafnvel skaðlegri vinnu í lögum og alþjóðasamningum.

Í 32. gr. Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins nr. 18/1992 segir:

1. Aðildarríki viðurkenna rétt barns til að vera verndað fyrir arðráni og vinnu sem líklegt er að því stafi hætta af eða komið gæti niður á námi þess eða skaðað heilsu þess eða líkamlegan, sálrænan, andlegan, siðferðislegan eða félagslegan þroska.
2. Aðildarríki skulu gera ráðstafanir á sviði löggjafar, stjórnsýslu, félagsmála og menntamála til að tryggja framkvæmd þessarar greinar. Í því skyni, og með hliðsjón af viðeigandi ákvæðum annarra alþjóðlegra löggerninga, skulu aðildarríki einkum:
   a) Kveða á um lágmarksaldursmark eða -mörk til ráðningar í starf.
   b) Setja viðeigandi reglur um vinnutíma og vinnuskilyrði.
   c) Mæla fyrir um viðeigandi refsingar eða önnur viðurlög til að tryggja að ákvæðum greinar þessarar verði framfylgt á virkan hátt.

Auk þess fjalla 34. og 36. gr. samningsins og valfrjáls bókun við hann um sölu á börnum, barnavændi og barnaklám.  Ísland fullgilti Barnasáttmálann árið 1992.  Staðfesting hans felur í sér að Ísland er skuldbundið að þjóðarétti til að virða  og  uppfylla ákvæði samningsins.   Í 3. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar segir jafnframt: „Börnum skal tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst.

Lög og reglur um vinnu barna og unglinga
Um vinnu barna og unglinga undir 18 ára aldri gildir X. kafli laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og reglugerð nr. 426/1999 um vinnu barna og unglinga.  Lögin gilda þó ekki um tilfallandi vinnu eða vinnu sem varir skamman tíma inni á einkaheimilum eða í fjölskyldufyrirtækjum sem hvorki telst skaðleg né hættuleg ungmennum.  Lögin eru byggð á tilskipun Evrópusambandsins nr. 94/33/EB um vinnuvernd barna og ungmenna auk þess sem tekið var tillit til annarra alþjóðasamninga sem Ísland hefur fullgilt og snerta vinnu barna og unglinga. Vinnueftirlitið hefur eftirlit með ofangreindum lögun og reglugerðinni um vinnu barna og unglinga.

Tilgangur laganna er tvíþættur, annars vegar er þeim ætlað að koma í veg fyrir að börn eða unglingar gegni störfum sem reynst geta þeim hættuleg andlega sem líkamlega eða komi niður á menntun þeirra og þroska en hins vegar er þeim ætlað að ýta undir skynsamlega atvinnuþátttöku með því að gefa þeim kost á að stunda vinnu sem er í samræmi við líkamlegan og andlegan þroska þeirra. 

Í lögunum er ungmennum yngri en 18 ára skipt upp í tvo hópa, annars vegar börn yngri en 15 ára sem enn eru í skyldunámi og hins vegar unglinga sem náð hafa 15 ára aldri en eru undir 18 ára aldri og ekki lengur í skyldunámi.

Vinna barna yngri en 15 ára
Almenna reglan er sú að börn í skyldunámi má ekki ráða til vinnu.  Víkja má frá því í eftirfarandi tilvikum:

  • Börn má ráða til þátttöku í menningar- eða listviðburðum og íþrótta- eða auglýsingastarfsemi. Sá sem ræður börn sem ekki hafa náð 13 ára aldri skal afla leyfis frá Vinnueftirliti ríkisins áður en til ráðningar kemur.
  • Börn sem eru 14 ára eða eldri má ráða til vinnu sem er hluti af fræðilegu eða verklegu námsfyrirkomulagi.
  • Börn sem náð hafa 14 ára aldri má ráða til léttari starfa og börn sem náð hafa 13 ára aldri má ráða til léttari starfa í takmarkaðan stundafjölda, svo sem léttari garðyrkju- og þjónustustörf eða önnur hliðstæð störf.

Í IV. viðauka reglugerðar nr. 426/1999 er listi yfir störf af léttara taginu sem 13 ára og eldri mega vinna.  Meðal þeirra er vinna í skólagörðum undir umsjón kennara, létt skrifstofustörf, létt fiskvinnslustörf án véla, sala dagblaða, létt verslunarstörf en þó ekki við afgreiðslukassa.  Í reglugerðinni er tekið fram að ekki sé um tæmandi talningu á störfum að ræða og er það Vinnueftirlitsins að meta hvort starf sé sambærilegt við ofangreinda lýsingu þegar sótt er um leyfi fyrir starfi sem ekki er á listanum.

Vinna unglinga 15–17 ára
Unglinga er almennt heimilt að ráða til vinnu nema um sé að ræða störf við eftirfarandi aðstæður:

  • Vinnu sem líklega er ofvaxin líkamlegu eða andlegu atgervi þeirra.
  • Vinnu sem líklega veldur varanlegu heilsutjóni.
  • Vinnu þar sem hætta er á skaðlegri geislun.
  • Vinnu þar sem fyrir hendi er slysahætta sem gera má ráð fyrir að börn og unglingar geti átti í erfiðleikum með að átta sig á eða forðast vegna andvaraleysis eða skorts á reynslu eða þjálfun.
  • Vinnu sem felur í sér hættu fyrir heilsu þeirra vegna óvenjumikils kulda, hita, hávaða eða titrings.
  • Vinnu þar sem hætta er á ofbeldi eða annarri sérstakri hættu, nema ungmennin starfi með fullorðnum.

Í reglugerð nr. 426/1999 um vinnu barna og unglinga er að finna í viðauka 13 lista yfir hættuleg tæki, verkefni, efni og störf þar sem óheimilt er að ráða unglinga í vinnu.  Heimilt er að víkja frá þessu sé það nauðsynlegt vegna starfsnáms unglinga og þá samkvæmt reglum sem ráðherra setur að fengnum tillögum stjórnar Vinnueftirlits ríkisins.

Áhættumat
Við öll störf ungmenna undir 18 ára aldri skal við val og skipulagningu á vinnu leggja áherslu á að öryggi og andlegu og líkamlegu heilbrigði ungmenna sé ekki hætta búin og að vinna hafi ekki truflandi áhrif á menntun þeirra eða þroska. Þetta segir í 4. gr. reglugerðar um vinnu barna og unglinga. Í 5. gr. er að finna ákvæði um áhættumat:

5. gr. Áhættumat.
Atvinnurekandi skal sjá um að gripið sé til viðeigandi ráðstafana í samræmi við ákvæði 4. gr. á grundvelli mats á þeirri áhættu sem starf getur skapað ungmennum.
Þetta mat skal fara fram áður en ungmenni hefja störf og í hvert sinn sem verulegar breytingar eru gerðar á starfsskilyrðum en við það skulu eftirtalin atriði einkum skoðuð:
a) innréttingar og búnaður vinnustaðar og verkstöðvar;
b) eðli og umfang eðlis-, efna- og líffræðilegra skaðvalda og hve langvarandi þeir eru;
c) lögun, stærð og notkun búnaðar sem tengist starfinu, má þar nefna skaðvalda ýmiss konar, vélar, tæki og áhöld og hvernig þau eru meðhöndluð;
d) skipulag vinnuferla, vinnutilhögunar og vinnuskipulags og samspilið milli þeirra;
e) hvernig ungmenni eru þjálfuð og búin undir starfið.
S
ýni matið að öryggi, líkamlegri eða andlegri heilsu eða þroska ungmennis geti verið stofnað í hættu skal atvinnurekandi sjá til þess að reglulega fari fram viðeigandi skoðun og eftirlit með heilsu ungmenna þeim að kostnaðarlausu. Við mat á áhættu skal sérstaklega taka tillit til hættunnar sem stafar af ungum aldri, skorts á reynslu og meðvitund um hættur starfsins ásamt því að ungmennin eru ekki fullþroska. Við mat á varúðarráðstöfunum skal jafnframt taka tillit til líkamlegra, lífrænna, efnafræðilegra og sálrænna áhrifa sem ungmenni geta orðið fyrir til lengri eða skemmri tíma vegna vinnunnar.
Atvinnurekanda er heimilt að leita umsagnar Vinnueftirlits ríkisins um öryggi vinnustaðarins.

Börn,unglingar og foreldrar þeirra ættu að geta fengið að sjá áhættumat fyrir þau störf sem stendur til að ráða viðkomandi í.

Vinnutími
Í lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum nr. 46/1980 er fjallað um vinnutíma barna og unglinga og eru settar ákveðnar takmarkanir á hann. Takmarkanir miðast við virkan vinnutíma eða vinnustundir að frádregnum neysluhléum. Takmarkanir eru eftirfarandi:

  • Sé vinnan hluti af fræðilegu eða verklegu námsfyrirkomulagi mega börn vinna 8 stundir og 40 vinnustundir á viku.
  • Fari vinna fram á starfstíma skóla en utan skipulegs skólatíma mega börn vinna tvær stundir á skóladegi og 12 stundir á viku. Daglegur vinnutími má aldrei vera lengri en 7 stundir en þó mega 15 ára vinna 8 stundir.
  • Vinna á þeim tíma sem skóli starfar ekki má ekki vera lengri en 7 stundir á dag (8 stundir fyrir 15 ára).
  • Vinna af léttara tagi sem unnin er af börnum sem ekki eru lengur í skyldunámi má ekki vera lengri en 7stundir á dag og 35 stundir á viku.
  • Virkur vinnutími unglinga takmarkast við 8 stundir á dag og 40 stundir á viku.
  • Ef daglegur vinnutími barna eða unglinga er lengri en 4 tímar á dag eiga þau rétt á að minnsta kosti 30 mínútna hléi á hverjum degi.
  • Börn eiga rétt á a.m.k. 14 stunda samfelldri hvíld á hverjum sólarhring. Unglingar skulu fá minnst 12 stunda samfellda hvíld.
  • Börn og unglingar eiga rétt á tveggja daga hvíld (helst samfellt) á hverju sjö daga tímabili.
  • Óheimilt er að láta börn vinna á tímabilinu frá kl. 20 til kl. 6 og unglinga á tímabilinu frá kl. 22 til kl. 6.

 Almennar reglur
um vinnutíma

 Börn 1314 ára

Börn 15 ára í skyldunámi 

Unglingar 1517 ára 

 Á starfstíma skóla

2 klst. á dag
12 klst. á viku

2 klst. á dag
12 klst. á viku

8 klst. á dag
40 klst. á viku

 Utan starfstíma skóla

 7 klst. á dag
35 klst. á viku

8 klst. á dag
40 klst. á viku

8 klst. á dag
40 klst. á viku

 Vinna bönnuð

 kl. 20-6

  kl. 20-6

  kl. 22-6

 Hvíld

14 klst. á sólarhr.
2 dagar í viku

14 klst. á sólarhr.
2 dagar í viku

12 klst. á sólarhr.
2 dagar í viku

Vinnueftirlitið hefur eftirlit með ofangreindum lögum og tekur á móti ábendingum um hugsanleg brot á þeim. Vinnueftirlit veitir engar undanþágur nema samkvæmt 19. gr. reglugerðarinnar:

19. gr.Kvöld- og næturvinna.
Unglingar mega ekki vinna frá kl. 22 til kl. 6 nema annað sé sérstaklega tekið fram, þó aldrei milli kl. 24 og kl. 4.
Á sjúkrastofnunum eða á sambærilegum stofnunum mega unglingar vinna án takmörkunar á tímabilinu 24 til 4 enda sé gætt ákvæða 21. og 22. gr.
Í bakaríi má vinna frá kl. 4.
Í söluturnum og söluskálum, á skyndibitastöðum, myndbandaleigum, bensínstöðvum og sambærilegum stöðum mega unglingar vinna til kl. 24 að kvöldi. Við vinnu á grundvelli undanþágu þessarar skal sérstaklega gæta að ákvæði 13. gr.
Í kvikmyndahúsum, leikhúsum og við sambærilega starfsemi mega unglingar aðstoða við sýningar til kl. 24.
Á veitingastöðum, hótelum og við svipaða starfsemi mega unglingar vinna til kl. 24.

Algeng störf barna og unglinga 

  • Vinnuskólinn
    Í flestum sveitarfélögum landsins er starfræktur sk. vinnuskóli fyrir 13-15 ára börn á sumrin. Hugmyndin með rekstri vinnuskólanna er sú að gefa nemendum í efstu bekkjum grunnskólans færi á því að vinna ýmis störf á vegum sveitarfélaganna undir handleiðslu sérstakra flokksstjóra og er mikil áhersla lögð á að kenna góð vinnubrögð, ábyrgð í starfi o.fl. Ýmiss konar fræðslu er víða bætt inn í starfið, s.s. um meðferð fjármuna, fordóma og svo mætti áfram telja.
    Margir unglingar taka sín fyrstu skref á vinnumarkaðinum í vinnuskólanum. Almennar reglur um vinnu barna og unglinga eiga að sjálfsögðu við um vinnu á vegum vinnuskóla sveitarfélaga. Auk þess er fjallað um slík störf í VI. kafla reglugerðar um vinnu barna og unglinga nr. 426/1999. Þar kemur m.a. fram ákveðin takmörkun á því hvers konar störf unglingar á mismunandi aldri mega vinna og fylgir upptalning á þeim störfum í viðaukum með reglugerðinni. Eins kemur fram að atvinnurekandi skuli við ráðningu unglinga undir 15 ára aldri eða þeirra sem eru í skyldunámi kynna foreldrum eða lögráðamanni ráðningarkjör, þar með talið lengd vinnutíma sem og tíðni óhappa og slysa, sem hugsanlega tengjast starfinu, og þær ráðstafanir sem hafa verið gerðar til að auka öryggi og heilbrigði barna við störf.
  • Vinna í verslun og þjónustu
    Í dag er orðið mjög algengt að unglingar vinni í verslunum og við ýmis þjónustustörf. Verslanir eru oft opnar lengi og í ýmsum þjónustustörfum, s.s. á veitingastöðum og hótelum er opið fram á nótt. Mikilvægt er að fylgst sé vel með því að farið sé eftir reglum um leyfilegan vinnutíma barna og unglinga í þessum störfum og eins reglum um lágmarkshvíld og rétti til hlés á vinnu en þær reglur er að finna hér að framan.
    Fram kemur í viðauka IV. sem fylgir reglugerð um vinnu barna og unglinga nr. 426/1999 að 13 og 14 ára unglingar megi vinna létt störf í sérverslun og stórmörkuðum en undanskilin er vinna við greiðslukassa. Unglingar verða því að vera orðnir 15 ára svo að þeir megi vinna á kassa í verslun. Einnig er mikilvægt að benda á að börn og unglingar undir 18 ára aldri mega ekki afgreiða tóbak og áfengi.
  • Barnagæsla
    Eitt algengasta starf barna og unglinga í gegnum tíðina er barnagæsla. Víða má sjá auglýsingar í verslunum þar sem foreldrar óska eftir börnum/unglingum til að gæta barna sinna eða börn/unglingar óska eftir að gæta barna. Í IV. viðauka reglugerðar um vinnu barna og unglinga nr. 426/1999 er barnagæsla ekki meðal þeirra starfa sem talin eru upp sem störf af léttara taginu sem 13 og 14 ára börn mega vinna og hafa því vaknað spurningar við hvaða aldursmark skuli miða. Það er auðvitað endanleg ákvörðun foreldra að meta hverjum þau treysta til þess að gæta barna sinna en gott er að styðjast við úttekt Vinnueftirlitsins (sem birtist á heimasíðu þess) þar sem komist er að þeirri niðurstöðu að það að bera ábyrgð á lífi og líðan lítilla barna sé mjög ábyrgðarmikið starf sem getur valdið þeim sem ekki eru búnir að taka út fullan þroska of miklu andlegu álagi. Komi eitthvað fyrir barnið er ábyrgðin gífurleg. Slys á heimilum eru meðal algengustu slysa á Íslandi og verða þau flest í aldurshópnum 0-4 ára. Í samræmi við þetta telur Vinnueftirlitið að barnagæsla geti ekki talist starf af léttara taginu og því sé ekki heimilt að ráða yngri en 15 ára til að starfa við barnagæslu.
    Umboðsmaður barna mælir jafnframt með því að foreldrar leyfi börnunum að njóta æskunnar – í öruggum höndum þeirra sem valda því að gæta þeirra. Ekki ætti að fela barni að gæta annars barns nema undir eftirliti fullorðinna. Vinna unglinga getur verið uppbyggjandi og góður undirbúningur fyrir lífið en hins vegar geta of erfið og ábyrgðarmikil störf valdið þeim skaða. Sjá gátlista Árvekni á vefsvæði Lýðheilsustöðvar og upplýsingar um námskeið Rauða krossins, Börn og umhverfi.

Ráðningarsamningar
Milli launamanns og atvinnurekanda er alltaf í gildi ráðningarsamningur þar sem launamaður samþykkir að vinna fyrir atvinnurekandann sem á móti greiðir honum laun o.s.frv.  Þar sem samningar eru ekki formbundnir á Íslandi getur ráðningarsamningur verið jafnt munnlegur sem skriflegur.  Rétt er að benda á að öll sönnunaratriði eru mun auðveldari ef gerður hefur verið skriflegur ráðningarsamningur þar sem m.a. kemur fram hvenær viðkomandi hóf störf, hver launakjör hans eru o.s.frv.

Ráðningarsamningur verður að vera í samræmi við kjarasamning og ákvæði í ráðningarsamningi um lakari rétt launamanns eru ógild samkvæmt 1. gr. laga um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda nr. 55/1980.

Eftirfarandi atriði er mikilvægt að komi fram í ráðningasamningi:

  • Dagsetning, nöfn aðila, heimilisföng, kennitala.
  • Menntun, starfsreynsla, áunnin réttindi frá fyrri atvinnurekanda.
  • Starfsheiti, hæfniskröfur, starfslýsing.
  • Starfstími, upphaf, lengd, reynslutími, hvort ráðning er tímabundin. 
  • Vinnutími, hvort vinnutími er sveigjanlegur, aukahelgidagar, yfirvinna.
  • Skipunarvald, undir stjórn hvers unnið er, þagnarskylda.
  • Laun, föst laun, launabreytingar, hvernig yfirvinna er reiknuð, álagstímabil, yfirborgun, hlunnindi, bílapeningar.
  • Gjalddagi launa og greiðslufyrirkomulag.
  • Orlof, hvernig með skuli fara á fyrsta ári, ákvörðun um orlof.
  • Reglur um tilkynningar á veikindum eða öðrum vinnuhindrunum, hvenær þörf er á læknisvottorði.
  • Lífeyrissjóður og stéttarfélag.
  • Samningsslit, uppsagnarfrestur, reglur um skriflega uppsögn.
  • Tilvísun í lög og kjarasamninga.

Sérstakar reglur gilda um ráðningarsamninga milli iðnnema og iðnfyrirtækis eða iðnmeistara.  Þær reglur er að finna í 28. gr. laga um framhaldsskóla nr. 92/2008 og reglugerð um vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað nr. 698/2009.

Launamenn/verktakar
Mjög  mikilvægt er að skýrt komi hvernig ráðningarsambandi barns eða unglings og atvinnurekanda er háttað, þ.e. hvort barn eða unglingur er launamaður eða verktaki, þar sem mjög ólíkar reglur gilda um þessa tvo flokka.  Réttarstaða verktaka er mjög ólík réttarstöðu launamanns, eftirfarandi eru nokkur dæmi um þann mun sem er á réttarstöðunni:

  • Verktakar njóta ekki þeirra lágmarkskjara sem samið er um á vinnumarkaði.
  • Verktakar fá ekki laun fyrir viðurkennda frídaga.
  • Verktakar fá ekki greitt orlof, desemberuppbót eða orlofsuppbót.
  • Verktakar eiga ekki rétt á launum í veikindatilfellum og eru ekki slysatryggðir.
  • Verktakar þurfa sjálfir að standa skil á 10% launa til lífeyrissjóðs.
  • Af þessu má sjá að réttindi barna og unglinga eru mjög skert séu þau ráðin sem verktakar en ekki launamenn.

Stéttarfélög
Stéttarfélag er félag sem stofnað er í þeim tilgangi að gæta hagsmuna félagsmanna fyrst og fremst gagnvart atvinnurekendum.  Réttur manna til að ganga í stéttarfélög telst til grundvallarmannréttinda og er hann tryggður í ýmsum alþjóðlegum sáttmálum, sem Ísland hefur staðfest.   Í lögum um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80/1938 er fjallað um réttinn til að stofna stéttarfélög og þar kemur fram að allir í hluteigandi starfsgrein eigi rétt á að tilheyra stéttarfélagi.  Mjög mikilvægt er að börn og unglingar viti hvaða stéttarfélagi þau tilheyra og að dregið sé af launum þeirra félagsgjöld og staðið skil á þeim greiðslum til viðkomandi stéttarfélags.  Aðild að stéttarfélagi er mjög mikilvæg því ýmis fríðindi og styrkir fylgja slíkri aðild og eins er hægt að leita til stéttarfélaga með ýmis hagsmuna- og réttindamál sem upp geta komið.

Skatt- og lífeyrisgreiðslur
Sérstakar reglur gilda um skattgreiðslur barna 15 ára og yngri en þegar börn verða 16 ára greiða þau skatt eftir almennum reglum og byrja einnig að greiða í lífeyrissjóð.  Eftirfarandi reglur gilda um skatt- og lífeyrisgreiðslur barna og unglinga.

  • Börn 15 ára og yngri greiða 6% tekjuskatt ef laun þeirra fara yfir ákveðið frítekjumark. Er skatturinn talinn fram á skattskýrslu foreldra. Sjá nánar lög  90/2003 um tekju- og eignaskatt.
  • Börn fá skattkort í byrjun þess árs sem þau verða 16 ára og fara að greiða skatta eftir sömu reglum og fullorðnir, þ.e. reiknuð er staðgreiðsla af launum og frá henni dreginn persónuafsláttur.
  • Á vef ríkisskattstjóra undir liðnum skólavefur er að finna hagnýtar upplýsingar ásamt margvíslegum fróðleik fyrir 16 ára og eldri um skattgreiðslur, framtal, lífeyrissjóði, barna- og vaxtabætur o.fl.
  • Börn byrja að greiða í lífeyrissjóð næstu mánaðamót eftir 16 ára afmælisdaginn. Sjá nánar lög nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

Skyldur atvinnurekanda
Í lögum og reglugerðum sem fjalla um vinnu barna og unglinga eru lagðar ýmsar skyldur á atvinnurekendur í samskiptum þeirra við börn undir 18 ára. Þessar skyldur koma til viðbótar þeim almennu skyldum sem atvinnurekendur bera gagnvart öllum launþegum.  Þær skyldur sem atvinnurekandi ber gagnvart börnum og unglingum eru þessar helstar:

  • Hann skal gera ráðstafanir sem tryggja börnum og unglingum öryggi og heilbrigði á vinnustað.
  • Honum ber að tryggja að ungmenni fái fullnægjandi kennslu og leiðbeiningar þannig að vinnan sé ekki hættuleg öryggi þeirra og heilsu.
  • Vinnan skal fara fram undir viðeigandi eftirliti einstaklings sem orðinn er 18 ára og hefur nægilega innsýn í eðli vinnunnar.
  • Honum ber að kynna foreldrum eða forsjáraðilum barna hugsanlega áhættu í starfi og allar ráðstafanir sem gerðar eru til að tryggja öryggi þeirra.

Eftirlit foreldra/forsjáraðila
Foreldrar og forsjáraðilar barna og unglinga hafa einnig ákveðnum skyldum að gegna þegar barnið eða unglingurinn fer út á vinnumarkaðinn. Hér er fyrst og fremst um ákveðið eftirlits- og leiðbeiningarhlutverk að ræða og má leiða þá skyldu af því hvað felst í því að fara með forsjá barns.

  • Foreldrar hafa eftirlitsskyldu með börnum sínum þegar þau fara á vinnumarkað.
  • Foreldrar eiga að kynna börnum sínum réttindi á vinnumarkaði áður en sótt er um starf. Á vef ASÍ og Starfsgreinasambandsins, www.rettindi.is, er að finna grunnupplýsingar um vinnumarkaðinn, t.d. hvað er stéttarfélag, kjarasamningar, ráðningarsamningur, launaseðlar, greiðslur í lífeyrissjóð, laun vegna veikinda eða slysa, uppsagnarfrest o.fl.  Þar er jafnframt hægt að nálgast bækling sem heitir Láttu ekki plata þig og geymir hagnýtar upplýsingar um réttindi ungmenna á vinnumarkaðnum.
  • Samþykki foreldra/forsjáraðila þarf til að ráðningasamningur barns undir 18 ára aldri sé skuldbindandi fyrir barnið. Þessa skyldu má leiða af 76. gr. lögræðislaga nr. 71/1997 en þar segir í 1. mgr. að löggerningar ólögráða manns, sem hann hafði ekki heimild til að gera, bindi hann ekki. Í athugasemdum sem fylgdu frumvarpi laganna segir að greinin eigi einnig við um vinnusamninga ósjálfráða manna. Það er sérstaklega brýnt að skýrt komi fram á ráðningarsamningi hvort um er að ræða  verktaka- eða launþegavinnu þar sem ólíkar réttarreglur gilda um hvorn hóp fyrir sig.
  • Æskilegt er að foreldrar fari yfir launaseðla með börnum sínum og kenni þeim að lesa úr þeim og jafnframt að kanni hvort ekki sé allt með felldu.