Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga



Öryggi og slysavarnir

Réttur til verndar
Umferðin
Heimilið
Leikföng

Skóli og leiksvæði
Sund- og baðstaðir
Slysavarnir barna
Ábyrgð hinna fullorðnu

Hægt er að smella á kaflaheitin til að komast í einstaka kafla.
Með því að smella á kaflaheiti í texta er hægt að komast aftur efst á síðu.

Réttur til verndar
Öll börn eiga rétt á að búa  við gott  og öruggt  umhverfi og í flestum menningarsamfélögum telst það bæði sjálfsagt og eðlilegt að standa vörð um líf og heilsu barna. Á síðustu áratugum hefur í auknum mæli verið lögð áhersla á rétt barna til að búa við örvandi en um leið örugg uppvaxtarskilyrði. Aukin tæknivæðing og hraði samfélaga nútímans rennir einnig stoðum undir kröfuna um að þessi réttindi séu virt. Til að geta verndað börnin og fyrirbyggt slys er mikilvægt að þekkja líkamlega getu barna og þroskastig. Á vefsíðu Árvekni –  slysavarna barna á Lýðheilsustöð er að finna góðar upplýsingar sem vert er að kynna sér: Þroski og geta barna. 

Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna fjallar m.a. um rétt barna til öryggis, heilsuverndar og hæfra umsjónaraðila. Í 3. grein Barnasáttmálans segir:

Það sem barni er fyrir bestu skal ávallt hafa forgang þegar félagsmálastofnanir á vegum hins opinbera eða einkaaðila, dómstólar, stjórnvöld eða löggjafarstofnanir gera ráðstafanir sem varða börn.
Með hliðsjón af réttindum og skyldum foreldra eða lögráðamanna, eða annarra sem bera ábyrgð að lögum á börnum, skuldbinda aðildarríki sig til að tryggja börnum þá vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst, og skulu þau í því skyni gera allar nauðsynlegar ráðstafanir á sviði löggjafar og stjórnsýslu.
Aðildarríki skulu sjá til þess að stofnanir þar sem börnum skal veitt umönnun og vernd starfi í samræmi við reglur sem þar til bær stjórnvöld hafa sett, einkum um öryggi, heilsuvernd og fjölda og hæfni starfsmanna, svo og um tilhlýðilega yfirumsjón.

Í 24. gr. Barnasáttmálans er lögð sú skylda á herðar aðildarríkjum sáttmálans að sjá svo um að allir, einkum þó börn og foreldrar, séu vel upplýstir um almennt öryggi barna ekki síst slysavarnir þeirra. Einnig að börn og foreldrar eigi aðgang að fræðslu, m.a. í slysavörnum. Í þessu ákvæði er lögð áhersla á ábyrgð sem hinar ýmsu stofnanir samfélagsins bera á sviði slysavarna.

Ísland fullgilti Barnasáttmálann árið 1992. Staðfesting hans felur í sér að Ísland er skuldbundið að þjóðarétti til að virða og uppfylla ákvæði samningsins. Í 3. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar segir jafnframt: „Börnum skal tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst.” Ákvæði um öryggi og slysavarnir barna er að finna í ýmsum lögum, reglugerðum og reglum. Hér í köflunum að neðan er skýrt frá þeim helstu. Auk þess er þar að finna fróðleik og leiðbeiningar frá ýmsum fagaðilum eins og Árvekni –  slysavörnum barna hjá Lýðheilsustöð, Umferðarstofu, Neytendastofu og Umhverfisstofnun.

Umferðin
Börn eiga erfitt með að meta hraða, fjarlægð og hvaðan hljóð berast. Þau eiga erfitt með að setja sig í spor annarra og átta sig á hvað ökumenn bíla hyggjast gera. Eins eiga þau erfitt með að sjá aðstæður í heild eða samhengi á milli smáatriða. Ung börn eiga sérstaklega erfitt með að einbeita sér að mörgum atriðum í einu. Þar sem börn sjá ekki vel í kringum sig er mikilvægt að þau sjáist vel. Þegar börn eru á ferðinni í umferðinni er því nauðsynlegt að þau beri endurskinsmerki. Víða (t.d. í apótekum) fást endurskinsborðar og -merki. Brýnt er að nota þau bæði á skólatöskur og fatnað barna þannig að þau verði vel sýnileg ökumönnum í myrkrinu. 

Í umferðarlögum nr. 50/1987 er fjallað um atriði sem mikilvægt er fyrir foreldra og forráðamenn barna og unglinga að kynna sér, t.d. hjólreiðar, notkun öryggisbelta og hlífðarhjálma. Hér á vefsíðu landlæknis er að finna mjög góðan pistil um öryggi barna í umferðinni. Einnig er mikilvægt að kynna sér leiðbeiningar um val á öryggisbúnaði fyrir börn í bíl á vefsíðu Lýðheilsustöðvar.

Lögreglustjóri og veghaldari skulu í samráði við viðkomandi skólayfirvöld gera ráðstafanir til að vernda börn gegn hættu í umferðinni á leið þeirra til og frá skóla.

Samkvæmt Aðalnámskrá leikskóla eiga leikskólar að leggja áherslu á reglur sem gilda um umferð og að gæta varúðar á götum. Börn þurfa að kynnast umferðinni og læra hegðunar- og umferðarreglur jafnskjótt og þau hafa þroska til. Einnig er umferðarfræðsla nefnd í Aðalnámskrá grunnskóla sem ein af skyldum grunnskólans.

Umferðarstofa starfrækir Umferðarskólann: Ungir vegfarendur fyrir öll börn á aldrinum 3-7 ára og sendir bækur, hljóðbækur og verkefni heim til þeirra. 

Heimilið
Algengustu slys á börnum á aldrinum 0-4 ára eiga sér stað í heimahúsum. Flest slys á börnum verða á milli kl. 16 og 21, þegar börnin eru farin að þreytast og missa athygli. Mikilvægt er að skoða heimilið með augum barnsins, líkamlegrar getu þess og þroskastigs; hvað getur verið spennandi að opna, toga í, pota í, stinga upp í sig, klifra upp í o.s.frv. Ekki ætti að líta af ungu barni nema tryggt sé að aðstæður og umhverfið sé þannig að það geti ekki farið sér að voða. Oft þarf ekki nema einfaldar breytingar eða tilfæringar til að gera heimilið barnvænna. Með því að þekkja þroska barnsins geta foreldrar verið skrefi á undan barninu í forvörnum. Í bæklingi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar "Er öryggi barna tryggt á þínum heimili?" er að finna gagnlegar upplýsingar um þann búnað sem hægt er að fá til að minnka líkurnar á slysum á börnum í heimahúsum. Einnig er fjallað um ýmsa útbúnað á heimasíðu Slysavarnarfélagsins Landsbjargar sem gera heimilið öruggara fyrir smábörn. Að lokum er gagnlegt að fara yfir gátlista fyrir heimili ungra barna sem Lýðheilsustöð er með á vefsíðu sinni. 

Hér er efni frá ýmsum aðilum sem gagnlegt er fyrir foreldra og aðra sem hafa börn í sinni umsjá á heimilinu að kynna sér:

Leikföng
Leikfang er neytendavara, sem ætluð er börnum að 14 ára aldri til leikja. Óheimilt er að setja leikföng á markað hér á landi ef hætta er á að þau geti stofnað öryggi eða heilsu notenda og annarra í voða þegar þau eru notuð eins og til er ætlast eða fyrirsjáanlegt er miðað við eðlilega hegðun barna. Reglugerð um öryggi leikfanga og hættulegar eftirlíkingar nr. 408/1994 fjallar um þær reglur sem gilda hér á landi um öryggi leikfanga. Í viðauka við reglugerðina eru taldar upp vörur sem ekki falla undir leikfangahugtakið auk þess sem fjallað er um grunnkröfur um öryggi leikfanga, sérstakar hættur, evrópska staðla um leikföng o.fl. Eingöngu er heimilt að setja á markað leikföng sem merkt eru með CE-merki. Á leikfanginu eða í notkunarleiðbeiningum sem því fylgir skal varað við hættu sem fylgir tilteknum leikföngum, ásamt upplýsingum um hvernig skuli brugðist við þeirri hættu. Eftirlit með reglugerðinni um öryggi leikfanga og hættulegar eftirlíkingar hefur Neytendastofa. Á vefsvæði Neytendastofu er að finna ýmsar upplýsingar um öryggi leikfanga. Einnig er að finna góða umfjöllun um leikföng og samantekt um vatnsleikföng, kúta og björgunarvesti á vefsíðu Lýðheilsustöðvar.

Skóli og leiksvæði
Skólinn er vinnustaður barna og því er mikilvægt að nemendur njóti þar öryggis og þeirrar verndar sem velferð þeirra krefst. Samkvæmt Slysaskrá Íslands voru skráð 1751 skólaslys barna á aldrinum 0–14 ára árið 2005. Í 4. mgr. 20. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008 segir að ráðherra setji reglugerð um húsnæði og búnað grunnskóla í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga þar sem nánar skal kveðið á um búnað, slysavarnir og öryggismál í grunnskólahúsnæði og á skólalóðum. Reglugerð nr. 657/2009 um gerð og búnað grunnskólahúsnæðis og skólalóða er sett á grundvelli 20. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008. Þar segir í 4. gr.:

Við hönnun nýs skólahúsnæðis skal taka mið af áætluðum hámarksfjölda nemenda í skólanum. Við skipulag einstakra vinnurýma skal m.a. taka mið af fjölbreyttum kennsluháttum og sveigjanleika í kennslufyrirkomulagi svo sem hvað varðar samkennslu árganga. Sérstaklega skal þess gætt að nægilegt rými sé fyrir hvern nemanda svo hann geti sinnt námi sínu. Þannig skal vinnurými að jafnaði vera a.m.k. 60 fermetrar fyrir 22-28 nemendur, 52 fermetrar fyrir 18-21 nemenda, 44 fermetrar fyrir 13-17 nemendur, 36 fermetrar fyrir 12 nemendur og aldrei minni en 16 fermetrar.

Í reglugerð nr. 655/2009 um starfsemi leikskóla er fjallað í 3. gr. um skólahúsnæði, skólalóð og búnað en samkvæmt fyrrnefndu ákvæði skal húsnæði, skólalóð og allur búnaður uppfylla kröfur laga um leikskóla nr. 90/2008, reglugerðar nr. 655/2009, aðalnámskrá leikskóla og laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Einnig ber að uppfylla kröfur heilbrigðis- og byggingaryfirvalda til slíkra mannvirkja.

Reglugerð um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim nr. 942/2002 gildir fyrir öll leiksvæði innan dyra sem utan, skipulögð fyrir leik barna svo sem í eða við leikskóla, skóla eða gæsluvelli. Hún gildir jafnframt fyrir leiksvæði sem börn eiga greiðan aðgang að eða ætluð eru börnum, svo sem í eða við fjölbýlishús, frístundahús, tjaldsvæði, verslunarhúsnæði og samkomustaði. Reglugerðinni er ætlað að stuðla að öryggi barna og annarra með því að tryggja að leikvallatæki og leiksvæði séu hönnuð, frá þeim gengið og þeim haldið við á öruggan og viðurkenndan hátt. Neytendastofa hefur eftirlit með því að leikvallatæki á markaði uppfylli kröfur um öryggi, en heilbrigðisnefndir sveitarfélaga hafa eftirlit með leiksvæðum og leikvallatækjum í notkun. Gerð er krafa um að rekstraraðili setji upp innra eftirlit á leiksvæðum og er það þrískipt: 1) Reglubundin yfirlitsskoðun sem fram fer daglega eða vikulega, fer eftir álagi og felst í að greina strax hættu vegna skemmdarverka, veðrunar og slits. 2) Rekstrarskoðun á eins til þriggja mánaða fresti felst í verklegri yfirferð og viðhaldi. 3) Árleg aðalskoðun fagaðila þar sem gerð er heildarúttekt á öryggi leikvallatækja, yfirborðsefna og leiksvæðinu öllu. Sjá Handbók um rekstrarskoðun á leiksvæðum barna. Heilbrigðisnefnd er þó heimilt að láta fjarlægja hættuleg leikvallatæki ef ástæða þykir til. Engar reglur eru til um tómstundastarfsemi almennt. Hér á síðu umboðsmanns barna er fjallað nánar um leiksvæði barna og leikföng.

Hér er efni frá ýmsum aðilum sem gagnlegt er fyrir foreldra og aðra sem hafa börn í sinni umsjá að kynna sér:

Sund- og baðstaðir
Reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum nr. 814/2010 gildir um búnað, hreinlæti, aðbúnað, öryggi og mengunarvarnir á sund - og baðstöðum, frá ársbyrjun 2011. Í henni er fjallað um aldurstakmörk gesta í 14. gr. og um kröfur til starfsfólks í 15. gr:

14. gr.
Börnum yngri en 10 ára er óheimill aðgangur að sund- og baðstöðum nema í fylgd með syndum einstaklingi 15 ára eða eldri. Ekki skal leyfa viðkomandi að hafa fleiri en tvö börn með sér, nema um sé að ræða foreldri eða forráðamann barna. Um sundkennslu fer samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla. Dýpi þess svæðis laugar sem notað er við sundkennslu yngri barna en 8 ára og ósyndra skal vera á bilinu 0,70-1,05 m.

Þar sem hópar barna undir 10 ára aldri eru saman komnir skulu ekki fleiri en 15 börn vera í umsjá hvers leiðbeinanda, sem er ábyrgur fyrir hópnum, og gæslumanna lauga. Til að auðvelda kennara eða ábyrgðarmanni hópa að fylgjast með hverju barni skulu hópar barna sérstaklega auðkenndir með áberandi lit á sundhettum, armböndum, vestum eða á annan sambærilegan hátt. Fyllsta öryggis skal gætt þegar komið er með hóp af börnum og unglingum í sund. Forráðamenn hópa kynni sér reglur sund- og baðstaða og aðstoði starfsfólk við gæslu.

Sundkennarar, sundþjálfarar og leiðbeinendur skulu ávallt gæta þess í samvinnu við starfsfólk sund- og baðstaða að nemendur fari ekki að laug á undan þeim. Sundkennarar, sundþjálfarar og leiðbeinendur skulu aldrei víkja frá laug fyrr en allir nemendur/iðkendur yngri en 15 ára eru farnir inn í búnings- eða baðklefa. Þau varúðaratriði sem hvíla á laugarverði hvíla einnig á kennara og þjálfara varðandi nemendur og iðkendur.

Laugar í einkaeigu með takmarkaðan aðgang, svo sem laugar í eigu félagasamtaka sem aðeins félagsmenn hafa aðgang að, eru undanþegnar ákvæði um stöðuga laugargæslu sbr. 1. mgr. 11. gr. Eiganda eða eftir atvikum rekstraraðila slíkra lauga ber að setja skýrar reglur um notkun laugar þegar laugargæsla er ekki til staðar. Ekki skulu færri en tveir syndir einstaklingar fara saman í laugina. Ekki má veita börnum og ósyndum einstaklingum aðgang að laug án fylgdar ábyrgðarmanns. Við þessar aðstæður skal vera til staðar búnaður til skyndihjálpar, sími eða neyðarrofi tengdur lögreglu eða annarri neyðarþjónustu ef óhapp eða slys verður.

Einstaklingum undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna er ekki heimill aðgangur að sund- og baðstöðum.

15. gr.
Eiganda sund- og baðstaðar er skylt að sjá til þess að starfsfólk fái reglulega starfsþjálfun eigi sjaldnar en árlega, þar með talin þjálfun í sérhæfðri skyndihjálp sem sérstaklega er ætluð sund- og baðstöðum og fræðslu um hreinlæti og hollustuhætti. Þeir starfsmenn sem vinna við meðferð tækja, þar með talin mælitæki, búnaðar og efna vegna hreinsunar vatnsins skulu árlega fá viðeigandi þjálfun í meðferð þeirra.

Starfsmenn sem sinna laugargæslu, sundkennarar og sundþjálfarar skulu hafa náð 18 ára aldri og árlega standast hæfnispróf samkvæmt III. viðauka. Prófskírteini skulu vera starfsmönnum heilbrigðiseftirlits aðgengileg.

Haldin skal skrá yfir slys sem verða í eða við laugar og skal hún vera heilbrigðiseftirliti aðgengileg.

Heilbrigðisnefndir sveitarfélaga fara með eftirlit með öryggi leiktækja annarra en vatnsrennibrauta.

Slysavarnir barna
Hér á vefsvæði Árvekni – slysavarna barna á vefsíðu Lýðheilsustöðvar er greint frá helstu ástæðum fyrir slysum barna og hvað hægt er að gera til að koma í veg fyrir köfnun (aðskotahlutir í hálsi), augnskaða, áverka á bein, vöðva og liði, bruna, drukknun, eitranir, fall, klemmda fingur, skurði, rispur og skrámur, slys af völdum dýra, stunguóhöpp og tannskaða. Einnig er vert að benda á umfjöllun um innkaupakerrur og ferðalög með börn útivist.

Eitt af mörgum mikilvægum verkefnum sveitarstjórna er að sjá um slysavarnir í sveitarfélögum.  Í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 segir í 30. gr:

Félagsmálanefnd er skylt, í samvinnu við foreldra, forráðamenn og aðra þá aðila sem hafa með höndum uppeldi, fræðslu og heilsugæslu barna og ungmenna, að gæta velferðar þeirra og hagsmuna þeirra í hvívetna.
Félagsmálanefnd skal sjá til þess að börn fái notið hollra og þroskavænlegra uppvaxtarskilyrða, t.d. leikskóla og tómstundaiðju.  Einnig skal félagsmálanefnd gæta þess að aðbúnaði barna sé ekki áfátt og ekki séu þær aðstæður í umhverfi barna sem þeim stafar hætta af.

Í skipulagsreglugerð nr. 400/1998 segir m.a. í grein 4.2.2: „Skipulagningu íbúðarsvæða skal jafnan hagað þannig að sem minnst umferð verði um húsagötur og að gönguleiðir barna að leiksvæðum, leikskólum og skólum séu öruggar."

Sveitarfélög sinna slysavörnum í formi fræðslu til barna, foreldra og annarra  er starfa með börnum, en ekki síður með úrbótum, þar sem þeirra er talin þörf, til að tryggja betra og öruggara umhverfi fyrir alla íbúa sveitarfélagsins. Að sjálfsögðu ætti það að vera metnaður hverrar sveitarstjórnar að búa sem best að öryggi yngstu íbúa sinna. Mikilvægt er í þessu sambandi að minna á ákvæði 12. gr. Barnasáttmálans en samkvæmt því eiga börn rétt á að segja skoðun sína í öllum málum er þau varða og ber hinum fullorðnu að taka réttmætt tillit til skoðana barna með hliðsjón af aldri þeirra og þroska. Sveitarfélögin ættu að nýta sér reynsluheim barna í þessum efnum sem öðrum og gera þau þannig að virkari þátttakendum innan sveitarfélagsins

Ábyrgð hinna fullorðnu
Börn þarfnast verndar, leiðsagnar og öruggs umhverfis. Foreldrar bera ábyrgð á öryggi barna sinna. Foreldrum ber skylda til að vernda heilsu barna sinna og búa þeim gott og öruggt umhverfi. Það á við á öllum sviðum; í umferðinni, á heimilinu, úti á leiksvæðum, á ferðalögum og í tómstundum. Það fer síðan eftir  ýmsu hversu færir þeir eru til að rækja þessa skyldu sína. Þar geta skipt máli þættir eins og þekking foreldranna, lífsviðhorf þeirra og áhugi, en einnig ýmsir þættir af bæði félagslegum og efnahagslegum toga. Vissulega geta slysin komið fyrir hvar og hvenær sem er  en þau er hægt að forðast með aðgát og réttu vinnulagi. 

Samfélagið allt ber einnig ábyrgð á því að börn búi við góð uppvaxtarskilyrði, þar á meðal öryggi í leikumhverfi sínu. Ýmis lög og reglur eru til sem er ætlað að tryggja að börn njóti réttinda til þess að alast upp í örvandi og öruggu umhverfi. Lög og reglur veita þó ekki nægilegan stuðning nema þeim sé vel og markvisst fylgt eftir í framkvæmd. Framkvæmdin skiptir hér sköpum og ekki síst sá þáttur er lýtur að eftirlitinu sem oft og tíðum er veikasti hlekkurinn hvað þetta varðar. Ábyrgðin er því mikil og liggur hún auk foreldra hjá starfsfólki skóla og leikskóla, lögreglu, veghaldara og sveitarfélaginu.