Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga



Neytendavernd barna

Réttur til upplýsinga – réttur til verndar
Lög og reglur um auglýsingar
Nýjar leiðir í markaðssetningu
Siðareglur um auglýsingar
Markaðssetning í skólum 
 

Þátttaka barna í markaðs- og skoðanakönnunum
Áhrif markaðssetningar á börn
Ábyrgð þeirra fullorðnu
Leiðbeiningar um aukna neytendavernd barna

Hægt er að smella á kaflaheitin til að komast í einstaka kafla.
Með því að smella á kaflaheiti í texta er hægt að komast aftur efst á síðu.

Réttur til upplýsinga – réttur til verndar
Markaðssetning, er beinist að börnum og unglingum, hefur færst í vöxt á síðustu árum. Sífellt er leitað nýrra leiða til að ná til unga fólksins og eru óbeinar auglýsingar og dulbúin markaðssetning nú orðið daglegt brauð hjá börnum og unglingum. Töluvert er um að fólk hafi samband við skrifstofu umboðsmanns barna vegna auglýsinga sem ætlað er að ná til barna og unglinga sem og vegna auglýsinga þar sem börn eru sýnd við óæskilegar aðstæður.

Ekki eru allir á eitt sáttir varðandi markaðssetningu gagnvart börnum og hafa margir þá skoðun að það ætti alls ekki að beina auglýsingum að börnum auk þess sem mörgum þykir of langt seilst í því hvernig börn eru notuð í auglýsingum.  Börnin geta ekki talist upplýstir og sjálfstæðir neytendur vegna áhrifagirni og reynsluleysis auk þess sem þau hafa ekki fjárræði.  Að mati margra eiga börnin rétt á vernd gegn sífelldu áreiti auglýsenda sem gefa þeim misvísandi skilaboð – stundum þvert á það sem uppalendur þeirra eru að vinna að.  Hitt sjónarmiðið er svo að til að verða upplýstir neytendur í framtíðinni þurfa börnin að læra að meta auglýsingar og innihald þeirra.  Það krefst þó þess að uppalendur aðstoði börnin við að vinna úr upplýsingum auglýsinganna og láta þær ekki hafa of mikil áhrif á sig.  Í þessu sambandi er mikilvægt að efla gagnrýna hugsun og jákvæða og sterka sjálfsmynd unga fólksins.

Ef fólk þekkir til þess að auglýsing hefur misboðið fólki – og þá sérstaklega börnum – eða hefur á enhvern hátt ýtt undir slæma eða hættulega hegðun er æskilegt að auglýsendur sjálfir fái vitneskju um það sem og birtingaraðilinn (dagblað, tímarit, netmiðill, sjónvarps- eða útvarpsstöð).  

Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna 
fjallar um rétt barna til uppbyggjandi upplýsinga sem og rétt barna til verndar gegn skaðlegu efni.  Í 17. grein Barnasáttmálans segir:

Aðildarríki viðurkenna mikilvægi fjölmiðla, og skulu þau sjá um að barn eigi aðgang að upplýsingum og efni af ýmsum uppruna frá eigin landi og erlendis frá, einkum því sem ætlað er að stuðla að félagslegri, andlegri og siðferðislegri velferð þess, og líkamlegu og geðrænu heilbrigði. Aðildarríki skulu í þessu skyni:
...
e) Stuðla að því að mótaðar verði viðeigandi leiðbeiningareglur um vernd barns fyrir upplýsingum og efni sem skaðað getur velferð þess ...

 Ísland fullgilti Barnasáttmálann árið 1992.  Staðfesting hans felur í sér að Ísland er skuldbundið að þjóðarétti til að virða  og  uppfylla ákvæði samningsins.   Í 3. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar segir jafnframt: „Börnum skal tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst.

Lög og reglur um auglýsingar
Ákvæði um  markaðssetningu gagnvart börnum og auglýsingar er að finna í  þremur lagabálkum auk reglugerðar. Þar að auki er fjallað um auglýsingar um kvikmyndir og tölvuleiki í sérstökum lögum. 

Lög um eftirlit með viðskiptaháttum og  markaðssetningu nr. 57/2005 taka til allra auglýsinga hvernig og hvar sem þær eru birtar, þ.á.m. í fjölmiðlum. Í 7. gr. er fjallað sérstaklega um börn, bæði sem áhorfendur/hlustendur/lesendur og börn sem koma fram í auglýsingum:

Auglýsingar skulu miðast við að börn sjái þær og heyri og mega þær á engan hátt misbjóða þeim.
 Í auglýsingum verður að sýna sérstaka varkárni vegna trúgirni barna og unglinga og áhrifa á þau.
 Komi börn fram í auglýsingum skal þess gætt að sýna hvorki né lýsa hættulegu atferli eða atvikum er leitt geti til þess að þau eða önnur börn komist í hættu eða geri það sem óheimilt er.

Neytendastofa fer með eftirlit samkvæmt lögunum í umboði dómsmála- og mannréttindaráðherra. Vefsíða Neytendastofu er www.neytendastofa.is og tekur stofnunin við ábendingum um auglýsingar sem gætu stangast á við fyrrgreind lög.  Vefsíða talsmanns neytenda er www.talsmadur.is.  Öllum neytendum er heimilt að leita til talsmanns neytenda með erindi sín, en hann ákveður sjálfur hvort ábending gefur tilefni til meðferðar af hans hálfu.

Lög um fjölmiðla nr.38/2011 gilda um m.a. um dagblöð, tímarit ásamt fylgiritum þeirra, netmiðla, hljóð- og myndmiðla og aðra sambærilega miðla. Þar er í 28. gr. kveðið á um vernd barna gegn skaðlegu efni:

     Fjölmiðlaveitu sem miðlar hljóð- og myndefni er óheimilt að miðla efni, þar á meðal hljóð- og myndsendingum í viðskiptaskyni, sem getur haft skaðvænleg áhrif á líkamlegan, andlegan eða siðferðilegan þroska barna, einkum og sér í lagi efni sem felur í sér klám eða tilefnislaust ofbeldi.
     Frá bannákvæði 1. mgr. má gera eftirfarandi undantekningar:
a.
Eftir kl. 21 á kvöldin virka daga og eftir kl. 22 á kvöldin um helgar og til kl. 5 á morgnana er heimilt að miðla efni í línulegri dagskrá sem ekki er talið við hæfi barna að því tilskildu að á undan því sé birt skýr viðvörun og það sé auðkennt með sjónrænu merki, þegar um miðlun myndefnis er að ræða, allan þann tíma sem efninu er miðlað.
b.
Heimilt er að miðla efni í línulegri dagskrá sem ekki er talið við hæfi barna að því gefnu að tryggt sé með viðeigandi tæknilegum ráðstöfunum að útsendingin nái ekki til barna.
c.
eimilt er að miðla hljóð- og myndmiðlunarefni eftir pöntun sem ekki er talið við hæfi barna að því tilskildu að tryggt sé með viðeigandi tæknilegum ráðstöfunum að börn hafi ekki aðgang að því.
d. Heimilt er að miðla fréttum og fréttatengdu efni sem ekki er talið við hæfi barna að því tilskildu að það sé nauðsynlegur hluti af fréttaþjónustu viðkomandi fjölmiðils og að á undan því sé birt skýr viðvörun og það sé auðkennt með sjónrænu merki, þegar um miðlun myndefnis er að ræða, allan þann tíma sem efninu er miðlað verði því við komið.
     Undantekningarákvæði a- og b-liðar 2. mgr. taka ekki til hljóð- og myndefnis sem getur haft alvarleg skaðvænleg áhrif á líkamlegan, andlegan eða siðferðilegan þroska barna.
     Aðrar fjölmiðlaveitur skulu kappkosta að efni sem haft getur skaðvænleg áhrif á líkamlegan, andlegan eða siðferðilegan þroska barna sé þeim hvorki aðgengilegt né því miðlað til þeirra.

Um þessa grein segir m.a. í athugasemdum sem fylgdu frumvarpi til laga um fjölmiðla:

Ekki er unnt að skilgreina með tæmandi hætti hvaða efni fellur undir bannreglu 1. mgr. Vísað er til efnis sem getur haft skaðvænleg áhrif á þroska barna í víðtækasta skilningi og er efni sem felur í sér klám eða tilefnislaust ofbeldi sérstaklega nefnt í því sambandi. Þær tilvísanir leysa þó ekki vandann því hvorki klám né tilefnislaust ofbeldi eru einsleit hugtök að merkingu.
    Til fyllingar má þó segja að meginregla 1. mgr. frumvarpsgreinarinnar nái til efnis sem vegna inntaks, efnistaka eða siðferðisboðskapar getur vegna orðfæris eða athafna ógnað velferð barna. Við mat á þessu hlýtur jafnframt að verða horft til viðmiða í öðrum lögum sem með sama hætti er sérstaklega ætlað að vernda hagsmuni barna að þessu leyti, svo sem laga um eftirlit með aðgangi barna að kvikmyndum og tölvuleikjum, nr. 62/2006. Við alla reglusetningu af þessu tagi er þó nauðsynlegt að gæta þess að eðlilegt jafnvægi ríki á milli þeirra ráðstafana sem gerðar eru til að vernda líkamlegan, andlegan og siðferðilegan þroska barna annars vegar og tjáningarfrelsis hins vegar.

Í 37. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011 er að finna almennar meginreglur um viðskiptaboð:

Viðskiptaboð skulu vera auðþekkjanleg sem slík og vera skýrt afmörkuð frá öðru efni með þeim hætti sem best hentar því formi miðlunar sem notað er hverju sinni. Sama gildir um fjarkaup.
     Dulin viðskiptaboð eru óheimil. Í hljóð- og myndsendingum í viðskiptaskyni skal ekki beita tækni til að hafa áhrif á fólk neðan marka meðvitaðrar skynjunar.
     Viðskiptaboð og fjarkaup skulu ekki:
a. skerða virðingu fyrir mannlegri reisn,
b. fela í sér nokkra mismunun á grundvelli kynferðis, kynþáttar eða þjóðernis, ríkisfangs, trúarbragða eða trúarskoðana, fötlunar, aldurs, kynhneigðar eða vegna annarrar stöðu,
c. hvetja til hegðunar sem er hættuleg heilbrigði eða öryggi, eða
d. hvetja til hegðunar sem er í áberandi andstöðu við umhverfisvernd.
     Óheimil eru viðskiptaboð og fjarkaup fyrir tóbaksvörur og áfengi sem og happdrættis- og veðmálastarfsemi sem ekki hefur leyfi lögum samkvæmt hér á landi. Sama gildir um viðskiptaboð um lyfseðilsskyld lyf, eins og kveðið er á um í lyfjalögum. Fullyrðingar sem fram koma í viðskiptaboðum og fjarkaupainnskotum fyrir óáfengar drykkjarvörur þarf að vera hægt að færa sönnur á.

Í 38. gr. er svo kveðið á um vernd barna gegn ótilhlýðilegum viðskiptaboðum og fjarkaupum:

Viðskiptaboð og fjarkaup skulu vera þannig að ekki valdi börnum siðferðilegum eða líkamlegum skaða. Í viðskiptaboðum og fjarkaupum er óleyfilegt að:
a.
hvetja börn til þess að kaupa vöru eða þjónustu með því að notfæra sér reynsluleysi þeirra eða trúgirni,
b.
hvetja börn til þess að telja foreldra sína eða aðra á að kaupa vöru eða þjónustu sem auglýst er,
c.
hvetja börn til neyslu á matvælum og drykkjarvörum sem innihalda næringarefni og efni sem hafa næringar- og lífeðlisfræðileg áhrif og ekki er mælt með að séu í óhóflegum mæli hluti af mataræði, einkum fitu, transfitusýrur, salt/natríum og sykur,
d.
notfæra sér það sérstaka trúnaðartraust sem börn bera til foreldra, kennara eða annars fólks, eða
e. sýna börn að tilefnislausu við hættulegar aðstæður.

Í athugasemdum sem fylgdu frumvarpi til laga um fjölmiðla segir m.a:

Fyrirmæli frumvarpsgreinarinnar eiga það sammerkt að vera matskennd. Er fjölmiðlanefnd því ætlað nokkurt svigrúm við mat á því hvort einstakar viðskiptaorðsendingar eða fjarkaup brjóti í bága við þau og má búast við að inntak þeirra skýrist frekar í framkvæmd þegar á líður. Í ljósi þess að viðurlög við brotum á ákvæðinu felast í stjórnvaldssektum og/ eða refsingum er hins vegar ljóst að mat hér að lútandi sætir nokkrum skorðum jafnt að formi sem efni.
    Loks er rétt að taka fram að nokkur skörun er á milli áðurnefnds ákvæðis 7. gr. laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu annars vegar og frumvarpsgreinarinnar hins vegar. Frumvarpsgreinin tekur þó til allra viðskiptaorðsendinga og fjarkaupa auk þess sem hún hefur víðtækari skírskotun að öðru leyti. Neytendastofa fer með eftirlit með framkvæmd umrædds ákvæðis á sama hátt og annarra ákvæða nefndra laga og getur lagt stjórnvaldssektir á fyrirtæki sem brjóta gegn því auk þess sem slíkt brot varðar refsingu ef sakir eru miklar. Eðli málsins samkvæmt er ekki um það að ræða að bæði fjölmiðlanefnd og Neytendastofa geti lagt á stjórnvaldssekt vegna sama brotsins og er því ráð fyrir gert að umrædd stjórnvöld hafi með sér samráð í þeim málum sem upp koma að þessu leyti.

Í 41. gr. er kveðið á um vernd barna gegn auglýsingum í og í kringum barnaefni en 5. mgr. er svohljóðandi:

Auglýsingar og fjarkaupainnskot eru óheimil í dagskrá sem er ætluð börnum yngri en 12 ára. Bann þetta hefst 5 mínútum áður en dagskrá ætluð börnum yngri en 12 ára hefst og stendur þar til 5 mínútum eftir að útsendingu slíkrar dagskrár lýkur.

Miðað er við 12 ára aldurinn þar sem almennt er talið að fyrst um 12 ára aldru geti börn dregið eigin ályktanir og skilið efni af þessu tagi í réttu samhengi.

Fjölmiðlanefnd er sjálfstæð stjórnsýslunefnd sem heyrir undir mennta- og menningarmálaráðherra. Nefndin annast eftirlit samkvæmt lögum þessum og daglega stjórnsýslu á því sviði sem lögin ná til. Erindum vegna ætlaðra brota á ákvæðum laga þessara skal beint til fjölmiðlanefndar. Ákvörðunum fjölmiðlanefndar samkvæmt lögum þessum verður ekki skotið til annarra stjórnvalda.

Í lögum um eftirlit með aðgangi barna að kvikmyndum og tölvuleikjum nr. 62/2006 er fjallað um  sýningu og auglýsingar í 1. og 2. mgr. 2. gr:

 Bannað er að sýna börnum undir lögræðisaldri ofbeldiskvikmyndir og -tölvuleiki, sem og kvikmyndir eða tölvuleiki sem ógna velferð þeirra. Bönnuð er sýning, sala og önnur dreifing á slíku efni til barna sem hafa ekki náð lögræðisaldri.
 Meta skal allar kvikmyndir og tölvuleiki sem ætlaðir eru til sýningar, sölu eða annarrar dreifingar hér á landi fyrir börn undir lögræðisaldri með tilliti til þess hvort leyfa beri eða takmarka sýningu, notkun eða afhendingu á slíku efni við tiltekið aldursskeið innan lögræðisaldurs. Sama gildir um ítarefni sem dreift er með kvikmyndum og tölvuleikjum og kynningarefni fyrir kvikmyndir og tölvuleiki.

Þá segir í 4. mgr. 3. gr. sömu laga:

Í öllum auglýsingum og annarri kynningu á kvikmynd eða tölvuleik skal getið um aldurstakmörk skv. 2. mgr. 2. gr., sem og ef mynd eða leikur er aðeins ætlaður til sýningar eða notkunar fyrir einstaklinga sem náð hafa lögræðisaldri. Þegar birting auglýsingar eða annarrar kynningar á kvikmynd eða tölvuleik fer fram samhliða opinberri sýningu kvikmyndar eða er dreift með eintaki kvikmyndar eða tölvuleiks ber að fylgja 1. mgr. 2. gr.

Fjölmiðlanefnd fer með eftirlit með lögum  um eftirlit með aðgangi barna að kvikmyndum og tölvuleikjum nr. 62/2006. Erindum vegna ætlaðra brota á ákvæðum laga þessara skal beint til fjölmiðlanefndar, t.d. á netfangið fjolmidlanefnd@fjolmidlanefnd.is.

Engar opinberar reglur eru til um auglýsingar í seldu barnaefni, t.d. í myndefni á DVD diskum.

Nýjar leiðir í markaðssetningu
Markaðssetning hefur verið að þróast frá hinum hefðbundnu auglýsingum í t.d. prentmiðlum, sjónvarpi og kvikmyndahúsum. Verulega hefur færst í vöxt að menn reyni að gera markaðssetningu vöru þannig úr garði að ekki sé eins auðsýnilegt að um auglýsingu sé að ræða. Auglýsingatilgangurinn er ekki alltaf jafnskýr og í hefðbundinni auglýsingu og því þarf meiri reynslu og þroska til að „sjá í gegnum” markaðssetninguna. Sem dæmi má nefna SMS–leiki þar sem boðið er upp á mögulega vinninga fyrir þá sem senda sms skilaboð til fyrirtækis.  Þar með er viðkomandi símanúmer komið á skrá hjá fyrirtækinu, t.d. í SMS–klúbb, og eigandi símans getur átt von á að fá sendar auglýsingar frá fyrirtækinu með SMS–skilaboðum. Einnig má nefna netklúbba ýmiss konar og leiki og getraunir á netinu.

Í þessu sambandi má nefna 37. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011 um almennar meginreglur um viðskiptaboð sem birt er hér að ofan en þar segir í 1. og 2. mgr:

Viðskiptaboð skulu vera auðþekkjanleg sem slík og vera skýrt afmörkuð frá öðru efni með þeim hætti sem best hentar því formi miðlunar sem notað er hverju sinni. Sama gildir um fjarkaup.
Dulin viðskiptaboð eru óheimil. Í hljóð- og myndsendingum í viðskiptaskyni skal ekki beita tækni til að hafa áhrif á fólk neðan marka meðvitaðrar skynjunar.

Þá segir í 6. grein laga um eftirlit með viðskiptaháttum og  markaðssetningu nr. 57/2005:

Auglýsingar skulu þannig úr garði gerðar að ekki leiki vafi á að um auglýsingar sé að ræða. Skulu þær skýrt aðgreindar frá öðru efni fjölmiðla.
Auglýsingar og aðrar viðskiptaaðferðir skulu ekki vera ósanngjarnar gagnvart keppinautum eða neytendum vegna forms þeirra eða sökum þess að skírskotað er til óviðkomandi mála.
Auglýsingar sem höfða eiga til íslenskra neytenda skulu vera á íslensku.
Fullyrðingar sem fram koma í auglýsingum eða með öðrum hætti þarf fyrirtæki að geta fært sönnur á.

21. grein útvarpslaga nr. 53/2000 fjallar um kostun en einnig má nefna 16. grein sömu laga en þar segir:

Auglýsingar skulu vera auðþekkjanlegar sem slíkar og vera skýrt afmarkaðar frá öðru dagskrárefni með myndskilti eða hljóðmerki. Sama gildir um fjarsöluinnskot.
Duldar auglýsingar eru bannaðar, sem og dulin fjarsöluinnskot.
Í auglýsingum og fjarsöluinnskotum skal ekki beita tækni til að hafa áhrif á fólk neðan marka meðvitaðrar skynjunar.

Vöruinnsetning í hljóð- og myndefni gegn greiðslu er aldrei heimil í hljóð- og myndmiðlunarefni sem er ætlað börnum, skv. 3. mgr. 39. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011. Þó segir í athugasemdum frumvarpsins við þessa grein að frumvarpið geri þó ráð fyrir að vöruinnsetning í hljóð- og myndefni sem ætlað er börnum verði heimil að því tilskildu að vörur séu afhentar eða þjónusta veitt án endurgjalds, svo sem leikmunir eða  verðlaun, í því skyni að þær verði hluti af dagskrárlið.

Sýndarauglýsingar eru aldrei heimilar í hljóð- og myndmiðlunarefni sem ætlað er börnum, skv. 2. mgr. 40. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011. Sýndarauglýsing er skilgreind sem auglýsing sem ekki er til staðar á vettvangi upptöku myndefnis en er bætt við þannig að hún birtist við útsendingu eða annars konar miðlun efnis.

Börn og unglingar sem hafa aðgang að GSM–símum og nettengdum tölvum og geta notað þessi tæki að vild án eftirlits eru því berskjölduð fyrir alls kyns markaðssetningu, beinni og óbeinni.  Það er á ábyrgð foreldra að gera börnum sínum grein fyrir þessu og kenna þeim að bregðast við ef þeim finnst of langt gengið.  Opinberir aðilar geta ekki haft eftirlit með öllu sem fer fram á netinu auk þess sem  auglýsendur eru farnir að nýta sér beinan aðgang að neytendum í gegn um síma. Þess vegna er brýnt að almenningur láti vita þegar markaðssetning fer út fyrir mörk siðferðis eða laga.

Siðareglur um auglýsingar
Í  siðareglum Sambands íslenskra auglýsingastofa (SÍA) segir að auglýsingar skuli ekki innihalda boðskap, í orðum eða myndum, sem brýtur gegn almennri velsæmiskennd.  13. greinin fjallar svo sérstaklega um börn og unglinga:

1. Í auglýsingum skal ekki misnota hina eðlilegu trúgirni barna né reynsluskort yngri kynslóðarinnar og skal þess gætt að auglýsingar raski ekki samlyndi innan fjölskyldunnar.
2. Auglýsingar sem beint er til barna eða unglinga eða eru líklegar til að hafa áhrif á þá aldursflokka skulu ekki innihalda staðhæfingar eða myndir sem gætu skaðað hina yngri geðrænt, siðferðislega eða líkamlega.

Allir geta kært brot á siðareglum um auglýsingar til siðanefndar SÍA sem hefur aðsetur á skrifstofu Sambands íslenskra auglýsingastofa.   Heimasíða SÍA er www.sia.is.  Á árinu 1992 setti Verðlagsstofnun ásamt umboðsmönnum neytenda á Norðurlöndum sameiginlegar stefnumarkandi reglur um sjónvarpsauglýsingar.  Í 7. gr. reglnanna er fjallar sérstaklega um börn og auglýsingar.  Alþjóðaverslunarráðið hefur samþykkt leiðbeiningar við siðareglur sínar um auglýsingar þar sem tekið er á atriðum sem sérstaklega þarf að huga að þega auglýsingum er beint að börnum eins og t.d. auðkenningu og framsetningu auglýsinga ogáhrifum á gildismat og sannfæringu barna.  Siðareglur Alþjóðaverslunarráðsins má nálgast hér.  

Markaðssetning í skólum
Flestir eru á þeirri skoðun að börn og unglingar eigi að fá frið fyrir áreiti markaðarins innan veggja skólans.  Þó hefur það færst í vöxt að fyrirtæki og stofnanir óski eftir því að koma fróðleik um starfsemi sína á framfæri við grunnskólanemendur. Oft er um að ræða tilboð um samkeppnir, veggspjöld eða spil.  Er það undir skólastjórn hvers grunnskóla fyrir sig komið hvort slíkum tilboðum er tekið. Foreldrar, nemendur og starfsfólk skólanna geta haft áhrif á stefnu skólans varðandi markaðssókn innan skólans með því að senda skólaráði erindi með tillögu að breyttum vinnubrögðum. Þá hefur menntamálaráðuneytið beint því til sveitarfélaganna að setja sér reglur um auglýsingar í grunnskólum, sjá hér. Nú leita fyrirtæki í auknum mæli  inn í framhaldsskólana með því að gera samninga við nemendafélögin sem þurfa sjálf að afla fjár fyrir starfsemi sína. Þótt það sé í valdi hvers skóla fyrir sig að setja reglur um auglýsingar innan veggja skólans heyrir starfsemi nemendafélaga ekki undir skólastjórn og geta nemendafélögin því í raun tekið þeim tilboðum sem þeim hugnast.

Umboðsmaður barna og talsmaður neytenda eru þeirrar skoðunar að börn ættu að eiga rétt á ríkari vernd en lögin gera ráð fyrir, sjá kafla V. í Leiðbeinandi reglum í neytendavernd barna.

Þátttaka barna í markaðs- og skoðanakönnunum
Reglulega berast umboðsmanni barna erindi vegna þátttöku barna í markaðs- og skoðanakönnunum. Ýmist eru það foreldrar, kennarar eða aðilar sem vilja afla upplýsinganna sem hafa samband og eru skiptar skoðanir á því hvort rétt eða rangt sé að leggja sumar tegundir kannana fyrir börn og þá hvernig.

Í lok árs 2000 sendi fyrrverandi umboðsmaður barna, Þórhildur Líndal, frá sér álitsgerð um þátttöku barna í markaðs- og skoðanakönnunum. Álitsgerðin var birt í ársskýrslu embættisins fyrir árið 2000. Þessi álitsgerð er enn í gildi enda hafa ekki verið sett sérstök lög eða opinberar reglur um framkvæmd slíkra kannana.
 
Í álitsgerðinni beinir umboðsmaður barna þeim tilmælum til fyrirtækja, stofnana og annarra sem gera skoðanakannanir á Íslandi, að þau hafi í heiðri eftirgreint í samskiptum sínum við börn á Íslandi, þ.e. einstaklinga yngri en 18 ára.
 
Hlutverk foreldra:
Kynna þarf fyrir foreldrum-forsjáraðilum, skriflega, með hæfilegum fyrirvara að rannsókn/könnun á tilteknu efni meðal barna sé fyrirhuguð. Stutt lýsing á efni, sem og markmiðum rannsóknar/könnunar, hver sé ábyrgðaraðili og hverjir framkvæmi hana af hálfu ábyrgðaraðila. Gera verður foreldrum-forsjáraðilum grein fyrir því að barni þeirra er ekki skylt að svara einstökum spurningum né heldur yfirhöfuð að taka þátt í rannsókninni/könnuninni. Veita verður foreldrum-forsjáraðilum á einhvern hátt tækifæri á að hafna því að barn þeirra taki þátt í fyrirhugaðri rannsókn/könnun, að höfðu samráði við barnið. Fram þarf að koma að leyfi Tölvunefndar liggi fyrir vegna fyrirhugaðrar rannsóknar/könnunar.
 
Tilgangur og markmið:
Mikilvægt er, áður en rannsókn/könnun fer fram, að útskýra fyrir væntanlegum þátttakendum, hver sé tilgangurinn með rannsókninni/könnuninni og að hvaða markmiði er stefnt með henni. Spurningar þurfa að vera skýrt orðaðar og skiljanlegar börnum.
 
Framkvæmd:
Mjög mikilvægt er, áður en rannsókn/könnun fer fram, að útskýra fyrir væntanlegum þátttakendum, að þeir eigi rétt á að neita að svara einstökum spurningum og yfirhöfuð að taka þátt í rannsókninni/könnuninni. Lýsa ber í stórum dráttum framkvæmd rannsóknar/könnunar fyrir þátttakendum. Þá verður að gera þeim grein fyrir því að fullkominnar nafnleyndar og trúnaðar verði gætt við framkvæmd hennar. Einnig ber að gera grein fyrir því að frumgögnum verði eytt að rannsókn/könnun lokinni.
Fyrirtæki og stofnanir sem takast á hendur að kanna skoðanir barna eða gera annars konar skyldar rannsóknir þar sem börn eru viðfangsefni, gangast undir mikla ábyrgð. Framkoma þeirra í garð barna verður að einkennast af virðingu fyrir hverjum einstaklingi og skoðunum hans, og jafnframt virðingu fyrir þeim grundvallarsannindum að barn er aldrei einfaldlega rannsóknargagn heldur borgari í lýðræðisríki.

Áhrif markaðssetningar á börn
Börn geta ekki talist upplýstir og sjálfstæðir neytendur vegna áhrifagirni og reynsluleysis.  Samt sem áður eru börn og unglingar mikilvægur markhópur ýmissa framleiðenda og innflytjenda, bæði vegna eigin neyslu nú og í framtíðinni sem og áhrifa þeirra á innkaupavenjur foreldra sinna. Þrýstingur á börn um að vera „rétt” klædd og að eiga „réttu” hlutina kann að skapa streitu í fjölskyldum. Áreiti markaðarins er þannig farið að hafa áhrif á andlega líðan barna og greinilegt samband er á milli aukinnar neysluhyggju barna og minnkandi sjálfsálits þeirra og kvíða. Þetta kemur fram í Born to Buy: The Commercialized Child and the New Consumer Culture eftir Juliet B. Schor.

Athuganir sýna að matarauglýsingar hafa áhrif á val barna á malvælum, innkaupavenjur þeirra og neyslu, bæði þegar miðað er við vörumerki og vöruflokka.  Þau matvæli sem mest eru auglýst í sjónvarpi á þeim tíma er ætla má að börn séu að horfa eru yfirleitt með mikilli fitu, sykri eða salti.  Hjartavernd og evrópsk hjartaverndarfélög hafa látið taka saman skýrslu um markaðssetningu óhollrar fæðu: „Markaðssetning óhollrar fæðu sem beint er að börnum í Evrópu."  Nánar á www.hjarta.is.  

Ábyrgð þeirra fullorðnu
Það er fyrst og fremst á herðum foreldra að kenna börnum sínum að vega og meta þær upplýsingar sem koma fram í auglýsingum.  Mikilvægt er að börnin þjálfist í gagnrýnni hugsun og gæti þess að vera vakandi fyrir óbeinni markaðssetningu og áhrifum hennar.  Einnig er mikilvægt að huga að því að börnin fá stöku sinnum frið fyrir áreiti markaðarins, t.d. með því að hafa slökkt á sjónvarpinu og tölvunni.  Mismunandi er hversu mikla neytendafræðslu börn fá í skólunum en í lokamarkmiðum lífsleikni í Aðalnámskrá grunnskóla er gert ráð fyrir að nemendur hafi grundvallarþekkingu í réttindum neytenda, áhrifum auglýsinga, neyslu og fjármálum.  Hvað varðar auglýsingar í skólum þá geta skólastjórnendur sett reglur til að takmarka auglýsingar innan veggja skólans.

Foreldrar bera auðvitað fyrst og fremst ábyrgð á  velferð barna sinna en nauðsynlegt er að samfélagið í heild hjálpist að við að bjóða unga fólkinu upp á góð uppeldisskilyrði þar sem hlúð er að siðferðisvitund og virðingu. Framleiðendur auglýsinga þurfa sífellt að hafa í huga að börn líta heiminn öðrum augum en hinir fullorðnu og geta því lagt annan skilning í auglýsingu en fullorðið fólk. Ung börn eru iðulega áhrifagjarnari og síður gagnrýnin en þeir sem eldri eru.  Því er mikilvægt að finna hvar mörkin liggja og ofbjóða ekki börnunum eða gera þau beinlínis að þátttakendum í lítt ákjósanlegum eða ósæmilegum auglýsingum.  Ábyrgðin, sem allir í samfélaginu ættu að axla, snýst þó ekki aðeins um lög og reglur heldur ekki síður um virðingu fyrir rétti barna og unglinga til að vaxa og dafna í þroskavænlegu umhverfi.

Leiðbeinandi reglur um neytendavernd barna
Leiðbeiningarreglur þessar eru fremur hugsaðar til viðbótar gildandi laga- og leiðbeiningarreglum eða til stuðnings og útfærslu gildandi reglum. Í leiðbeiningarreglum þessum felst því ekki upptalning á þegar gildandi reglum.

Í leiðbeiningum þessum er leitast við að taka mið af þeim sjónarmiðum sem komið hafa frá um 100 aðilum, þ.e. hagsmunaðilum og sérfræðingum sem leitað hefur verið til, bæði í stjórnsýslu og víðar, frá ráðherrum og þingmönnum, hagsmunasamtökum, fræðasamfélagi og almannasamtökum auk einstaklinga. Almenningi gafst í desember 2008 þriggja vikna frestur til þess að gera athugasemdir við drög umboðsmanns barna og talsmanns neytenda að leiðbeiningum um aukna neytendavernd barna, frá 3. desember 2008. Reynt hefur verið að vega saman ólík og jafnvel andstæð sjónarmið.

Umboðsmaður barna og talsmaður neytenda vænta þess að reglurnar verði einnig hafðar að leiðarljósi þar sem það á við á öðrum sviðum en sérstaklega eru tilgreind hér að neðan.

I) Gildissvið og gildistaka
1. Aðeins starfsemi í arðsemisskyni
Utan við leiðbeiningarreglur þessar fellur hugsjónastarf og önnur starfsemi sem ekki hefur arðsemistilgang, t.d. kynning almannasamtaka á málstað sínum. Sama gildir um ýmsa áhugastarfsemi.

2. Gildistaka
Leiðbeiningareglur þessar gilda frá og með 15. mars 2009.

II) Almennar leiðbeiningarreglur
1. Ekki ætlað börnum
Vöru eða þjónustu, sem á ekki erindi til barna undir ákveðnum aldri, skal ekki markaðssetja gagnvart börnum á þeim aldri – hvorki beint né óbeint og óháð miðli og formi markaðssóknar.

2. Gagnsæi
Hafa ber einfaldleika og gagnsæi að leiðarljósi í framsetningu skilmála, verðskrár og annars þegar vara eða þjónusta er boðin börnum sérstaklega eða höfðar einkum til þeirra.

3. Aðgreining
Aðgreina ber auglýsingar og aðra markaðssókn frá öðru efni miðla. Ekki skal greiða börnum fyrir að markaðssetja vöru eða þjónustu eftir óhefðbundnum og duldum leiðum, svo sem með bloggi eða vinatengslum.

4. Heilbrigði
Markaðssókn, sem beinist að börnum, á að leitast við að miðla heilbrigðri líkamsmynd og mannvirðingu og forðast óheilbrigðar staðalmyndir.

5. Happdrætti
Happdrætti í hagnaðarskyni og fjárhættuspil eiga ekkert erindi til barna. Spilakassar og sjálfsalar fyrir happdrættismiða og þvíumlíkt skulu ekki vera þar sem börn venja komur sínar eftirlitslaust, t.d. nærri skóla- eða æskulýðsstarfsemi.

6. Söfnunar- og happaleikir
Forðast skal í almennri markaðssókn að notast við söfnunar- eða happaleiki sem beinast sérstaklega að börnum eða annað sem höfðar til söfnunartilhneigingar barna. Slík markaðssókn skal ekki viðhöfð þegar um er að ræða sykraða drykki og matvöru og aðrar matvörur sem ekki eru hollar í miklu magni.

7. Markpóstur
Markaðssetning á vöru eða þjónustu gagnvart börnum undir framhaldsskólaaldri – einnig í fyrirliggjandi viðskiptasambandi – skal ávallt fara í gegnum þann sem fer með forsjá barns. Óumbeðinn markpóstur frá fyrirtækjum á ekki að beinast að börnum undir framhaldsskólaaldri jafnvel þó að fyrir liggi viðskiptasamband milli fyrirtækis og barns.

8. Fjölskylduvænar dagvöruverslanir
Í dagvöruverslunum skal leitast við að ekkert sælgæti, flögur, gos eða þvíumlíkt sé nærri kassa og a.m.k. sé tryggt að einn kassi sé laus við slíkar vörur í verslunum þar sem eru fleiri en tveir kassar. Auk þess er mælst til þess að auðvelt sé fyrir fólk með börn að ganga um dagvöruverslun en sneiða hjá matvælum, sem höfða sérstaklega til barna og hafa hátt innihald sykurs, salts, fitu eða transfitu – einkum ef þau eru í sjónhæð barna.

9. Kynferðislegt opinskátt efni
Kynferðislega opinskátt efni skal ekki vera áberandi í verslunum þar sem börn venja komur sínar.

10. Ofbeldi og klám
Beint og gróft ofbeldi eða kynferðisleg skírskotun á vörum eða í þjónustu á ekki erindi til barna.

11. Síhringikort
Fram til 18 ára aldurs skal aðeins boðið upp á debetkort sem eru síhringikort.

12. Afsláttarkort
Ekki skal bjóða börnum afsláttarkort (þ.m.t. félagskort, söfnunarkort og vildarkort) sem beinast að notkun barnsins sjálfs fyrr en við 15 ára aldur nema forsjáraðili óski eftir því.

III) Hollusta matvæla
1. Óholl matvæli
Forðast skal markaðssókn gagnvart börnum á matvælum með hátt innihald sykurs, salts, fitu og transfitu.

2. Hollustumerki
Ef opinbert hollustumerki verður tekið upp skal leitast við að aðeins matvæli, sem uppfylla kröfur þess hollustumerkis, séu
- nærri kassa,
- auglýst í kringum bíósýningar og á DVD-diskum fyrir ung börn;
- markaðssett með aðstoð kaupauka sem höfðar sérstaklega til barna;
- markaðssett með þekktum teiknimyndafígúrum eða frægum persónum sem höfða sérstaklega til barna,
- auglýst eða boðin til sölu á áberandi stað í sundlaugum og íþróttamannvirkjum;
- framvegis með nafngift, sem gefur í skyn hollustu og eru sérstaklega ætluð fyrir börn.

IV) Markaðssókn í og á sjónvarpsefni, kvikmyndum og öðru stafrænu myndefni fyrir börn
1. Barnaefni
Engar auglýsingar ættu að vera í sjónvarpi í barnatíma.

2. Selt barnaefni
Gæta skal hófs í auglýsingum í seldu barnaefni á DVD-diskum.

3. Matvælaauglýsingar
Ef matvæli eru auglýst 10 mínútum fyrir eða 2 mínútum eftir barnatíma eða annað efni sem höfðar til barna yngri en 12 ára skulu það aðeins vera matvæli sem geta talist holl. Vöru- og kennimerki kostunaraðila með slíkar vörur skulu ekki sýnd eða nefnd í tengslum við barnaefni.

4. Vöruinnsetning
Vöruinnsetning er ávallt óheimil í barnaefni.

5. Bannað börnum
Ekki má auglýsa eða markaðssetja fyrir börn tölvuleiki, DVD-diska og þvíumlíkt ef það efni er ekki ætlað börnum á þeim aldri. Óheimilt er með öllu er að sýna kynningar fyrir myndir sem ekki má sýna á þeim tíma nema ljóst sé að kynningin uppfylli kröfur um efni sem heimilt er að sýna á þeim tíma. Ekki má heldur kynna í tengslum við barnasýningar í kvikmyndahúsum kvikmyndir, vöru eða þjónustu sem ekki er ætluð börnum á þeim aldri.

V) Skólar og æskulýðsstarfsemi
1. Framhaldsskólar 
Auglýsingar, kostun og önnur markaðssókn eða kynning skal aðeins heimil með skriflegu leyfi skólameistara eða fulltrúa hans. Skal leyfið gefið sérstaklega í hvert sinn eða fyrirfram fyrir tiltekinn tíma.

Samningar sem nemendafélag gerir til hagsbóta fyrir félagsmenn skulu vera
• gagnsæir og aðgengilegir nemendum og
• kynntir skólameistara fyrirfram.

Stjórnarmenn eða aðrir fulltrúar nemendafélaga mega ekki hagnast eða njóta nokkurra persónulegra hlunninda umfram aðra frá fyrirtæki vegna viðskipta eða markaðssetningar sem nemendafélagið hefur milligöngu um.

Nemendafélag gefur ekki fyrirtækjum upp persónulegar upplýsingar á borð við GSM-númer, heimilisfang eða netfang nemenda til notkunar í markaðssetningu. Óheimilt er fyrirtækjum að notast við nemendalista í markaðssetningu. Ef félagið kýs að hafa milligöngu við markaðssetningu með því að hringja í félagsmenn, senda þeim tölvupóst eða afhenda límmiðalista skal áður gefa öllum félagsmönnum kost á að andmæla því, hverjum fyrir sitt leyti, að vera á slíkum lista.

2. Grunnskólar og leikskólar  
Engar auglýsingar skulu vera í grunnskólum eða leikskólum né önnur markaðssókn. Kynning á æskulýðs-, íþrótta- og tómstundastarfsemi sveitarfélaga er þó heimil. Þá er kostun á starfi innan skólans heimil með samþykki skólastjóra með hliðsjón af stefnu sveitarfélags og foreldrafélags ef það stendur fyrir viðburði á vettvangi skólans. Skólabörn í hefðbundnu skólastarfi skulu þó ekki merkt kostunaraðila með áberandi hætti. Skilyrði er að merki kostunaraðila sé ekki sýnt sérstaklega eða auglýst á staðnum. Kostun á námsefni er einungis heimil eftir því sem reglur sveitarfélags kveða á um.

3. Trúarlegt starf 
Sömu viðmið eiga við í trúarlegu starfi og í grunn- og leikskólum en í stað samþykkis skólastjóra komi samþykki forstöðumanns trúfélags.

4. Sundlaugar og önnur íþróttamannvirki
Við markaðssetningu og sölu í íþróttamannvirkjum þar sem búast má við börnum skal hollusta og heilbrigði höfð í fyrirrúmi.

5. Íþrótta- og æskulýðsstarfsemi 
Stjórnarmenn eða starfsmenn íþrótta- og æskulýðsfélaga mega ekki hagnast eða njóta nokkurra persónulegra hlunninda umfram aðra frá fyrirtæki vegna viðskipta eða markaðssetningar sem félagið hefur milligöngu um. Kostun á vettvangi æskulýðsstarfsemi á vegum sveitarfélags, þ.m.t. foreldrafélaga, sé háð almennum reglum sem sveitarfélag setur sér. Þar skal m.a. tekin afstaða til þess hvort eðlilegt er að börn séu merkt kostunaraðila.

Fyrst út gefið í Reykjavík,
hinn 28. janúar 2009









 Lög og reglur  

Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands 
Barnasáttmálinn 
Barnalög nr. 76/2003 

Lögræðislög nr. 71/1997
Lög um eftirlit með viðskiptaháttum og  markaðssetningu nr. 57/2005 
Lög um fjölmiðla nr. 38/2011  

Ný sjónvarpstilskipun Evrópuþingsins og ráðsins, 2007/65/EB 

Tenglar   

mennta_og_menningarmalaraduneytid
innanrikisraduneytid
    
 
 
  

  

fjolmidlanefnd
 
 

Sameiginlegar stefnumarkandi reglur um sjónvarpsauglýsingar
settar af umboðsmönnum neytenda á Norðurlöndum og Verðlagsstofnun árið 1992

Af Vísindavefnum
• Geta a
uglýsingar haft bein áhrif á börn?

 
Af vef Neytendasamtakanna
 
 
 
 
 

Nýjar leiðir í markaðssetningu
 
Börn og unglingar eru markaðshópur sem í síauknum mæli er reynt að höfða til.  Ástæðurnar eru m.a. áhrif þeirra á innkaup heimilanna, vaxandi fjárráð þeirra og aukin notkun þeirra á vörum ætluðum fullorðnum.  Markaðsþrýstingur á 12-16 ára börn er sífellt að aukast.
 
Út er komin skýrsla þar sem kortlagðar eru nýjar leiðir í markaðssetningu sem notaðar eru til að ná til barna og unglinga á Norðurlöndum.  Verkefnið er unnið að ósk norrænu ráðherranefndarinnar og tekur það til 12-16 ára barna. 
 
Hægt er að lesa skýrsluna hér á vef norrænu ráðherranefndarinnar.