Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga



Ráðgjöf og lesefni um börn og erfiðar breytingar í fjölskyldunni

Börn ráða ekki yfir þeim varnarháttum sem fullorðnir nota undir álagi. Viðbrögð barns við áföllum og álagi fara einkum eftir því hvernig fyrirmyndir þess, þ.e. foreldrarnir, bregðast við erfiðleikunum, hvort sem þau takast á við vandann eða flýja hann.  Foreldrar og uppalendur geta gert mikið gagn með því að kynna sér hvað álagsþættir og breytingar geta haft í för með sér fyrir barnið, miðað við aldur þess og þroska, og nýta sér þá þekkingu til að hjálpa barninu að aðlagast breytingum. Handleiðsla foreldra sem leitað hafa faglegrar ráðgjafar eða lesið sér til um sálræna og félagslega erfiðleika barna getur skipt sköpum hvað varðar andlega heilsu barnsins þegar fram í sækir. Þá er oft gagnlegt fyrir foreldra sem eiga í samskiptavanda að þiggja ráðgjöf fagfólks til að leysa mál sín, með hagsmuni barnsins í huga.

Ráðgjöf

  • Flest stærri sveitarfélög bjóða íbúum sínum upp á fjölskylduráðgjöf í samræmi við lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Hér er hægt að nálgast heimasíður sveitarfélaganna. Í Reykjavík fer þessi þjónusta fram á þjónustumistöðvunum.
  • Sýslumaður skal bjóða aðilum forsjár-, umgengnis- og dagsektarmála sérfræðiráðgjöf til að aðstoða þá við að finna lausn máls með tilliti til þess sem er barni fyrir bestu. Sá sem veitir ráðgjöf getur rætt við barn, sem mál varðar, telji hann það þjóna hagsmunum þess, enda séu forsjárforeldrar því samþykkir.  Sýslumaður getur látið hjá líða að bjóða sérfræðiráðgjöf ef hann telur hana ónauðsynlega eða tilgangslausa. Á sameiginlegum vef sýslumanna er hægt að nálgast upplýsingar um verkefni sýslumanna og einstök embætti.
  • Foreldrahús starfrækir fjölskylduráðgjöf þar sem boðið er upp á fjölskylduviðtöl, einkaviðtöl og hjónaviðtöl. Foreldrasíminn er opinn allan sólarhringinn og foreldrum og öðrum aðstandendum er ávallt velkomið að hringja. Síminn er 581-1799.  Nánari upplýsingar á vefsíðu Vímulausrar æsku.
  • Fjölskyldumiðstöðin býður foreldrum ráðgjafar- og meðferðarstarf síðdegis og á kvöldin. Starfið er tvíþætt; fyrir börn/unglinga annars vegar og foreldra/forráðamenn hins vegar. Nánari upplýsingar á vefsvæði Fjölskyldumiðstöðvarinnar.
  • Fjölskylduþjónusta kirkjunnar er þjónusta við hjón, fólk í sambúð, fjölskyldur og einstaklinga sem finnst þeir vera í einhvers konar vanda í samskiptum við sína nánustu. Nánari upplýsingar á vefsvæði Fjölskylduþjónustunnar.
  • Samtökin Barnaheill veita ókeypis uppeldis- og lögfræðiráðgjöf í síma.  Foreldralínan, s. 561-0600, er opin alla virka daga frá kl. 10 til 12 nema föstudaga.  Nánar hér á vefsvæði Barnaheilla.
  • Kvennaráðgjöfin býður konum og körlum upp á ókeypis félagslega og lögfræðilega ráðgjöf í síma 552-1500 á þriðjudögum kl. 20-22 og á fimmtudögum kl. 14-16.
  • Sjónarhóll veitir foreldrum barna með sérþarfir stuðning og ókeypis ráðgjöf um möguleika og úrræði í kerfinu.  Nárari upplýsingar á vefsvæði Sjónarhóls.
  • Ýmsir einkaaðilar sinna sálfræðimeðferð, félagsráðgjöf og fjölskylduráðgjöf, sjá t.d. í gulu síðum símaskrárinnar.
Tillögur að lesefni
  • Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal. Barnasálfræði frá fæðingu til unglingsára. Reykjavík. 1995.
  • Benedikt Jóhannsson. Börn og skilnaður. Reykjavík. 1996.
  • Berghildur Erla Bernharðsdóttir: „Ljáðu mér eyra - Börn og áföll” í Uppeldi, 5. tbl. 14. árg, bls. 34-40.
  • Christophersen ER, Mortweet SL. Uppeldisbókin : að byggja upp færni til framtíðar. Gyða Haraldsdóttir og Matthías Kristianse þýddu. Reykjavík. 2004.
  • Gossen, Diane. Barnið mitt er gleðigjafi. Fanny Kristín Tryggvadóttir og Magni Hjálmarsson þýddu. Álftanes. 2008. Vefsíða: www.sunnuhvoll.com.
  • Guðný Björk Eydal. „Sorg barna” í Uppeldi, 4. tbl. 9. árg, bls. 37 - 40.
  • Manniche, Vibeke. Bókin um barnið. Meðganga, fæðing og fyrstu sex ár barnsins. Reykjavík. 1997.
  • Sigrún Júlíusdóttir ritstj. Barnafjölskyldur. Samfélag – lífsgildi – mótun. Reykjavík. 1995.
  • Sigrún Júlíusdóttir og Nanna K. Sigurðardóttir. Áfram foreldrar. Rannsókn um sameiginlega forsjá og velferð barna við skilnað foreldra. Reykjavík. 2000.
  • Sigrún Júlíusdóttir, Jóhanna Rósa Arnardóttir og Guðlaug Magnúsdóttir. Ungmenni og ættartengsl. Rannsókn um reynslu og sýn skilnaðarungmenna. Reykjavík 2008.
  • Sæmundur Hafsteinsson í samvinnu við Jóhann Inga Gunnarsson. Lengi muna börnin. 102 atriði til umhugsunar fyrir foreldra. Reykjavík. 1995. Efni bókarinnar má finnar á vef Foreldrahúss.
  • Sæunn Kjartansdóttir: Árin sem engin man. Áhrif frumbernskunnar á börn og fullorðna. Reykjavík. 2009.
  • Quinn, Michael og Terri. Núll til sex ára. Uppeldi barna frá fæðingu til sex eða sjö ára aldurs. Útgefandi á Íslandi er Eignarhaldsfélagið Hof í samvinnu við Ólaf Grétar Gunnarsson og Family Caring Trust. Vefsíða: www.saga.is/foreldranam.

Fyrir börnin

  • Huebner, Dawn. Hvað get ég gert við of miklar áhyggjur? Árný Ingvarsdóttir og Thelma Gunnarsdóttir sálfræðingar þýddu bókina. Vefsíða: hvadgeteggert.is.
  • Huginn Þór Grétarsson. Blómlegt fjölskyldulíf. Hafnarfjörður 2008. Stuðningsrit fyrir skilnaðarbörn.
Upplýsingar á Netinu
 
Ábendingar um efni sem á heima í þessum lista eru vel þegnar. Vinsamlegast sendið tillögur til vefstjóra.