22. desember 2008
| Fréttir 2008
Umboðsmaður barna óskar öllum börnum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Nánar
18. desember 2008| Fréttir 2008Í dag var opið hús hjá umboðsmanni barna þar sem gestir þáðu heitt súkkulaði og smákökur. Stór hópur barna frá leikskólanum Laufásborg sungu jólalög og nemendur úr 10. bekk Austurbæjarskóla fluttu frumsamin ljóð. Var þeim vel fagnað af gestum og kann umboðsmaður barna þeim bestu þakkir.
Nánar
16. desember 2008| Fréttir 2008Fimmtudaginn 18. desember nk. verður opið hús hjá umboðsmanni barna frá kl. 10 - 12. Börn frá leikskólanum Laufásborg syngja jólalög og nemendur frá Austurbæjarskóla flytja frumsamin ljóð. Boðið verður upp á heitt súkkulaði og smákökur.
Nánar
15. desember 2008| Fréttir 2008Í desember hefur umboðsmaður barna, Margrét María Sigurðardóttir, heimsótt nokkra leikskóla á höfuðborgarsvæðinu ásamt starfsmanni embættisins, Eðvaldi Einari Stefánssyni.
Nánar
11. desember 2008| Fréttir 2008Umboðsmaður barna leggur ríka áherslu á að börn og fullorðnir geti ávallt haft samband við skrifstofuna. Nýlega var símakerfið endurnýjað á skrifstofunni sem og nýr símsvari sem hægt er að lesa inn á skilaboð ef skrifstofan er lokuð.
Nánar
05. desember 2008| Fréttir 2008Spurningakeppni meðal grunnskólanema í tilefni af alþjóðlega netöryggisdeginum. SAFT, vakningarátak Heimilis og skóla um örugga og jákvæða notkun nets og annarra miðla, stendur í samstarfi við INSAFE, evrópska samstarfsnetið um örugga netnotkun, fyrir spurningakeppni meðal 10-15 ára nemenda í tilefni af alþjóðlega netöryggisdeginum sem haldinn verður hátíðlegur í 50 löndum þann 10. febrúar 2009.
Nánar
04. desember 2008| Fréttir 2008Umboðsmaður barna og talsmaður neytenda birta nú til umsagnar næstu þrjár vikur lokadrög leiðbeininga um aukna neytendavernd barna sem unnið hefur verið að í víðtæku samráði við hagsmunaaðila í nær þrjú ár.
Nánar
03. desember 2008| Fréttir 2008Í dag, 3. desember, er alþjóðlegur dagur fatlaðra. Í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, nánar til tekið í 23. gr., er fjallað um réttindi barna með fötlun og skyldur aðildarríkjanna til að tryggja börnum með fötlun réttindi sín án mismununar af nokkru tagi
Nánar
03. desember 2008| Fréttir 2008Samstarfshópur á vegum menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Kennarasambands Íslands og Landlæknisembættis hefur komið saman til að ræða hvernig best megi koma til móts við kennara og annað starfsfólk skóla sem er að takast á við það alvarlega efnahagsástand sem blasir við íslenskum fjölskyldum.
Nánar
27. nóvember 2008| Fréttir 2008Ráðstefnan Að marka spor verður haldin mánudaginn 1. desember nk. í húsnæði menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkholt, Skriðu. Það eru Félag leikskólakennara og RannUng sem standa fyrir ráðstefnunni sem er sú fyrsta sem haldin er um rannsóknir í menntunarfræðum ungra barna.
Nánar