Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga



Stutt umfjöllun um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins eða Barnasáttmálinn, eins og hann er oft kallaður, var samþykktur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 20. nóvember 1989. Hann var undirritaður fyrir Íslands hönd þann 26. janúar 1990, Alþingi heimilaði ríkisstjórn að fullgilda hann með ályktun 13. maí 1992 og öðlaðist hann gildi að því er Ísland varðar hinn 27. nóvember 1992.

Barnasáttmálinn hefur verið staðfestur af 192 aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna og er hann sá mannréttindasamningur sem hefur verið staðfestur af flestum þjóðum.
 
Samningurinn felur í sér alþjóðlega viðurkenningu á að börn séu hópur sem þarfnist sérstakrar verndar umfram hina fullorðnu og að réttinda þeirra hafi ekki verið nægilega gætt í fyrri mannréttindasamningum. Jafnframt felst í honum viðurkenning á því að börn séu sjálfstæðir einstaklingar með eigin réttindi; þau eigi sjálfstæð réttindi – óháð réttindum fullorðinna.
 
Barnasáttmálinn hefur að geyma réttindi mjög víðtæks eðlis. Hann kveður á um vernd tiltekinna grundvallarmannréttinda barna, svo sem réttinn til lífs, friðhelgi fjölskyldu- og einkalífs, félaga-, skoðana-, tjáningar- og trúfrelsis. Jafnframt leggur hann skyldur á aðildarríkin til að grípa til aðgerða til að tryggja velferð barna, m.a. á sviði mennta-, heilbrigðis- og félagsmála. Samningurinn hefur ítarlegan inngang og 54 efnisgreinar. Þar af fjallar 41 efnisgrein um hvaða réttinda öll börn skuli njóta en hinar 13 greinarnar fjalla um hvernig samningnum skuli framfylgt. Ákvæði samningsins skal skoða heildstætt – efnisreglurnar ber því að lesa og túlka í samhengi.
 
Samningurinn hefur ekki verið lögfestur á Íslandi eins og Mannréttindasáttmáli Evrópu en fullgilding hans felur í sér að Ísland er skuldbundið að þjóðarétti til að virða og uppfylla ákvæði hans.
 
Samkvæmt samningnum ber aðildarríkjunum að kynna efni hans með virkum hætti jafnt fyrir börnum sem fullorðnum. Er það mikilvæg forsenda þess að borgararnir geti veitt stjórnvöldum virkt aðhald í þessu efni.









 
 

Barnasáttmálinn er réttindasáttmáli.  Eðli málsins samkvæmt fjallar hann aðeins um réttindi barna - ekki um skyldur þeirra. 

Öllum réttindum fylgja þó skyldur.  Um þær er fjallað í lögum og reglugerðum.

 
Bók með ákvæðum Barnasáttmálans á ensku eftir Vigdísi Másdóttur