Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga



Um Sameinuðu þjóðirnar

Heimasíða Sameinuðu þjóðannaSameinuðu þjóðirnar eru sérstök samtök sjálfstæðra ríkja sem hafa sjálfviljug sameinast um að vinna að friði og að efnahagslegum og félagslegum framförum í heiminum. Sameinuðu þjóðirnar voru formlega stofnaðar 24. október 1945 með þátttöku 51 ríkis. Í dag eru aðildarríkin orðin 192. Alþingi Íslendinga samþykkti hinn 25. júlí 1946 að sótt yrði um aðils Íslands að Sameinuðu þjóðunum. Hinn 9. nóvember 1946 var aðildarumsókn Íslands samþykkt.

Sameinuðu þjóðirnar koma ekki fram fyrir hönd neinnar sérstakrar ríkisstjórnar eða þjóðar. Þær eru frekar eins konar félag fullvalda ríkja og geta aðeins gert það sem aðildarríkin vilja að þær geri. Eiginlega eru þær eins konar alþjóðavettvangur þar sem sjálfstæð ríki hittast til að ræða heimsmál sem hafa áhrif á einstök lönd eða löndin í sameiningu. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna er samkoma fulltrúa allra meðlima Sameinuðu þjóðanna sem hittast a.m.k. árlega og kjósa um ýmis mál. Þingið getur ályktað í tillöguformi um hvers kyns alþjóðamál.

Tilgangur Sameinuðu þjóðanna er fjórþættur:

  • Að viðhalda friði í heiminum;
  • Að þróa friðsamleg tengsli milli þjóða;
  • Að vinna í sameiningu að því að bæta lífskjör fátæks fólks, sigrast á hungri, sjúkdómum og ólæsi og að hvetja til virðingar fyrir gagnkvæmum réttindum og frelsi;
  • Að vera vettvangur til að hjálpa þjóðum að ná þessum markmiðum.

Ýmsar stofnanir eru starfræktar á vegum Sameinuðu þjóðanna, t.d. Alþjóða matvælastofnunin, Alþjóða heilbrigðisstofnunin, Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna og Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna.

Nánari upplýsingar um Sameinuðu þjóðirnar er að finna á vefsíðu Upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna fyrir Norðurlönd (UNIC) og á vefsíðu Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.