Aðrir alþjóðlegir samningar og yfirlýsingar er varða réttindi barna
Almennt er talið að alþjóðlegir mannréttindasamningar og yfirlýsingar taki til réttinda barna jafnt og fullorðinna þó þess sé ekki sérstaklega getið í þeim.
Sama má segja um samning um verndun mannréttinda og mannfrelsis sem samþykktur var í Evrópuráðinu þann 4. nóvember 1950. Hann er almennt kallaður Mannréttindasáttmáli Evrópu og öðlaðist gildi að því er Ísland varðar þann 3. september 1953. Hann var lögfestur þann 30. maí 1994 og er eini alþjóðlegi mannréttindasamningurinn sem lögleiddur hefur verið hér á landi.
Ýmsir alþjóðlegir samningar eða yfirlýsingar hafa vikið að sérstökum réttindum barna. Nefna má yfirlýsingu Þjóðabandalagsins um réttindi barna sem samþykkt var í Genf 1924. Í Genfaryfirlýsingunni um réttindi barna, eins og hún er oft kölluð, var kveðið á um skyldur hinna fullorðnu gagnvart börnum í fimm meginatriðum. Segja má að hún sé forveri Barnasáttmálans.
Þann 20. nóvember 1959 samþykkti allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna yfirlýsingu um réttindi barnsins. Í henni var vísað til þess að vegna líkamlegs og andlegs vanþroska eigi börn rétt á sérstakri umönnun og vernd og hafði hún að geyma 10 meginreglur. Hún fól í sér áskorun til ríkisstjórna, sveitarstjórna, hjálparsamtaka, foreldra og einstaklinga um að virða réttindi barna og tryggja framkvæmd reglnanna með lagasetningu og öðrum hætti.
Er tuttugu ár voru liðin frá samþykkt yfirlýsingar þessarar, árið 1979, var ákveðið að árið 1980 skyldi verða ár barnsins en þá skyldi athygli heimsins beint að málefnum barna, aðbúnaði þeirra og kjörum. Jafnframt var hafinn undirbúningur að gerð Barnasáttmálans.
Aðrir alþjóðlegir samningar
Ísland er aðili að Samningi um einkaréttarleg áhrif af brottnámi barna til flutnings milli landa (Haag-samningurinn) og Evrópusamningi um viðurkenningu og fullnustu ákvarðana varðandi forsjá barna og endurheimt forsjár barna. Markmið Haag-samningsins er sérstaklega að leysa úr þeim vandamálum sem leiða af því að annað foreldra barns flytur barnið með ólögmætum hætti frá einu samningsríki til annars. Með því að gerast aðili að samningnum skuldbinda ríkin sig til að afhenda brottnumið barn, komi fram umsókn um afhendingu þess. Í fylgiskjölum við
frumvarpi til laga nr. 160/1995 er að finna þessa tvo samninga. Í
lögum um viðurkenningu og fullnustu erlendra ákvarðana um forsjá barna, afhendingu brottnuminna barna o.fl. nr. 160/1995 er mælt fyrir um hvernig hagað skuli meðferð máls vegna brottnáms barns til Íslands eða hald barns á Íslandi. Haag-samningurinn gildir aðeins ef barnið sem í hlut á er yngra en 16 ára. Nánar um ólögmætt brottnám barna til Íslands er að finna
hér á síðu dómsmálaráðuneytisins.
Prentvæn útgáfa